Fréttablaðið - 05.12.2020, Qupperneq 10
Snjóblásarar
Við erum með
eitt stærsta
snjóblásara
úrval landsins.
Hjá okkur
finnur þú rétta
snjóblásarann
handa þér.
ÞÓR FH
Akureyri:
Baldursnes 8
603 Akureyri
Sími 568-1555
Opnunartími:
Opið alla virka daga
Lokað um helgar
Reykjavík:
Krókháls 16
110 Reykjavík
Sími 568-1500
Vefsíða og
netverslun:
www.thor.is
FULLKOMIN
BLANDA
fyrir notalegasta tíma ársins
Hafðu samband í síma 568 8000
eða pantaðu gjafakort á borgarleikhus.is
Gefðu
kæró
drama
um jólin
ORKUMÁL „Ég beygi mig ekki fyrir
ranglæti, yfirgangi og frekju,“ segir
Jón Heiðar Guðjónsson eigandi
Ferðaþjónustunnar Reykjanesi í
Ísafjarðardjúpi þar sem deilt er um
nýtingarrétt á heitu vatni.
Jón Heiðar hefur rekið Hótel
Reykjanes eftir að hafa á árinu
2002 keypt af ríkinu byggingar
Héraðsskólans í Reykjanesi sem
hætti starfsemi 1991. Þar er mikill
jarðhiti og hefur heita vatnið verið
nýtt til að hita upp byggingarnar á
staðnum og ríf lega fimmtíu metra
langa sundlaug sem þar er. Jón
Heiðar segir núverandi eigendur
hafa varið hundruðum milljóna
króna, bæði úr eigin vasa og svo
allan ágóða af ferðaþjónustunni,
í uppbyggingu á staðnum. Óleyst
deila um nýtingarréttinn á heita
vatninu setji framtíð rekstrarins
hins vegar í algera óvissu.
Staðan á Reykjanesi er býsna
f lókin. Ferðaþjónustan á bygg-
ingarnar en Ísafjarðarbær á landið
undir þeim þótt það sé í lögsögu
Súðavíkurhrepps. Ferðaþjónustan
fékk nýtingarleyfi á jarðhitanum
frá Orkustofnun en Ísafjarðarbær
og Orkubú Vestfjarða, sem er í
eigu ríkisins, fengu leyfisveiting-
unni hnekkt fyrir úrskurðarnefnd
umhverfis- og auðlindamála í ágúst
í fyrra. Úrskurðarnefndin sagði
uppi f lókinn ágreining sem hvorki
nefndin né Orkustofnun væru
bærar til að skera úr um.
„Skorti Orkustofnun allar for-
sendur til þess að líta svo á að
umsækjandi nýtingarley f isins
hefði með svo ótvíræðum hætti
sýnt fram á rétt sinn til þess að nýta
auðlind þá sem um ræðir að gefa
skyldi leyfið út honum til handa,“
sagði úrskurðarnefndin og benti
á að Ferðaþjónustan gæti leitað til
dómstóla til að fá viðurkenningu á
þeim rétti sem félagið teldi sig eiga.
Jón Heiðar er ósáttur við að
Orkubú Vestfjarða og Ísafjarðar-
bær gefi ekki eftir enda telji hann
sig eiga ótvíræðan nýtingarrétt á
heita vatninu sem fylgt hafi með
þegar eignin var keypt af ríkinu á
sínum tíma auk þess sem slík rétt-
indi hafi fylgt með er hann keypti
eignir þrotabús Íslax þar á svæðinu
á árinu 2007.
Orkubúið telur sig hins vegar eiga
nýtingarréttinn og vill selja Ferða-
þjónustunni heitt vatn sem til þessa
hefur verið ókeypis.
„Það sem er svo biturt í þessu er
að þegar við keyptum eignirnar
og byrjuðum að reka hér heils-
árshótel vorum við í augum allra
taldir fávitar vegna þess að þetta
væri ekki hægt,“ segir Jón. Annað
hafi þó sannast. Með mikilli vinnu
og fjárfestingu hafa tekist að ná upp
ágætum rekstri. Hann myndi hins
vegar ekki standa undir tugmilljóna
króna reikningi frá Orkubúinu á
hverju ári. Færi hótelið í þrot myndi
rekstri náttúrusaltsverksmiðjunnar
Saltverks sömuleiðis verða tef lt í
tvísýnu.
„Annars vegar grenja þeir yfir
færri störfum og minni tekjum en
hins vegar gefa þeir skít í þá starf-
semi sem er fyrir hendi. Ef starfsem-
in hjá mér leggst niður þá hyrfi Salt-
verkið væntanlega frá Reykjanesi.
Þetta er bara fullt af störfum og pen-
ingum sem sveitarfélagið verður af,“
segir Jón Heiðar og bendir á að út frá
öryggissjónarmiði sé ekki slæmt að
vera með starfsemi í inndjúpinu þar
sem langt sé í allt þéttbýli. „Það er
eitthvað annarlegt á bak við þetta
sem við bara vitum ekki hvað er.“
Sjónarmið Ferðaþjónustunnar
Reykjanesi og staða málsins hefur
verið kynnt fyrir bæði þingmönn-
um og ráðherrum.
„Þeir segja bara fáið ykkur lög-
fræðing og farið í mál. En mér finnst
ansi biturt að sitja með alla pappíra
og þurfa að fara í mál við sveitar-
félagið og ríkið sem seldi okkur
þetta. Ég er náttúrlega bara lítill ein-
staklingur sem hefur ekkert að segja
gagnvart ríkinu og sveitarfélaginu
sem geta valið sér bestu lögfræðing-
ana og látið okkur skattgreiðendur
borga,“ segir Jón Heiðar.
Ferðaþjónustan nýtir í dag heitt
vatn sem kemur upp við hlið hótels-
ins og undan því. Vegna óvissunnar
segir Jón Heiðar fjárfesta halda að
sér höndum og útlitið svart.
„Ef ég ég fæ ekki að starfa hérna
í friði og óáreittur þá bara verður
maður að gefast upp og rífa þetta.
Það er ekkert annað sem maður
getur gert en að rífa þetta til að
losna undan fasteignagjöldum.“
gar@frettabladid.is
Segist rífa hótel nema
heitavatnsdeila leysist
Eigandi Ferðaþjónustunnar Reykjanesi í Ísafjarðardjúpi segir deilu um afnota-
rétt að heitu vatni fæla fjárfesta frá. Hart sé að þurfa að höfða dómsmál gegn
ríkinu sem selt hafi honum byggingarnar til að fá nýtingarréttinn staðfestan.
Hundruð milljóna hafa farið í endurbætur á Hótel Reykjanesi. MYND/AÐSEND
Sundlaugin á Reykjanesi, sem nú hefur verið lagfærð, er yfir fimmtíu metrar og þarf mikið heitt vatn. MYND/AÐSEND
Mér finnst ansi
biturt að sitja með
alla pappíra og þurfa að fara
í mál við sveitarfélagið og
ríkið sem seldi okkur þetta.
Jón Heiðar Guð
jónsson, eigandi
Ferðaþjónust
unnar Reykjanesi
5 . D E S E M B E R 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R8 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð