Fréttablaðið - 05.12.2020, Side 32
Farvi.is
Að baki prentverkstæðis Farva standa hjónin
Tobba sem er grafískur hönnuður og Sæþór sem
er meðal annars silkiprentari. Saman hanna þau
og prenta ýmiss konar prentverk til notkunar og
skrauts.
Sifbenedicta.com
Það er hönnuðurinn Halldóra
Sif sem er á bak við tösku- og
fylgihlutamerkið Sif Bene-
dicta. Litagleðin, nostalgían og
smáatriðin eru aðalsmerki ein-
stakrar hönnunarinnar.
Fischersund.com
Í verslun Fischer, sem rekin er af systkinunum Lilju, Jónsa
og Ingu Birgis ásamt mökum þeirra Sindra, Kjartani og
Alex, má finna tónlist, ilmvötn, ljósmyndir, videóverk,
list, grafíska hönnun og margt fleira eftir eigendurna.
Hildurhafstein.com
Hildur Hafstein er eigandi og
yfirhönnuður skartgripamerkis-
ins sem er innblásið af sígauna-
og hippamenningu auk áhrifa
frá Mið-Austurlöndum en litríkir
steinar eru aðalsmerki fallegrar
hönnunarinnar.
Íslendingar hafa sannarlega tekið við sér í netverslun og fjölmargar nýjar verslanir sprottið upp á meðan þær sem fyrir voru hafa styrkt sig enn frekar. Örstuttur leiðangur um veraldar-vefinn leiddi okkur á slóðir þessara fallegu vefverslana með íslenskri hönnun sem færi vel í jólapakkann. Af nægu er að taka hvort sem á að kaupa sér eitthvað fallegt eða velja gjöf fyrir ástvin, og erfitt að velja aðeins nokkrar úr. Við hvetjum því lesendur til að fara á stúfana og skoða hvað veraldarvefurinn hefur upp á að bjóða - og heilmikið af því er íslenskt. bjork@frettabladis.is.
Verslum heima
Það hefur aldrei verið fýsilegra að versla á netinu. COVID og
kuldakast gera það að verkum að hugmyndin um að sitja við
borðstofuborðið og versla jólagjafirnar er mikið betri en búðaráp.
Á vefsíðunni Takkhome.com má finna fallega, einfalda
hönnun; handklæði, þvottastykki, teppi og töskur.
Á Folkreykjavik.is fást hillur, vasar, lampar, borð og kerta
stjakar, allt hannað með sjálfbærni að leiðarljósi.
Á Fischersund.com má kaupa handunnin íslensk ilmvötn,
tónlist og ýmis listaverk. Meðal annars jólailminn 2020.
Á vefsíðu kronkron.com færðu
fatnað, fylgihluti og skó frá Kron
kron og hönnuðum t.d. Vivienne
Westwood og Comme des Garcons.
Á meidur.is fást einstök handunnin
skurðarbretti, kökukefli, mortél,
skálar og fleira úr íslenskum viði.
Á Ihanna.net má finna hið fræga Krumma herðatré, viska
stykki, púða, rúmteppi, sængurföt og margt fleira.
Á vefsíðunni Hildurhafstein.com
má finna hálsmen, eyrnalokka,
armbönd, ermahnappa og fleira.
Á Sifbenedicta.com fást töskur,
klútar, hálsmen og hárskraut.
Á farvi.is má finna plaköt, boli, poka, kort, jólapappír
og margt fleira handverk frá prentverkstæði Farva.
Takkhome.com
Þær Olla og Dröfn stofnuðu fyrirtækið TAKK Home
með það að leiðarljósi að skapa gæðavörur fyrir
heimilið með megináherslu á einfaldleika, fegurð og
notagildi, ásamt virðingu fyrir umhverfinu.
Folkreykjavik.is
Markmið hönnunarmerkisins Fólk er að ýta undir hönnun og
framleiðslu sem styður sjálfbærni og hringrás hráefna. Sam-
starfshönnuðir FÓLK Reykjavík eru Jón Helgi Hólmgeirsson,
Ólína Rögnudóttir og Theódóra Alfreðsdóttir.
Kronkron.com
Þau Hugrún Árnadóttir og Magni
Þorsteinsson eru hönnuðirnir á
bak við fata- og skómerkið Kron-
kron. Hönnun þeirra hefur fyrir
löngu skapað sér sess á meðal
fagurkera enda lifandi og litrík,
fersk og fögur.
Meidur.is
Trésmiðjan Meiður er rekin af
hjónunum Herði Harðarsyni,
smiði og Guðrúnu Hrund Sigurðar-
dóttur hönnuði. Þau hanna og
framleiða vörur úr hnotu, eik og
fleiri viðartegundum með um-
hverfisvernd að leiðarljósi.
Ihanna.net
IHANNA HOME var stofnað af Ingibjörgu Hönnu Bjarna-
dóttur með tilkomu hins fræga Krumma herðatrés
hennar. Hönnunarvörur hennar sameina einfaldleika,
gæði og notagildi.
Fjöldatakmarkanir í verslunum og yfirstandandi kuldakast gera heimaverslunina vinsæla. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
5 . D E S E M B E R 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R30 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð