Fréttablaðið - 05.12.2020, Side 34
Kristín og fjölskylda hafa unnið að því að gera upp íbúðina og tók það aðeins lengri tíma en áætlað var eins og oft vill verða.
Íbúðin er ein þriggja í húsinu og
hafa þær allar verið í eigu fjölskyld-
unnar í tæpa öld.
„Saga hússins hefst árið 1929
en þá f luttu langafi og -amma í
föðurætt í húsið ásamt þremur
dætrum sínum. Þær ólust allar upp
í húsinu og ein býr enn á 2. hæð,
89 ára ömmusystir mín, og hyggst
ekki f lytja úr þessu,“ segir Kristín
aðspurð um þessa merkilegu sögu.
„Á þessu 91 ári hefur fjöldinn
allur af frændfólki búið hér í á ein-
hverju tímabili í lífi sínu. Pabbi
bjó til dæmis hér meðan hann
var ungur maður í námi og síðan
mamma eftir að þau kynntust.
Ég kem undir stuttu seinna og var
íbúðin á fyrstu hæð hússins því
fyrsta heimili mitt.“
Fjölskyldan bjó á 1. og 3. hæð
Stuttu síðar f lutti fjölskyldan til
Danmerkur þar sem þau voru í
fimm ár á meðan foreldrar Kristín-
ar voru í námi. „Þegar við komum
aftur heim f luttum við heim á
Njálsgötuna og þá bættust yngri
bræður mínir f ljótlega í hópinn.“
Fjölskyldan sprengdi af sér
fyrstu hæðina og var þá farið í
framkvæmdir á risinu sem hafði
verið notað sem þurrkloft og
geymsla ásamt tveimur herbergj-
um. „Þau létu koma fyrir litlu bað-
herbergi, lögðu parket og panela á
veggina og varð risið því að svefn-
herbergjum okkar fjölskyldunnar í
fimm ár. Við bjuggum því á 1. og 3.
hæð í þau ár, og Edda frænka í sinni
íbúð á miðhæðinni.“
Fjölskyldan flutti svo árið 2005 í
Hafnarfjörðinn en íbúðin var áfram
í eigu fjölskyldunnar og leigð út. „Ég
sneri aftur á Njálsgötuna, þá í ris-
íbúðina, árið 2012 þegar ég hóf nám
í Listaháskólanum og bjó þar í fimm
ár. Nú býr Starkaður bróðir þar en
hann er einnig í námi í leiklist í
LHÍ. Nú snemma í ár var ég í íbúða-
leit og kom þá upp þessi hugmynd
að kannski væri tími til kominn
að segja upp leigjandanum og gera
þessa fallegu íbúð almennilega upp,
sem úr varð.“
Færði eldhúsið í aðra stofuna
Kristín segir innréttingar hafa verið
komnar nokkuð til ára sinna og að
nauðsynlegt hafi verið að rífa allt út
úr eldhúsi og baðherbergi.
„Mig vantaði einnig barnaher-
bergi fyrir strákinn minn, og þar
sem íbúðin var með þessu klassíska
gamla skipulagi, þar sem eldhús er
lítið og tvær stórar stofur stúkaðar
niður, færðum við eldhúsið inn í
aðra stofuna.“
Ákveðið var að opna hurðaopin á
milli stofanna og fram á gang til að
skapa meira flæði og opna rýmið.
Gólfefni voru öll endurnýjuð og
mikil múr- og spartlvinna var nauð-
synleg.
Upphaflega ætlunin var að klára
framkvæmdirnar síðasta sumar
en þær drógust á langinn og flutti
Kristín inn ásamt syni sínum í síð-
asta mánuði.
Kristín segist vera alveg í skýj-
unum með útkomuna. „Eitt stærsta
áhugamál mitt er innanhússhönnun
og hafði ég því sérstaklega gaman af
því að rissa upp alls konar útfærslur
af rýmum og lausnum á blað og í
hausnum á mér. Ákvarðanirnar voru
endalausar, allt frá parketi og litum á
veggjunum niður í hvers konar perur
ég vildi hafa í kösturunum.“
Andlega álagið kom á óvart
Aðspurð hvort eitthvað hafi komið
henni á óvart svarar Kristín: „Það
kom kannski helst á óvart hvað
þetta tók mikið á andlega, ég er
mjög hvatvís og vil helst að hlutirn-
ir gerist í gær, það var því erfitt að
þurfa að bíða í nokkra mánuði með
að geta loksins f lutt inn í drauma-
íbúðina.“
Kristín segir áhugann á innan-
hússhönnun hafa komið snemma.
„Mamma mín er arkitekt og þau
pabbi hafa mikinn áhuga á klass-
ískri hönnun og fékk ég því áhuga
snemma á að gera herbergið mitt
fallegt og umkringja mig falleg-
um munum. Einnig verð ég fyrir
miklum innblæstri á Pinterest og
Instagram en þar get ég skrollað
tímum saman og sett saman eigin
„moodboards“.“
Þó miklu hafi verið skipt út
sökum aldurs þótti Kristínu skipta
miklu að bera virðingu fyrir þeim
tíma sem húsið er byggt á og var
reynt að halda í sem mest. „Glugg-
arnir, hurðar og pottofnarnir fengu
upplyftingu og búa til mikinn kar-
akter á móti því nýja.“
Dauðaleit að rétta parketinu
Mött málning og jarðlitir setja
skemmtilegan heildarsvip á heim-
ilið og segist Kristín ánægð með
hann. „Eins er parketið í miklu
uppáhaldi en ég gerði dauðaleit að
þessum klassísku hvíttuðu grönnu
furuplönkum eins og eru tíðir í
gömlum dönskum íbúðum, en þetta
eikarparket frá Birgisson komst
mjög nálægt því.“
Kristín er ánægð með nýja eld-
húsið, bæði rýmislega og útlitslega.
„Grindin frá Former kom miklu
betur út en ég þorði að vona, en
ég var fyrsti viðskiptavinurinn til
að setja hana yfir eldhúsinnrétt-
ingu en ekki eyju. Mér finnst hún
mjög grand og setja punktinn yfir
i-ið og gefa þessu léttan hótelbar-
fíling. Kvarssteinninn frá Granít-
smiðjunni kom líka sérstaklega
vel út en ákvörðunin um að hafa
veggplötuna svona háa gerir mikið
fyrir svona lítið rými og leyfir því að
njóta sín.“
Flutti í þriðja sinn
inn í sömu íbúðina
Kristín Pétursdóttir hefur undanfarið hálft ár unnið að því að
gera upp íbúð á Njálsgötunni, íbúð sem hún hefur áður búið í,
tvisvar. Útkoman var biðarinnar virði enda einkar björt og falleg.
Kristín er sérlega ánægð með heildarsvip heimilisins en eldhúsið var fært inn í aðra stofuna. Eldhúsinnréttingin er úr IKEA en grindin frá Former setur mikinn svip á rýmið. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Björk
Eiðsdóttir
bjork@frettabladid.is
Arnar Gauti
Sverrisson
arnargauti@sirarnargauti.is
Stofan er
björt og
stílhrein,
sófann fékk
Kristín í IKEA
og voldugan
lampann í
Snúrunni.
Vegginn
prýða
svo falleg
málverk
eftir föður
hennar, list-
málarann
Pétur Gaut.
5 . D E S E M B E R 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R32 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð