Fréttablaðið - 05.12.2020, Síða 38
Þetta er sjötta árið mitt þarna og fjölskyldan er alltaf með mér hluta af ári, börnin eru þá eina skólaönn þar og eina hér,“ segir Regína en hún
og eiginmaður hennar, Henry Alex-
ander Henrysson heimspekingur,
eiga þrjú börn.
Regína, sem er þróunarhag-
fræðingur að mennt, var ráðin sem
framkvæmdastjóri Auroru vel-
gerðarsjóðs árið 2015 og hefur sinnt
því starfi síðan.
„Langstærsti hluti starfsemi okkar
er í Síerra Leóne svo ég flakka mikið
á milli landanna,“ segir Regína sem
hér heima vinnur svo í fjarvinnu
og hefur gert öll árin og hafði því
ákveðið forskot þegar stór hluti
heimsbyggðarinnar þurfti að læra
að vinna heima. Henry, eiginmaður
Regínu, ákvað nýverið að segja upp
stöðu sinni við Háskóla Íslands og
fara að starfa sjálfstætt svo fjölskyld-
an gæti varið meiri tíma í Afríku.
Börnin þrjú hafa gengið í alþjóð-
legan skóla þar og líkað vel. „Þetta er
lítill skóli og við erum heppin með
hvernig skólayfirvöld bæði þar og
hér hafa sýnt því skilning að þau
séu bara hálft skólaárið,“ segir Reg-
ína en flakkið hefur að hennar sögn
ekki komið niður á námsárangri
barnanna.
Á síðasta ári urðu ákveðin kafla-
skil þegar elsta dóttirin hóf mennta-
skólagöngu en hún ákvað að taka
fyrsta árið í fjarnámi til að geta
verið með fjölskyldunni. „Hún var
því með okkur, stundaði fjarnám
við Verslunarskóla Íslands og vann
með fram því sem sjálf boðaliði á
sjúkrahúsi. Það var frábær reynsla
fyrir hana sem dreymir um að verða
læknir.“
Aurora velgerðarsjóður var stofn-
aður af hjónunum Ólafi Ólafssyni og
Ingibjörgu Kristjánsdóttur í tilefni
af fimmtugsafmæli Ólafs árið 2007.
„Um er að ræða sjálfseignarstofnun
svo sjóðurinn á sig sjálfur, en þau
hjón sitja í stjórn hans.“
Upphaflega voru helstu verkefni
sjóðsins hér á landi þar sem hann
studdi við skapandi greinar og segir
Regína mesta púðrið hafa farið í
hönnun og tónlistarfólk.
„Sjóðurinn studdi þó við f leiri
verkefni erlendis, meðal annars í
Malaví, Nepal og Kenía. En þegar ég
var ráðin var ákveðið að færa starf-
semina mestmegnis út. Ég vildi að
við værum á einum stað og varð
Sierra Leone fyrir valinu.
Eitt fátækasta ríki Afríku
Síerra Leóne er eitt fátækasta ríki
Afríku þar sem árið skiptist í tvö
tímabil: Þurrkatímann og rign-
ingartímann. Þar ríkti tíu ára stríð
til ársins 2002 en af þeim Afríku-
ríkjum sem ekki standa í stríði
er ríkið á botninum fjárhagslega.
Ebólufaraldurinn kom svo í beinu
framhaldi af stríðinu svo það hefur
mikið dunið á þessu landi sem er þó
ríkt af náttúruauðlindum svo sem
gulli, demöntum, kóbalti og járni.
Þessar auðlindir eru þó allar í eigu
kínverskra og ástralskra námu-
fyrirtækja svo enginn heimamaður
fær nokkurn gróða af þeirri vinnslu,“
útskýrir Regína sem segir landið
byggt af ungu fólki þar sem lífslíkur
fólks eru ekki nema um 50 ár.
„Þetta er lítið land, þar er töluð
enska og engin almennileg fram-
leiðsla er í gangi. Við sáum því fyrir
okkur að lítill sjóður eins og Aurora
gæti haft sem mest áhrif þar.“
Regína segir að upphaflega hafið
sjóðurinn tekið þátt í fiskveiðiverk-
efnum eins og gjarnan sé með Íslend-
inga en nú sé fókusinn á að styðja við
skapandi greinar og frumkvöðla.
„Fyrir tveimur árum leiddum við
saman íslenska og síerra leónska
tónlistarmenn sem endaði í útgáfu
á frábærri plötu, Osusu.“
„Við erum að styðja við unga
krakka sem eru að stofna fyrirtæki.
Þar sem menntunarstigið er svo lágt
Það er hægt að hafa mikil áhrif
Regína Bjarnadóttir hefur undanfarin sex ár skipt tíma sínum á milli Íslands og Síerra Leóne og ætlar að halda
því áfram eins lengi og fjölskylda hennar leyfir. Enda uppbyggingarstarfið sem hún vinnur þar fyrir Auroru
velgerðarsjóð það skemmtilegasta sem hún hefur gert og heimamenn eru farnir að treysta því sem hún segir.
Regína var á landinu á dögunum en hún skiptir tíma sínum og fjölskyldunnar á milli Reykjavíkur og Síerra Leóne, eins fátækasta ríkis Afríku. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
As We Grow er
eitt hönnunar-
fyrirtækjanna
sem tekið hafa
þátt í verk-
efninu.
SKÓLAGANGA HEIMA-
MANNA ER SVO LÍTIL OG
FLESTIR SEM ERU NÚ Á
MILLI TVÍTUGS OG ÞRÍ-
TUGS FÓRU EKKI Í BARNA-
SKÓLA ÞVÍ ÖLL STARFSEMI
LÁ NIÐRI Á STRÍÐS-
ÁRUNUM.
Björk
Eiðsdóttir
bjork@frettabladid.is
5 . D E S E M B E R 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R36 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð