Fréttablaðið - 05.12.2020, Síða 40
Í vikunni var tilkynnt um að Daði Már Kristófersson hag-fræðiprófessor hefði tekið við starfi aðstoðarrektors Landbúnaðarháskóla Íslands út skólaárið. Síðustu mán-
uðir hafa því verið tíðindamiklir
því Daði Már var kjörinn vara-
formaður Viðreisnar í september.
Hann hyggst sækjast eftir efstu
sætum f lokksins í komandi þing-
kosningum. Hann er kvæntur Ástu
Hlín Ólafsdóttur ljósmóður og eiga
þau saman fjögur börn.
Daði er fæddur í Reykjavík en
f lutti ungur að aldri að Reykholti
í Borgarfirði þar sem foreldrar
hans, Kristófer Már Kristinsson og
Margrét Gunnarsdóttir, störfuðu
við kennslu. Hann er eitt fjögurra
systkina. Ágústa er forstöðumaður
Hafnarborgar, Gísli dósent við
heilbrigðisvísindasvið Háskólans
á Akureyri og Gunnar Tómas dokt-
orsnemi í kvikmyndafræði.
Góð pólitísk blanda
„Ég ólst upp við mikla pólitík. Pabbi
var varaþingmaður fyrir Bandalag
jafnaðarmanna árin 1983-1986 en
þræði Sjálfstæðisf lokksins mátti
f inna í móðurfjölskyldunni og
Samfylkingarinnar í föðurfjölskyld-
unni,“ segir Daði. Hann segir að um
ágætis pólitískan bræðing hafi verið
að ræða en pólitík átti eftir að setja
enn meiri svip á fjölskyldulífið.
Foreldrar Daða skildu að skiptum
og seinni kona Kristófers föður hans
er Valgerður Bjarnadóttir, dóttir
Bjarna Benediktssonar fyrrverandi
forsætisráðherra, sem sat á þingi
fyrir Samfylkinguna um langt skeið.
„Ég kunni afar vel við mig í sveit-
inni og hefði alveg getað hugsað mér
að búa þar áfram,“ segir Daði sem
flutti með fjölskyldunni til Reykja-
víkur þrettán ára. Sveitin hafði sáð
fræjum sínum í huga Daða.
„Ég var harðákveðinn í því að
verða dýralæknir og sótti um inn-
göngu í danska dýralæknaskólann,“
segir Daði. Hann fékk þó ekki inn-
göngu og örlögin höguðu því þannig
að í stað þess að huga að heilsu dýra
endaði hann í fræðasamfélaginu.
Eftir að hafa verið synjað um inn-
göngu í dýralæknanámið ákvað
Daði að skrá sig í praktískt nám á
meðan hann íhugaði næstu skref.
Hann skellti sér því í Landbún-
aðarháskóla Íslands og lauk námi í
búvísindum. Hann segist hafa verið
mjög óráðinn á þessum tíma og
skipt nokkrum sinnum um skoðun
um hvaða stefnu skyldi taka. „Ég
tók síðan viðbótarkúrsa í hagfræði
í Háskóla Íslands með fram náminu
eftir hvatningu Bjarna Guðmunds-
sonar prófessors og líkaði það vel.“
Norski Hægri flokkurinn
Árið 1998 f lutti hann síðan út til
Noregs og hóf nám við Norska líf-
vísindaháskólann. „Þar sat ég kúrsa
í auðlindahagfræði og kynntist
hagfræðiprófessornum Kyrre Rick-
ertsen. Þau kynni urðu til þess að ég
ákvað að leggja hagfræðina alfarið
fyrir mig. Ég fékk styrk frá norska
útflutningsráði sjávarafurða til að
fara í doktorsnám ytra og Rickert-
sen var leiðbeinandi minn í náminu
sem ég lauk 2005,“ segir Daði.
Eftir námið starfaði hann úti í
Noregi í eitt ár en kom síðan heim
og fékk starf sem sérfræðingur hjá
Bændasamtökunum. „Ég hafði
kynnst Ragnari Árnasyni, pró-
fessor í fiskhagfræði, þegar ég var á
Hvanneyri og hann hafði samband
við mig þegar vantaði kennara í
hagrannsóknum. Í kjölfarið fékk
hann mig til starfa hjá Hagfræði-
stofnun,“ segir Daði.
Í starfi sínu hjá Bændasamtök-
unum hafði hann unnið með Ein-
ari Sigurðssyni, forstjóra Mjólkur-
samsölunnar á þeim tíma. Þannig
kynntist hann eiginkonu Einars,
Kristínu Ingólfsdóttur háskóla-
rektor. Það kveikti áhuga hans á að
sækja um stöðu sviðsforseta Félags-
vísindasviðs hjá Háskólanum, sem
hann fékk.
„Það má því segja að þessi starfs-
ferill minn hafi ekki verið fyrir fram
mótuð stefna. Ég hef hins vegar
verið svo farsæll að kynnast áhuga-
verðum og öflugum einstaklingum
sem hafa haft áhrif á mig og veitt
mér innblástur og þannig fetaði ég
þessa hagfræði- og háskólabraut,“
segir Daði.
Þrátt fyrir pólitískt uppeldi var
hann ekki virkur í neinu pólitísku
starfi þar til að hann kom að stofn-
un Viðreisnar árið 2016.
„Pólitík á Íslandi hefur í raun
þróast með öðrum hætti en á
hinum Norðurlöndunum. Þar
ytra eru stórir og öf lugir jafnaðar-
mannaf lokkar en sem mótvægi við
þá eru einnig öf lugir borgaralegir
f lokkar. Sjálfstæðisf lokkurinn á
Íslandi var einn um hituna á hægri-
væng íslenskra stjórnmála lengi
vel og þegar ég kom heim frá Nor-
egi þá saknaði ég valkostar á borð
við Hægri f lokkinn í Noregi,“ segir
Daði Már.
Brá að sjá keyrsluna hér á landi
Hann segir að það hafi verið mikil
viðbrigði að koma heim til Íslands
árið 2006 eftir rúm sjö ár í Noregi.
„Manni brá auðvitað að sjá keyrsl-
una sem var í gangi hérlendis. En
ekki síður hvað það var lítið rými
fyrir efasemdir um að þessi upp-
gangur væri sjálfbær,“ segir Daði.
„Ég hef alltaf séð eftir því að hafa
ekki lýst skoðun minni á meðan
atburðirnir voru í gangi frekar en í
baksýnisspeglinum. Að mínu mati
hvílir á okkur sú skylda, sérstaklega
þeim sem hafa getað farið í nám með
aðstoð samfélagsins, að rýna í þjóð-
félagið til gagns og segja okkar skoð-
anir,“ segir Daði.
Sú eftirsjá má segja að hafi gert
það að verkum að Daði hóf þátt-
töku í stjórnmálum í liði Við-
reisnar. Hann tók þátt í starfi
Já-Ísland-hreyf ingarinnar sem
snerist um aðildarumsókn Íslands
að Evrópusambandinu og kynntist
þar Benedikt Jóhannessyni, fyrsta
formanni Viðreisnar, og núverandi
þingmanni flokksins Jóni Steindóri
Valdimarssyni.
„Það starf leiddi síðan til þess
að ég tók þátt í stofnun Viðreisnar
enda fannst mér þarna kominn
fram flokkur sem væri á svipuðum
slóðum og Hægri f lokkurinn í Nor-
egi sem að hugnaðist mér vel. Ég
hafði hins vegar lítinn áhuga á að
leitast eftir þingsæti. Ég þekkti það
vel að sá starfsvettvangur er krefj-
andi og fannst það því ekki henta
mér á þeim tíma. Ég tók sæti í stjórn
flokksins og hafði bara metnað fyrir
því að hjálpa til þess að ná góðum
úrslitum í fyrstu kosningunum sem
gekk eftir,“ segir Daði.
Hann kynntist þó stjórnmála-
starf inu enn frekar í gegnum
Háskólann. „Eins og margir aðrir
innan félagsvísindanna á háskóla-
stigi þá hef ég komið að margs
konar ráðgjöf fyrir stjórnvöld. Til að
mynda vinnu við að skrifa skýrslur
og lagafrumvörp eða gefa álit mitt
í slíkum plöggum,“ segir Daði sem
helst hefur komið að vinnu við auð-
lindamál.
Sátt mikilvæg í auðlindamálum
„Það er fyrst og fremst vegna þess
að ég hef mest vit á þeim mála-
flokki vegna náms míns og reynslu.
Ég held að Ísland hafi á margan hátt
borið gæfu til að nýta auðlindirnar
vel þó að ósætti sé um fyrirkomu-
lagið. Sátt er afar mikilvæg um
hvernig við nýtum og ráðstöfum
þessum auðlindum.“
Hann segir að hans upplifun sé
sú að íslenskir stjórnmálamenn í
öllum flokkum séu í meginatriðum
nokkuð sammála. „Nemandi minn
sem var hálfur Bandaríkjamaður
sagði mér að sér þætti íslensk stjórn-
mál óbærilega leiðinleg því allir eru
svo sammála,“ segir Daði og hlær.
Hann segir að nýtt yfirvofandi
hrun sökum kórónaveirunnar hafi
gert það að verkum að hann gaf kost
á sér til varaformennsku í Viðreisn
og að það sé ekkert launungarmál
að hann stefni á eitt af toppsætum
flokksins í þingkosningum á næsta
ári.
„Óvissan er mikil og þessi staða
gæti reynst okkur erfið. Þetta er
öðruvísi krísa en sú sem kom í
kjölfar hrunsins 2008 og ég tel afar
mikilvægt að vel sé haldið á spöð-
unum. Ég er sannfærður að mín
reynsla geti nýst vel í því verkefni,“
segir Daði.
Stefnir ótrauður á sæti á Alþingi
Daði Már Kristófersson var ákveðinn í að verða dýralæknir langt fram á fullorðinsár. Örlögin höguðu því þó svo
að hann endaði sem prófessor í hagfræði. Hann stefnir á að setjast á Alþingi rétt eins og faðir hans og stjúpmóðir.
Daði Már segir reynslu sína geta nýst vel á þeim óvissutímum sem fram undan eru. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
NEMANDI MINN SEM VAR
HÁLFUR BANDARÍKJA-
MAÐUR SAGÐI MÉR AÐ SÉR
ÞÆTTI ÍSLENSK STJÓRN-
MÁL ÓBÆRILEGA LEIÐIN-
LEG ÞVÍ ALLIR ERU SVO
SAMMÁLA.
Björn Þorfinnson
bjornth@frettabladid.is
5 . D E S E M B E R 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R38 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð