Fréttablaðið - 05.12.2020, Síða 48
Skákáhugi hefur aukist hér á landi sem annars staðar enda hafa skáksnillingar
hrósað þáttunum, sérstaklega
fyrir trúverðugar staðreyndir
um skákíþróttina. „Við finnum
almennt séð fyrir auknum áhuga
á skák hjá yngri kynslóðinni, jafnt
hjá drengjum og stúlkum,“ segir
Ríkharður Sveinsson, formaður
Taflfélags Reykjavíkur. „Töluvert
er haft samband við okkur til að
kanna hvenær skáknámskeið
hefjast hjá börnum og einnig til
að kanna hvar hægt sé að kaupa
taflsett og klukkur. Það er erfitt að
greina hvort þetta séu áhrif af The
Queen’s Gambit eða COVID-áhrif
en námskeiðahald lá tímabundið
niðri í haust vegna veirunnar.
Æfingar hafa hafist að nýju en fara
nú í jólafrí. Þær hefjast síðan að
nýju eftir áramót. Skákmenn eru
almennt mjög skákþyrstir eins og
sýndi sig þegar hægt var að tefla
aftur í raunheimum eftir fyrstu
bylgju faraldursins. Gera má ráð
fyrir að margir séu skákþyrstir og
muni mæta á skákmót félagsins
þegar það verður hægt að nýju,“
segir Ríkharður.
Sönn saga að hluta
Leikkonan Anya Taylor-Joy er sögð
sérstaklega sannfærandi þegar hún
sest við skákborðið og teflir fram
hverjum taflmanninum af öðrum.
Þættirnir eru byggðir á samnefndri
skáldsögu frá árinu 1983, skrifaðri
af Walter Tevis. Aðalleikararnir,
Anya Taylor-Joy, Harry Melling og
Thomas Brodie-Sangster, hafa áður
leikið í vinsælum bíómyndum og
þáttum. Anya leikur meðal annars
í nýrri kvikmynd, Emma, sem gerð
er eftir bók Jane Austin. Anya sem
er uppalin í Miami, fædd 1996,
segist hafa lært ensku eins og Eng-
lendingar tala hana með því að lesa
Harry Potter-bækurnar en hún bjó
í London í nokkur ár. Hún féll strax
fyrir hlutverki Beth í The Queen’s
Gambit eftir að hún las handritið.
Thomas Brodie-Sangster sem er
fæddur árið 1990 er vel þekktur úr
kvikmyndinni Love Actually þar
sem hann fór með hlutverk Sam.
Hann hefur einnig leikið í Game of
Thrones ásamt fleirum myndum
og þáttum. Harry Melling, fæddur
1989, er líklegast þekktastur úr
Harry Potter-kvikmyndunum.
Höfundur sögunnar The Queen’s
Gambit, Walter Tevis, fæddist í San
Francisco árið 1928, hann lést árið
1984. Sagt er að margt í sögunni
hafi í raun gerst í lífi Walters. Hann
lærði að tefla sjö ára gamall og varð
síðar atvinnumaður í skákinni.
Þegar hann var barn að aldri var
hann sendur á einhvers konar
heilsustofnun vegna veikinda en
þar var honum gefið lyfið fenó-
barbítali þrisvar á dag sem hann
sagði hafa verið undanfara þess að
hann þróaði með sér áfengissýki.
Foreldrar hans yfirgáfu hann þegar
hann fór á stofnunina en margar
hliðstæður úr lífi hans má finna
í þáttunum The Queen’s Gambit.
Gerðar hafa verið fleiri myndir
eftir sögum Walters en þær fjalla
þó ekki um skák, má þar nefna
kvikmyndina The Color of Money
sem fjallar um snóker en Walter
var mjög hrifinn af þeirri íþrótt
áður en hann byrjaði að tefla. Paul
Newman fór með aðalhlutverk í
þeirri mynd.
Kasparov var leiðbeinandi
Kannski vita ekki allir að höfundar
þáttanna höfðu samráð við skák-
sérfræðinga við gerð þeirra, þar á
meðal fyrrverandi heimsmeistara
í skák og stórmeistarann Garry
Kasparov. Auk þess veitti hann
einnig ómetanlega innsýn í sovéska
skákmenningu sem jók enn frekar á
raunsæi þáttanna. Samstarfið gekk
svo langt að Kasparov var boðið
hlutverk Vasily Borgov sem hann
þáði ekki, sagðist ekki hafa tíma
fyrir upptökur í tvo til þrjá mánuði.
Kasparov lagði mikla áherslu á að
skákin væri raunveruleg því margir
skákmenn ættu eftir að horfa á
þættina. Einnig upplýsti hann að
sovéskir skákmeistarar á sjöunda
áratugnum færu ekki úr landi
nema í fylgd með KGB-mönnum.
Kasparov segir að lokaleikur þátt-
anna hafi verið flókið viðfangsefni.
Hann fór yfir margar skákir og fann
loks viðureign Patrick Wolff gegn
Vassily Ivanchuk, Biel Interzonal
árið 1993 sem hann valdi. Wolff
hafði samband við Kasparov eftir
að hafa horft á þáttinn og sagðist
hafa þekkt leikinn.
Í viðtali við tímaritið Slade líkti
Kasparov söguhetju þáttanna,
Beth, við „kvenkyns útgáfu“ af
skákmeistaranum Bobby Fischer.
Þegar Fischer lést árið 2008 lýsti
The New York Times honum sem
sveiflukenndum, dramatískum,
erfiðum og ljómandi. Fleiri skák-
snillingar gáfu góð ráð við gerð
þáttanna, þar á meðal hinn þekkti
skákkennari Bruce Pandolfini. Þótt
skákráðgjafar hafi búið til hvern
leik í þáttunum þurftu leikararnir
að læra þá og spiluðu þá alla, jafnvel
hraðaskákirnar. Leikararnir vissu
nákvæmlega hvernig leikurinn ætti
að spilast.
Ekki kvennaíþrótt
Þótt The Queen’s Gambit eigi að
gerast á sjöunda áratugnum tóku
konur ekki þátt í alþjóðlegum
skákmótum fyrr en 1980. Hin
ungverska Judit Polgar varð yngsti
stórmeistari í skák í sögunni árið
1991. Hún var aðeins 15 ára og
harðneitaði að keppa á kvenna-
mótum en barðist í staðinn við
bestu karlkyns skákmenn þess
tíma.
Eldri systir hennar, Susan,
barðist fyrir rétti kvenna til að
komast á heimsmeistaramótið í
skák árið 1986. Núverandi heims-
meistari í skák er Norðmaðurinn
Magnus Carlsen sem varð stór-
meistari aðeins 13 ára. Hann var
22 ára þegar hann vann fyrsta
heimsmeistaratitilinn og hefur
varið hann þrisvar.
Tökustaðir í Berlín
Þótt þættirnir eigi að gerast í Ken-
tucky í Bandaríkjunum voru þeir
ekki teknir upp þar í landi. Heimili
Beth var til dæmis í Ontario í
Kanada. Einnig voru margar senur
teknar upp í Berlín, þar á meðal er
franska lúxushótelið sem er í raun
The Haus Cumberland hótel. Mun-
aðarleysingjaheimilið er í raun
staðsett í Schloss Schulzendorf í
Berlín. Í rauninni var brúin það
eina sem tekið var upp í Bandaríkj-
unum en hún er á háskólasvæði í
Ohio.
Búningar í skákstíl
Búningahönnuðurinn, Gabriele
Binder, lagði mikla áherslu á að
nota köflótt efni í gegnum þættina
sem áttu að vera eins konar sam-
svörun við taflborðið. Hún endur-
speglar tísku þess tíma sem þætt-
irnir eiga að gerast á og horfir til
þeirra tískuhönnuða sem þá voru
hvað vinsælastir. Í lokaþættinum
kemur Beth klædd hvítri kápu og
hvítum buxum sem á að lýsa því
að hún hafi fullkomna stjórn á því
sem hún er að gera á taflborðinu.
Hún á að vera hvíta drottningin á
taflborðinu og skákborðið sjálft er
heimurinn, er haft eftir hönnuð-
inum í Vogue.
Einvígi aldarinnar
Þess má geta að auk þess sem
skákáhugi hefur aukist mikið
leitar fólk í stórum stíl á eBay og
Amazon eftir skákborðum og taf l-
mönnum eftir að þættirnir fóru í
sýningu. Þá hafa þættirnir slegið
met í leit á Google. Einnig hefur
stóraukist leit að þekktum skák-
mönnum á síðunni Chess.com.
Einn vinsælasti skákþáttur
allra tíma var skákeinvígi Fischer
og Spassky sem fram fór í Reykja-
vík árið 1972. Milljónir Banda-
ríkjamanna fylgdust með beinni
útsendingu frá Íslandi en þetta
var fyrsta skáksjónvarpsefnið í
beinni útsendingu. Einvígið kall-
aði fram mjög mikinn skákáhuga
um allan heim sem ríkti í mörg ár
eftir þetta.
Elín
Albertsdóttir
elin@frettabladid.is
Áhugi á skák hefur stóraukist
Þættirnir Queen’s Gambit sem Netflix sýnir hafa slegið áhorfsmet en yfir 62 milljónir heimila
hafa fylgst með seríunni í 92 löndum. Þættirnir hafa stóraukið áhuga á skák um allan heim.
Leikkonan Anya Taylor-Joy er sögð sérstaklega sannfærandi í hlutverki sínu sem Beth Harmon í þáttunum um
skákdrottninguna. Hún féll strax fyrir hlutverkinu og skákinni eftir að hafa lesið handritið yfir. MYND/NETFLIX
Thomas Brodie-Sangster var barnastjarna í kvikmyndinni Love Actually .
Skákborð og -klukkur seljast nú eins
og heitar lummur um allan heim.
Hér er Anya Taylor-Joy í hlutverki Emmu í nýrri kvikmynd, Emma, eftir bók
Jane Austin en Anya er á mikilli uppleið sem leikkona og vegnar vel.
4 KYNNINGARBLAÐ 5 . D E S E M B E R 2 0 2 0 L AU G A R DAG U RSPILAJÓL