Fréttablaðið - 05.12.2020, Page 99
BÆKUR
Yfir bænum heima
Kristín Steinsdóttir
Útgefandi: Vaka-Helgafell
Fjöldi síðna: 317
Kr i s t í n Steins-d ó t t i r
er a f k a st a-
mik ill höf-
u n d u r . Á
r ú m u m
þremur ára-
tugum hefur
hún gefið út
ótal skáld-
verk, mörg
hver ætluð börnum, en í seinni
tíð einnig skáldsögur fyrir full-
orðna. Í nýjustu skáldsögu sinni, Yfir
bænum heima, snýr Kristín skáld-
skapnum til heimahaganna og tekst
á við verkefni sem stendur henni
nærri. Það er: Stríðsárin í heimabæ
hennar Seyðisfirði. Í inngangi verks-
ins kveðst Kristín sjálf vera fædd ári
eftir að síðari heimsstyrjöldinni lauk
en stríðið hafi alltaf staðið henni
nærri. Hún tekur sér því leyfi skálds-
ins og spinnur skáldsögu úr sögum
viðmælenda sem upplifðu stríðið.
Persónurnar í Yfir bænum heima
eru þannig tilbúnar en eru sóttar úr
slíkum sögum. Úr verður falleg frá-
sögn af stórfjölskyldu á Seyðisfirði og
lífi hennar á stríðstímum.
Í forgrunni sögunnar eru hjónin
Rúna og Snjólfur og fjögur af fimm
börnum þeirra. Á heimilinu býr
einnig Jara, eldri systir Snjólfs,
sem veit og skynjar meira en það
sem augað sér. Fjölskyldan berst í
bökkum fyrir stríð vegna atvinnu-
leysis og kreppu sem ríkir í landinu
öllu en koma breskra hermanna
í bæinn boðar breytta tíma og ný
tækifæri. Heimamenn taka þó mis-
jafnlega á móti þessum skrautlegu
hermönnum og eru sumir ánægðari
með komu þeirra en aðrir. Dóttir
hjónanna, hin fimmtán ára Ásta,
kynnist til að mynda ungum bresk-
um pilti og fara þau að draga sig
saman í óþökk einhverra bæjarbúa.
Ástandið er þó ekki beint í forgrunni
sögunnar eins og svo oft í umræðu
um hernámsárin hér í landi sem er
kannski ágætis ferskur andblær.
Frásögnin í Yfir bænum heima
rennur mjúklega áfram og Kristín
málar skýra mynd af bæjarlífinu og
persónunum. Arf leifð barnabóka
Kristínar er einnig greinileg í verk-
inu þar sem krakkarnir í bænum
fá sitt rými í sögulínunni. Þannig
að það má eiginlega segja að þessi
nýjasta skáldsaga Kristínar liggi á
gatnamótum hennar fyrri verka – og
myndi lesturinn henta bæði börnum
og fullorðnum. Sagan býr yfir bæði
einlægni og sakleysi barnabóka en
undir niðri mara erfiðleikar stríðs-
áranna, kreppa, ástarsorg og missir.
Engir stórir harmleikir taka beint
yf ir söguþráðinn af hversdags-
legu lífi fólks sem heldur áfram að
lifa þrátt fyrir hernám og breytta
tíma. Það eru kannski helst litlu
smáatriðin sem skera sig úr í skáld-
sögunni, litlir brauðmolar úr daglegu
lífi fólks á þessum tímum sem sitja
eftir. Brauðmolar sem eflaust komu
úr viðtölum Kristínar og sitja eftir í
lesanda um kaffidrykkju og löngu
breytt bernskubrögð. Á umrótaárinu
2020 er kannski kærkomið og gott
að lesa um annan og eldri öldugang
í heiminum. Umrótatíma sem litu
kannski út fyrir að þeim ætlaði aldrei
að ljúka en lauk eins og öllu fyrir rest.
Bryndís Silja Pálmadóttir
NIÐURSTAÐA: Fallegar sögur um
góðverk á stríðstímum og hvernig
heimsumrótið hafði áhrif á daglegt
líf Íslendinga í litlum smábæ.
Heiðarleg
frásögn af
stríðstímum Leikhúsbókabúð hefur verið opnuð í Þjóðleikhús-inu. Þar eru á boðstólum
leikhúsbækur af öllu tagi: leik-
rit og leikritasöfn, bækur um
leikhús og leikhúsfólk, fræði-
rit um fagið og skáldverk sem
tengjast leiksýningum Þjóð-
leikhússins. Þar er einnig boðið
upp á eigin útgáfu leikhússins
á völdum, nýjum leikritum og
þýðingum. Einnig er á boð-
stólum ýmiss konar varningur
sem tengist sýningum hússins,
geisladiskar og mynddiskar.
Leikhúsbókabúð opnuð
Leikhúsbókabúðin í Þjóðleikhúsinu.
Úlfur Karlsson opnar sýn-inguna NÚNA NÚNA OG NÚNA í Kaktus, Listagilinu á
Akureyri í dag, laugardaginn 5.des-
ember. Sýningin verður einungis
opin þessa einu helgi.
Úlfur Karlsson er menntaður
við Myndlistarskóla Akureyrar,
Kv ik my nd a skóla Ísla nd s og
útskrifaðist vorið 2012 frá Lista-
háskólanum í Gautaborg, Valand.
Úlfur hefur sýnt í Galerie Ernst Hil-
ger í Vín, D-Salnum í Hafnarhúsinu,
Listasafni ASÍ og Listasafni Reykja-
nesbæjar. Verk Úlfs hafa oftar en
ekki beitta ádeilu á málefni líðandi
stundar og lýsa oft sýn listamanns-
ins á veröldina. Áhrif frá kvik-
myndagerð eru sterk í verkum Úlfs,
þar sem karakterar í verkunum lifna
í óreiðunni, minna á hreyfimyndir,
stundum nánast martraðarkenndar
í bland við draumkenndar verur úr
gömlum ævintýrum.
Núna bara í dag
Myndlistarmaðurinn Úlfur.
TILFINNINGARÍK
OG LJÓÐRÆN
„Það er svo gaman að sjá hana
stíga inn í form sem hún hefur
fullkomið vald á.“
ÞORGEIR TRYGGVASON / KILJAN
Í Aprílsólarkulda fjallar Elísabet
Jökulsdóttir af miklu næmi um
föðurmissi, ást, sorg og geðveiki
„Það koma ljóðleiftur inn í textann
sem eru alveg dásamleg.“
SUNNA DÍS MÁSDÓTTIR / KILJAN
Innbundin Rafbók
Bókabúð Forlagsins | Fiskislóð 39 | Opið 10–19 alla daga til jóla | www.forlagid.is
LANDSINS MESTA ÚRVAL BÓKA
M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 57L A U G A R D A G U R 5 . D E S E M B E R 2 0 2 0