Fréttablaðið - 05.12.2020, Side 100
Bubbi Morthens heldur má lverk a sý ning u í Kringlunni þar sem hann sýnir texta sína. Verkin eru til sölu á bubbi.is.
„Kveikjan var sú að Hrafnhildur,
mín fallega eiginkona, fann pappa-
kassa uppi á háalofti. Hún sagði:
Bubbi minn, hér eru stílabækur og
dagbækur frá Staðarfelli þegar þú
varst í meðferð og dagbækur sem
ná til ársins 1974. Ég fór að gramsa
í þessu og þá blöstu við mér frum-
textar: Ísbjarnarblús fyrri hlutinn
saminn 1974, dagbók frá Staðarfelli,
Rómeó og Júlía og svo margt f leira.
Ég sagði við Hrafnhildi: Sérðu hvað
ég hef verið illa farinn og hvað skrif-
blindan hefur verið rosaleg. Svo
hugsaði ég með mér: Hvers vegna
leyfi ég ekki fólki að sjá þessa frum-
texta? Þetta er raunveruleikinn,
svona skrifaði ég í fráhvörfum á
Staðarfelli, svona skrifaði ég þegar
ég var ástfanginn, svona skrifaði ég
þegar ég var í ruglinu.
Svo kom frábær fyrrverandi
kaupahéðinn, og góður vinur,
Finnur Árnason fyrrverandi for-
stjóri Haga, í heimsókn og sagði: Þú
verður að setja þetta allt í mynd-
list. Þannig að ég lét þrykkja texta á
sýrufrían bómullarpappír sem þolir
sólarljós og er ótrúlega fallegt verk,
næstum eins og málverk. Svo eru
verkin númeruð og vottuð. Sýning-
una kalla ég Vegg hinna skrifblindu.
Um leið leyfi ég fólki að sjá hvernig
þetta var áður en Silja Aðalsteins-
dóttir, fósturmóðir mín, tók mig
undir sinn verndarvæng. Hún hefur
lesið yfir allt sem ég skrifa, leiðrétt
og gert fallegt. Silja hefur svo mik-
inn húmor að þegar hún frétti af
sýningunni sendi hún mér póst og
spurði: Er ég nú orðin atvinnulaus?
Ég skrifaði til baka og sagði: Aldrei.“
Ótal skilaboð
Bubbi segist hafa fengið gríðarlega
sterk viðbrögð við sýningunni.
„Ég hef fengið aragrúa skilaboða
frá einstaklingum sem segja: Takk
fyrir að gefa mér kjark, ég hef aldrei
þorað að skrifa, ég er skrif blindur,
ég er lesblindur, ég óttast að tala
vitlaust. Það kemur í ljós að í þjóð-
félagi okkar eru þúsundir haldnir
málótta. Í staðinn fyrir að gera
íslenskuna skemmtilega þannig að
börn hlakki til að fara í íslensku-
tíma þá er búið til regluverk og svo
eru krakkar lamdir niður. Þegar
ég spyr unga krakka í tónlistinni:
Hvers vegna syngið þið ekki á
íslensku krakkar? þá segja þau: Nei,
ef maður gerir það er maður bara
tekinn niður.“
Bubbi segir að líklega hefði ekk-
ert orðið af sýningunni í eðlilegu
ástandi, COVID hafi hrint henni af
stað. „Það kom kom í ljós að neyðin
kennir nöktum Bubba að spinna. Ég
hefði aldrei gert þetta nema vegna
þess að mér hefur verið bannað að
stunda list mína í nær tíu mánuði.“
Vildi liggja í rúminu
Spurður hvernig andleg líðan hans
hafi verið á þessu tímabili segir
Bubbi: „Ég skal fúslega viðurkenna
að ég súnkaði niður í október, ég
vildi bara liggja í rúminu. Blessun-
arlega stóð þetta ástand stutt yfir en
mér brá nokkuð. Ég reyndi að spila
á gítarinn en var bæði stirður og
klaufskur.
Mín stóra ást er að vera á sviði.
Sem barn og ungur maður fannst
mér ég vera utangátta en ég var
alltaf eins og heima uppi á sviði. Þar
leið mér stórkostlega. Þegar það er
svo tekið frá mér þá láta alls kyns
tilfinningar á sér kræla. Ég hef setið
og bölvað þríeykinu en svo hugsaði
ég: Það er bara tvennt í stöðunni,
að detta í sama pytt og Sigríður
Andersen og Brynjar Níelsson eða
viðurkenna að við erum öll í þessu
saman. Það er auðvelt að gagnrýna
og þetta er erfið staða vegna þess
að auðvitað langar mig til að spila.
Ég er búinn að vera tekjulaus í níu
mánuði. Ég er svo heppinn að vera á
heiðurslaunum og þótt þau séu ekki
himinhrópandi há þá hafa þau þó
bjargað því að ég er ekki á leið undir
sleggju og hamar.“
Hann veit þó dæmi um tón-
listarmenn sem eiga í miklum
erfiðleikum vegna samkomubanns.
„Við erum að tala um alvarleg vand-
ræði, ekki bara fjárhagsleg heldur
líka andleg. Ég er einn af stóru köll-
unum og bý svo vel að eiga 800 lög
á lager. Ég er betur settur en flestir
með heiðurslaunin mín sem ég er
óendanlega þakklátur fyrir. Ég sé
ungt barnafólk, nýbúið að kaupa
sér húsnæði sem getur ekki stundað
tónlistina sem er atvinna þess og
fær athugasemdir eins og: Hvers
vegna reynið þið ekki að fá ykkur
vinnu?“
Þrátt fyrir slæmt ástand er engin
uppgjöf í Bubba: „Manneskjan
hefur alltaf vonina og án vonar er
engin ást. Ég vona og vil trúa því að í
apríl verði ég byrjaður að spila með
fólk í salnum og leikhúsin verði
komin í gang og vorið á blússandi
uppsiglingu.“
Þetta er raunveruleikinn, svona skrifaði ég
Bubbi Morthens sýnir texta sína á málverkasýningu í Kringlunni. COVID-ástandið hrinti sýningunni af
stað. Segir ástandið hafa um tíma haft áhrif á andlega líðan sína. Vitanlega heldur hann þó í bjartsýnina.
Manneskjan hefur alltaf vonina og án vonar er engin ást, segir Bubbi Morthens. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Veggur hinna skrifblindu í Kringl-
unni. FRÉTTABLAÐIÐ ANTON BRINK
Kolbrún
Bergþórsdóttir
kolbrunb@frettabladid.is
ÉG HEF FENGIÐ
ARAGRÚA SKILABOÐA
FRÁ EINSTAKLINGUM SEM
SEGJA: TAKK FYRIR AÐ GEFA
MÉR KJARK.
Einar Kárason hefur ástæðu til að gleðjast. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Skáldsagan Stormfuglar eftir Ei na r K á r a son hef u r að undanförnu notið frábærrar
velgengni erlendis. Hún var á dög-
unum valin bók ársins (í þýddum
skáldverkum) af gagnrýnanda
Sunday Times og var skömmu fyrr
tilnefnd sem ein af sex bókum í
sama f lokki í Finacial Times. Hún
fékk síðan virt verðlaun sem besta
þýdda bókin sem kom út 2019 í Sví-
þjóð.
Frábær velgengni
Í sal Félagsins íslensk grafík í Hafn-arhúsinu er opin sýning þar sem Anne Thorseth sýnir málverk sem
eru unnin með eggtemperu á bómull-
arpappír og Þóra Sigurðardóttir sýnir
teikningar og eitt þrívítt verk úr leir.
Teikningarnar eru unnar með kolum/
eggtemperu og grafíti á hörstriga.
Anne og Þóra hafa meðal ann-
ars unnið saman að verkefninu MY
PLACE / YOUR PLACE og sýnt á
sýningarstöðum í Danmörku og á
Íslandi.
Anne og Þóra í Hafnarhúsinu
Verk eftir Þóru á sýningunni í
Hafnarhúsinu. MYND/AÐSEND
HAMINGJUÓSKIR
Hið íslenska bókmenntafélag óskar
Pétri H. Ármannssyni til hamingju með tilnefninguna til
Íslensku bókmenntaverðlaunanna í flokki fræðirita fyrir
Guðjón Samúelsson húsameistari
5 . D E S E M B E R 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R58 M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð