Fréttablaðið - 05.12.2020, Page 118
RITSTJÓRN
ritstjorn@frettabladid.is
AUGLÝSINGADEILD
auglysingar@frettabladid.is
PRENTUN
Torg ehf.
DREIFING Póstdreifing ehf.
dreifing@postdreifing.is 550 5000
Óttars
Guðmundssonar
BAKÞANKAR
Vínkælar
Fyrir heimilið
FRÁBÆRT ÚRVAL
Höfðabakka 9, 110 Reykjavík
E L D H Ú S A L L R A L A N D S M A N N A
Beint í bílinn
úr lúgunni
Ég hef lengi velt því fyrir mér hvernig helstu persónum Sturlungu hefði vegnað í
nútímasamfélagi. Höfðingjarnir
Gissur Þorvaldsson og Hrafn
Oddsson hefðu án efa blómstrað á
Alþingi við Austurvöll. Báðir voru
óheiðarlegir og miskunnarlausir
menn sem sóru ranga eiða. Gissur
hefði sómt sér vel sem fjármála- og
heilbrigðisráðherra enda óhrædd-
ur við harkalegan niðurskurð.
En hvernig hefðu nútímamenn
staðið sig á Sturlungaöld? Gott
andlegt og líkamlegt þrek skipti
mestu, enda fóru vopnaðir menn
ríðandi landshorna á milli. Bjarni
Benediktsson hefði blómstrað
enda riðvaxinn og vöðvastæltur
fyrrum knattspyrnumaður. Stein-
grímur Sigfússon er bæði klækjótt-
ur og vel á sig kominn svo að hann
hefði notið sín á tímum Sturlunga.
Einhvern veginn sér maður ekki
Sigurð Inga og Loga Einarsson í
sjóorrustum og ferðaslarki. Þeir
hefðu sennilega ekki orðið langlífir
í þessum hörðu átökum. Mikill
auður, popúlismi og föst búseta í
tveimur landsfjórðungum hefði
fleytt Sigmundi Davíð til einhverra
áhrifa. Katrínu Jakobsdóttur hefði
vegnað ágætlega í f lóknum átökum
og óheilindum aldarinnar enda
þaulvön lævísum árásum eigin
flokksmanna. Þórhildur Sunna
hefði náð langt með því að kjafta
karlaveldið í kaf. Sturlungaöld var
blómatími sjálfmiðaðra narsissista
svo að Kári Stefánsson hefði náð
hæstu hæðum og stjórnað landinu
bak við tjöldin. Þorgerður Katrín
hefði borið kápuna á báðum öxlum
og haslað sér völl í öllum andstæð-
um fylkingum aldarinnar. Guðni
forseti hefði ekki komist langt í
lævi blöndnu andrúmslofti þess-
ara tíma. Hætt er við að Sturlungar
hefðu dottað undir spaklegum og
fyrirsjáanlegum ræðum Guðna.
Maðurinn breytist ekki. Sturl-
ungar hefðu blómstrað nú á tímum
og nútímamenn notið sín ágætlega
á blóði drifnum vígvöllum þrett-
ándu aldar.
Tími Sturlunga
Tilboð dag
sins
desember
6.
Jólamarkaður í gróðurhúsunum fyrir framan verslunina opinn 11-20 – IKEA.is
©
Inter IKEA System
s B.V. 2020
TILBOÐ TILBOÐ
Smelltu og sæktu!
895,-/25 í pk.
Tilboð dagsins
desember
5.
Fullt verð 3.490,-
STRÅLA LED ljósasería með 10 ljósum
Gengur fyrir rafhlöðum, seldar sér
Verslun í Kringlunni