Fréttablaðið - 12.12.2020, Page 2
Grýla og Leppalúði í Ráðhúsinu
Tjarnarsalnum í Ráðhúsi Reykjavíkur hefur verið breytt í ævintýralegan jólaskóg og í gær komu leikskólabörn frá Tjarnarborg þangað í heimsókn.
Börnin fengu bæði heitt kakó og smákökur og hittu Grýlu og Leppalúða sem sögðu þeim sögur af sonum sínum, jólasveinunum. Fyrsti jólasveinn-
inn, Stekkjarstaur, kom til byggða í nótt og gladdi þæg börn með gjöf í skóinn. Í nótt kemur bróðir hans, Giljagaur til byggða. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Nú einnig á selected.is
Jólafötin og fallegar gjafir
MENNING Boðið verður upp á sér-
staka ilmupplifun í Rammagerðinni
á Skólavörðustíg í dag milli klukkan
14 og 16. Verður þá fólki boðið að
upplifa jólin í gengum sérstakar
ilmgrímur í boði Fischer ilmhúss.
Um er að ræða jólailm sem hann-
aður er af Jóni Þór Birgissyni, best
þekktum sem Jónsa í Sigur Rós.
Ilmurinn samanstendur af reyk-
elsi og myrru auk mandarína, kand-
íss og grenis.
Jónsi er nú staddur í Los Angeles í
Bandaríkjunum þar sem hann býr.
Hafði hann hug á því að koma heim
um jólin en hyggst sleppa því vegna
ástandsins.
Hann segir það ekki hafa verið
erfitt að búa til jólailm í hitanum í
Kaliforníu. „Það var bara fínt. Skellti
Strumpajólaplötunni á fóninn og þá
kom þetta,“ segir Jónsi.
Rammagerðin vinnur nú að því
að breyta versluninni og ímyndinni
úr því að vera minjagripaverslun
fyrir erlenda ferðamenn og yfir í
að vera vettvangur fyrir íslenska
hönnuði.
Meðal þess sem Rammagerðin
hefur ráðist í er að byrja jólahefð
þar sem íslenskir hönnuðir skapa
árlegan jólakött. Í ár eru það hönn-
uðir Fléttu með jólakött úr not-
uðum barnafötum.
Lilja Birgisdóttir, önnur systr-
anna í Fischer ilmhúsi, segir að
stefnt verði að því að gera jólailm-
inn að árlegri hefð. Fischer ilmhús
fagnar í næstu viku þriggja ára
afmæli.
„Þá ætlum við að gefa út vín-
ylplötu sem Jónsi gerði ásamt kær-
ustum okkar systra, við verðum þá
með ilm- og tónlistarupplifun í ilm-
húsinu í Fischersundi,“ segir Lilja.
Ilmhúsið framleiðir ilmvötn
úr íslenskum og öðrum náttúru-
legum ilmolíum, auk þess að fram-
leiða snyrtivörur, reykelsi og ilm-
kerti, ásamt því að gefa út tónlist og
myndlist.
„Það kom okkur mjög á óvart
hversu Íslendingar eru hrifnir af
sérstökum og handgerðum ilmum,
við töldum fyrst að það væri ekki
mikill markaður fyrir þetta. Nú
erum við komin með góðan hóp af
fastakúnnum.“
Jónsi, bróðir Lilju og Sigurrósar
í Fischer ilmhúsi, sér um að hanna
ilmina. „Hann er nefið okkar,“ segir
Lilja og hlær.
Þar sem grímuskylda er alls stað-
ar þar sem ekki er hægt að tryggja
tveggja metra nálægðarmörk var
ákveðið að prófa að setja ilminn
í grímurnar og gefa gestum til að
skapa sameiginlega ilmupplifun.
Hundrað manns mega vera inni
í einu í Rammagerðinni. „Við erum
búin að vera að þróa hugmyndina
um ilmgrímu og erum búin að
finna hið fullkomna magn til þess
að skapa hlýja jólastemningu,“
segir Lilja. „Þetta er ekta ilmvatn
og er ilmurinn því sterkur en við
þynnum hann út til að gera þetta
að notalegri upplifun.“
arib@frettabladid.is
Setja jólailm í grímur
Jónsi í Sigur Rós hefur hannað sérstakan jólailm. Á tímum grímuskyldu verður
ilminum komið fyrir í grímunni sjálfri í ilmupplifun á Skólavörðustíg í dag.
Rósa býr til jólailmkertin í ilmhúsinu í Fischersundi. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Skellti Strumpajóla-
plötunni á fóninn
og þá kom þetta.
Jónsi í Sigur Rós,
tónlistarmaður
og ilmhönnuður
SAMFÉLAG Íslenski vinurinn sem
Skotinn Richard Fowlie leitaði að
fannst nokkrum klukkustundum
eftir að frétt um leitina birtist á vef
Fréttablaðsins. Íslenski vinurinn hét
Egill G. Thorarensen, fæddur árið
1944, en hann féll því miður frá árið
2013 eftir baráttu við erfið veikindi.
Eins og kom fram í Fréttablaði
gærdagsins sendi Richard Fowlie
ritstjórn handskrifað bréf þar sem
hann greindi frá því að hann hefði
leitað að íslenskum vini sínum um
árabil. Þeir höfðu kynnst í Edinborg
á árunum 1960-1962 en þá voru þeir
báðir á bilinu 18-20 ára gamlir.
Þeir höfðu haldið bréfaskriftum
áfram um nokkurt skeið eftir að
Egill f lutti til Íslands en síðan hafi
upp úr þeim slitnað og bréfin glat-
ast. Þannig hafði nafn Egils skolast
til sem gerði leitina talsvert erfiðari
fyrir Fowlie sem hefur tekið þá
afstöðu í lífinu að hunsa tilvist int-
ernetsins. Hann hafi síðan fyrir til-
viljun fundið hjá sér mynd af hinum
íslenska vini sínum og ákveðið að
gera lokatilraun. Í bréfinu sem barst
á ritstjórnina sagðist Fowlie halda
að vinurinn hefði heitið „Engel
Johannsson“ sem er vissulega í átt-
ina.
Um leið og fréttin um leitina
birtist á vef Fréttablaðsins byrjuðu
ábendingar að berast og skömmu
síðar var blaðamaður kominn í
samband við fjölskyldumeðlimi
Egils heitins. Að þeirra mati var
augljóst að myndin væri af Agli og
einnig stemmdi að hann hefði verið
um tíma í Edinborg. Þá kom einnig
upp úr dúrnum að Egill hefði unnið
með hesta í Edinborg sem kom einn-
ig heim og saman við sögu Richards
Fowlie af vini sínum.
Í samtali við blaðmann sagði
Fowlie að hann væri mjög undr-
andi yfir því hversu skamman tíma
leitin hefði tekið og að hann væri
afar þakklátur fyrir að hafa fengið
fregnir af afdrifum vinar síns þrátt
fyrir að tíðindin væru sorgleg. – bþ
Íslenski vinurinn í Skotlandi
fannst á nokkrum klukkutímum
STJÓRNSÝSLA Í bókun meirihluta
borgarráðs vegna fyrirspurnar
Sjálfstæðisf lokksins um kostnað
við Tryggvatorg kemur fram að hið
eiginlega Tryggvatorg standi við
hringtorg á Selfossi þar sem pylsu-
vagn bæjarins er.
Torgið í Reykjavík hafi því hlotið
nýtt nafn sem sé Bæjartorg. „Þótt
gárungarnir kalli það Pylsutorg
eða Pulsutorg,“ segir í bókun fjár-
mála- og áhættustýringarsviðs,
enda stendur hinn rómaði Bæjarins
bestu-vagn þar.
Þess má geta að framkvæmdun-
um við Tryggva-, Bæjar-, Pulsu- eða
Pylsutorg er lokið og nam kostn-
aður 43,3 milljónum króna. – bb
Kallað Pylsu-
eða Pulsutorg
Bill Clinton, fyrrverandi forseti,
fékk sér á eina pylsu með miklu
sinnepi árið 2004. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
1 2 . D E S E M B E R 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R2 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð