Fréttablaðið - 12.12.2020, Qupperneq 8
FULLKOMIN
BLANDA
fyrir notalegasta tíma ársins
VIÐSKIPTI „Við vorum mjög spennt
að heyra af nýjustu aðgerðum stjórn-
valda enda með um 400 manns
í skötu á Þorláksmessu á hverju
ári. Þegar ljóst var í hvað stefndi
ákváðum við að byrja fyrr í mánuð-
inum og við erum að hringja í fólk og
bjóða því að koma fyrr. Á sama tíma
gætum við þess að passa upp á sótt-
varnir,“ segir Stefán Úlfarsson, mat-
reiðslumeistari á Þremur frökkum,
aðspurður hvernig skötuveislunni
verði háttað hjá þeim þetta árið.
Hann er því með skötu á boð-
stólum alla daga um þessar mundir.
„Það sýna þessu allir mikinn
skilning og margir í áhættuhópum
ætla að sleppa skötunni þetta árið
og koma aftur á næsta ári. Aðrir
hafa lýst yfir ánægju með að geta
komið bara fyrr þegar það er ekki
jafn mikið að gera. Fyrstu gestirnir
komu fyrr í vikunni og það er von á
fleirum á næstu dögum.“
Stefán á ekki von á því að margir
panti að fá skötu senda heim.
„Það er ekki algengt að skatan sé
send heim til fólks. Fólk er yfirleitt
að leitast eftir því að fá ekki lyktina
heim til sín,“ segir Stefán hlæjandi
og bætir við:
„Það er erfitt að útrétta það enda
viðkvæmur matur í takeaway, þetta
er ekki eins og pitsa. Ef einhver vill
koma og sækja þá getum við græjað
það, við erum búin að finna lausn
en ég á ekki von á því að margir
leitist eftir því.“
Stefán hefur því nægan tíma til að
pakka inn jólagjöfunum á Þorláks-
messu þetta árið. „Hún verður bara
nokkuð afslöppuð Þorláksmessan
hjá okkur,“ segir hann léttur að
lokum. – kpt
Ekki hægt að senda skötu heim eins og pitsur
COVID-19 Íslensk heilbrigðisyfir-
völd hafa nú undirritað samning
við bóluefnaframleiðandann Pfi-
zer en samningurinn kveður á um
170 þúsund skammta af bóluefni
sem duga fyrir 85 þúsund manns.
Lyfjastofnun Evrópu á enn eftir að
veita lyfinu markaðsleyfi en gert
er ráð fyrir að ákvörðun um málið
verði tekin fyrir 29. desember næst-
komandi.
Að því er kemur fram í tilkynn-
ingu frá heilbrigðisráðuneytinu er
gert ráð fyrir að fyrstu skammtarnir
berist fyrir áramót og er þar um að
ræða 21 þúsund skammta, sem duga
fyrir 10.500 manns.
Samanlagt tryggja samningarnir
bóluefni fyrir 281 þúsund ein-
staklinga og er því um að ræða 562
þúsund skammta, þar sem bólu-
setja þarf hvern einstakling tvisv-
ar. Upplýsingar um hvenær verði
hægt að hefja bólusetningar eru á
reiki en Svandís Svavarsdóttir heil-
brigðisráðherra greindi frá því fyrr í
mánuðinum að bólusetningar gætu
mögulega hafist á fyrstu vikum nýs
árs og að bólusetningu verði lokið
fyrir lok fyrsta árfjórðungs. – fbl
Ísland hefur nú undirritað samning við Pfizer
Gert er ráð fyrir að fyrstu skammtar
bóluefnisins komi hingað til lands
fyrir áramót. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
NEYTENDAMÁL Megintillaga frum-
varps landbúnaðar- og sjávar-
útvegsráðherra um breytingar á
búvörulögum, sem nú er til með-
ferðar á Alþingi, er að hverfa frá
svokölluðu jafnvægisútboði við
úthlutun tollkvóta fyrir búvörur,
sem samið hefur verið um í alþjóða-
samningum. Þá skal taka tíma-
bundið upp fyrri útboðsaðferð,
þar sem tollkvótar eru seldir hæst-
bjóðanda.
Félag atvinnurekenda (FA) og
Samkeppniseftirlitið eru meðal
þeirra sem hafa gagnrýnt þær breyt-
ingar. Heillavænlegra væri að þeirra
mati að fara í almennar aðgerðir til
þess að styrkja matvælaframleiðslu
hér á landi í stað þess að fara í sam-
keppnishamlandi aðgerðir. Útboðs-
gjaldið sé verndaraðgerð fyrir mat-
vælaframleiðendur sem muni leiða
til þess að verð á afurðum til neyt-
enda hækki.
„Við höfum fullan skilning á því
að innlend matvælaframleiðsla hafi
tekið högg vegna faraldursins, eins
og svo margar atvinnugreinar, og
það þurfi að bregðast við því með
einhverjum almennum aðgerðum,“
segir Ólafur Stephensen, fram-
kvæmdastjóri FA.
Hann segir öfugsnúið að grípa til
samkeppnishamlandi aðgerða sem
leiði til hærra vöruverðs nú þegar
25 þúsund manns þiggi atvinnu-
leysisbætur. „Og þykir matar-
karfan líklega alveg nógu há fyrir.“
Ólafur segir að með því að neita
óskum um að dreifa tollkvóta á
lengra tímabil eða skila honum
gegn endurgreiðslu hafi atvinnu-
vegaráðuneytið stuðlað að því
að innf lutningur búvara á toll-
kvótum sé óbreyttur á sama tíma
og eftirspurn dregst saman. „Það
er afskaplega kaldhæðnislegt að
landbúnaðarráðherra skuli nú
leggja fram frumvarp til að leysa úr
meintu vandamáli sem hann átti
sjálfur þátt í að búa til,“ segir Ólafur.
FA telur að uppboð á tollkvóta
gangi gegn markmiðum þeirra
alþjóðasamninga sem gerðir eru
um gagnkvæman markaðsaðgang í
formi tollkvóta. Jafnvægisútboð sé
þó skárra en fyrra kerfi.
Innf luttar vörur muni hækka í
verði og í skjóli þeirrar hækkunar
verði auðveldara fyrir innlenda
framleiðendur að halda uppi verði.
Samkeppniseftirlitið tekur í sama
streng en í umsögn þess um frum-
varpið segir að það feli í sér frávik frá
þeirri stefnumörkun sem stjórnvöld
flestra ríkja og fjöldi fræðimanna
séu sammála um, að efnahagsáföll-
um skuli jafnan mætt með aukinni
samkeppni. Tillögur frumvarpsins
feli ekki í sér neina tryggingu fyrir
því að hagur bænda vænkist, nái þær
fram að ganga. hjorvaro@frettabladid.
Breytingar muni leiða
til hærra vöruverðs
Lagðar hafa verið til breytingar á búvörulögum til að vernda innlenda mat-
vælaframleiðendur vegna áhrifa faraldursins. Félag atvinnurekenda og Sam-
keppniseftirlitið telja frumvarpið draga úr samkeppni og leiða til hækkana.
FA og Samkeppniseftirlitið telja breytingarnar leiða til minni samkeppni og verðhækkana. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Við höfum fullan
skilning á því að
innlend matvælaframleiðsla
hafi tekið högg
vegna farald-
ursins.
Ólafur Stephen-
sen, fram-
kvæmdastjóri FA
Margir í áhættu-
hópum ætla að
sleppa skötunni þetta árið.
Stefán Úlfarsson
matreiðslumeist-
ari
Stefán býður nú upp á
skötu alla daga.
1 2 . D E S E M B E R 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R8 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð