Fréttablaðið - 12.12.2020, Blaðsíða 20
FÓTBOLTI Á sama tíma og nágrann-
arnir og erkifjendurnir í Celtic
skrölta í gengum tímabilið er
forna stórveldið Glasgow Rangers
á hvínandi siglingu. Undir stjórn
Steven Gerrard hefur Rangers ekki
tapað í 26 leikjum í öllum keppnum
né fimm leikjum á undirbúnings-
tímabilinu þar sem Rangers mætti
meðal annars Lyon. Forskotið á
toppi deildarinnar er nú þrettán
stig og þó að Celtic eigi tvo leiki til
góða eru stuðningsmenn Rangers
vongóðir um að binda enda á níu
ára sigurgöngu Celtic.
Tíu ár verða liðin næsta vor síðan
Rangers vann síðast meistaratitil-
inn í Skotlandi. Stuttu síðar komu
fjárhagsvandræði félagsins í ljós
og var Rangers dæmt niður í þriðju
deild. Það hleypti nýrri gullöld Cel-
tic af stað sem var útlutað níunda
meistaratitlinum í röð fyrr á árinu
eftir að deildin var stöðvuð vegna
kórónaveirufaraldursins. Með því
tókst Celtic að jafna met Rangers
frá 1997 og eigið met frá 1974 en
engu liði hefur tekist að vinna tíu
meistaratitla í röð.
„Celtic er búið að vinna síðustu
níu meistaratitla og eru að reyna
að vinna tíunda í röð sem yrði risa-
stórt afrek í skoskri knattspyrnu.
Það gefur leikmönnum Rangers
aukna hvatningu til að stöðva þessa
sigurgöngu. Það er mikið hungur í
liðinu í að stoppa Celtic. Undan-
farin ár hefur liðið tekið sífelldum
framförum og færst nær titilbarátt-
unni og eru liðin mjög sambærileg í
gæðum í ár,“ segir skoski framherj-
inn Steven Lennon sem leikur með
FH. Lennon kom upp úr unglinga-
starfi Rangers og lék þrjá leiki fyrir
skoska félagið, þann fyrsta aðeins
átján ára gamall.
Það er ekki aðeins í deildar-
keppninni sem Rangers stendur vel
að vígi því skoska félagið vann riðil
sinn í Evrópudeildinni með Benfica,
Standard Liege og Lech Poznan eftir
að hafa slegið tyrkneska stórveldið
Galatasaray út í undankeppninni.
„Það hefur verið frábært að fylgj-
ast með þeim í vetur. Liðið hefur
sýnt mikinn stöðugleika í öllum
keppnum á sama tíma og Celtic
hefur átt erfitt uppdráttar, bæði
í deild og í Evrópu. Hlutirnir geta
hins vegar verið fljótir að breytast,
staðan var mjög góð á sama tíma í
fyrra en þá fór allt í vaskinn eftir
æfingaferð félagsins til Dúbaí sem
farin var eftir áramót. Þetta ræðst
líklegast af úrslitunum úr leikj-
unum þremur gegn Celtic sem
eftir eru.“
Steven Gerrard er á þriðja
ári sínu með liðið og hefur
honum tek ist að
v inna stuðnings-
menn Rangers alfar-
ið á sitt band.
„Gerrard var frábær
leikmaður sem gaf
sig allan í alla leiki.
Honum er að takast
að fá það sama úr
leikmönnum sínum
því það eru allir að
spila upp á sitt besta. Það er
ekkert um kæruleysi innan
liðsins. Hann hefur hentað
félaginu fullkomlega því
leik mennir nir líta
upp til hans og því
sem hann afrekaði á ferlinum og
hann hefur fengið að mynda sitt
lið.“
Aðspurður hvort Gerrard ætti
von á styttu fyrir utan Ibrox ef
honum tækist að vinna titilinn og
stöðva þessa sigurgöngu Celtic var
Lennon ekki viss.
„Hann þarf að vinna aðeins
meira áður en hann fær styttu,“
segir Lenn on hlæjandi. „Það hafa
margir sigursælir þjálfarar verið
í sögu Rangers. Hann myndi alla-
vegana skrifa nafn sitt í sögubækur
félagsins með því að vinna titilinn
og stöðva Celtic. Vonandi verður
hann til lengri tíma og myndar
eigin sigurgöngu.“
Liðin tvö, Celtic og Rangers, hafa
einokað skoska meistaratitilinn
undanfarna áratugi en fara þarf
aftur til ársins 1985 til að finna
síðasta árið sem öðru liði tókst að
vinna titilinn. Þá vann Aberdeen
annan titilinn sinn í röð undir Sir
Alex Ferguson.
„Það skiptir stuðningsmenn Rang-
ers öllu að stöðva þessa sigurgöngu.
Í Skotlandi eru flestir annaðhvort
aðdáendur Celtic eða Rangers. Rang-
ers stuðningsmenn kvíða því að fara
í vinnuna eftir Celtic-sigur í leik
liðanna og öfugt. Það er lítill áhugi
fyrir því að hlusta á vinnufélagana
tala um tíu meistaratitla.“
Ef Rangers tekst að
endurheimta titilinn í vor
verður það tíu árum frá
síðasta meistaratitli. Á
þeim tíma hefur félag-
ið farið á hausinn en
virðist standa á stöð-
ugum fótum í dag.
„Það er langur tími
að baki. Rangers er
risafélag en spennti
bogann of hátt fjár-
hagslega v ið að
semja við leikmenn
á sínum tíma. Von-
andi hafa þeir lært
sína lexíu og fara
varlega ef þeir
v i n na t it i l i n n .
Það er auðvelt að
fara fram úr sér í
eyðslu þegar þú færð
peninga.“ kristinnpall@frettabladid.is
FÓTBOLTI Borgarráð Reykjavíkur
samþykkti á fimmtudaginn að veita
Þjóðarleikvangi ehf. viðbótarfram-
lag upp á fimm milljónir króna að
tillögu borgarstjóra. Er það gert
til að standa straum af áætluðum
viðbótarkostnaði sem falli til við
að ljúka fyrsta áfanga við þarfa-
greiningu vegna þjóðarleikvangs í
knattspyrnu. Von er á öðrum fimm
milljónum frá KSÍ og ríkinu.
Rúmur mánuður er liðinn síðan
samþykkt var að ríkið og Reykjavík-
urborg myndu hefja viðræður sem
ættu að leiða af sér nýjan þjóðarleik-
vang fyrir knattspyrnuhreyfinguna
á Íslandi. Leitað var ráða hjá breska
ráðgjafarfyrirtækinu AFL og fjórar
mismunandi sviðsmyndir settar
upp. Í tilkynningu ríkisstjórnar kom
fram að vonast væri til að völlurinn
yrði til árið 2025. – kpt
Aukið fé vegna þarfagreininga
• Gistiheimili, sex fullbúin herbergi
• Veitingasalur ásamt fullbúnu eldhúsi
• Stórt tjaldsvæði og mjög góð grill- og
eldunaraðstaða sem og hreinlætisaðstaða
• Fallegur skógarreitur til útivistar
• Stór hlaða innréttuð sem veisluaðstaða
• Hesthús ásamt beitarhaga
• 88 m2 íbúð fyrir leigutaka á staðnum
Einstakt tækifæri
- Gistiheimili við þjóðveg 1 til leigu
Húnavatnshreppur
hunavatnshreppur.is
Senda skal umsókn fyrir 22. janúar nk. á netfangið
einar@hunavatnshreppur.is.
Nánari upplýsingar:
Einar Krisján Jónsson sveitarstjóri í síma 455 0010
og 842 5800. Áskilinn er réttur til að taka hvaða
umsókn sem er eða hafna öllum.
Félagsheimilið Húnaver ásamt öllu sem því tilheyrir
Skiptir öllu að stöðva Celtic í tæka tíð
Eftir níu ára einokun Celtic á meistaratitlinum í Skotlandi er Rangers í afar vænlegri stöðu til að stöðva sögulega sigurgöngu erki-
fjenda sinna. Engum hefur tekist að vinna tíu titla í röð og segir fyrrverandi leikmaður Rangers það drífa leikmenn félagsins áfram.
Gerrard fékk markahrókinn Jermain Defoe til Skotlands. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
Gerrard myndi
allavegana skrifa
nafn sitt í sögubækur
félagsins með því að vinna
titilinn og
stöðva sigur-
göngu Celtic.
Steven Lennon,
framherji FH
1 2 . D E S E M B E R 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R20 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
SPORT