Fréttablaðið - 12.12.2020, Qupperneq 34
ÉG ENDAÐI
Á ÞVÍ AÐ
TAKA
RÓANDI
SVO ÉG
GÆTI FARIÐ
ÚT AÐ
BORÐA MEÐ
HONUM.
Full nægjandi með ferð við átröskun hefur ekki verið í boði hér á landi í tæp tvö ár, að mati Sóleyjar Hafsteinsdóttur, sem glímt hefur við
átröskun í áraraðir. Engin dag deild
eða inn lagningar deild er í boði fyrir
átröskunarsjúklinga. Teymisstjóri
átröskunarteymis Landspítalans,
María Þóra Þorgeirsdóttir, segir að
starfsfólki hjá teyminu hafi fækkað
um fjórðung á síðustu tveimur árum.
Ekki sé vitað hvort eða hvenær verði
fjölgað í teyminu.
„Ég vil ekki að neinn þurfi að deyja
til þess að eitt hvað verði gert,“ segir
Sól ey sem hefur áhyggjur af aðgerð
arleysi stjórnvalda. „Dauðsfall er
auð vitað mögu leiki þar sem þetta
er lífs hættu legur sjúk dómur og ef á
standið heldur svona á fram þá mun
það gerast,“ full yrðir Sól ey og bendir
á að átröskun sé lífskæðasti geðsjúk
dómurinn. Þetta staðfestir María.
Áttatíu manns eru nú á biðlista
eftir meðferð og er meðalbiðtími
nú orðinn 18 mánuðir. Fyrir tæp
lega tveimur árum var bið tíminn
þrír mánuðir. „Síðustu tvö ár hafa
verið mjög erfið hjá teyminu. Við
forgangsröðum auðvitað eftir alvar
leika og fólk sem er í mjög bráðri
stöðu kemst hraðar inn,“ játar María
Þóra alvarleg.
Biðin eftir að stoð getur reynst
ban væn. „Þegar maður reynir að
snúa blaðinu við og fer aftur að
borða þá fara sjálf svígs hugsanir að
láta á sér kræla,“ rifjar Sóley upp.
Al gengasta dánar or sök átröskunar
sjúk linga er sjálfs víg. Sóley upp lifði
það á eigin skinni hversu mikil vægt
það var að fá rétta að stoð á réttum
tíma.
Eins og staðan er í dag þurfa þeir
sjúk lingar sem þola enga bið að bíða
í tvo til fjóra mánuði eftir að stoð að
sögn Sóleyjar. „Þau sem eru í bráðri
lífs hættu eru lögð inn á bráða geð
deild,“ segir Sól ey sem þekkir til
sjúk linga sem hafa dvalið á deildinni
í fjóra mánuði. „Þar er engin sér tæk
með ferð í gangi fyrir átröskun og
lítill langtíma bati sem á sér stað.“
Þyngd ekki einkenni átröskunar
Ein föld á stæða er fyrir því að ekk
ert hefur verið að hafst í málum
átröskunarsjúklinga að mati Sól
eyjar. „Það veit nánast enginn um
hvað þessi sjúk dómur snýst. Flestir
ganga út frá því að þetta sé eins og
í bíó myndunum og taka þessu því
ekki al var lega.“ Birtingar mynd
átröskunar á skjánum sé þó víðs
fjarri raun veru leikanum.
„Það er al gengur mis skilningur
að þyngd sé ein kenni átröskunar
en meiri hluti þeirra sem eru veikir
eru í eða yfir kjör þyngd þannig það
stenst enga skoðun.“ Upp tök átrösk
unar eru iðu lega rakin til kvíða,
þung lyndis eða á falla.
„Hjá mér var þung lyndi og kvíði
vanda mál þegar ég var ung lingur
og svo þróast átröskunin út frá
því. Maður upplifir smá innri ró
þegar maður getur haft fullkomna
stjórn á einhverju sem hefur áhrif
á mann sjálfan.“ Fyrstu einkenni
átröskunar fóru að gera vart við sig
í menntaskóla en það var ekki fyrr
en eftir tvítugt sem sjúkdómurinn
byrjaði að taka yfir. „Þá fór þetta að
skerða lífs gæði mín.“
Tók róandi til að geta borðað
Til að byrja með brást Sól ey við með
því að hlæja þegar einhver stakk
Lífskæðasti geðsjúkdómurinn
Átröskun er sjúk dómur sem iðu lega er af skrifaður sem út lits dýrkun þrátt fyrir að vera líf skæðasti geð sjúk
dómurinn. Sjúk lingur sem glímdi við átröskun varar við því að þjónustu átröskunar teymisins hafi hrakað.
Sóley Haf-
steinsdóttir
hefur sjálf glímt
við átröskun og
hefur áhyggjur
af því að átján
mánaða bið sé
eftir meðferð.
FRÉTTABLAÐIÐ/
ERNIR
Kristlín Dís
Ingilínardóttir
kristlin@frettabladid.is
upp á að hún þjáðist af átröskun.
„Mér fannst þetta vera fá rán leg pæl
ing. Ég hélt náttúru lega að ég gæti
snúið þessu við hve nær sem er og
sá þetta ekki sem vanda mál.“ Þegar
á leið fór hún þó smátt og smátt að
verða vör við hún væri ekki lengur
við stjórnvölinn.
„Ég man mjög vel eftir því hve nær
ég gerði mér grein fyrir að þetta væri
ekki heilbrigt.“ Eldri bróðir Sól eyjar
hafði boðið henni út að borða og var
hún mjög spennt að eyða tíma með
honum. „Ég hugsaði með mér að ég
myndi bara taka mér pásu frá þessu
þennan dag og borða með honum.“
Þegar dagurinn rann upp fékk
Sól ey kvíða kast við til hugsunina
um mál tíð kvöldsins. „Ég endaði á
því að taka róandi svo ég gæti farið
út að borða með honum.“ Henni
tókst að borða en af leiðingarnar
létu ekki á sér standa. „Um leið og
ég kom heim fór allt af stað. Ég kast
aði upp, fór í fjögurra klukku tíma
göngu túr og reyndi að rétt læta átið
fyrir sjálfri mér.“
Daginn eftir var Sól ey rúm
liggjandi af kvíða yfir mál tíð gær
dagsins og þá fyrst fór hún að verða
hrædd. „Ég held að ég hafi áttað mig
á því þarna að ég þyrfti á hjálp að
halda,“ viður kennir Sól ey.
„Ég leitaði mér hjálpar vorið 2018
og fékk mjög góða með ferð þá.“
Hún dvaldi á dag deild átröskunar
teymisins, sem þá var starfandi, í
fjóra mánuði og náði tals verðum
bata. „Þá var deildin eins og hún á
að vera.“
Mygla í húsnæðinu
Ári síðar var hús næði átröskunar
teymisins hjá Hvíta bandinu á
Skólavörðustíg orðið ónothæft
vegna myglu. „Starfs menn fóru að
verða veikir og fóru margir í veik
indaleyfi og í kjölfarið var dag
deildin og öll starf semin lögð niður.“
Síðan þá hefur engin dag deild verið
starfandi og ekki er vitað hvort það
breytist í bráð.
Al var legar af leiðingar fylgja
því að vera í langvarandi sveltis á
standi eða í miklum upp köstum.
Sjúklingar geta þjáðst af á ráttu og
þrá hyggju hegðun, hjart sláttar
truflunum, bein þynningu, þindar
slitum, skemmdum á vélinda,
ó frjó semi, minnkun á hvítum
blóð kornum og nýrna sjúk dómum.
„Fyrir utan þá van líðan sem er við
loðandi við til veru manns svo árum
skiptir áður en maður fær hjálp,“
bætir Sóley við.
„Flestir halda að lækningin við
þessum sjúk dómi sé sára ein föld,
að sjúk lingar eigi bara að fá sér að
borða og þá sé þetta komið.“ Lítill
skilningur sé á nauðsyn þess að fá
meðferð. „Maturinn er ekki vanda
málið heldur það sem varð til þess
að maður endaði á þessari braut,“
ítrekar Sóley.
„Ef þú segir átröskunar sjúk lingi
að borða þá gerir hann það kannski
en því geta fylgt upp köst, ofsa kvíði
og van líðan.” Því getur fylgt ó hóf leg
líkams rækt og svelti næstu daga.
Þegar líkaminn fær ekki nær
ingu fer hann í svelti. „Þá virkar
1 2 . D E S E M B E R 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R34 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð