Fréttablaðið - 12.12.2020, Page 40

Fréttablaðið - 12.12.2020, Page 40
Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit- stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Hjördís Erna Þorgeirsdóttir | hjordiserna@frettabladid.is s. 550 5767 | Oddur Freyr Þorsteinsson, oddurfreyr@ frettabladid.is s. 550 57686 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir, sandragudrun@frettabladid.is, s. 550 5762 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768 Útgefandi: Torg ehf Ábyrgðarmaður: Björn Víglundsson Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Atli Bergmann, atli@frettabladid.is, s. 550 5657, Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@ frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann Waage, johannwaage@frettabladid.is, s. 550 5656, Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 694 4103. Björgvin Ragnarsson, sölu-stjóri hjá Poulsen, segir að verslunin hafi verið sett á netið til að koma sem best til móts við viðskiptavini sína. Hægt er að panta allar vörur á netinu og fá þær heimsendar með Póstinum hvert á land sem er. Meðal annars má finna gagnlegar jólagjafir sem geta komið sér vel fyrir hand- lagna. Má þar nefna lyklasett, verkfærakassa, hleðsluskrúfjárn, vinnuljós og húfur með ljósi svo eitthvað sé nefnt. Mjög fjölbreytt úrval skemmtilegra gjafa og flestir ættu að geta fundið eitthvað sem hentar. Poulsen var stofnað árið 1910 og var lengi staðsett á Klapparstíg 29. Árið 2001 flutti fyrirtækið í Skeif- una 2 og hefur verið þar síðan. Einnig er Poulsen með verslun og verkstæði Hyrjarhöfða 9. Mætir og sækir sama dag „Við vorum með netsíðu áður en ákváðum fyrir nokkru að setja upp vefverslun. Við erum til dæmis bæði með jólagjafir og jólaseríur í boði núna fyrir jólin. Poulsen er með svo ótal margt f leira en varahluti í bifreiðar. Við erum til dæmis eitt af stærstu fyrir- tækjum í bílrúðum og flytjum inn rúður fyrir allar gerðir bifreiða. Við bjóðum fólki að panta tíma á mjög aðgengilegan hátt á heima- síðunni okkar sem hefur verið vel tekið af okkar viðskiptavinum. Fólk pantar tíma, kemur með bílinn að morgni og fær hann með nýrri rúðu síðdegis. Mætir og sækir sama dag, köllum við það,“ útskýrir Björgvin sem hefur starfað í fyrirtækinu í sjö ár og seg- ist hálfgerður nýgræðingur miðað við marga aðra starfsmenn. Alls starfa 35 manns hjá fyrirtækinu en Poulsen er með tvö verkstæði á höfuðborgarsvæðinu. Verkstæðið á Hyrjarhöfða getur tekið á móti öllum stærðum bifreiða. Björgvin segir að starfsmenn séu stoltir af heimasíðunni þar Ragnar Matthíasson framkvæmda- stjóri og Björg- vin sölustjóri. Fyrirtækið heldur upp á 110 ára afmæli á þessu ári. Sérstæða Poulsen er bílrúðuskipti. Fólk getur pantað á netinu og fengið tíma. Síðan er bara að koma með bílinn að morgni og sækja aftur síðdegis. Það eru snör handtökin á verkstæðinu hjá Poulsen. Framhald af forsíðu ➛ Við vildum að heimasíðan væri einföld í notkun og það hefur tekist.“ Björgvin Ragnarsson sem hún sé mjög neytendavæn og þægileg. „Margir viðskiptavinir hafa haft orð á því við okkur,“ segir hann. „Við vildum að heimasíðan væri einföld í notkun og það hefur tekist.“ Vandaðar vörur Poulsen leggur áherslu á að bjóða einungis gæðavörur. Meðal þeirra eru vönduð og góð bílalökk frá Spies Hecker sem eru mikið notuð á bílaverkstæðum um allt land. „Einnig bjóðum við upp á vara- hluti fyrir bíla og margs konar iðnaðarvörur. Við getum þjónu- stað allar gerðir bíla með slit- og bremsuhluti, síur, hjólalegur, fóðringar og þannig mætti lengi telja. Sömuleiðis f lytjum við inn Valvoline olíur sem er mjög þekkt merki í bílabransanum, sérstak- lega í kappakstursíþróttum. Val- voline olíurnar uppfylla ýtrustu kröfur bílaframleiðenda og hafa hlotið viðurkenningu frá EELQMS. Þá er Poulsen með verkfæri frá Sonic sem allir fagmenn þekkja vel. Auk þess erum við með mikið úrval verkfæra frá Sealey. Í tilefni afmælis verslunarinnar bjóðum við frábær jólatilboð á ýmsum vörum,“ segir Björgvin. Afmæli frestað Poulsen hafði fyrirhugað að halda veglega afmælisveislu á þessu ári en vegna fjöldatak- markanna var henni frestað. „Við höldum upp á 111 ára afmælið á næsta ári í staðinn,“ segir Björgvin og bendir á að það sé skemmtileg tala á árinu 2021. „Við höldum gott partí þegar Víðir leyfir.“ Björgvin segir að verslunin hafi lagt mikla áherslu á sóttvarnir og passað upp á að sótthreinsa alla snertif leti. Starfsmenn eru með grímur og gæta að tveggja metra reglu. Fagmennskan er í fyrirrúmi hjá Poulsen og starfs- menn veita persónulega þjónustu og aðstoða viðskiptavini með val á hlutum, hvort sem það eru bílrúðuskipti, lakk, bílahlutir, verkfæri eða varahlutir. Poulsen er í Skeifunni 2 og Hyrjar- höfða 9, sími 530 5900. Opið virka daga í Skeifunni frá 8-18, Hyrjar- höfða frá 8-17 og á laugardögum í Skeifunni kl. 10-13. Allar nánari upplýsingar má finna á poulsen.is 2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 2 . D E S E M B E R 2 0 2 0 L AU G A R DAG U R
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.