Fréttablaðið - 12.12.2020, Blaðsíða 40
Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og
umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit-
stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Hjördís Erna
Þorgeirsdóttir | hjordiserna@frettabladid.is s. 550 5767 | Oddur Freyr Þorsteinsson, oddurfreyr@
frettabladid.is s. 550 57686 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir, sandragudrun@frettabladid.is, s.
550 5762 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768
Útgefandi:
Torg ehf
Ábyrgðarmaður:
Björn Víglundsson
Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Atli
Bergmann, atli@frettabladid.is, s. 550 5657, Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@
frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann Waage, johannwaage@frettabladid.is,
s. 550 5656, Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 694 4103.
Björgvin Ragnarsson, sölu-stjóri hjá Poulsen, segir að verslunin hafi verið sett á
netið til að koma sem best til móts
við viðskiptavini sína. Hægt er að
panta allar vörur á netinu og fá
þær heimsendar með Póstinum
hvert á land sem er. Meðal annars
má finna gagnlegar jólagjafir sem
geta komið sér vel fyrir hand-
lagna. Má þar nefna lyklasett,
verkfærakassa, hleðsluskrúfjárn,
vinnuljós og húfur með ljósi svo
eitthvað sé nefnt. Mjög fjölbreytt
úrval skemmtilegra gjafa og flestir
ættu að geta fundið eitthvað sem
hentar.
Poulsen var stofnað árið 1910 og
var lengi staðsett á Klapparstíg 29.
Árið 2001 flutti fyrirtækið í Skeif-
una 2 og hefur verið þar síðan.
Einnig er Poulsen með verslun og
verkstæði Hyrjarhöfða 9.
Mætir og sækir sama dag
„Við vorum með netsíðu áður en
ákváðum fyrir nokkru að setja upp
vefverslun. Við erum til dæmis
bæði með jólagjafir og jólaseríur
í boði núna fyrir jólin. Poulsen
er með svo ótal margt f leira en
varahluti í bifreiðar. Við erum
til dæmis eitt af stærstu fyrir-
tækjum í bílrúðum og flytjum inn
rúður fyrir allar gerðir bifreiða.
Við bjóðum fólki að panta tíma á
mjög aðgengilegan hátt á heima-
síðunni okkar sem hefur verið vel
tekið af okkar viðskiptavinum.
Fólk pantar tíma, kemur með
bílinn að morgni og fær hann
með nýrri rúðu síðdegis. Mætir
og sækir sama dag, köllum við
það,“ útskýrir Björgvin sem hefur
starfað í fyrirtækinu í sjö ár og seg-
ist hálfgerður nýgræðingur miðað
við marga aðra starfsmenn. Alls
starfa 35 manns hjá fyrirtækinu
en Poulsen er með tvö verkstæði á
höfuðborgarsvæðinu. Verkstæðið
á Hyrjarhöfða getur tekið á móti
öllum stærðum bifreiða.
Björgvin segir að starfsmenn
séu stoltir af heimasíðunni þar
Ragnar
Matthíasson
framkvæmda-
stjóri og Björg-
vin sölustjóri.
Fyrirtækið
heldur upp á
110 ára afmæli
á þessu ári.
Sérstæða Poulsen er bílrúðuskipti. Fólk getur pantað á netinu og fengið
tíma. Síðan er bara að koma með bílinn að morgni og sækja aftur síðdegis.
Það eru snör
handtökin á
verkstæðinu hjá
Poulsen.
Framhald af forsíðu ➛
Við vildum að
heimasíðan væri
einföld í notkun og það
hefur tekist.“
Björgvin Ragnarsson
sem hún sé mjög neytendavæn og
þægileg. „Margir viðskiptavinir
hafa haft orð á því við okkur,“ segir
hann. „Við vildum að heimasíðan
væri einföld í notkun og það hefur
tekist.“
Vandaðar vörur
Poulsen leggur áherslu á að bjóða
einungis gæðavörur. Meðal þeirra
eru vönduð og góð bílalökk frá
Spies Hecker sem eru mikið notuð
á bílaverkstæðum um allt land.
„Einnig bjóðum við upp á vara-
hluti fyrir bíla og margs konar
iðnaðarvörur. Við getum þjónu-
stað allar gerðir bíla með slit- og
bremsuhluti, síur, hjólalegur,
fóðringar og þannig mætti lengi
telja. Sömuleiðis f lytjum við inn
Valvoline olíur sem er mjög þekkt
merki í bílabransanum, sérstak-
lega í kappakstursíþróttum. Val-
voline olíurnar uppfylla ýtrustu
kröfur bílaframleiðenda og hafa
hlotið viðurkenningu frá EELQMS.
Þá er Poulsen með verkfæri frá
Sonic sem allir fagmenn þekkja
vel. Auk þess erum við með mikið
úrval verkfæra frá Sealey. Í tilefni
afmælis verslunarinnar bjóðum
við frábær jólatilboð á ýmsum
vörum,“ segir Björgvin.
Afmæli frestað
Poulsen hafði fyrirhugað að
halda veglega afmælisveislu á
þessu ári en vegna fjöldatak-
markanna var henni frestað. „Við
höldum upp á 111 ára afmælið
á næsta ári í staðinn,“ segir
Björgvin og bendir á að það sé
skemmtileg tala á árinu 2021.
„Við höldum gott partí þegar
Víðir leyfir.“
Björgvin segir að verslunin hafi
lagt mikla áherslu á sóttvarnir
og passað upp á að sótthreinsa
alla snertif leti. Starfsmenn eru
með grímur og gæta að tveggja
metra reglu. Fagmennskan er í
fyrirrúmi hjá Poulsen og starfs-
menn veita persónulega þjónustu
og aðstoða viðskiptavini með
val á hlutum, hvort sem það eru
bílrúðuskipti, lakk, bílahlutir,
verkfæri eða varahlutir.
Poulsen er í Skeifunni 2 og Hyrjar-
höfða 9, sími 530 5900. Opið virka
daga í Skeifunni frá 8-18, Hyrjar-
höfða frá 8-17 og á laugardögum í
Skeifunni kl. 10-13.
Allar nánari upplýsingar má
finna á poulsen.is
2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 2 . D E S E M B E R 2 0 2 0 L AU G A R DAG U R