Fréttablaðið - 12.12.2020, Blaðsíða 42
Stokkur Software hefur verið leiðandi í hönnun og þróun appa í á annan áratug og
hefur sérhæft sig í öllu sem tengist
gerð appa, allt frá því að þarfa-
greina, hanna, þróa og markaðs-
setja. Það má með vissu segja
að öpp Stokks eins og Strætó-,
Domino’s-, Aur-, Lottó-, Alfreð- og
nú það nýjasta úr Stokkssmiðj-
unni, Lyfjaappið, svo fátt sé nefnt,
hafi komið víða við og séu á sím-
tækjum flestra landsmanna.
„Við erum lítið en mjög öflugt
og skilvirkt teymi þar sem hver
einasti Stokkverji er mikil-
vægur hlekkur í keðjunni okkar.
Styrkleikar allra fá að njóta sín
og tel ég að það sé mikilvægt að
vera með fjölbreyttan hóp með
mismunandi þekkingu til að ná
árangri á okkar sviði. Við erum
því einstaklega stolt að geta sinnt
öllum hliðum þegar kemur að
öppunum okkar, allt frá hugmynd
að veruleika til reksturs og við-
halds. Ef við leyfum okkur að yfir-
færa þetta yfir á uppeldisaðferðir
þá hættir maður aldrei að hugsa
um börnin sín, og viljum við hjá
Stokki hugsa vel um öll okkar öpp
sem við látum frá okkur.“ segir
Raquelita Rós Aguilar, fram-
kvæmdastjóri Stokks.
Stokkssmiðjan
Úr smiðju Stokks hefur komið
fjöldinn allur af frábærum öppum
og er Stokkur hvergi nærri hætt
að þróa öpp. Raquelita Aguilar
framkvæmdastjóri Stokks ætlar
að útskýra það betur fyrir okkur
hvernig ferlið er, svo ef þú lesandi
góður ert í app hugleiðingum þá
mælum við með þessari lesningu.
„App er ekki bara lítið krúttlegt
app á símanum þínum, heldur
frábær viðbót og öflugt tól sem
getur aukið arðsemi og hagnað
fyrirtækja ef rétt er útfært. Því
er mikilvægt að greina vel þarfir
notenda og kröfur viðskiptavina,
en ekki hoppa í að þróa app bara
af því allir aðrir eru að gera öpp,“
segir Raquelita, en Stokkur hefur
gert tugi appa og er á meðal fyrstu
hugbúnaðarfyrirtækja á Íslandi
til að sérhæfa sig eingöngu í app-
þróun.
„Við höfum alltaf lagt mikið upp
úr því að mynda öruggt og gott
viðskiptasamband með okkar
viðskiptavinum og því veljum við
vel þau verkefni sem við tökum
að okkur. Við erum að búa til
framtíðarlausnir með okkar við-
skiptavinum, en ekki skammtíma-
lausnir, og höfum við búið við það
lúxusvandamál síðustu 2-3 árin að
geta nánast valið úr verkefnum,“
segir Raquelita, sem augljóslega er
stolt af sínu teymi og þeirri vinnu
sem það hefur unnið undanfarin
ár.
Hnoðum saman hugmynd
„Við leggjum mikið upp úr því að
skilgreina kröfur, þarfagreina og
notendaprófa allar okkar frum-
gerðir áður en þróun hefst,“ segir
Raquelita. „Ef þetta er ekki gert
vel í byrjun þá getur það orðið til
þess að fyrirtæki tapi pening, fari
jafnvel í tækniskuld og varan endi
ekki á þeim stað sem upphaflegt
plan gerði ráð fyrir. Við höfum
sérhæft okkur í að skilgreina og
þekkja mismunandi notenda-
hópa út frá tæknilegu, félagslegu
og sálfræðilegu sjónarmiði, því
það að búa til app er ekki bara að
hanna f lott app, við þurfum að
skilja notendur, rekstur viðskipta-
vinar og þörfina áður en haldið er
af stað í stafræna vegferð. Þetta er
vinna sem við tökum algjörlega
fulla stjórn á og má viðskiptavinur
Snjallari lausnir beint í vasann
Fyrirtækið Stokkur Software hefur sérhæft sig í appþróun og getur sinnt öllu sem snýr að þróun,
hönnun og markaðssetningu þeirra, annað hvort sjálfstætt eða í samráði við viðskiptavini.
Raquelita Rós
Aguilar er
framkvæmda-
stjóri Stokks,
en hún gegndi
áður hluverki
gæða- og
verkefnastjóra
Stokks. Hún
er mjög stolt
af sínu teymi
og þeirri vinnu
sem þau hafa
unnið undan-
farin ár. MYND/
AÐSEND
Stokkur hefur gert
tugi appa og er á
meðal fyrstu hugbún-
aðarfyrirtækja á Íslandi
til að sérhæfa sig ein-
göngu í appþróun.
okkar vera eins mikið í ferlinu og
hann vill. Við getum annað hvort
tekið fulla stjórn á öllu ferlinu eða
gert þetta í nánu samstarfi við við-
skiptavini, bara það sem hentar
hverjum og einum.“
Á borð Stokks koma alls kyns
verkefni, stór og smá, frá bæði
einstaklingum með hugmynd eða
fyrirtækjum í stafrænni umbreyt-
ingu. Teymið hjá Stokki er sam-
mála um að nýsköpun með nýjum
viðskiptavinum er með skemmti-
legri verkefnum sem það tekur
þátt í, en það er heilmikil áskorun
að koma sér inn í hugmynd, sýn,
4 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 2 . D E S E M B E R 2 0 2 0 L AU G A R DAG U R