Fréttablaðið - 12.12.2020, Page 58
Sálfræðingur
Laus er til umsóknar 80% staða sálfræðings. Um fram-
tíðarstarf er að ræða.
Umsækjandi þarf að hafa réttindi til að starfa sem sál-
fræðingur á Íslandi. Æskilegt er að hann hafi þekkingu
og reynslu á eftirtöldum sviðum: Þverfaglegri endur-
hæfingu, klínískri sálfræði og hugrænni atferlismeðferð,
handleiðslu, fræðslu og vinnu með hópa, sálfræðilegri
greiningu fullorðinna, vísindarannsóknum og þróunar-
vinnu.
Á Reykjalundi starfa átta sálfræðingar í átta þverfag-
legum teymum þar sem áhersla er lögð á skjólstæð-
ingsmiðaða nálgun og heildræna sýn. Óskað er eftir
einstaklingum með færni í samskiptum og sveigjanleika,
frumkvæði og sjálfstæði í starfi sem hafa áhuga á að
taka þátt í uppbyggingu innan endurhæfingar.
Laun greiðast samkvæmt kjarasamningi Sálfræðinga-
félags Íslands og fjármálaráðherra auk stofnanasamn-
ings Sálfræðingafélags Íslands og Reykjalundar.
Umsóknarfrestur er til 28. desember 2020.
Upplýsingar um starfið veita Inga Hrefna Jónsdóttir
forstöðusálfræðingur -ingah@reykjalundur.is og
Guðbjörg Gunnarsdóttir mannauðsstjóri
- gudbjorg@reykjalundur.is
Umsókn skal skilað til Guðbjargar Gunnarsdóttur mann-
auðsstjóra Reykjalundar - gudbjorg@reykjalundur.is
Umsóknarform og upplýsingar um Reykjalund má finna á
www.reykjalundur.is
Ráðgjafi – Brúarskóli, SkaHam og Keðjan
Skóla- og frístundasvið
Brúarskóli, SkaHam og Keðjan óska eftir ráðgjafa í 100% starf. Hér er um nýja stöðu að ræða við Brúarskóla en starfs-
stöðvar verða hjá SkaHam og Keðjunni.
Brúarskóli er sérskóli í Reykjavík fyrir nemendur sem eiga í vanda, bæði geðrænum og hegðunarlegum. Skólinn starfar á 5
stöðum í Reykjavík en skólinn er tímabundið úrræði. Í starfinu er lögð áhersla á félagsfærni, samskipti og jákvæða upp-
byggingu hvers einstaklings. Boðið er upp á stuðning við nýja starfsmenn, m.a. frá ráðgjafarsviði skólans. Brúarskóli er í
samstarfi við SkaHam og Keðjuna.
SkaHam er þekkingarmiðstöð á vegum borgarinnar sem veitir heildræna þjónustu fyrir börn og ungmenni með fjölþættan
vanda. Þjónustan felur m.a. í sér ráðgjöf inn á heimili barnsins, dvöl í skemmri tíma til stuðnings inn á heimili barnsins og/
eða barn dvelji utan heimilis í sólarhringsdvöl eftir aðstæðum hverju sinni. Einnig er hópastarf og smiðjur fyrir þau börn og
ungmenni sem vilja efla félagsfærni sína.
Keðjan veitir stuðningsþjónustu fyrir börn, unglinga og fjölskyldur þeirra og heyrir undir velferðarsvið Reykjavíkurborgar.
Hjá Keðjunni er lögð áhersla á nýsköpun og þróun þjónustu í samstarfi við þjónustumiðstöðvar, Barnavernd og aðra
þjónustuaðila við börn og fjölskyldur.
Leitað er að áhugasömum og drífandi einstaklingi sem er tilbúinn til að taka þátt í skemmtilegu og krefjandi starfi.
Umsókn fylgi yfirlit yfir nám og fyrri störf og kynningarbréf þar sem fram kemur rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í
starfið. Við ráðningu er gerð krafa um hreint sakavottorð í samræmi við lög og reglur Reykjavíkurborgar.
Starfið er laust frá 1. mars 2021, eða eftir samkomulagi. Umsóknarfrestur er til og með 4. janúar 2021.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Reykjavíkurborgar og viðkomandi stéttarfélags. Umsækjendur eru beðnir um að sækja
um starfið á heimasíðu Reykjavíkurborgar, www.reykjavik.is/storf
Nánari upplýsingar veita Björk Jónsdóttir, skólastjóri Brúarskóla, s. 664-8440 og Sigrún Sigurðardóttir, forstöðumaður
SkaHam, s. 848-1763 Netföng: bjork.jonsdottir@rvkskolar.is / sigrun.sigurdardottir3@reykjavik.is
Helstu verkefni:
• Þátttaka í þróun starfsins og teymisvinnu SkaHam.
• Sinna tengingu barna við heima-/viðtökuskóla og hafa
yfirsýn yfir þau stuðningsúrræði sem í boði eru.
• Áætlanagerð, s.s. um komu/endurkomu í heimaskóla í
samstarfi við heimaskóla.
• Stuðningur við foreldra og nemanda varðandi félagslega
þátttöku í heimahverfi.
• Samstarf við foreldra, umsjónarkennara í heimaskóla og
skóla- og þjónustukerfi.
Hæfnikröfur:
• Uppeldismenntun á háskólastigi, s.s. námsráðgjöf, upp-
eldisfræði, grunnskólakennarafræði, þroskaþjálfafræði.
• Þekking á skólastarfi og reynsla af að starfa í almennum
grunnskóla.
• Reynsla af að vinna með börnum og unglingum með fjöl-
þættan vanda.
• Reynsla af ráðgjöf.
• Frumkvæði í starfi, skipulagshæfni og sveigjanleiki.
• Góð samskiptahæfni.
• Góð íslenskukunnátta og hæfni til að tjá sig í ræðu og riti.
• PMTO grunnmenntun er kostur.
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir
borgarinnar endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.
Vinnvinn | Kringlan 7 | 103 Reykjavík
Sími 552 1212 | vinnvinn@vinnvinn.is | www.vinnvinn.is
8 ATVINNUAUGLÝSINGAR 1 2 . D E S E M B E R 2 0 2 0 L AU G A R DAG U R