Fréttablaðið - 12.12.2020, Qupperneq 86
1 2 . D E S E M B E R 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R42 T Í M A M Ó T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
TÍMAMÓT
Oft hef ég nú verið að skrifa eitthvað, bæði minningar og smásögur og eina skáldsögu á ég líka en ljóðagerð hef ég mest fengist við á
síðustu árum og Brot úr spegilf lísum
er fyrsta bókin,“ segir Ólöf Þórhildur
Ólafsdóttir sem hefur búið í Strass-
borg í Frakklandi frá 1988, með manni
sínum, Necmi Ergun, tyrkneskum að
uppruna. Þar starfaði hún fyrir Evr-
ópuráðið í 25 ár, lengi sem yfirmaður
jafnréttismála og síðustu árin sem yfir-
maður mennta-og menningarmála.
Hún er nú komin á eftirlaun og tíu ára
dóttursonur nýtur þess að amma hafi
tíma.
Það vottar ekki fyrir frönskuhreim í
rödd Þórhildar og í hinni nýju ljóðabók
er móðurmálið tært sem lind. Bókin
er skreytt listaverkum dótturinnar,
Özden Dóru Clow og gefin út af forlag-
inu Skriðu á Hvammstanga. Áður hafa
birst nokkur ljóð og ein smásaga eftir
Þórhildi í Tímariti Máls og menningar.
Las mikið
„Ég var hagmæltur krakki og unglingur,
enda voru amma og langamma oft með
ljóð á vörum og ég las líka mikið, var
eiginlega alltaf með bók. Sem ungling-
ur í menntaskóla byrjaði ég að yrkja
órímað – allt fór í skúffuna – en fór
til Frakklands í nám þegar ég var tví-
tug, þá bara hvarf ég inn í frönskuna,“
segir Þórhildur og heldur áfram. „Árið
2013 dóu bæði mamma og pabbi, líka
tengdasonur minn og ein af bestu vin-
konum mínum, Viljana. Upp úr því fór
ég að yrkja aftur. Það var hollt fyrir
mig. Mér fannst ég komast í tengsl við
það liðna, skilja sjálfa mig betur og líka
styrkja íslenskuna.“
Að heiman sextán ára
Æskuslóðir Þórhildar eru á Vatns-
nesi, skammt utan við Hvamms-
tanga. „Ég ólst upp á Ánastöðum, stóru
sveitaheimili. Þar voru amma og afi,
langamma, mamma og pabbi og við
börnin vorum fimm,“ lýsir hún. „Ég fór
í skóla að Reykjum í Hrútafirði og eftir
það í MH, þá var ég eiginlega farin að
heiman, sextán ára, eins og títt var um
krakka í sveitum. Samt er ég mjög tengd
svæðinu.“
Þórhildur lærði frönsku og bók-
menntafræði í Frakklandi og kenndi
hvoru tveggja við Háskóla Íslands á
níunda áratugnum, fyrst sem lektor
og síðan dósent í frönskudeildinni. „Þá
sá ég auglýst samkeppnispróf frá Evr-
ópuráðinu, brá mér í það og náði því.
Necmi, manninum mínum, fannst svo-
lítið erfitt að búa á Íslandi, hafði verið í
Frakklandi lengi og þar kynntumst við,
ég sagði alltaf að ef ég fengi góða vinnu
þar skyldi ég f lytja. Það gekk upp.“
Fín viðbrögð
Þórhildur segir samstarfið við Birtu
Ósmann í bókaútgáfunni Skriðu hafa
verið yndislegt og kveðst hafa fengið
fín viðbrögð við bókinni frá mörgum,
í þeim hópi séu bæði bókmenntafræð-
ingar og skáld. „En það er fjöldi ljóða-
bóka á markaðinum,“ segir hún. „Ég
fylgist með þó ég sitji hér í 3.000 kíló-
metra fjarlægð!“
gun@frettabladid.is
Í tengslum við það liðna
Ólöf Þórhildur Ólafsdóttir ólst upp með ljóðelskum ömmum og mömmu. Nú gefur hún
út sína fyrstu bók, Brot úr spegilflísum, með meitluðum ljóðum í margs konar formi.
Grímsá
Þú kemur að ánni, eða er hún kannski lækur?
áin litla með kátum smáfossum sínum
mjúku grasi og berjalyngi á bökkum
bláum og hvítum hyljum í svörtum steinum
þú heyrir niðinn og hugsar hvað hann sé blíður
og henti þeim sem vill hvíld frá glaumi daga
augu þín gleyma sér við að horfa í hylinn
þér hlýjar slólin sem glitrar á boðaföllum
svo fylgir þú ánni alla leið niður að ósnum
á endanum sameinast hún hinu breiða hafi
tár hennar blandast við saltið í köldum sjónum
hún saknar þeirra er áður við hlið hennar gengu.
Ólöf Þórhildur Ólafsdóttir er tengd æskustöðvunum og gefur bókina sína Brot úr
spegilflísum út hjá forlaginu Skriðu á Hvammstanga. MYND/AÐSEND
Ástkær sambýliskona mín, dóttir,
móðir, systir, tengdamóðir og amma,
Herdís Hólmsteinsdóttir
geðhjúkrunarfræðingur,
lést í faðmi fjölskyldunnar á
kvennadeild Landspítalans 2. desember sl.
Útförin verður í Kópavogskirkju föstudaginn
18. desember kl. 15.00 og verður streymt á slóðinni
youtu.be/3fgC8K3AIXU
Baldur Garðarsson
Hólmsteinn Steingrímsson
Gestur Baldursson
Ása Baldursdóttir Pétur Gunnarsson
Davíð Arnar Baldursson
Helga Hólmsteinsdóttir
Steingrímur Hólmsteinsson
og barnabörn.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð
og hlýhug við andlát og útför okkar
ástkæra föður, tengdaföður, afa
og langafa,
Sverris Inga Axelssonar
Sérstakar þakkir til starfsfólks
á Landakoti.
Kristín Sverrisdóttir
Ragnheiður Sverrisdóttir Hjalti Hugason
Þorsteinn Sverrisson Magnea Einarsdóttir
Ólafur Sverrisson Ellen Símonardóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskulegur faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
Hörður Smári Hákonarson
múrarameistari,
lést að Hrafnistu Laugarási
miðvikudaginn 18. nóvember.
Útförin fer fram föstudaginn 18. desember
frá Fossvogskirkju kl. 15.00. Vegna aðstæðna í þjóðfélaginu
verða aðeins nánustu aðstandendur viðstaddir. Útförinni
verður streymt á slóðinni: youtu.be/VULXHcHvZOY
Ósk Sigurjónsdóttir Birgir Hólm Ólafsson
Guðný Svana Harðardóttir
Þóra Björk Harðardóttir Ómar Bjarni Þorsteinsson
Ragna Ársælsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskulegur eiginmaður minn,
faðir okkar, stjúpfaðir, tengdafaðir,
afi og langafi,
Gunnar Breiðfjörð
Guðlaugsson
frá Hellissandi,
Kirkjuvegi 5, Keflavík,
lést á Hrafnistu Nesvöllum, laugardaginn 5. desember.
Útförin fer fram frá Keflavíkurkirkju, þriðjudaginn
15. desember kl. 13. Í ljósi aðstæðna munu einungis
nánustu aðstandendur vera viðstaddir athöfnina.
Athöfninni verður streymt á
facebook.com/groups/utforgunnars
Fyrir hönd aðstandenda,
Þorgerður Arndal Sigurðardóttir
Vesturhlíð 2 | Fossvogi | s. 551 1266 | utfor@utfor.is | utfor.is
VIÐ ÞJÓNUM ALLAN SÓLARHRINGINN
Útfararþjónusta
í yfir 70 ár
Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is • Símar: 565 5892 & 896 8242
ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Auðbrekku 1, Kópavogi síðan 1996
ALÚÐ • VIRÐING • TRAUST • REYNSLA
Símar allan sólarhringinn: 581 3300 & 896 8242 • www.utforin.is
Komum heim til aðstandenda og ræðum skipulag útfarar ef óskað er.
Margrét Ásta GuðjónsdóttirSverrir EinarssonKristín Ingólfsdóttir
Minningarkort á hjartaheill.is
eða í síma 552 5744