Fréttablaðið


Fréttablaðið - 12.12.2020, Qupperneq 96

Fréttablaðið - 12.12.2020, Qupperneq 96
Herbergi í öðrum heimi eftir Maríu Elísabetu Braga-dóttur hefur að geyma sjö sjálf-stæðar smásögur. Efnistökin eru fjölbreytt og þó þau geti verið átakanleg eru sögurnar fullar af húmor, innsæi og hlýju. María Elísabet er með háskólapróf í heimspeki. Samhliða námi starfaði hún sem pistlahöfundur og skrifaði meðal annars Bakþanka í Frétta- blaðinu. Hún hefur alla tíð lesið og skrifað mikið og segist alltaf hafa skrifað sögur. „Þegar ég var í námi fékk ég dýr- mætt tækifæri til að skrifa pistla en við pistlaskrifin fann ég hvað mig langaði mikið til að skrifa skáld- skap. Margar af sögunum voru lengi að gerjast innra með mér. Tími og fjarlægð held ég að séu nauðsynleg hráefni í skrifum. Til dæmis fékk ég hugmyndina að annarri sögunni í bókinni, Mannleysu, þegar ég var tvítug. Ég vildi skrifa sögu um vináttu barna, sögu sem fangaði gjána milli barna og fullorðinna og sögu sem væri nostalgísk fyrir fólk á mínum aldri því hún gerist í upphafi 21. aldar. En ég vildi líka skrifa um heilindi og hvað felst í því að vera almennileg manneskja. Það sem er einmitt hrífandi við smásög- una er að þó að hún sé stutt þá getur hún verið lagskipt og djúp.“ Sannleikur í skáldskapnum Sögusvið sagnanna er Reykjavík en aðspurð um innblásturinn segist María ekki hafa þurft að leita langt. „Margar sögurnar fjalla oftar en ekki um ungt fólk í Reykjavík og það er einmitt það sem ég er sjálf, svo ég þurfti kannski ekki að leggjast í mikla rannsóknarvinnu. Ég held að höfundar nýti sér oftar en ekki einhvern persónulegan reynslu- heim þó að sögurnar séu ekki um þá sjálfa. Ég held að það sé mikilvægt að höfundurinn trúi því sem hann er að skrifa þó að hann sé að semja sögu. Kannski það sé forsenda þess að lesandinn trúi því sem hann les en skynji ekki falskan tón. Sambönd sem við veljum ekki Nokkrar sögurnar fjalla um sam- bönd barna og fullorðinna, líka uppkominna barna. Fyrsta sagan, „Self-Made“ fjallar um mæðgna- samband. Söguhetjan er kona á þrí- tugsaldri sem er upptekin af ímynd sinni út á við og finnst móðir sín hafa verið slæm fyrirmynd og ekki staðið sína plikt. En það er hægara sagt en gert að segja sig úr lögum við barnæskuna eins og söguhetjan vill gera og í sögunni er heldur alls ekki allt sem sýnist. „Fjölskyldusam- bönd eru mér hugleikin. Flækjur erfast jafnvel kynslóð fram af kyn- slóð og búa til þessa einstöku nánd sem er frábær efniviður í skáldskap. Fjölskyldusambönd eru sambönd sem við veljum okkur yfirleitt ekki sjálf og það er kannski einmitt það sem gerir þau svona merkileg.“ Skáldsaga í bígerð Spurð um framhaldið segist María Elísabet nú þegar vera byrjuð á næstu bók sem er skáldsaga. „Ég er mjög mikill aðdáandi smásagna- formsins, ég elska smásögur, en þegar ég var að skrifa Herbergi í öðrum heimi fannst mér stundum erfitt að skilja við sögupersónurnar. Svo nú er ég að vinna í skáldsögunni minni, þá getur maður aldeilis varið mörgum blaðsíðum með söguper- sónunum sínum. Mig langar að skrifa alls konar bækur.“ urdur@frettabladid.is ÉG HELD AÐ ÞAÐ SÉ MIKILVÆGT AÐ HÖFUNDURINN TRÚI ÞVÍ SEM HANN ER AÐ SKRIFA ÞÓ AÐ HANN SÉ AÐ SEMJA SÖGU. Tími og fjarlægð eru nauðsynleg hráefni Herbergi í öðrum heimi eftir Maríu Elísabetu Bragadóttur er fyrsta bók höfundar. Sjö sögur sem fjalla um sambönd og veruleika ungs fólks. Vinnur að skáldsögu. Mig langar að skrifa alls konar bækur, segir María Elísabet. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI Miðstöð íslensk ra bók-mennta veitir styrki til þýðinga á íslensku úr erlendum málum tvisvar á ári og úthlutaði rúmri 21 milljón króna í 59 þýðingastyrki á árinu 2020. Alls bárust á árinu 97 umsóknir sem er mesti fjöldi umsókna í þessum flokki síðan árið 2008, þegar jafn- margar umsóknir bárust. Í síðari úthlutun ársins, í nóvem- ber 2020, var rúmum átta millj- ónum króna úthlutað í 24 styrki til þýðinga á íslensku. Alls bárust 47 umsóknir og sótt var um rúmar 45 milljónir króna. Það kennir ýmissa grasa meðal verka sem hlutu styrki og von er á fjölbreyttri útgáfu íslenskra þýð- inga á næstunni fyrir alla aldurs- hópa. Þýtt verður úr ensku, frönsku, rússnesku, katalónsku, ítölsku, spænsku og þýsku og eiga lesendur því von á spennandi bókum á íslensku víða að. Meðal verka sem hlutu þýðinga- styrki í þessari úthlutun eru: n Tsjernóbyl-bænin, höfundur Svetlana Alexievich. Þýðandi er Gunnar Þorri Pétursson og út­ gefandi Angústúra. n Girl, Woman, Other eftir Bernardine Evaristo í þýðingu Helgu Soffíu Einarsdóttur. Út­ gefandi: Forlagið. n The Nickel Boys eftir Colson Whitehead. Þýðandi: Árni Óskarsson. Útgefandi: Bjartur. n Resto Qui eftir Marco Balzano. Þýðandi er Halla Kjartansdóttir og Drápa gefur út. n Der kurze Brief zum langen Abschied eftir Peter Handke í þýðingu Árna Óskarssonar. Út­ gefandi er Ugla. n Culottées eftir Pénélope Bag­ ieu. Þýðandi er Sverrir Norland og útgefandi AM­forlag. n Úrval úr verkum Zínaídu Gipp- íus. Þýðandi er Freyja Eilíf og útgefandi Skriða bókaútgáfa. n The Thing Around Your Neck eftir Chimamanda Ngozi Adichie í þýðingu Janusar Christiansen. Útgefandi er Una útgáfuhús. n Tsjemodan eftir Sergei Dovla­ tov. Þýðandi er Áslaug Agnars­ dóttir og útgefandi Dimma. n Sexe et mensonges – La vie sexuelle au Maroc eftir Leilu Slimani. Þýðandi er Irma Erl­ ingsdóttir. Útgefandi: Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur í erlendum tungumálum. n Wie der Wahnsinn mir die Welt erklärte eftir Dita Zipfel & Rán Flygenring. Þýðandi er Elísa Björg Þorsteinsdóttir og útgefandi Angústúra. n The Giraffe and the Pelly and Me eftir Roald Dahl & Quentin Blake. Þýðandi er Sólveig Sif Hreiðarsdóttir, útgefandi Kver bókaútgáfa. n Mr. Stynk eftir David Walliams & Quinten Blake í þýðingu Guðna Kolbeinssonar. Útgef­ andi er Bf­útgáfa. n The Most Magnificient Thing eftir Ashley Spires. Þýðandi er Hugrún Margrét Óladóttir og útgefandi Oran books. Fjölbreytt útgáfa íslenskra þýðinga Nóbelsverðlaunahafinn Peter Handke. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY Aðventugleði verður á á tröpp-um Þjóðleikhússins á laugar-dögum og sunnudögum, klukkan 14.00, 15.00 og 16.00, síð- ustu tvær helgarnar fyrir jól. Fyrsta sýningin verður í dag, laugardaginn 12. desember. Nokkrar ástsælar persónur úr Kardemommubænum, þau Bastían bæjarfógeti, Soffía frænka og yngsti ræninginn, hann Jónatan, bjóða leikhúsgestum að hitta sig á torginu framan við Þjóðleikhúsið, ásamt öðrum skemmtilegum leikper- sónum eins og Mikka ref og Ronju ræningjadóttur. Svo er jafnvel von á Grýlu sjálfri. Höfundur og leikstjóri gleð- innar er Guðjón Davíð Karlsson. Leikarar eru Örn Árnason, Ólafía Hrönn Jónsdóttir, Oddur Júlíusson, Hildur Vala Baldursdóttir, Þröstur Leó Gunnarsson og Sigríður Eyrún Friðriksdóttir. Karl Olgeir Olgeirs- son sér um tónlistarstjórn. Aðventugleði á tröppum Þjóðleikhússins Utanhúss mun Þjóðleikhúsið iða af lífi. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK AÐVENTUGLEÐI VERÐUR Á TRÖPPUM ÞJÓÐLEIKHÚSSINS Á LAUGARDÖGUM OG SUNNU- DÖGUM. 1 2 . D E S E M B E R 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R52 M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð MENNING
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116
Qupperneq 117
Qupperneq 118
Qupperneq 119
Qupperneq 120

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.