Harmonikublaðið - 01.12.2016, Page 10

Harmonikublaðið - 01.12.2016, Page 10
aldslögin hans Villa Þann 5. nóv. sl. voru haldnir tónleikar í Edinborgarhúsinu á Isafirði ril heiðurs Vilberg Valdal Vilbergssyni (Villa Valla) harmonikuleikara, rakara og altmuligmand á ísafirði. Vilberg fæddist á Flateyri við Onundarfjörð 26. maí árið 1930. Hann fluttist til Isafjarðar árið 1950 og hefur búið og starfað þar síðan, ásamt eiginkonu sinni Guðnýju Magnúsdóttur. Börnin þeirra fjögur eru öll mjög listfeng og bera foreldrum sínum fagurt vitni. Tónleikarnir voru haldnir að frumkvæði Matthíasar Hemstock trommuleikara og Jóns Sigurpálssonar safnvarðar. Yfirskrift tónleikanna var „Uppáhaldslögin hans Villa“. Með Villa þetta kvöld léku úrvals hljóðfæraleikarar. Það voru þeir Eyþór Gunnarsson á píanó, Eðvarð Lárusson á gítar, Andri Ólafsson á bassa og Matthías Hemstock á trommur. Tónleikarnir voru myndaðir og hljóðritaðir og verða væntanlega sýndir í sjónvarpi ásamt viðtölum við Villi Valli og hinir jammararnir listamanninn og einhverja fleiri af vinum hans og ættingjum. Fljótlega varð ljóst að mikill áhugi var fyrir þessum tónleikum í bænum enda fullt út úr dyrum og komust færri að en vildu. I viðtali við Villa fyrir tónleikana tók hann það fram að þetta væru nú ekki öll hans uppáhaldslög eins og gefur að skilja en mörg af þeim. Þá yrðu nokkur lög eftir hann sjálfan og eitt eftir Baldur Geirmundsson. Tónleikagestir mættu eiga von á skemmtilegu kvöldi og þyrftu ekki að mæta með bómull í eyrunum. Enda kom á daginn að tónlistin lét vel í eyrum og gott jafnvægi var á milli hljóðfæra. Villi kynnti sjálfur lögin af sinni alkunnu hógværð og glettni, salurinn tók vel við sér og stemmingin eins og best getur orðið. Það var ekki laust við að færi kliður um salinn þegar fyrstu tónarnir hljómuðu frá harmonikunni eins og spurning og félagarnir svöruðu í laginu Don 't get around much anymore og svo fylgdu lögin hvert af öðru. / can ‘t give you anything but love var fylgt eftir af Sweets to the sweet eftir Hugo Rasmussen. September samba eftir meistarann sjálfan var næst og síðan gullkorn Jeromy Kern 10 Meistarinnn snarstejjar Can 't help lovin that man. Auðvitað fékk Benny Goodman sinn part með laginu, A smooth one, sem síðan fékk Tico Tico í kjölfarið. Viki Vaki Jóns Múla var næsta perla og því fýlgdi Tall krónunnar eftir Villa Valla. Gamli smellurinn hennar Monicu Zetterlund, Trubbel eftir Olle Adolphson fylgdi krónufallinu og þá var næst sá sígldi Jeepers Creepers eftir Harry Warren. Haustlauf (Autumn Leaves) Josephs Kosma voru næst á dagskránni og Iuppsveiflu eftir spilafélaga Villa, Baldur Geirmundsson, tók við áður en I get it bad eftir meistara Duke Ellington hljómaði. Nú var liðið á veisluna, en næst var Flippin og í lokin komu tvö lög eftir Villa Valla, Samba og Þakið er lekt. Listamennirnir voru að sjálfsögðu klappaðir upp og léku sem aukalög Búðarvísur Emils Thoroddsen og Take five eftir Paul Desmond í einum pakka ( 2 fyrir einn) í útsetningu Vilbergs. Það var stórkostlegt að sjá og heyra Villa leika öll þessi gömlu lög sem hafa fýlgt honum í gegn um tíðina í bland við eigin lög og hvað þeir náðu vel saman þessir listamenn sem voru á sviðinu þetta kvöld. Það sýndi sig enn og aftur að í tónlistinni er ekkert kynslóðabil. I lokin stóðu tónleikagestir á fætur og hylltu listamennina og þökkuðu fyrir ógleymanlega kvöldstund. Samúel Einarsson. Myndir Haraldur Ringsted

x

Harmonikublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Harmonikublaðið
https://timarit.is/publication/1088

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.