Morgunblaðið - 05.05.2020, Qupperneq 1
Merking hefur haft mjög mikið að
gera við að framleiða og setja upp
skilrúm úr plexigleri við afgreiðslu-
kassa í verslunum. Búið er að setja
upp nokkur hundruð skilrúm og eft-
ir að afgreiða margar pantanir.
„Við höfum bæði hannað og smíð-
að þessi skilrúm,“ sagði Pétur Ingi
Arnarson, framkvæmdastjóri Merk-
ingar. „Það hefur orðið alger
sprenging í þessu og miklu meira að
gera en verið hefur.“ Hann segir að
samdráttur hafi orðið í skiltagerð en
mikil aukning í skilrúmunum. Búið
er að setja þau upp við afgreiðslu-
kassa verslana Bónuss, Krónunnar,
Samkaupa, BYKO og Vínbúðanna.
Toyota er að fá skilrúm og viðræður
standa við Strætó um skilrúm í alla
strætisvagna. Þar sem allir af-
greiðslukassar eru eins er hægt að
fjöldaframleiða skilrúmin. Á öðrum
stöðum þarf að sérsmíða.
„Við höldum að þessi breyting sé
komin til að vera,“ segir Pétur Ingi.
Hann segir að fólki líði betur þegar
skilrúmin eru til staðar, bæði af-
greiðslufólki og eins viðskiptavinum.
Skilrúm verji fólk til dæmis fyrir
mögulegu úðasmiti ef einhver lasinn
hóstar eða hnerrar. gudni@mbl.is
Skilrúmin við kassana komin til að vera
Sprenging hjá Merkingu í spurn
eftir skilrúmum við afgreiðslukassa
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Annir Merking hefur nú framleitt og selt verslunum hundruð skilrúma.
Hraunfossar í Borgarfirði eru einstök náttúru-
smíð. Fjöldi tærra linda sprettur undan kjarri
vöxnu Hallmundarhrauni, sem á þessum stað
nefnist Gráhraun, og myndar fossana. Hraun-
fossar hafa lengi laðað að sér ferðafólk sem kem-
ur til að líta þessa náttúruperlu augum. Þegar
myndin var tekin á dögunum voru þar hins veg-
ar fáir af skiljanlegum ástæðum. Heimsfarald-
urinn hefur stöðvað heimshornaflakkið.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Færri njóta
nú fegurðar
Hraunfossa
Þ R I Ð J U D A G U R 5. M A Í 2 0 2 0
Stofnað 1913 105. tölublað 108. árgangur
ANNA BJÖRK
VILL SPILA
HÉR Í SUMAR
ÁHYGGJUR
AF FUGLALÍFI
Á TJÖRNINNI
SINFÓNÍAN
TEKST Á VIÐ NÝJ-
AR ÁSKORANIR
HNIGNUNARSKEIÐ Í FIMMTÁN ÁR 14 LÁRA SÓLEY 28MIKIÐ HARK AÐ BAKI 26
Flugið í gang síðsumars
Samtök ferðaþjónustunnar horfa til þess að ferðaþjónustan fari af stað í ágúst
Sum Evrópuríkin enda að opnast Faraldurinn er víða á undanhaldi í Evrópu
Tilefnið er að kórónuveirusmitum
fer mjög fækkandi í mörgum ríkjum
Evrópu. Faraldurinn er til dæmis
mikið til genginn niður í Eystra-
saltsríkjunum og í Slóveníu og Slóv-
akíu.
Þá eru Norðurlandaþjóðirnar
farnar að sjá til lands, að minnsta
kosti hvað fyrstu bylgju faraldursins
varðar, og Færeyingar svo gott sem
búnir að kveðja veiruna í bili.
Í þessu efni má rifja upp að sam-
kvæmt opinberum gögnum fór veir-
an að breiðast um Evrópu í mars.
Nú eru því liðnir um tveir mánuðir
en til samanburðar hefst ferðamán-
uðurinn ágúst eftir þrjá mánuði.
Hefur hann ásamt september verið
íslenskri ferðaþjónustu drjúgur síð-
ustu ár. Á hinn bóginn er útlit fyrir
að Bandaríkin og Bretland verði þá
enn lokuð vegna veirunnar.
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Jóhannes Þór Skúlason, fram-
kvæmdastjóri Samtaka ferðaþjón-
ustunnar, segir markaði í Mið-Evr-
ópu og á Norðurlöndum kunna að
opnast á næstu mánuðum.
„Við horfum ekki síst til ferða-
manna sem eiga bókaðar ferðir til
Íslands í lok ágúst og í haust og hafa
ekki afbókað,“ segir Jóhannes Þór.
Gagnkvæm áhrif
» Staðan á Íslandi hefur áhrif
á hvort ferðamenn vilji koma til
landsins en óvíða mælast nú
færri með veiruna en hér.
» Það virkar í hina áttina en
rætt er um „sóttkvíarferðir“.
MFaraldurinn víða í rénun … »6
Mikill erill var á hárgreiðslustofum,
hjá sjúkraþjálfurum, snyrtistofum
og víðar í gær eftir að tilslakanir á
aðgerðum stjórnvalda og samkomu-
banni gengu í gildi. Þá var 20 manna
samkomubann rýmkað og mega nú
mest 50 manns koma saman. Dæmi
eru um að fólk þurfi að bíða vikum
saman eftir klippingu.
Engin ný smit voru tilkynnt í gær
en sýni voru heldur fá eða 71 talsins.
Íslensk erfðagreining tók engin sýni.
Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir
sagði á upplýsingafundi almanna-
varna í gær að stefnt væri að því að
opna sundlaugar 18. maí. »4
Mikill erill
á rakara-
stofum
Sundlaugar verði
opnaðar 18. maí
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Erilsamt Nóg var að gera hjá
starfsfólki á Rauðhettu og úlfinum.
Ótímabundið verkfall 260-270 fé-
lagsmanna Eflingar, sem vinna hjá
Kópavogsbæ, Seltjarnarnesbæ,
Mosfellsbæ og Sveitarfélaginu Ölf-
usi, hefst kl. 12.00 í dag. Samn-
ingafundi Eflingar og samninga-
nefndar Sambands íslenskra
sveitarfélaga, sem haldinn var hjá
ríkissáttasemjara síðdegis í gær,
lauk án árangurs.
Verkfallið nær m.a. til ræstinga-
fólks í fjórum af 21 leikskóla í
Kópavogi og fjórum af níu grunn-
skólum bæjarins. Vegna hertra
krafna um þrif í kórónuveiru-
faraldrinum er ljóst að þessum átta
skólahúsum verður lokað strax á
morgun, verði ekki samið. »2
Verkfall Eflingar
hefst á hádegi í dag