Morgunblaðið - 05.05.2020, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 05.05.2020, Blaðsíða 10
SVIÐSLJÓS Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is „Mér tókst ekki að hreyfa helluna en spennandi væri að gera aðra til- raun,“ segir Silja Y. Eyþórsdóttir. Hún var ein af nokkrum ferðamönn- um – raunar sárafáum – í Borgar- firði um helgina. Útsendari Morgun- blaðsins var á ferð til að kynna sér landslag, leiðir og fólk og kom þá að Húsafelli. Þar er margt að sjá og skoða og meðal áhugaverðra fyrir- bæra þar er Kvíahellan, aflrauna- steinn sem kenndur er við hinn kynngimagnaða 18. aldar prest Snorra Björnsson. Margir hafa spreytt sig hellunni, sem er 180 kíló að þyngd og þannig í lögun að aðeins örfáir ná taki á henni. „Ég var í Húsafelli með kærast- anum mínum og við gengum meðal annars upp Bæjargil, þaðan sem er víðsýnt. Meðal annars að Oki, jökl- inum sem hvarf. Ég á sterkar rætur í Borgarfirðinum, meðal annars eftir háskólaárin á Hvanneyri,“ segir Silja sem starfar hjá Orkuveitu Reykjavíkur. Æðakerfi veganna Vegakerfinu í uppsveitum Borg- arfjarðar svipar til æðakerfis mannslíkamans. Stofnbrautir eru sem slagæðar og út frá þeim liggja háræðar; net vega og spotta í þyrp- ingar, hverfi og heim á bæi. Sumir eru nokkuð úr alfaraleið en aðrir standa við þjóðbrautina, sem komið er á þegar beygt er til hægri við Hafnarfjall, rétt áður en komið er að Borgarfjarðarbrú. Alls 58 kílómetr- ar eru þaðan í Húsafell. Í Andakíl blasa við Baula og Skessuhorn; svipsterk fjöll og tign- arleg. Hvanneyri er hér á vinstri hönd; menntasetur íslensks land- búnaðar með margþættri starfsemi. Ferðaþjónusta er á mörgum bæjum; gististaðir, veitingastofur, verslanir með heimaunnum afurðum og fleiru góðu. Svo eru hér laxveiðiárnar, en veiði í þeim hefst venjulega snemma í júní og stendur fram á haust. Lax- veiðin skilar miklu til borgfirskra bænda, sem margir eru líka stórir í kúabúskap og sauðfjárrækt. Krauma og kirkjustaður Í mynni Reykholtsdalsins eru Kleppsjárnsreykir; skólastaður og garðyrkjuþorp. Þar nærri, handan Reykjadalsár, er Deildartunguhver. Þetta er vatnsmesti hver Evrópu; sem úr koma 180 lítrar á sekúndu af 100° heitu vatni á sekúndu. Er það notað til húshitunar og annars í Borgarnesi og á Skipaskaga. Þá er baðstaðurinn Krauma við Deild- artunguhver; sem opnaður verður eftir samkomubann. Um Andakíl, Bæjarsveit og mynni Reykholtsdals er ekið eftir Borgar- fjarðarbraut, veg nr. 50, en þegar komið er fram hjá Kleppjárns- reykjum og yfir brúna á Reykja- dalsá er beygt til hægri og ekið inn dalinn um veg nr. 518. Hér ber Reykholtstað hátt, bæði í efni og anda. Háreist kirkjan setur svip á staðinn sem og gamla héraðsskóla- húsið, þar sem geymd eru varaein- tök Landsbókasafnsins af ritum sem gefin eru út á Íslandi. Í anda og sögu er það Snorri Sturluson (1170-1241) sem gaf Reykholti máttugt líf. Hann var sagnaritari og atkvæðamaður á sturlungaöld; róstusömu tímabili og einn af hápunktum þess er að kapp- inn var veginn. „… veit allt sem talað er hér“ Í Reykholtsdal eru tvær leiðir þegar haldið er lengra inn í land; það er norðan eða sunnan við svo- nefndan Háls. Allt heitir þó Hálsa- sveit. Nokkrir sveitabæir eru sunn- an við Háls; innst Augastaðir. Þjóðleiðin að Húsafelli er norðan við háls. Hinir ægifögru Hraunfossar eru þar sterkt kennimark. Hér sjáum við Strút og ískaldan Eiríks- jökul sem „veit allt sem talað er hér“, eins og listaskáldið orti. Tjald- svæði, hótel, baðstaður og sumar- húsabyggð eru í Húsafelli; í skóg- inum sem laufgast senn. Morgunblaðið/Sigurður Bogi Styrkur Silja Eyþórsdóttir hér við Kvíahellu sr. Snorra í Húsafelli sem svo margir hafa reynt að lyfta en ekki tekist. Hreyfði ekki helluna  Frá Hafnarfjalli í Húsafell  Sunnudagsbíltúr í Borgar- firði  Reykholt í anda og efni  Skógur laufgast senn Reykholt Gamli héraðsskólinn og kirkjan eru reisulegar byggingar. Hvanneyri Lærimeistarar landbún- aðarins komnir í steininn. yrirsögn Hvanneyri Skessuhorn Eiríksjökull OK Strútur HúsafellHraunfossar AugastaðirReykholt Kleppjárns- reykir HÁLSASVEIT BÆJAR- SVEIT Deildar- tunguhver Borgarfjörður Loftmyndir ehf. Hvítá Hraunfossar Blátært bergvatnið kemur fram úr úfnu hrauninu. 10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. MAÍ 2020 Ársfundur Íslenska lífeyrissjóðsins Allir sjóðfélagar og rétthafar eiga rétt til setu á ársfundinum. Dagskrá fundarins er samkvæmt samþykktum sjóðsins: 1. Skýrsla stjórnar 2. Kynning á ársreikningi 3. Gerð grein fyrir fjárfestingarstefnu sjóðsins 4. Gerð grein fyrir tryggingafræðilegri athugun 5. Kosning aðal- og varamanna í stjórn 6. Kosning endurskoðanda 7. Tillögur um breytingar á samþykktum 8. Laun stjórnarmanna 9. Önnur mál Tillögur um breytingar á samþykktum þurfa að berast stjórn með skriflegum hætti tveimur vikum fyrir árs- fund. Tillögur til ályktunar sem taka á fyrir á ársfundi þurfa að berast stjórn með skriflegum hætti viku fyrir ársfund. Framboðum aðalmanna til stjórnar skal skila inn til stjórnar viku fyrir ársfund. Að þessu sinni verða kosnir tveir aðalmenn til þriggja ára. Tillögur og fram- boð skulu berast til stjórnar Íslenska lífeyrissjóðsins, Austurstræti 11, 101 Reykjavík. Tillögur að breytingum á samþykktum og framboð til stjórnar verða birt á vef- svæði sjóðsins, islenskilif.is. Stjórn Íslenska lífeyrissjóðsins hvetur sjóðfélaga til þess að mæta. Allar nánari upplýsingar má nálgast hér á vef sjóðsins eða hjá Verðbréfa- og lífeyrisráðgjöf Landsbankans í síma 410 4040. Ársfundur Íslenska lífeyrissjóðsins verður haldinn miðvikudaginn 27. maí 2020 kl. 17:00 í aðalútibúi Landsbankans Austurstræti 11. „Fyrst kom ég að Oki árið 1962 sem þá var flatur skafl sem hreyfðist ekki. Skilgreining á jökli er snjófarg sem skríður undan eig- in þunga og sú var aldrei raunin með Okið, snjóbreiðuna sem bætti við sig að flatarmáli á þeim þunga vetri sem nú er að líða,“ segir Snorri Jóhannesson bóndi. Síðasta sumar var settur upp minningarskjöldur um Ok; jökulinn á Kaldadal sem hvarf. Hann er eða var sunnan og ofan við Augastaði, þar sem Snorri hefur búið frá árinu 1973. „Jöklarnir eru að gefa eftir, slíkt er alveg óumdeilt en það hafa bara alltaf verið sveiflur í veðráttu og náttúrufari,“ segir Snorri. „Menn sem fæddust í kringum síðustu aldamót hafa sagt mér margt um hvernig nátt- úran og landið hér var allt öðruvísi í þeirra ungdæmi. Að þetta skilti á Oki væri sett upp síðasta sumar var mér að meinalausu og er nokk- uð sem skiptir engu máli. Þetta var áróður sem hentaði í um- ræðu um lofts- lagsbreytingar.“ Snorri hefur í áraraðir verið refaskytta í upp- sveitum Borg- arfjarðar og á sumrin liggur hann á grenjum á Arnarvatnsheiði. Skaðvaldi fjölgar „Ref er að fjölga, því yfirvöld sinna þessum málum ekki af þeim krafti sem áður var. Minni fjármunum er varið til þessa málaflokks, sem getur verið skammgóður sparn- aður þegar allt er lagt saman. Þessum skaðvaldi verður að halda í skefjum svo jafnvægi í lífríkinu raskist ekki, þótt alltaf megi deila um hvar sú lína liggi,“ segir Snorri. NÁTTÚRUBARN OG REFASKYTTA Í HÁLSASVEITINNI Snorri Jóhannesson Morgunblaðið/RAX Ok Var aldrei jökull, segir Snorri sem lengi hefur fylgst með þróun mála á svæðinu. Alltaf verið sveiflur í náttúru

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.