Morgunblaðið - 05.05.2020, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 05.05.2020, Blaðsíða 19
MINNINGAR 19 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. MAÍ 2020 ✝ Karl Berg-mann fæddist á sjúkrahúsinu á Sauðárkróki 27. ágúst 1952. Hann lést á heimili sínu, Kirkjusandi 5, Reykjavík, 19. apríl 2020. Móðir hans var Sigrún Þorsteins- dóttir, f. 1916, d. 2006, hún var til heimilis á Úlfsstöðum í Blönduhlíð í Skagafirði og síð- ar í Varmahlíð. Systir Karls sammæðra er Gyða Svanhvít Pálsdóttir, f. 1936. Karl kvæntist 1973 Rósu Margréti Sigursteinsdóttur, f. 1955, þau skildu. Dóttir þeirra er Sigrún Eva Margrétardótt- ir, f. 1973, börn hennar og Hjartar Sólrúnarsonar, f. 1973, eru Emma Elísa, f. 1993, Aron Daníel, f. 1995, Úlfur Mikael, f. 2000, og Natan Dýri, f. 2002. Sonur hennar og Sigurðar Grétars Ólafssonar, f. 1978, er Skarphéðinn Krummi, f. 2010. Karl hóf sambúð 1977 með Gerði Hauksdóttur, f. 1958. Þau slitu samvistum 2010. Börn þeirra eru: 1) Haukur stæðisformaður á ýmsum verkstæðum. Síðustu árin vann hann hjá verktakafyr- irtækinu Ístaki, sem verkstæðisformaður í verkum bæði hér á landi og í Noregi og á Grænlandi, auk þess að starfa við vélstjórn bæði á sjó og landi. Á árunum 1986-1992 var Karl bóndi á Bræðraá og síð- an Skálá í Sléttuhlíð í Skaga- firði. Karl starfaði með Flug- björgunarsveitinni á Hellu á meðan hann bjó þar og hann tók þátt í að endurreisa björg- unarsveitina Gretti á Hofsósi eftir að hann flutti norður. Hann fékk áhuga á björg- unarsveitarstörfum eftir að hafa upplifað snjóflóðin í Nes- kaupstað 1974, þar sem hann var þá búsettur. Áhugamál Karls voru tengd björgunarsveitarstörfum, al- mennri útvist og ferðalögum. Á yngri árum gekk hann m.a. á Hvannadalshnjúk og ferðað- ist á breyttum jeppum og vél- sleðum um hálendi Íslands áð- ur en slíkar ferðir urðu jafn algengar og nú er. Í seinni tíð ferðaðist hann víða um lönd. Útför Karls fer fram frá Háteigskirkju í dag, 5. maí 2020, klukkan 13. Vegna að- stæðna í þjóðfélaginu verður hún ekki opin. Logi, f. 1979, kvæntur Áslaugu Dögg Karlsdóttur, f. 1983. Börn þeirra eru Aría, f. 2013, Kári, f. 2015, og drengur sem ekki hefur fengið nafn, f. 2020. 2) Sverrir Kári, f. 1980, kvæntur Helenu Kristinsdóttur, f. 1982, börn þeirra eru Embla Karen, f. 2004, Gerður Lind, f. 2007, og Aron Karl, f. 2016. 3) Snædís, f. 1988, sambýlis- maður hennar er Úlfar Kári Jóhannsson, f. 1992. Dóttir Snædísar og Guðmundar Sveins Bæringssonar, f. 1981, er Margrét, f. 2009. Börn Snædísar og Úlfars Kára eru María, f. 2017, og Alexander, f. 2019. Karl kvæntist 2017 Jórunni Guðlaugu Sigurðardóttur, f. 1951. Karl ólst upp á Úlfsstöðum í Blönduhlíð í Skagafirði og gekk í barnaskóla þar í sveit- inni. Hann fór síðan til Reykjavíkur til náms í bifvéla- virkjun, sem varð hans ævi- starf. Hann starfaði sem verk- Faðir minn dó í síðustu viku. Eða var það kannski í þeirri þar á undan. Í fyrstu minningum mínum af pabba birtist hann mér sem ofurmannleg vera. Hann var stærri, sterkari og klárari en allir aðrir. Í huga barnsins á miðjum níunda ára- tug síðustu aldar voru uppátæki hans ævintýraleg, þar sem hann kleif hættuleg eldfjöll, bjargaði fólki úr lífsháska í kafaldsbyl á Vatnajökli, gekk á Hvannadals- hnjúk og keppti í torfærukeppn- um á fjölskyldubílnum. Hann kom jafnvel með stærðar hraun- mola úr nýskeðu Heklugosi heim á stofugólf til jarteikna um svað- ilfarir sínar. Sterk minning frá þessum árum er af okkur fjöl- skyldunni í einni af mörgum úti- legum í Þórsmörk. Ilmur af birki í lofti, sól á himni og Bubbi í út- varpinu á bílnum að syngja um fatlafólið eða svartan afgan. Seinna fluttumst við norður í land og foreldrar mínir gerðust bændur á mörkum hins byggi- lega heims rétt sunnan heim- skautsbaugs. Það hafði alltaf verið draumur sveitapiltsins úr Blönduhlíðinni í Skagafirði að gerast bóndi. En rétt eins og hjá Bjarti hans Laxness varð bú- skapurinn talsvert basl. Hver snjóaveturinn á fætur öðrum gekk yfir Sléttuhlíðina á sama tíma og sauðfjárbændur stóðu almennt frammi fyrir efnahags- þrengingum. Myndin af pabba í huga barnsins var engu að síður óbreytt. Þessi sterki og hugaði maður, sem lá úti heilu vikurnar við grenjavinnslu, seig í fugla- björg til eggjatöku og sýndi oft ótrúlega þrautseigju í baráttunni við óblíð náttúruöflin á hörðum vetrum. Ein af eftirminnilegri minningum þessa tíma var þegar við feðgarnir hírðumst heima á bæ í rúma viku í rafmagnsleysi eftir eitt óveðrið. Það var hávet- ur og engin hitaveita, þannig að fljótlega var hitastigið við frost- mark inni í húsinu. Fyrir pabba var þetta hins vegar núll vesen og við lágum þrír feðgarnir kappklæddir í hjónarúminu í viku við kertaljós og lestur jóla- bókanna á milli þess sem skepn- unum var sinnt. Um miðjan tíunda áratuginn bregða foreldrar mínir búi og flytja í kjölfarið til Reykjavíkur með stoppi í nokkur ár á Sauð- árkróki. Þrátt fyrir að ég hafi kannski ekki gert mér grein fyr- ir því á þeim tíma þá varð sú niðurstaða pabba nokkurt skip- brot. Draumurinn um að vera bóndi hafði ekki gengið eftir. Upp úr því fara að birtast mér brestir í fari hans, sem síðan ágerast með árunum. Hann er enn þá sami harðjaxlinn á sínum góðu dögum, en er farinn að stíga glímuna við Bakkus. Upp úr þessu er ég kominn á fullorð- insár og fer að lifa mínu eigin lífi þannig að ég hafði ekki mikið af honum að segja þegar sjúkleik- inn ágerðist. Eina af síðustu góðu stundum með honum átti ég þegar hann kom og var við- staddur brúðkaup mitt í Flórens sumarið 2014. Síðustu árin varð æ ljósara að Bakkus hefði hann undir innan tíðar og var svo komið að ég treysti mér ekki til þess að vera í nánum samskipt- um við hann. Ég rakst á hann á förnum vegi fyrir nokkrum vik- um og átti við hann orð. Það sló mig að þarna stóð fölur skugg- inn af pabba mínum, sem eitt sinn hafði verið sterkasti pabbi í heimi. Haukur Logi Karlsson. Í huga mér liggur þú í þægi- legum grasbala undir bláhimni og styður við höfuðið með greip- ar spenntar fyrir aftan hnakka. Fæturnir eru lauslega kross- lagðir yfir annan ökklann og þér líður sjáanlega vel. Ég heyri fuglasöng og lækjarnið og þarna ert þú, brosandi á móti sólu meðan hlýr sunnanvindur hreyf- ir við háu grasinu sem umlykur þig eins og faðmlag heimahag- anna. Þú ert klæddur gönguskóm og hálftætingslegum buxum sem bera með sér að hafa verið mikið notaðar. Hlýlegast þykir mér þó að sjá þig í svart-hvítri lopa- peysu með rúllukraga sem nán- ast nær upp að eyrum sem þú lést prjóna á þig úr sokkabandi svo hún myndi síður slitna við mikla notkun. Í huga mér mun ég ganga til þín, leggjast við hlið þér og spyrja þig ráða meðan ég reyni að leysa lífsins þrautir. Þú tækir vafalítið upp gamlar útilegug- ræjur og færir að hita fyrir okk- ur kaffi en þarna gætum við set- ið saman og hlegið, spjallað um allt sem skiptir engu máli og þegar líða færi á samtalið mynd- irðu gefa mér skotheld ráð – sem ég ýmist fylgi eða átta mig síðar á að ég hefði átt að fylgja. Í huga mér muntu hvetja mig áfram, hughreysta mig þegar ekki tekst nógu vel til, ráðleggja mér eða hjálpa þegar þess gerist þörf. Það stóð aldrei á réttum viðbrögðum frá þér þegar til þín var leitað og þér treysti ég best. Þegar ég sé þig í draumalandi huga míns er augljóst á andlits- dráttum þínum að allar vondar tilfinningar urðu eftir í öðrum heimi og allt þitt fas einkennir nú vellíðan og hugarró. Hvíldu þig nú elsku pabbi minn og láttu fara vel um þig, vorið er komið. Þín Snædís (Dísa). Ég kveð þig elsku Kalli minn með hendingum úr ljóðinu okk- ar, Ást, eftir Sigurð Nordal. Þú gafst mér skýin og fjöllin og guð til að styrkja mig. Ég fann ei, hvað lífið var fagurt fyrr en ég elskaði þig. Ég fæddist til ljóssins og lífsins er lærði ég að unna þér Og ást mín fær ekki fölnað fyrr en með sjálfum mér. Ekki bárum við gæfu til að eldast saman og leiðir skildi, þó slitnaði aldrei strengurinn. Ég mun halda þinni minningu á lofti við okkar afkomendur. Takk fyrir allt og ég er viss um að þú hefur fundið frið þar sem þú ert núna. Gerður. „Eitt sinn skal hver deyja,“ er hið stranga lögmál lífsins. Það var óneitanlega kaldur gustur sem fylgdi fréttinni að Karl Bergmann væri allur. Maðurinn sem var barn vorsins og unnandi náttúrunnar væri horfinn inn í sólarlagið. Blómið hans sprakk ekki út á þessu vori, og örlaga- nornirnar ófu honum þann vef að nú er hann genginn til feðra sinna, sárt saknað af ættingjum og vinum. Við Kalli áttum margt saman að sælda í áratugi, konur okkar systur og börn okkar á sama aldri og lífið skemmtilegt. Karl var Siglfirðingur, fæddur undir bláhimni blíðsumars nætur, eins og segir í textanum góða sem hann söng á gleðistundum. En Magnús Gíslason á Vöglum sveitungi Kalla orti þennan dásamlega söngtexta. Ekki verður sagt að örlögin hafi alltaf leikið sama lag í lífi hans. Hann var barn einstæðrar móður og föðurlaus. Kalli fædd- ist í þennan heim í skjóli vanda- lausra og hreppti þó þá ham- ingju að alast upp hjá góðu fólki í faðmi fjölskyldu eins og góður sonur á Úlfsstöðum. Karl lærði bifvélavirkjun og vann við þá grein. Um margt var hann mjög fylginn sér og sérfróður í flestu því sem hann tók sér fyrir hend- ur. Ístaksmenn þekktu hand- brögð hans, sérfróðan í Man og Scania. Þau Gerður bjuggu víða þá áratugi sem þau áttu saman í blíðu og stríðu. Kalli var björg- unarsveitarmaður, því fylgir agi og reynsla. Við Margrét minn- umst margra ferða með þeim um landið og inn á hálendið. Þau voru alltaf vel akandi, því hann kunni á vötnin og að leggja í straumþungar ár. Aldrei hik en vökult var auga hans fyrir þeim hættum sem fylgdi slíkum ferð- um. Oft komum við til þeirra þegar þau ráku sauðfjárbúskap á Bræðraá og Skálá. Hann vann fullan vinnudag á Hofsósi við sitt fag. Náttúrubarnið Karl var ein- stakur heim að sækja og náttúr- an í Hrollleifsdal varð að æv- intýri þegar hann sýndi okkur blómskrúðið og berjalyngið. Hann var refaskytta og lá á fjöll- um á vorin og bar mikla virðingu fyrir landnemanum forna sem oft laut í lægra haldi fyrir ofjarli sínum. Kalli var vinnuþjarkur og krakkarnir þeirra fóru ung að hjálpa til. Aginn er móðir vinn- unnar og börnin þeirra hafa áreiðanlega notið þess að þeim var treyst og þau kynntust sveitavinnu. Enda hafa þau öll lokið ströngu langskólanámi og eru dugandi þjóðfélagsþegnar. Aldrei gleymi ég ferð sem við Margrét fórum með þeim Kalla og Gerði til Spánar og skutumst yfir til Afríku. Í þeirri ferð var hann eins og á fjöllum áður; leið- angursstjórinn, vel lesinn og undirbúinn, fróður um söguna og allar aðstæður. Karl var viljugur greiðamaður sem brást skjótt við væri leitað hjálpar hjá honum. Þegar ég kynntist Kalla var hann grjót- harður sjálfstæðismaður frá blautu barnsbeini. Þegar ég hætti snögglega í pólitík kom hópur fólks saman og ræddi þá stöðu. Allir skellihlógu er Kalli spurði snöggt: „Er ég þá ekki örugglega laus við að kjósa Framsóknarflokkinn?“ Hin mannskæðu snjóflóð í Neskaupstað 20. desember 1974 höfðu varanleg áhrif á alla sem þar bjuggu þá. Í örlagaríku við- tali í sjónvarpsþættinum Fjöllin rumska átti hann lokainnslagið. Karl bjó í Neskaupstað á tímum snjóflóðsins örlagaríka með sinni fyrstu konu og dóttur og þær björguðust naumlega. „Ef þú lendir í snjóflóði áttu eiginlega engan séns. Þau drepa,“ sagði hann. Þarna birtist hinn meyri og sorgmæddi maður fjörutíu og sex árum síðar, ólíkur sjálfum sér. En hans viðkvæði var oftast í erfiðleikum „kostaðu hug þinn herða“. Sum sár gróa aldrei og oft fylgir þeim sá erfiði húsbóndi sem engu vægir. Nú hafa har- masár lífsins fleytt Karli Berg- mann yfir landamæri lífs og dauða. Við Margrét vottum Jórunni eiginkonu hans og börnum hans og barnabörnum djúpa samúð. Drengskaparmaður er genginn. Guðni Ágústsson. Í dag kveðjum við vinnufélaga okkar Karl Bergmann. Kalli, eins og hann var alltaf kallaður af vinnufélögunum, kom í upp- hafi inn í viðhaldshóp Ístaks vegna reynslu og þekkingar á vörubílum. Sagðist kunna á þá, sem voru engar ýkjur, en ekki vera neinn vinnuvélasérfræðing- ur. Það má vel vera að hann hafi þá ekki talið sig vera sérfræðing á því sviði en hann var samt sí- vaxandi hafsjór af fróðleik um hvers kyns viðgerðir og vanda- mál, enda leituðum við oft til hans þegar í óefni var komið. Lagði hann sig allan fram við að bjarga okkur úr þeirri klípu sem við höfðum komið okkur í. Fyrir þetta og margt annað stöndum við í eilífri þakkarskuld við hann. Þegar kom að því að vinna erfið og krefjandi verk lét Kalli aldrei sitt eftir liggja og var oft einn að brasa í líkamlega erf- iðum verkum sem hefðu betur hæft yngri mönnum. En svona var Kalli. Til sjós og lands var hann í okkar huga lausnamið- aður, ósérhlífinn, grjótharður nagli sem dró vagninn þegar mest á reyndi. Þegar kom að því að velja í hópinn fyrir nýtt verk var alltaf ljóst að sá hópur yrði sterkari ef hann væri innan- borðs. Kalli var ekki fullkominn frekar en við sjálfir eða nokkur annar á þessari jörð og glímdi við sína erfiðleika. Honum hafði hins vegar verið úthlutað meira mótlæti en mörgum öðrum og hefur það kannski rist dýpra en við gerðum okkur grein fyrir. Við kveðjum Kalla og minn- umst hans með þakklæti og hlýju fyrir allar góðu stundirnar. Hverfur margt huganum förlast sýn þó er bjart þegar ég minnist þín. Allt er geymt allt er á vísum stað engu gleymt, ekkert er fullþakkað. (Oddný Kristjánsdóttir í Ferjunesi) Kveðja fyrir hönd vinnufélaga á verkstæðinu í Tosbotn, Dagur Indriðason, Haraldur Ingþórsson. Mínir vinir fara fjöld, feigðin þessa heimtar köld. Ég kem á eftir kanski í kvöld, með klofinn hjálm og rofinn skjöld brynju slitna, sundrað sverð og syndagjöld. Svo orti sveitungi Kalla (Bólu- Hjálmar) fyrir margt, margt löngu. En nú þegar ég er næstum sjötugur veit ég að maður eign- ast ekki vini, maður bara missir þá. Þegar ég frétti að vinur minn Kalli Bergmann væri farinn yfir móðuna miklu rifjuðust upp fyrir mér mörg okkar fyrri samskipti. Ég hitti Kalla fyrst þegar hann var vélstjóri hjá mér um borð í Mikael, efnisflutningapramma í eigu Ístaks, leiðir okkar lágu oft saman aftur, t.d. á Siglufirði og seinna úti í Noregi. Oft var hann vélstjóri hjá mér og stundum var ég handlangari hjá honum á verkstæðinu. Það væri að bera í bakkafullan lækinn að reyna að telja upp allt það sem Kalli af- rekaði á viðgerðasviðinu. Ég verð þó að minnast á eitt atvik. Mikael var með tvær vélar og var önnur vélin komin á síðasta snúning enda orðin fimmtíu ára gömul, ef hún endalega stoppaði var verkið í uppnámi. Það virtist sem fáir hefðu áhyggur af þessu nema við Kalli, en hann vissi af gamalli vél sem var uppi á rus- lalager á Tungumelum, lét hann senda sér varahluti úr þeirri vél, og skemmst er frá því að segja að meðan ég var að sigla á hinni vélinni eingöngu líka fimmtíu ára gamalli, skipti Kalli um slíf og stimpil ásamt fleiri varahlut- um, án nokkurrar aðstoðar nema þeirrar litlu sem ég gat veitt, meðan verið að lesta bátinn. Á þessum hræjum tókst okkur að klára verkið. Eitt vil ég minnast á, þegar við vorum í Grillefirði á Senju. Þá féllu snjófljóð innar í firð- inum og heyrðust drunurnar vel á lestunarkæjanum, þá sá ég hvað Kalla var brugðið. Þá fyrst sagði hann mér frá reynslu sinni af snjóflóðunum á Norðfirði, en honum eins og öllum sem í hans sporum stóðu bauðst sú eina áfallahjálp að stinga hausnum í storminn og bíta á jaxlinn. Kjör- in settu á manninn mark, mót- uðu þol og stældu kjark. Við átt- um líka góðar stundir í Noregi, annað slagið fórum við með tvær til þrjár ölkippur inn á herbergi og strákarnir sögðu að við vær- um á verkfundi, en það var fjarri sanni, ég man ekki eftir að hafi verið minnst á verkið. Við vorum þá í miðri kreppunni svo við töl- uðum mest um landsins gagn og nauðsynjar. Vorum við sammála, já um markmið, en um leiðir – nei nei, aldeilis ekki, þegar kom- ið var fram í miðjan fund var Kalli kominn hægra megin við Hannes og ég vinstra megin við Mao. Ef við hefðum orðið sam- mála á þeim tímapunkti, hefði fundurinn orðið bráðónýtur. Við ræddum líka hvað tæki við þeg- ar við værum báðir hættir að vinna, en þau plön verða nú sett á bið, en kanski dustum við af þeim rykið þegar við verðum aft- ur á sama árbakkanum. Að endingu vil ég senda eig- inkonu, aðstandendum og vinum Kalla mínar innilegustu samúð- arkveðjur. Kalli minn, hvíl í friði. Þinn vinur, Hlynur. Karl Bergmann Frímann & hálfdán Útfararþjónusta Frímann 897 2468 Hálfdán 898 5765 Ólöf 898 3075 Sími: 565 9775 www.uth.is uth@uth.is Cadillac 2017 Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ÞÓRUNN ÞORVALDSDÓTTIR hjúkrunarfræðingur, Mánatúni 4, lést á Hrafnistu, Laugarási, laugardaginn 2. maí. Útförin verður auglýst síðar. Ingimundur K. Ingimundarson Hafdís Ingimundardóttir Þórir B. Guðmundsson Ólöf Ingimundardóttir Þorvaldur G. Geirsson Ingimundur Þ. Ingimundars. Sigríður A. Sigurðardóttir María Ingimundardóttir Friðgeir Halldórsson Þorvaldur Ingimundarson Rós Guðmundsdóttir barnabörn og barnabarnabörn

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.