Morgunblaðið - 05.05.2020, Blaðsíða 6
KÓRÓNUVEIRUFARALDUR6
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. MAÍ 2020
BAKSVIÐ
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Víða í Evrópu er kórónuveirufarald-
urinn mikið til genginn niður. Ný til-
vik eru aðeins brot af fjöldanum
þegar faraldurinn náði hámarki.
Hér á grafinu má sjá dreifingu
nýrra tilvika í níu Evrópulöndum.
Súlurnar sýna fjölda tilvika á dag og
eru, líkt og á Íslandi, nánast horfnar.
Gögnin eru sótt á vef Johns
Hopkins-háskóla í Bandaríkjunum.
Alls 39 tilvik voru skráð í Austur-
ríki í fyrradag. Þegar mest lét voru
tilvikin um 1.300 á dag.
Sömu sögu er að segja frá Eystra-
saltslöndunum.
Aðeins eitt tilvik greindist í Eist-
landi í fyrradag en mest greindust
134 tilvik á dag. Átta tilvik greindust
í Lettlandi í fyrradag en þau urðu
mest 48. Fjögur tilvik greindust í
Litháen en urðu mest 90 á dag. Með
sama áframhaldi stefnir í að engin
ný tilvik greinist í þessum þremur
löndum í fyrri hluta maí.
Á niðurleið í Noregi
Þróunin er áþekk í Noregi.
Þar greindust 38 tilvik í fyrradag
en urðu flest 386 á dag. Þess má geta
að samkvæmt vefnum fhi.no voru 11
ný tilvik í fyrradag en 38 hinn 30.
apríl. Mögulega er því tímatöf í
gögnum bandaríska háskólans.
Alls 92 tilvik greindust í Portúgal í
fyrradag en þau voru mest um 1.500.
Ekkert tilvik greindist í Slóveníu í
fyrradag en hafa flest orðið 70 á dag.
Eitt tilvik greindist í Slóvakíu í
fyrradag en voru mest 114 á dag. Við
þetta má bæta að átta tilvik greind-
ust í Króatíu í fyrradag en þau urðu
flest 96 á dag.
Loks greindust 88 tilvik í Sviss í
fyrradag en þau voru mest um 1.300
á dag. Nefna mætti fleiri lönd. Til
dæmis greindust aðeins 12 tilvik í
Lúxemborg í fyrradag en þau urðu
flest 234. Hjá Dönum og Svíum
greindust 116 og 235 tilvik í fyrra-
dag en hjá þeim greindust mest 391
tilvik og 812 á dag. Hjá Finnum
greindust mest 267 tilvik á dag en
þau voru 78 í fyrradag. Faraldurinn
er nánast um garð genginn í Fær-
eyjum. Þar hafa 185 af 187 náð bata,
samkvæmt vefnum corona.fo.
Ýmislegt ber að hafa í huga þegar
svona tölfræði er borin saman milli
landa. Í fyrsta lagi er hlutfall mæl-
inga af íbúafjöldanum misjafnt. Í
öðru lagi kann almenningur í þess-
um löndum að vera misjafnlega vel
upplýstur um faraldurinn. Í þriðja
lagi hafa fræðimenn varað við hætt-
unni á því að faraldurinn geti gengið
í bylgjum áður en yfir lýkur.
Ásamt þessum Evrópuríkjum er
faraldurinn líka í rénun í Eyjaálfu og
í mörgum ríkjum Asíu. En eins og
daglegar fréttir síðustu vikna bera
með sér er faraldurinn enn á fullri
ferð í Bandaríkjunum og í Bretlandi.
Þá eru enn að mælast hlutfallslega
mörg tilvik í Kanada.
Faraldurinn víða í rénun í Evrópu
Kórónuveiran
virðist vera á
útleið í mörgum
ríkjum álfunnar
Fjöldi daglegra kórónuveirusmita í nokkrum löndum frá 1. mars til 3. maí
Austurríki 8,9 milljón íbúar
1.500
1.250
1.000
750
500
250
0
M A R S A P R Í L
Eistland 1,9 milljón íbúar
150
125
100
75
50
25
0
M A R S A P R Í L
Lettland 1,3 milljón íbúar
50
42
33
25
17
8
0
M A R S A P R Í L
Litháen 2,8 milljón íbúar
95
76
57
38
19
0
M A R S A P R Í L
Noregur 5,4 milljón íbúar
400
320
240
160
80
0
M A R S A P R Í L
Portúgal 10,2 milljón íbúar
1.700
1.360
1.020
680
340
0
M A R S A P R Í L
Slóvakía 5,45 milljón íbúar
130
104
78
52
26
0
M A R S A P R Í L
Slóvenía 2,08 milljón íbúar
75
63
50
38
25
13
0
M A R S A P R Í L
Sviss 8,65 milljón íbúar
1.500
1.250
1.000
750
500
250
0
M A R S A P R Í L
Heimild: Johns Hopkins CSSE
Jóhannes Þór Skúlason, fram-
kvæmdastjóri Samtaka ferðaþjón-
ustunnar, segir aðspurður vonir
bundnar við að erlendir ferðamenn
fari að koma aftur síðsumars, jafnvel
í síðari hluta ágústmánaðar.
„Okkur heyr-
ist, út frá samtöl-
um við stjórn-
kerfið og þá sem
sinna þessum
málum, að verið
sé að skoða þetta
mjög alvarlega.
Menn hafa horft á
jafnvægið milli
þess að hægt
verði að ferðast
milli landa og
þeirrar áhættu sem því er talin
fylgja. Þá er verið að skoða út-
færslur á fjöldatakmörkunum og
hvernig vita má með vissu að ferða-
menn séu ekki smitaðir. Ef það tekst
að gera tvíhliða samninga við önnur
lönd um ferðalög hangir það saman
við hvaða flugsamgöngur eru þá í
boði. Við vonumst til að þetta mat
fari fram eins hratt og mögulegt er
en gerum okkur grein fyrir að það er
að ýmsu að hyggja,“ segir Jóhannes.
Markaðir í Mið-Evrópu og á Norð-
urlöndum kunni að opnast næstu
mánuði. Tveir stærstu ferðamarkað-
ir Íslands, Bandaríkin og Bretland,
verði hins vegar að óbreyttu lokaðir
mestallt árið. „Við horfum ekki síst
til ferðamanna sem eiga bókaðar
ferðir til Íslands í lok ágúst og í
haust og hafa ekki afbókað.“
Spurning um ferðavilja
Þó sé að mörgu að hyggja og
óvissan mikil. Til dæmis varðandi
ferðavilja Evrópubúa í sumar.
Varðandi smithættu segir Jóhann-
es Þór horft til þess að mögulega
verði settar samevrópskar reglur
um móttöku ferðamanna við þessar
aðstæður. Rætt hafi verið um
„sóttkvíarferðamennsku“ í þessu
samhengi, hópa sem eru í litlu sam-
neyti við aðra á ferðalögum sínum.
„Nú eða að fólk taki einhvers kon-
ar próf áður en það fer, eða eftir að
það kemur, eða eitthvað slíkt. Það
eru ýmsar útfærslur á því. Ég held
að veröldin hafi ekki komið sér niður
á eina lausn í því samhengi. Það er
líklegt að það verði ekki séríslensk
lausn, heldur í tengslum við tvíhliða
samkomulag við önnur lönd,“ segir
Jóhannes Þór. Öllum möguleikum sé
haldið opnum.
Ferðamenn koma
mögulega í ágúst
SAF horfir til tvíhliða samninga
Jóhannes Þór
Skúlason