Morgunblaðið - 05.05.2020, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 05.05.2020, Blaðsíða 17
UMRÆÐAN 17 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. MAÍ 2020 www.flugger.is Viðarvörnina fyrir pallinn færðu hjá Flügger Þ að er lítill vafi á því að nú þegar hillir undir léttari tíma, meira frelsi, sumar og sól, þá vakna spurningar um lífið og tilveruna. Hvernig munum við koma út úr þessum ósköpum, hvernig mun veröldin líta út? Ég trúi því að þegar upp er staðið muni allt verka okkur til góðs. Við sjáum hvernig þjóðir hafa staðið saman sem ein manneskja og lyft grettistaki þar sem þess hefur verið þörf. Vissulega hefur kostnaðurinn verið mikill og margir sem eiga um sárt að binda. Við munum á komandi misserum þurfa að fást við af- leiðingar faraldurs- ins. Erfiðar tilfinn- ingar, atvinnuleysi, gjaldþrot fyrirtækja og efnahagsástand krepputíma. Sköpunarverk Guðs hefur þjáðst um langan tíma, hlýnun jarðar er staðreynd sem getur haft í för með sér ófyrirsjáanlegar hörmungar. Fyrir þau sem trúa því að jörðin og öll lífsamfélög á henni séu dýrmæt sköpun Guðs er þessi framvinda óviðunandi. Kristin trú, rétt eins og fleiri trúarbrögð, hefur mikið fram að færa. Sköpunarsaga fyrstu Móse- bókar sýnir svo ekki verður um villst að ábyrgðin liggur hjá okk- ur, mannkyni. Það má lesa úr þessu að manneskjan eigi að sinna ráðsmennskuhlutverki sínu af kostgæfni, alúð og kærleika. Það er hægt að boða auðmýkt gagnvart náttúrunni og þeirri ráðsmennsku er manninum var falin og þannig þjóna inn í að- stæður fjölda fólks er þjáist vegna umhverfisvár. Jörðin hefur þó þrátt fyrir allt fengið hvíld undanfarna mánuði. Það er engu líkara en allir hafi tekið sig saman um að nýta tím- ann til að heila jörðina. Sumt hef- ur verið afleiðing af því að fyrir- tæki hafa ekki getað starfað vegna faraldursins en fólk tekur eftir þessu og talar um það. Und- anfarið hefur mátt sjá heilu fjöl- skyldurnar úti að plokka rusl og þannig leggja sitt af mörkum til umhverfisins. Við höfum lært það að með samstöðu eru okkur allir vegir færir. Danski heimspekingurinn og guðfræðingurinn Søren Kierke- gaard sagði að það væri ein- göngu hægt að skilja lífið með því að líta til baka en til að lifa því þyrfti að líta fram á veginn. Við höfum nú þegar lært mikið af Covid-19 og á sama tíma höf- um við reynt það hversu van- máttug við getum verið gagnvart náttúrunni en það hefur sýnt sig að við getum staðið saman öll sem eitt. Nú erum við flest vel meðvituð um það hversu mikil- væg heilsa okkar er og hvað það er sem skiptir máli í lífinu, það gefur framtíðarsýn og kraft. Mörg okkar hafa unnið heiman frá sér undanfarnar vikur en á sama tíma hef- ur fólk sem er í framvarðarsveit þeirra er bera uppi heilbrigðisþjónustu og löggæslu unnið myrkra á milli og allan tímann sett sjálft sig og fjöl- skyldur sínar í hættu við að sinna meðbræðrum sínum. Jesús sagði einmitt að við ættum að elska náungann eins og okkur sjálf. Þetta hafa fjöl- margir Íslendingar gert, fólk hefur bankað upp á hjá ná- grönnum sínum til að athuga hvort ekki sé í lagi hjá þeim. Við prestar höfum lagt okkur fram um að hringja í fólk til að athuga líðan þess og heilsu. Það er ekki mikið mál að taka upp síma og hringja stutt símtal eða athuga með nágranna okkar, en það skilur eftir sig góða tilfinningu. Kristin trú er kærleiksboðskapur og þar liggur kjarni málsins; að við gefum okk- ur sjálfum og hvert öðru kærleik, og síðast en ekki síst að við sýn- um sköpunarverki Guðs kær- leika. Kærleikurinn sem skiptir sköpum í baráttunni við Covid-- 19-faraldurinn er mögnuð gjöf. Páll postuli sagði að kærleik- urinn væri langlyndur og góðvilj- aður, hann sagði einnig: Kærleik- urinn öfundar ekki. Kærleikurinn er ekki raupsamur, hreykir sér ekki upp. Hann hegðar sér ekki ósæmilega, leitar ekki síns eigin, hann reiðist ekki, er ekki lang- rækinn. Hann gleðst ekki yfir óréttvísinni, en samgleðst sann- leikanum. Hann breiðir yfir allt, trúir öllu, vonar allt, umber allt. Guð gefi ykkur góðar stundir. Kirkjan til fólksins Morgunblaðið/Ásdís Kærleikur Sýnum nágranna okkar umhyggju. Kærleikur Hugvekja Fritz Már Berndsen Jörgensson Höfundur er prestur í Keflavíkurkirkju, rithöfundur, doktorsnemi og annar tveggja stofnenda Netkirkju, fyrstu rafrænu kirkjunnar á Íslandi. Fritz Már Berndsen Jörgensson Það er lítill vafi á því að nú þeg- ar hillir undir léttari tíma, meira frelsi, sumar og sól, þá vakna spurningar um lífið og til- veruna. Skýrsla starfshóps sjávarútvegs- og land- búnaðarráðherra um stefnumótun í fiskeldi ber merki um skamm- tímahugsun þar sem fjárhagslegur ávinn- ingur er drifkraft- urinn. Margar tillögur í skýrslu starfshópsins, sem stjórnarformenn Arnarlax og Fiskeldi Austfjarða leiða, end- urspeglast í nýlegum breytingum á lögum um fiskeldi. Hér verður fjallað um nokkur atriði sem ganga út á að draga úr kostnaði laxeldisfyr- irtækjanna. Minni kostnaður vegna umhverfismála Umhverfissinnar gera of mikið úr umhverfisáhrifum laxeldis og laxeld- ismenn of lítið, en sannleikurinn er einhvers staðar þar á milli. Það er þó ljóst að kostnaður laxeldisfyrirtækja vegna umhverfismála er minni hér á landi en t.d. Noregi:  Slysasleppingar: Í Noregi þarf atvinnugreinin að greiða kostnað við að fjarlægja eldislax úr veiðivötnum. Þegar rekja má slysasleppingu til ákveðins fyrirtækis greiðir það kostnaðinn. Ekki er gert ráð fyrir að fjarlægja eldislax úr veiðivötnum á Íslandi og þannig er mögulegum kostnaði fyrirtækjanna haldið í lág- marki.  Laxalús: Í Noregi eru miklar kröfur um að halda tíðni laxalúsar í lágmarki sem felur í sér mikinn kostnað vegna mótvægisaðgerða og viðbragða þegar um frávik er að ræða. Jafnvel að framleiðsluheim- ildir verði minnkaðar ef ekki næst að hemja lúsina. Á Íslandi er ráðherra heimilt að setja ákvæði um aðgerðir vegna laxalúsar, sem ennþá er ekki komið í framkvæmd og kostnaður þannig minni.  Heilbrigðismál: Í Noregi er bú- ið að koma á framleiðslusvæðum, sem takmarkar flutning á fiski á milli strandsvæða. Þar eru einnig gerðar meiri kröfur um flutnings- búnað fyrir lifandi fisk með tilheyr- andi kostnaði. Á Ís- landi er enginn vilji fyrir slíkar fyrirbyggj- andi aðgerðir. Þannig ráða skammtímasjón- armið fyrirtækja, þó veruleg hætta sé á að sjúkdómar geti borist á milli svæða með til- heyrandi tjóni fyrir samfélög og fyrirtæki.  Lífrænt álag: Í Noregi er framleið- endum gert skylt að minnka framleiðslu á eldissvæðum eða hvíla þegar farið er út fyrir viðmið- unarmörk sem felur í sér aukinn kostnað. Ef tillögur stefnumót- unarhópsins eru skoðaðar þá vantar á Íslandi viðmiðanir og óljóst hvort og þá í hvaða tilvikum hömlur verða settar á framleiðsluheimildir á eld- issvæðum og því fylgir minni kostn- aður. Umhverfisstofnun hefur verið að taka á þessum málum og vonandi verður niðurstaðan sú að endingu að kröfur verði þær sömu hér á landi og í nágrannalöndum. Stjórnsýslu ábótavant Það að opinberri stjórnsýslu um- hverfismála laxeldis í sjókvíum sé ábótavant er ekki góð staða fyrir fyrirtæki sem hafa það að markmiði að starfa til lengri tíma í atvinnu- greininni í sem mestri sátt við um- hverfið og aðra hagsmunaaðila. Staðreyndin er sú að stjórnsýsla lax- eldis í sjókvíum opnar fyrir það að umhverfissóðarnir fái að njóta sín á kostnað þeirra sem vilja standa sig vel. Það er því hægt að taka að vissu leyti undir áhyggjur umhverfissinna í þeirra málflutningi þó að hann í ákveðnum tilvikum sé of öfgafullur og byggist ekki alltaf á stað- reyndum. Það sama er vissulega hægt að segja um málflutning sumra sem starfa í fiskeldi. Í opinberri stjórnsýslu umhverfismála er vissu- lega hægt að betrumbæta en til þess virðist skorta vilja eða er vanþekk- ingin svona mikil? Minni gjöld Í tillögu stefnumótunarhópsins er áhersla lögð á að fresta og minnka gjöld á atvinnugreinina:  Auðlindagjald fyrir frjóa eld- islaxa: Stefnumótunarhópurinn lagði til að komið yrði á auðlinda- gjaldi, með sex ára biðtíma á greiðslu gjaldsins, talið frá þeim tíma þegar fyrsta slátrun hefst úr eldiskvíum fyrirtækisins. Þessar til- lögur náðu ekki að öllu leyti fram að ganga í meðferð málsins á Alþingi þar sem nú er byrjað er að inn- heimta takmarkað gjald.  Auðlindagjald fyrir ófrjóa eld- islaxa: Stefnumótunarhópurinn lagði til að laxeldisfyrirtæki gæti haldið svæðum í a.m.k. fimm ár án þess að vera með framleiðslu á eld- issvæðinu og þannig greiða ekkert auðlindagjald á því tímabili. Ef síðan bætist við sex ára biðtími er ekki um að ræða nein gjöld í rúman áratug. Niðurstaðan eftir afgreiðslu Alþing- is er að strax verður rukkað hálft auðlindagjald við slátrun á ófrjóum laxi. Leyfishafar geta stjórnað gjaldtöku Með því að miða við sláturmagn í lögunum geta fyrirtækin stjórnað gjaldtöku. Ef gjöldin hefðu verið miðuð við framleiðsluheimildir væru þau meiri, fyrirsjáanlegri og komið strax til gjaldtöku við úthlutun heimilda. Þannig geta fyrirtækin sem hafa sölsað undir sig eldissvæði og framleiðsluheimildir í raun stjórnað hvað gjöld eru greidd, hald- ið sínum svæðum, s.s. ónýtt svæðum fyrir eldi á ófrjóum laxi, án auðlinda- gjalds í fjölmörg ár og blokkerað þannig möguleika annarra á að nýta svæðið. Sjókvíaeldi laxfiska: Draga úr kostn- aði og ná fjárhagslegum ávinningi Eftir Valdimar Inga Gunnarsson » Staðreyndin er sú að stjórnsýsla lax- eldis í sjókvíum opnar fyrir það að umhverfis- sóðarnir fái að njóta sín á kostnað þeirra sem vilja standa sig vel. Valdimar Ingi Gunnarsson Höfundur er sjávarútvegsfræðingur og hefur m.a. unnið við ýmis mál tengd fiskeldi í rúm þrjátíu ár. valdimar@sjavarutvegur.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.