Morgunblaðið - 05.05.2020, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 05.05.2020, Blaðsíða 27
ÍÞRÓTTIR 27 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. MAÍ 2020 Stjórnmálamenn á Bret- landseyjum vilja fá fótboltann aftur í gang sem fyrst til þess að bjarga geðheilsu landsmanna. Bretinn lifir fyrir fótboltann og hjá mörgum stuðningsmönnum þar í landi snýst allt um ensku úrvalsdeildina og leiki liða. Sam- kvæmt nýjustu fréttum er stefn- an sett á að hefja leik í ensku úr- valsdeildinni í júní en það bendir allt til þess að leikirnir muni fara fram á hlutlausum völlum og fyr- ir luktum dyrum. Peningarnir í enska fótbolt- anum eru miklir og það er ef- laust þeim að þakka eða kenna, það fer eftir því hvernig maður horfir á hlutina, að það sé í raun verið að skoða það að einhverju ráði að hefja leik á Englandi á nýjan leik. Það skal samt alveg viðurkennast að maður er orðinn langþreyttur á því að kveikja á sjónvarpinu, rúlla í gegnum stöðvalistann, og komast að því dag eftir dag að það eru engar íþróttir á dagskrá. Mikið sem ég hlakka hins vegar til þegar íslenski fótbolt- inn fer aftur af stað. Ég held satt best að segja að ég sé spenntari fyrir honum en endurkomu enska boltans þrátt fyrir að mitt uppáhaldslið sé á leiðinni, von- andi, að vinna sinn fyrsta Eng- landsmeistaratitil í þrjátíu ár. Undanfarna daga hef ég rætt við bæði þjálfara og leikmenn í efstu deild sem er farið að klæja í puttana eftir að komast aftur á völlinn og hefja knattspyrnu- sumarið 2020 sem átti að byrja í apríl. Eins og bæði þjálfarar og leik- menn hafa haft á orði hefur fólk áttað sig á því í ástandinu sem hér ríkir hversu stór hluti fót- boltinn er af þeirra lífi. Ég hef sjálfur áttað mig á því hversu stór hluti af mínu lífi íþróttirnar eru og fyrir það er ég bæði þakk- látur og stoltur. BAKVÖRÐUR Bjarni Helgason bjarnih@mbl.is VALUR Kristján Jónsson kris@mbl.is Skipt var um þjálfara í gær hjá báð- um meistaraflokksliðum Vals í körfu- knattleik. Ólafur J. Sigurðsson tekur við kvennaliðinu og Finnur Freyr Stefánsson við karlaliðinu. Landsliðskonan reynda, Helena Sverrisdóttir, verður Ólafi til að- stoðar auk þess að leika með liðinu en Helena á ár eftir af leikmanna- samningi sínum við Val. Svali Björg- vinsson, formaður körfuknattleiks- deildar Vals, lýsti því yfir á blaðamannafundi í gær að Helena væri mesti körfuboltaheili sem hann hefði kynnst í íslensku íþróttalífi. „Auðvitað fylgir því tilhlökkun að vinna með Helenu. Hún er náttúr- lega búin að gera alveg ótrúlega hluti í körfuboltanum. Hún kann íþróttina frá a til ö og verður gaman að vinna með henni ásamt öðrum í liðinu. Hópurinn er mjög sterkur og verk- efnið er því ótrúlega spennandi fyrir mig,“ sagði Ólafur þegar Morg- unblaðið ræddi við hann á Hlíðar- enda í gær en hann kemur til Vals frá ÍR. Valur vann þrefalt í fyrra og voru það fyrstu sigrar kvennaliðs Vals í stærstu keppnunum. Forveri Ólafs, Darri Freyr Atlason, stýrði þá Val eins og síðasta vetur þegar Valur varð deildarmeistari. Íslandsmótinu var aflýst vegna kórónuveirunnar eins og íþróttaunnendur þekkja. Eins og útlitið er núna þá tekur Ólaf- ur við liði sem áhugafólk um íþrótt- ina telur vera sigurstranglegast eins og síðustu tvö tímabil. „Auðvitað verður pressa og allt það. En þannig er það í íþróttum og maður vill hafa það þannig. Ég hef fylgst vel með Valsliðinu undanfarin ár og þær vilja allar vinna. Hugar- farið er með þeim hætti að þær vilja ekkert annað en sigur og maður sér það bara á þeim. Er það nákvæmlega það sem þjálfarinn vill.“ Þykir vænt um kveðjurnar Finnur tekur við af Ágústi Björg- vinssyni sem tekur sér að óbreyttu frí frá meistaraflokksþjálfun í fyrsta skipti í sautján ár. Ágúst er yfirþjálf- ari körfuknattleiksdeildarinnar og er því tæplega á förum. Svali greindi frá því að Ágúst væri jafnframt að taka við starfi í Fjölbrautaskólanum í Breiðholti og tæki þar við af Torfa Magnússyni, fyrrverandi fyrirliða Vals og íslenska landsliðsins. Finnur hefur fimm ára reynslu af því að stýra meistaraflokksliði og varð Íslandsmeistari í öll skiptin. Hann þjálfaði KR frá 2013 til 2018 og segir viðmiðin vera önnur hjá Val 2020 en hjá KR 2013. „Þetta er allt öðruvísi verkefni en það heillar mig. Hjá KR snerist markmiðið til að byrja með um að vinna tvö ár í röð vegna þess að KR hafði ekki tekist það síðan á áttunda áratugnum minnir mig. Hjá Val hef- ur vandamálið verið undanfarið að komast ekki í úrslitakeppnina. Strúktúrinn var fyrir hendi hjá KR en hér er margt sem þarf að gera. Hjá Val er þó mikil saga en sagan um velgengni hjá körlunum er orðin svo- lítið gömul. Ég mun reyna að hjálpa þessu góða fólki sem haldið hefur starfinu gangandi að taka næsta skref með liðið og við reynum að virkja fleiri. Um leið er markmiðið að Valsliðið nái meiri stöðugleika og sé komið til að vera í efstu deild,“ sagði Finnur sem var hjá Horsens í Dan- mörku á síðasta tímabili. „Okkur leið vel þar og það var glatað að ljúka tímabilinu með þess- um hætti. Okkur þótti mjög vænt um allar kveðjurnar sem við fengum frá Danmörku þegar Horsens tilkynnti að ég færi heim. Gott er til þess að vita að maður hafi haft góð áhrif á frekar stuttum tíma,“ sagði Finnur sem hefur áður starfað hjá Val en hann þjálfaði yngri flokka hjá félag- inu veturinn 2018-2019. Önnur viðmið en hjá KR  Þjálfaraskipti hjá báðum Valsliðunum  Ólafur og Helena stýra kvennaliðinu  Finnur Freyr stýrir karlaliðinu  Helena sögð mesti körfuboltaheili landsins Valur Helena Sverrisdóttir, Ólafur Jónas Sigurðsson og Finnur Freyr Stefánsson þjálfa meistaraflokka félagsins. Ljósmynd/Valur Einar Andri Einarsson hefur verið ráðinn í afreks- og yngri flokka störf hjá handknattleiksdeild FH. Einar þekkir vel til hjá FH, en hann er uppalinn FH-ingur og starfaði lengi fyrir félagið á sínum tíma. Einar útskrifaðist í vetur með Mast- er Coach-gráðuna en hún er sú æðsta í alþjóðlegum handbolta. Var Einar m.a. aðalþjálfari FH-liðsins ásamt Kristjáni Arasyni þegar liðið varð Íslandsmeistari árið 2011. Síð- astliðin sex ár hefur Einar Andri þjálfað meistaraflokk Aftureld- ingar með mjög góðum árangri. Einar Andri heim í Hafnarfjörðinn Ljósmynd/FH Fimleikafélagið Einar Andri Ein- arsson er kominn í FH á nýjan leik. Efstu tvær deildir spænska fótbolt- ans gætu byrjað í næsta mánuði. Lið byrja að æfa á nýjan leik í þessari viku, en deildirnar verða að fá sam- þykki heilbrigðisyfirvalda áður en hægt verður að skipuleggja leiki. Leikmenn verða að gangast undir veirupróf áður en þeir mega mæta á æfingasvæðin. Fótboltinn hefur ver- ið í fríi á Spáni síðan í mars, en kór- ónuveiran hefur verið skæð í land- inu. Ellefu umferðir eru eftir af spænsku deildinni og er Barcelona með tveggja stiga forskot á Real Madríd á toppi deildarinnar. Spænsk lið byrja að æfa í vikunni AFP Spánn Lionel Messi gæti mætt aftur á völlinn í næsta mánuði. Íþróttafélög hófu æfingar á ný í gær eftir nokkurra vikna hlé vegna samkomubannsins og líklega hafa flest eða öll knattspyrnufélög lands- ins verið með æfingar á sinni dag- skrá. Ljósmyndari Morgunblaðsins leit við á nokkrum völlum á höfuðborg- arsvæðinu í gær og myndir þaðan má sjá á mbl.is. Hér til hliðar eru Framararnir Magnús Ingi Þórðarson og Aron Snær Ingason að æfa á heimavelli Fram í Safamýrinni, en liðið und- irbýr sig fyrir keppni í 1. deildinni í sumar. Ásamt meistaraflokki karla og kvenna í fótbolta æfðu meist- araflokkar Fram í handbolta sömu- leiðis á vellinum í gær. Ráðgert er að Íslandsmótið í knattspyrnu hefjist 14. júní en bik- arkeppnin gæti farið af stað viku til tíu dögum fyrr. Þetta er þó óstaðfest ennþá. Æfa knatt- spyrnu eftir afléttingu Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Fram Framararnir Magnús Ingi Þórðarson og Aron Snær Ingason æfa á heimavelli Fram í Safamýrinni í gær. Tíu leikmenn eða þjálfarar í tveim- ur efstu karladeildunum í þýska fótboltanum greindust með kórónuveiruna, samkvæmt upplýs- ingum frá stjórn deildakeppninnar í Þýskalandi. Allir leikmenn og þjálfarar gengust undir skimun vegna veir- unnar þar sem stefnt er að því að hefja keppni í landinu á ný um miðjan þennan mánuð. Upphaflega var stefnt á næsta laugardag, 9. maí, en nú er 16. maí í sigtinu. Alls voru 1.724 aðilar skimaðir og tíu þeirra greindust með veir- una og hafa nú verið settir í ein- angrun samkvæmt sóttvarna- reglum landsins. Allir verða prófaðir á ný seinna í vikunni til þess að fá fullvissu um að fyrri niðurstöður hafi verið rétt- ar. Stjórnvöld í Þýskalandi hafa ekki ennþá gefið leyfi fyrir því að fótboltinn rúlli af stað á ný í land- inu en gert er ráð fyrir því að kanslarinn Angela Merkel gefi út afgerandi niðurstöðu í málinu á morgun. Níu umferðum er ólokið í hvorri deild en þrír Íslendingar spila í tveimur efstu deildum Þýskalands. Alfreð Finnbogason með Augsburg í 1. deild og þeir Guðlaugur Victor Pálsson með Darmstadt og Rúrik Gíslason með Sandhausen í 2. deild. Tíu greindust með smit í þýskum liðum

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.