Morgunblaðið - 05.05.2020, Síða 12
12 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. MAÍ 2020
BROTINN
SKJÁR?
Við gerum við
allar tegundir
síma, spjaldtölva,
og tölva
Bolholti 4, 105 • Reykjavík • S 534 1400 • www.smartfix.is
s n j a l l t æ k j a þ j ó n u s t a
STUTT
Stefán E. Stefánsson
ses@mbl.is
Tap Icelandair Group á fyrstu
þremur mánuðum ársins nam 240
milljónum dollara, jafnvirði 35 millj-
arða króna m.v. gengi dollars gagn-
vart krónu í dag. Í fyrra nam tapið
55 milljónum dollara yfir sama
tímabil, jafnvirði átta milljarða
króna (m.v. núverandi gengisskrán-
ingu).
Eigið fé félagsins dróst saman um
ríflega 291 milljón dollara á fyrsta
fjórðungi ársins. Jafngildir það því
að eigið fé þess hafi rýrnað um 477
milljónir á dag alla 90 fyrstu daga
ársins. Í lok fjórðungsins stóð það í
191,2 milljónum dollara en hafði
verið 482,5 milljónir dollara um ára-
mót. Eiginfjárhlutfall félagsins var
komið niður í 18% í lok fjórðungsins
en hafði staðið í 29% um áramót.
Líkt og fram kemur í tilkynningu
frá félaginu stefndi í rekstrarbata
hjá því þegar fyrstu tveir mánuðir
ársins voru gerðir upp. Staðan sner-
ist hins vegar við á ógnarskömmum
tíma þegar áhrifa af útbreiðslu kór-
ónuveirunnar tók að gæta af fullum
þunga hér og á þeim mörkuðum
sem Icelandair Group starfar á
vestanhafs og austan. Umskiptin
sjást m.a. á því að rekstrarhagnaður
(EBIT) reyndist af starfseminni í
janúar og febrúar. Rekstrartap
reyndist hins vegar 30,5 milljarðar
króna þegar fjórðungurinn var
gerður upp (m.v. gengi dollars
gagnvart krónu í dag). Einskiptis-
kostnaður vegna áhrifa kórónu-
veirufaraldursins er metinn á 181
milljón dollara, jafnvirði 26 millj-
arða króna. Munar þar mest um
niðurfærslu viðskiptavildar (116,2
milljónir dollara) og tap af eldsneyt-
isvarnasamningum (51 milljón doll-
ara).
Lausafjárstaða Icelandair Group
var sterk í lok fjórðungsins og nam
281 milljón dollara, jafnvirði ríflega
41 milljarðs króna.
Tap Icelandair nam 35 milljörðum
Eigið fé félagsins dróst saman um 477 milljónir króna á degi hverjum fyrstu þrjá mánuði ársins
Forstjórinn segir félagið þurfa að búa sig undir takmarkaða starfsemi um „óákveðinn tíma“
Umfangsmiklar aðgerðir
» Á þriðja þúsund starfs-
manna hefur verið sagt upp
störfum vegna faraldursins.
» Stærstur hluti starfsfólks
sem enn starfar hjá félaginu er
í skertu starfshlutfalli.
» Air Iceland Connect hefur
verið fært undir starfsemi
móðurfélagsins.
» Félagið stefnir á útboð þar
sem ætlunin er að safna allt að
200 milljónum dollara, jafn-
virði ríflega 29 milljarða króna,
í nýtt hlutafé.
Morgunblaðið/Eggert
Stopp Stærstur hluti flugflota Icelandair stendur óhreyfður nú um stundir.
Hagnaður Advania á Íslandi nam 486
milljónum króna á síðasta ári og dróst
hann saman um 71 milljón frá árinu
2018. Sala á vörum og þjónustu nam
15,4 milljörðum og jókst um 273 millj-
ónir milli ára. Aðrar tekjur jukust um
25 milljónir og námu 80 milljónum.
Kostnaðarverð seldra vara og þjón-
ustu nam 5,4 milljörðum og jókst um
tæplega 400 milljónir milli ára.
Stjórnunarkostnaður dróst verulega
saman og stóð í 730 milljónum, sam-
anborið við 1.198 milljónir árið á und-
an. Hins vegar jókst launakostnaður
og nam tæpum 7,9 milljörðum en var
tæpir 7,7 milljarðar árið 2018.
Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir
(EBITDA) nam 1.479 milljónum og
jókst um 205 milljónir milli ára. Í til-
kynningu frá Advania er haft eftir
Ægi Má Þórissyni, forstjóra félags-
ins, að rekstrarárið hafi verið kafla-
skipt.
„Fyrri hluti ársins einkenndist af
talsverðri óvissu í efnahagslífinu og á
vinnumarkaði. Fyrirtæki héldu að sér
höndum og verkefni töfðust aðeins
inn í árið. Á fyrri helmingi ársins var
ráðist í hagræðingaraðgerðir sem
skiluðu sér í mun betri afkomu á
seinni hluta ársins. Þegar upp var
staðið reyndist seinni árshelmingur
sá besti í sögu félagsins.“
Segir Ægir Már einnig að árið 2020
hafi farið vel af stað og að komandi
mánuðir lofi góðu. Ástandið kalli á
tæknilausnir og eftirspurn eftir þjón-
ustu fyrirtækisins hafi aukist. „Meðal
annars eftir þjónustu við fjarfunda-
lausnir, veflausnir og vefverslanir. Á
ýmsum sviðum ríkir hins vegar meiri
óvissa.“ Eignir Advania á Íslandi
námu 7,8 milljörðum í árslok 2019 og
höfðu aukist um rúma 1,5 milljarða á
árinu. Munar þar mest um eignfærslu
á leigusamningi sem félagið hefur á
húsnæði sínu hér á landi en skv. nýj-
um IFRS-staðli ber að færa slíka
samninga inn á efnahagsreikning.
Skuldir félagsins námu tæpum 4,8
milljörðum í árslok og höfðu aukist
um rúma 1,5 milljarða af sömu
ástæðu.
Advania hagnast
um 486 milljónir
Vörusala og
þjónusta nam 14,5
milljörðum króna
Morgunblaðið/Ómar
Advania Í eigu Advania Holding hf.
sem er í eigu Advania AB í Svíþjóð.
Vöruviðskipti við útlönd voru nei-
kvæð um 18,3 milljarða króna á
fyrstu sautján vikum ársins. Þetta
kemur fram í nýbirtri tilraunatöl-
fræði Hagstofunnar. Hallinn á við-
skiptunum var 17,8 milljarðar yfir
sama tímabil í fyrra.
Í ár nam útflutningur tæpum 180
milljörðum króna en fyrir ári stóð
hann í 216 milljörðum. Innflutn-
ingur stóð í 198 milljörðum á fyrstu
17 vikum þessa árs, samanborið við
234 milljarða á árinu 2019. Í út-
flutningi varð mestur samdráttur í
því sem skilgreint er sem „aðrar
vörur“ og nam hann 82,2%. Þá
dróst útflutningur stóriðjuafurða
saman um 11,8%. I innflutningi dró
mest úr hrávörum og rekstrar-
vörum eða um 25,5%. Þá dróst inn-
flutningur á eldsneyti og smurn-
ingsolíum saman um 21,1%. Þá
drógust fjárfestingarvörur saman
um 20,7%.
Vöruskiptajöfnuður
neikvæður á árinu
Innflutningur 15,3% minni en í fyrra
● Úrvalsvísitala Kauphallarinnar
lækkaði um 3,6% í viðskiptum Kaup-
hallar Íslands í gær. Béf Icelandair
Group lækkuðu um 19,8% í 69 millj-
óna viðskiptum. Markaðsvirði félags-
ins nemur nú 10,3 milljörðum króna.
Bréf Origo lækkuðu um tæp 5,9%
í 28,4 milljóna viðskiptum. Þá lækk-
uðu bréf Eikar fasteignafélags um
5,2% í 50,7 milljóna viðskiptum. Bréf
Arion banka lækkuðu um 4,4% í tæp-
lega 106 milljóna viðskiptum og bréf
Reita lækkuðu um 4,3% í rúmlega 149
milljóna viðskiptum.
Hlutabréf Eimskipafélagsins lækk-
uðu um 3,9% í takmörkuðum við-
skiptum upp á 942 þúsund krónur en
Síminn lækkaði um 3,6% í ríflega 162
milljóna viðskiptum. Marel lækkaði um
3,4% í tæplega 474 milljóna við-
skiptum.
Önnur félög lækkuðu minna. Ekkert
félag hækkaði í Kauphöll en með tvö
félög voru engin viðskipti, þ.e. Haga
og Heimavelli.
Úrvalsvísitala Kaup-
hallar lækkaði um 3,6%
Greiðslumiðlunarfyrirtækið Valitor
hefur samið við Christian Ras-
mussen um sölu á starfsemi dóttur-
félags Valitor í Danmörku, Valitor
A/S, áður AltaPay A/S. Söluverðið
er trúnaðarmál.
Eins og segir í tilkynningu frá
Valitor þá var Christian á sínum
tíma einn af stofnendum greiðslu-
miðlunarfyrirtækisins AltaPay A/S
sem Valitor keypti árið 2014 og var
rekið undir merkjum Valitor frá
janúar 2019. Christian stýrði
alrásarþjónustu Valitor þar til hann
hætti störfum hjá fyrirtækinu í lok
árs 2018.
Eins og greint var frá í Viðskipta-
Mogganum í síðustu viku, og fram
kom í tölvupósti sem blaðið hefur
undir höndum, áttu 40 starfsmenn á
hættu að missa vinnu sína í Dan-
mörku vegna þessara breytinga.
Herdís Dröfn Fjeldsted, forstjóri
Valitor, segir í tilkynningunni að
aðkoma Christians og þekking hans
og ástríða fyrir starfseminni séu af-
ar góð tíðindi fyrir bæði starfsfólk
og viðskiptavini.
Þá segir í tilkynningunni að
Christian muni taka yfir öll við-
skiptasambönd Valitor A/S og reka
starfsemina undir merki AltaPay.
Kort Valitor hefur verið með starfsemi í Danmörku og í Bretlandi, auk Íslands.
Valitor í Danmörku
til fyrri eiganda
5. maí 2020
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 146.42
Sterlingspund 183.17
Kanadadalur 105.59
Dönsk króna 21.358
Norsk króna 14.256
Sænsk króna 14.595
Svissn. franki 150.91
Japanskt jen 1.3734
SDR 200.11
Evra 159.3
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 188.7208
Hrávöruverð
Gull 1673.05 ($/únsa)
Ál 1440.0 ($/tonn) LME
Hráolía 22.87 ($/fatið) Brent
● Heildarviðskipti með hlutabréf í
Kauphöll Íslands í nýliðnum mánuði
námu 25 milljörðum króna. Það er
62% minni velta en í apríl í fyrra.
Þá voru viðskiptin 59% minni en í
marsmánuði á þessu ári. Mest voru
viðskipti með bréf Marels eða 7,5
milljarðar, þá Símans fyrir 2 millj-
arða og VÍS og Kviku fyrir 1,8 millj-
arða.
Heildarviðskipti með skuldabréf
í apríl námu 125 milljörðum króna
sem er 7,4% lækkun frá fyrra ári.
Það er hins vegar 52% minni við-
skipti en í marsmánuði síðast-
liðnum. Alls námu viðskipti með rík-
isbréf 74 milljörðum króna en með
bankabréf 28,4 milljörðum.
Mun minni viðskipti í
apríl en fyrir ári