Morgunblaðið - 05.05.2020, Qupperneq 29
MENNING 29
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. MAÍ 2020
Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is
SÝND MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI
SÝND MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI
Bjarni Thor Kristinsson, óperu-
söngvari og pistlahöfundur, heldur
um þessar mundir úti vinsælli Dag-
bók óperusöngvara á Storytel.
Hann mælir hér með því sem kjörið
er að gera í þeim
samkomutak-
mörkunum sem
enn gilda.
„Núna þegar
þetta einstaka
sumar er að hefj-
ast er tilvalið að
nota samkomu-
takmarkanir í að
undirbúa
skemmtilegt og
áhugavert ferðalag. Við eigum
flest eftir að ferðast innanlands í
sumar og það væri spennandi að
heimsækja staði sem tengjast
manni sjálfum. Landið okkar er
eitt stórt listaverk og saga okkar
líka.
Ég er með hugmynd: Farðu á Ís-
lendingabók og finndu forfeður
þína sem bjuggu á skerinu á þarsíð-
ustu öld, t.d. einhvern sem kom í
heiminn í kringum 1850. Það er um
marga að velja því fjöldi forfeðra
okkar sem fæddist á 19. öld er tal-
inn í tugum. Síðan skaltu heim-
sækja vefinn manntal.is og finna
viðkomandi einstakling. Þar koma
margar áhugaverðar upplýsingar
fram, t.d. hvað hann eða hún gerði
og hvernig fjölskyldan var samsett.
Þar stendur líka hvar viðkomandi
bjó. Þú finnur örugglega einhvern
stað sem þú þekkir ekki vel en
tengist sögu fjölskyldu þinnar. Ef
þú hefur gaman af grúski þá er
hægt að finna ótrúlega mikið af
upplýsingum um forfeður okkar og
hvernig lífi þeir lifðu. Vefurinn
timarit.is er t.d. algjör fjársjóður.
Í sumar skaltu fara á einn af
þessum stöðum sem þú rakst á í leit
þinni. Það gæti verið gaman að lesa
bók sem á að gerast á Íslandi á 19.
öld til að komast í réttu stemn-
inguna. Síðan skaltu rölta um og
reyna að setja þig í spor þessa fólks
sem eyddi ævinni í okkar fallega en
um leið harðbýla landi. Húsnæðið
léti enginn bjóða sér í dag, matur-
inn var einhæfur, ef eitthvað var þá
í matinn, veðráttan miskunnarlaus,
ekkert heilbrigðiskerfi, fátækt var
regla frekar en undantekning og
félagslegt óréttlæti í samfélaginu
miklu meira en það er í dag.
Síðan skaltu anda að þér fersku
sumarloftinu og hætta að vorkenna
sjálfum þér yfir því að eiga ekkert
spennandi efni eftir á Netflix.“
Mælt með í kófinu
Fortíð Ein hinna kunnu Íslandsmynda Auguste Meyer frá 1836. Bjarni Thor
mælir með því að við leitum uppi forfeður okkar, til dæmis frá þeim tíma.
Halda á slóðir
forfeðranna
Bjarni Thor
Kristinsson
„Það er ánægjulegt að sjá gesti hér
aftur í sölunum. En þeir eru auðvit-
að allir Íslendingar,“ sagði Áslaug
Guðrúnardóttir, kynningar- og
markaðsstjóri Listasafns Reykja-
víkur, í gær en þá hafði verið slang-
ur af gestum að njóta sýninganna í
sölum safnsins, auk þess sem all-
nokkrir fylgdust með gjörningi á
sýningu í D-sal Hafnarhúss, og
gættu þó að réttu bili milli manna.
Flest söfn voru opnuð aftur í gær
þegar slakað var á fjöldatakmörk-
unum í samkomubanni. Til að
mynda voru öll söfn Reykjavíkur-
borgar opnuð eftir að hafa verið
lokuð í sex vikur. Af því tilefni
verður ókeypis inn á söfnin til 10.
maí og handhafar Menningarkorta
og bókasafnsskírteina njóta fram-
lengds gildistíma um sex vikur.
Áfram gildir tveggja metra reglan
og hámarkið um 50 manns í hverju
rými.
Morgunblaðið/Eggert
Hrífandi Sýningin með verkum Ásgerðar Búadóttur á Kjarvalsstöðum er opin að nýju en gagnrýnandi Morgunlaðs-
ins var afar ánægður með framkvæmdina, sagði tímabært að sýna svo mörg verk þessarar merku listakonu.
Gestir að nýju í söfnunum
Morgunblaðið/Eggert
Uppgötvun Sýningin á verkum Gunnars Péturssonar í Þjóðminjasafni vakti athygli áður en safninu var lokað.