Morgunblaðið - 05.05.2020, Blaðsíða 32
Glæpasagnahöfundurinn Ragnar Jónasson hlýtur mikið
lof í gagnrýni Sunday Times um bók hans Mistur, sem á
ensku nefnist The Mist. Segir gagnrýnandi, Joan
Smith, að Ragnar sé með allra bestu glæpasagnahöf-
undum samtímans og að bókin sé afar vel heppnaður
endir á „djöfullega snjöllum“ þríleik hans um lög-
reglukonuna Huldu Hermannsdóttur. Skoski glæpa-
sagnahöfundurinn Ian Rankin vekur athygli á gagnrýn-
inni með því að birta mynd af dómnum á twittersíðu
sinni og óska Ragnari til hamingju.
Ragnar sagður með allra bestu
glæpasagnahöfundum
Finnur Freyr Stefánsson hefur verið ráðinn þjálfari
karlaliðs Vals í körfuknattleik. Finnur Freyr skrifar und-
ir tveggja ára samning við Valsmenn en Ágúst Björg-
vinsson, sem stýrt hefur liðinu undanfarin níu ár, hefur
tekið við starfi yfirþjálfara hjá yngri flokkum félagsins.
Þá eru einnig breytingar á þjálfarateymi kvennaliðs fé-
lagsins en Ólafur Jónas Sigurðsson mun taka við liðinu
af Darra Frey Atlasyni. Ólafur Jónas skrifar undir
tveggja ára samning við Valsmenn og þá mun Helena
Sverrisdóttir aðstoða Ólaf Jónas. »27
Fimmfaldur Íslandsmeistari gerði
tveggja ára samning við Val
dóttir héldu nýstofnaða félaginu
gangandi og svo fór að Óskar varð
fyrsti þjálfari þess í fótboltanum,
byrjaði að þjálfa 5. flokk, var fyrsti
þjálfari meistaraflokks og fyrsti for-
maður knattspyrnudeildarinnar.
„Teddi var búinn að skrá a-, b- og
c-lið í öll mót í 5. flokki og ekki varð
aftur snúið,“ segir Óskar, sem átti
eftir að þjálfa alla flokka áður en yfir
lauk. Hann segir að enginn í Fylki
hafi haft reynslu af keppni og í raun
hafi enginn völlur verið til taks fyrir
utan lítinn og hallandi malarvöll við
Rofabæ. „Ég ákvað strax að taka
þetta föstum tökum, enginn leikur
yrði gefinn heldur yrði alltaf hægt að
stóla á að Fylkir mætti til leiks,“
leggur hann áherslu á. Hann rifjar
upp að til hafi verið eitt og hálft sett
af búningum og einu sinni hafi stúlka
spilað með en leikur hafi aldrei fallið
niður. „Einu sinni áttum við leik í
Keflavík og þá tók ég allan hópinn,
15 manns, í bílinn, Opel station.
Þetta er ekki beint til þess að hæla
sér af en um annað var ekki að
ræða.“
Fylkir var dæmigert hverfisfélag
en stundum þurfti að fá menn utan
hverfis í meistaraflokkinn. Óskar
nefnir sérstaklega KR-ingana Jón,
bróður sinn, Baldvin Baldvinsson,
Sigmund Sigurðsson og Guðmund
Einarsson og Þróttarana Ólaf Brynj-
ólfsson og Axel Axelsson. „Þessir
menn styrktu allir liðið á sínum
tíma,“ segir hann.
Óskar hefur byggt þrjú hús fyrir
fjölskylduna í Árbæ og þar á meðal
húsið í Fjarðarási. Hjónin búa uppi
og verkstæðið er niðri. „Einu sinni
var ég með 900 stóla hérna frá borg-
inni og þá þurfti ég líka að nota bíl-
skúrinn, en venjulega er hann bara
fyrir bílinn.“
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Bólstrun Óskars Sigurðssonar lætur
ekki mikið yfir sér í Fjarðarási í Ár-
bænum en bólstrarinn, sem er á ní-
ræðisaldri, er hokinn af reynslu og
hefur unnið við fagið síðan 1955. „Ég
er ekkert að hugsa um að hætta,“
segir kappinn, sem hefur haft nóg að
gera að undanförnu þrátt fyrir kór-
ónuveirufarald-
urinn.
Eftir gagn-
fræðaskólann
vissi Óskar ekki
hvað hann ætti að
leggja fyrir sig en
langaði helst í iðn-
nám. Fyrst reyndi
hann fyrir sér í klisjugerð eða prent-
myndamótun og síðan í pípulögnum.
„Þá var farið inn í húsin ísköld og
það var frekar hráslagalegt, ekki
beint skemmtilegt,“ segir hann. Þá
sá móðir hans að auglýst var eftir
lærlingum í bólstrun og hvatti hann
til að sækja um. „Ég spurði hana
hvað bólstrun væri og hún sagði að
vinnan snerist um að búa til dívana
og húsgögn. Áhuginn var ekki mikill
en um viku seinna kannaði ég málið
hjá Húsmunum og var ráðinn til
reynslu. Mér fannst þetta strax ótrú-
lega skemmtilegt og kláraði námið.“
Óskar spilaði fótbolta í öllum
flokkum KR, lék einn landsleik og
hætti síðan um haustið 1966 vegna
meiðsla. „Ég var með bakverki og
stöðugan verk í hægra hnénu og fyr-
ir um tíu árum kom í ljós að ég var
með slitið krossband,“ útskýrir
hann.
Lengi í boltanum
Fjölskyldan flutti í Árbæinn 1967
og árið eftir var Íþróttafélagið Fylk-
ir stofnað. „Ég keyrði Bjarna, son
okkar, einu sinni á æfingu í 5. flokki
hjá KR, en sagði svo við hann að
þetta væri ómögulegt, nær væri að
hann æfði með skólafélögum sínum
og það varð úr.“
Kristján Þorgeirsson og hjónin
Theódór Óskarsson og Heiða Árna-
Hefur unnið við
bólstrun í 65 ár
Óskar Sigurðsson, fyrsti þjálfari Fylkis í Árbænum
Morgunblaðið/Eggert
Bólstrun Óskar Sigurðsson hefur unnið við fagið í 65 ár.
DRÁTTARBEISLI
Hágæða beisli, föst eða
losanleg, fyrir flestar gerðir
fólksbíla og jeppa. Upplýsingar
um verð og afgreiðslutíma hjá
Bílanaust.
www.bilanaust.is
STÓRVERSLUN
DVERGSHÖFÐA 2
Dalshrauni 17
220 Hafnarfirði
110 Reykjavík
S. 535 9000
S. 555 4800
Vatnagörðum 12
104 Reykjavík
S. 535 9000
Furuvöllum 15
600 Akureyri
Hafnargötu 52
260 Reykjanesbæ
Hrísmýri 7
800 Selfossi
Sólvangi 5
700 Egilsstöðum
S. 421 7510 S. 482 4200 S. 535 9085 S. 471 1244
ÞRIÐJUDAGUR 5. MAÍ 126. DAGUR ÁRSINS 2020
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 697 kr.
Áskrift 7.530 kr. Helgaráskrift 4.700 kr.
PDF á mbl.is 6.677 kr. iPad-áskrift 6.677 kr.
ÍÞRÓTTIR MENNING