Morgunblaðið - 24.05.2020, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 24.05.2020, Qupperneq 14
14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. MAÍ 2020 Smáralind | Kringlunni | Reykjanesbæ | Akranesi | Sími 511 2022 | dyrabaer.is MINNA HÁRLOS GLANSANDI FELDUR Útsölustaðir: Dýralæknastofa Reykjavíkur Dýralæknaþjónusta Suðurlands Dýraspítalinn Víðidal Verslanir Dýrabæjar Náttúruleg bætiefni fyrir hunda Áhafnir varðskipanna Þórs og Týs hafa að undanförnu æft fallbyssu- skotfimi á miðunum við Ísland. Sem betur fer er það nær óþekkt, að minnsta kosti í seinni tíð, að áhafnir varðskipa Landhelgisgæslunnar þurfi að grípa til vopna og þar af leiðandi eru fallbyssur skipanna ekki mikið notaðar. Nú til dags gerist það einkum við hátíðleg tilefni en þá er skotum gjarnan hleypt af fallbyss- unni í heiðursskyni. Áhöfnin á varðskipinu Tý hélt fall- byssuæfingu við ísröndina NV af Vestfjörðum á föstudag. Alls var 64 skotum skotið í átt að ísjaka sem notaður var sem skotmark og gekk æfingin vel. Um miðjan apríl dustaði áhöfnin á varðskipinu Þór rykið af fallbyssu skipsins undan Straumnesi. Tilgang- urinn var ekki sá að aðvara land- helgisbrjóta í lögsögunni heldur að viðhalda kunnáttu áhafnarinnar. Æfingin fór þannig fram að tíu skyttur skutu alls 70 skotum á tvö fiskikör sem bundin voru saman. Áhöfninni tókst allvel að hitta í mark en fiskikörin voru í 200-300 metra fjarlægð frá skipinu. Á árum áður voru fallbyssur með- al annars notaðar til að skjóta púð- urskotum að skipum sem svöruðu ekki kalli. Ef menn létu sér ekki segjast gátu þeir átt von á að fá fall- byssukúlu í skipið. sisi@mbl.is Ljósmynd/Guðmundur St. Valdimarsson Æfingin Áhöfn Týs lét skotum rigna í áttina að ísjaka undan Vestfjörðum. Skutu af fallbyssum  Áhafnir varðskipanna Þórs og Týs reyndu að hitta ísjaka og fiskikör Lilja Hrund Lúðvíksdóttir liljahrund@mbl.is „Íslenskir námsmenn eru stór og fjölbreyttur hópur en það er mennt- un þeirra og árangur sem leggur grunninn að framtíðarhagsæld okk- ar samfélags. Aðgerðir okkar nú miða að því að fjölga valkostum fyrir námsmenn og atvinnuleitendur sem vilja nýta komandi sumar – til náms eða fjölbreyttra starfa,“ segir Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menn- ingarmálaráðherra. Tilkynnt var í gær að stjórnvöld muni verja 2,2 milljörðum króna í að fjölga tímabundnum störfum fyrir námsmenn. Komi í ljós að sá fjöldi sumarstarfa sem skapaður verður nái ekki til nægilega margra náms- manna verður leitað leiða til að skapa fleiri störf eða tryggja aðrar leiðir til framfærslu. Átakið er unnið í samvinnu við stofnanir ríkisins og sveitarfélög og miðað verður við ráðningartímabilið 1. júní til 31. ágúst. Kröfur stúdenta til atvinnuleysis- bóta í sumar hafa verið háværar að undanförnu, en Lilja og Ásmundur Einar Daðason, félags- og barna- málaráðherra, hafa bæði sagt að áherslan verði lögð á að skapa störf og aðrar leiðir sem feli í sér virkni áður en aðrar leiðir til að tryggja framfærslu verði kynntar. Á kynningarfundi í gær kom fram að 300 milljónir króna yrðu settar í sumarnám í framhaldsskólum og 500 milljónir í sumarnám í háskólum, þar af 250 til Háskóla Íslands. Boðið verður upp á greiðsludreifingu á skrásetningargjöldum í opinberum háskólum. Þá verður mikil innspýt- ing í vísinda-, nýsköpunar- og rann- sóknarverkefni, meðal annars 400 milljóna viðbótarframlag í Nýsköp- unarsjóð námsmanna. Lilja hrósaði LÍN á fundinum í gær og sagði sjóðinn hafa brugðist hratt og greiðlega við breyttum að- stæðum. Einingar drægjust nú ekki frá einingarétti né þyrftu að tilheyra fastri námsbraut námsmannsins, en Lilja segir þetta skipta sköpum fyrir næsta haust. Í máli Ásmundar Einars kom fram að skynsamlegt væri að verja fjár- munum í að skapa störf fyrir náms- menn. Þau skiluðu sér í reynslu og virkni, auk þess að skila verðmætum til hagkerfisins. Markmiðið er að til verði 3.400 störf í fyrstu lotu fyrir námsmenn 18 ára og eldri. Ef í ljós komi að þessi fjöldi starfa sé ekki nægilegur verði skoðað að auka fjármagn í annað- hvort fleiri sumarstörf eða aðrar leiðir til að tryggja framfærslu námsmanna. Þegar hefur fé verið út- hlutað til sveitarfélaga vegna 1.700 starfa. Flest eru á höfuðborgarsvæð- inu, alls 809. Um mánaðamót liggur fjöldi umsókna fyrir og þá verður framhaldið metið. Setja 2,2 milljarða í sumarstörf fyrir nema  Áhersla lögð á sumarnám og ýmis rannsóknarverkefni Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Kynning Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, og Ás- mundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra, á fundinum í gær. Jóna Þórey Pétursdóttir, forseti Stúdentaráðs Háskóla Íslands, og Sigrún Jónsdóttir, forseti Landssamtaka íslenskra stúdenta, sögðu í samtali við mbl.is gær að margt væri ánægjulegt við þessar aðgerðir. Eftir stæði þó að tryggja stúdentum fjárhagslegt öryggisnet. „Það er alla vega gott að aðgerðirnar séu komnar út en við teljum samt sem áður að það hafi ekki verið komið til móts við okkar aðalkröfu, sem er réttur stúdenta til atvinnuleysisbóta, og við höfum í rauninni fengið talsverða mótstöðu við henni,“ segir Sigrún. „Okkar helstu rök eru þau að það þurfi að veita stúdentum fjárhags- legt öryggi strax. Ráðningartímabilið í þessum sumarstörfum á að hefj- ast 1. júní, en við viljum vekja athygli á því að sumarið er í rauninni hafið hjá stúdentum. Það þarf einfaldlega að grípa þessa stúdenta sem fyrst.“ Þarf að grípa þessa stúdenta FARA FRAM Á FJÁRHAGSLEGT ÖRYGGISNET Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Þeir sem vilja nýta sér stafrænt gjafabréf ríkisins til að greiða kostn- að við ferðalög innanlands í sumar þurfa að ná sér í smáforrit í símann. Með appinu verður hægt að greiða fyrir þjónustuna. Hugsanlegt er að hægt verði að byrja að nota ávís- anirnar fyrir mánaðamót, heldur fyrr en áætlað var. Ríkisstjórnin ákvað sem lið í að- gerðum til að styðja við atvinnulífið vegna efnahagslegra áhrifa kórónu- veirufaraldursins að úthluta öllum landsmönnum, 18 ára og eldri, 5.000 króna stafrænu gjafabréfi sem hægt verður að nota til að greiða fyrir gistingu, mat og afþreyingu á ferða- lögum innanlands í sumar. Starfs- hópur á vegum ráðuneyta og stofn- ana hefur unnið að útfærslunni. Strikamerki í appinu Guðný Hrafnkelsdóttir, verkefna- stjóri hjá Samgöngustofu, segir að fólk þurfi að ná sér í smáforrit í sím- ann og geti notað til þess rafræn skilríki. Með því fær fólk strika- merki sem skannað verður inn þeg- ar greitt er fyrir þjónustuna. Fyrir- tæki sem uppfylla kröfur um starfsemi þurfa að vera búin að skrá sig áður. „Við stefnum að því að kerfið verði tilbúið til kynningar fyrir fyrirtækin í lok næstu viku eða byrj- un þar næstu. Fljótlega eftir það verði farið að nota lausnina,“ segir Guðný. Áður hafði verið stefnt að því að hægt yrði að byrja fyrir 15. júní. Allt er þetta þó háð grænu ljósi heilbrigðisyfirvalda. Kynningarátak samhliða Samhliða ferðaávísanakerfinu verður kynningarherferð stjórn- valda sem gengur út á það að hvetja Íslendinga til að ferðast um eigið land í sumar. Fólk á að geta séð hvar það getur notað ávísanirnar á vefnum ferdalag.is. „Það skiptir ferðaþjónustuna mestu máli að kerfið sé aðgengilegt og skýrt og auðvelt verði fyrir fólk að nota það. Einnig að fyrirtækin geti komið inn á þægilegan máta. Þá þarf fyrirkomulagið að vera þannig að sem mest af fjármagninu nýtist og sem minnst falli dautt niður,“ segir Jóhannes Þór Skúlason, fram- kvæmdastjóri Samtaka ferðaþjón- ustunnar. Hægt að gefa ávísanir Til þess að stuðla að nýtingu sem flestra ferðaávísana er gert ráð fyrir þeim möguleika í smáforritinu að fólk geti gefið öðrum ávísun sína – en ekki selt. Guðný segir ljóst að ekki eigi allir heimangengt en við- komandi geti þá gefið einhverjum úr fjölskyldunni eða öðrum ávísunina. Greiða þjón- ustu með appi  Stafrænt gjafabréf kynnt fljótlega Morgunblaðið/Ómar Svartifoss Margir munu sjálfsagt leggja leið sína í Skaftafell í sumar. Stafrænt gjafabréf » Ríkið gefur á næstunni út stafrænt gjafabréf til allra Ís- lendinga, 18 ára og eldri, til ferðalaga innanlands. » Ríkissjóður ver um 1,5 milljörðum í verkefnið. » Mörg ferðaþjónustufyrirtæki undirbúa tilboð á þjónustu fyrir Íslendinga í sumar.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.