Morgunblaðið - 24.05.2020, Síða 20

Morgunblaðið - 24.05.2020, Síða 20
20 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. MAÍ 2020 Vagnhöfði 7, 110 Reykjavík | Sími: 517 5000 | stalogstansar.is stalogstansar.is Allt til kerrusmíða 2012 2019 FRÉTTASKÝRING Guðmundur Magnússon gudmundur@mbl.is „Já, það er rétt. Síðustu frímerkin koma í október og síðan stendur ekki til að gefa út fleiri að svo komnu máli,“ segir Birgir Jónsson, forstjóri Íslandspósts, við Morgunblaðið þeg- ar spurt er hvort áform fyrirtækisins um að hætta útgáfu frímerkja standi enn. Ákvörðunin, sem tekin var í fyrrahaust vegna erfiðrar fjárhags- stöðu fyrirtækis- ins, hefur vakið mikla óánægju meðal frímerkja- safnara hér á landi og talsverða athygli og undrun erlendis; var ný- verið t.d. fjallað um hana á hinum víðlesna vef Linn’s Stamp News. Óhætt er að komast svo að orði að brotið sé í blað í póstsögunni ef það gengur eftir að Ísland, eitt örfárra landa í heiminum, hættir að gefa út frímerki. Þá er lokið sögu sem hófst hér á landi árið 1873, fyrir nærri hálfri annarri öld, með skildinga- frímerkjunum svokölluðu. Erlendis komu póstfrímerki fyrst til sögu rétt fyrir miðja 19. öld. Einu þjóðirnar sem gefist hafa upp á útgáfu póstfrí- merkja á síðustu árum eru fátækar „þriðja heims“ þjóðir, en í nær öllum löndum heims er litið svo á að frí- merki hafi bæði hagnýtt gildi fyrir póstþjónustu og ekki síður menn- ingarlega þýðingu, séu til landkynn- ingar og skipti máli fyrir sjálfsmynd og metnað þjóða. Hægt að halda áfram Birgir Jónsson tekur fram að eftir gildistöku nýrra póstlaga um síðustu áramót sé útgáfa frímerkja eitt þeira atriða sem séu óljós. Í lögunum segir að Póst- og fjarskiptastofnun (PFS) veiti póstrekendum heimild til út- gáfu frímerkja og annarra gjald- merkja. Stofnuninni sé heimilt að kveða á um að alþjónustuveitandi (sem Íslandspóstur er nú) skuli gefa út frímerki, en hafi það í för með sér hreinan kostnað geti hann sótt um fjárframlög frá ríkinu til að tryggja sanngjarnt endurgjald fyrir starf- semina. Með því að setja þetta ákvæði inn í nýju lögin má segja að stjórnmála- menn, Alþingi og ríkisstjórn, hafi fal- ið embættismönnum að taka afstöðu til álitaefnis sem í eðli sínu er pólit- ískt en ekki endilega „faglegt“ í þröngum skilningi. Velta má fyrir sér hvort ekki sé snúið stjórn- sýslulega fyrir PFS, stofnun sem byggir á tæknilegri og rekstrarlegri nálgun, að rökstyðja kröfu um áframhaldandi frímerkjaútgáfu, hvað þá ef hún kallar á sérstök út- gjöld úr ríkissjóði. Frá PFS fengust þau svör í gær að stofnunin ynni nú að gerð sam- ráðsskjals við markaðinn og hags- munaaðila þar sem fjallað verður um mögulegar alþjónustuskyldur sem nauðsynlegt kann að vera að leggja á íslenska markaðinn. „Eitt af þeim at- riðum sem þar koma til umfjöllunar er útgáfa frímerkja,“ segir í svarinu. Má e.t.v. álykta af þessu að krafist verði áframhaldandi útgáfu frí- merkja, en það er þó ekki alveg ljóst. „Samráðsskjalið mun væntanlega verða birt fyrir lok mánaðarins og munu þá allir hagsmunaaðilar fá tækifæri til að koma að sínum sjón- armiðum um framtíðarfyrirkomulag alþjónustuskyldna hér á landi,“ segir PFS enn fremur. Ráðherra vísar á lögin og PFS Morgunblaðið leitaði eftir afstöðu Sigurðar Inga Jóhannssonar sam- gönguráðherra til áframhaldandi út- gáfu frímerkja. Ekki var orð að finna um afstöðu hans í svari sem ráðu- neytið sendi blaðinu heldur var bent á að með nýju póstlögunum hefði PFS verið falin ákvörðun um þetta. Var ennfremur vísað til hins sama og segir í svari PFS hér að framan. „Það er ljóst að Íslandspóstur get- ur ekki staðið að þessari útgáfu með sama hætti og áður og því erum við að vinna að því að leggja þessa starf- semi niður hjá okkur og erum í raun að klára þau verkefni sem voru í far- vatninu með þeim útgáfum sem koma út á þessu ári,“ segir Birgir Jónsson. Hann segir að mögulegt sé að taka svona atriði inn í þjónustu- samning við ríkið sem unnið er að um þessar mundir, en hann tekur á póstþjónustu á svæðum sem ekki bera sig í samkeppnisumhverfi. „Ríkið myndi þá greiða fyrir skil- greinda póstþjónustu samkvæmt þjónustusamningi og maður gæti séð fyrir sér að útgáfa frímerkja gæti fallið undir slíkan samning. Þetta at- riði hefur hingað til ekki verið á borðinu í þeim viðræðum og ég á ekki von á því að það breytist. En auðvitað er mögulegt að útgáfan verði á hendi annarra aðila en okkar, það má vel vera að það séu plön um það án þess að ég viti,“ segir Birgir. „Í raun menningarstarfsemi“ Forstjóri Íslandspósts segir að langflest þeirra nýju frímerkja sem gefin hafi verið út fari til erlendra safnara en séu ekki notuð til póst- lagningar eins og áður enda fari hefðbundnum bréfum mjög fækk- andi og flest bréf sem fara í gegnum kerfi Íslandspósts í dag séu vél- merkt. Frímerkjasöfnurum fari að sama skapi mjög fækkandi í heim- inum og því séu tekjurnar fallandi. „Við eigum mikið magn frímerkja á lager og ef svo ólíklega vildi til að hann skyldi klárast þá væri mögu- legt að grípa til endurprentunar. Það er því alls ekki þannig að það verði neinn skortur á frímerkjum,“ segir hann. Birgir segir að frímerkjaút- gáfa sé því í raun og veru menning- arstarfsemi og frímerki listaverk og hafi þannig mikið menningarlegt gildi. Pósturinn sé mjög hæfur aðili til þess að halda utan um þessa út- gáfu og dreifingu en það sé ljóst að tekjurnar sem verða til af þessari sölu séu langt undir kostnaði. Það þyrfti því alltaf að koma til ein- hverrar greiðslu frá ríkinu ef það vildi halda slíkri útgáfu áfram. Birgir segir að ástæðan fyrir miklu tapi af frímerkjaútgáfunni sé að tekjur hafi lækkað og á sama tíma hafi ekki tekist að lækka kostnað í sama mæli. Söfnurum sé að fækka um 10% ár frá ári að jafnaði. „Metn- aðarfull frímerkjaútgáfa er kostn- aðarsöm og þegar upplögin minnka vegna minnkandi eftirspurnar hækkar kostnaður á hvert frímerki. Lengi vel var þetta arðbært en síð- ustu ár hefur hallað undan fæti. Eftirspurnin hefur verið að dvína langt aftur í tímann en það má segja að fyrir svona 4-5 árum þá fór þetta að sýna afgerandi neikvæða af- komu,“ segir hann. Ört minnkandi eftirspurn Birgir segir að uppsafnað tap á frí- merkjasölu til safnara frá 2014 til 2018 sé tæplega 90 milljónir króna. Afkoma ársins 2019 hafi verið slæm og er ekki inni í þessum tölum. Á þessu sama tímabili hafi tekjur lækkað um tæplega 30% þrátt fyrir hækkun á verðgildi frímerkja. Hann segir að árið 2019 hafi verið seld 1,2 milljónir frímerkja til 57 þúsund safnara, árið 2018 hafi þau verið 2,7 milljónir til 119 þúsund safnara og árið 2017 3,5 milljónir til 144 þúsund safnara. Samdrátturinn hefur því verið mjög ör. Frímerkjaheimur fylgist með Martin J. Frankevicz, ritstjóri hjá alþjóðlega frímerkjafyrirtækinu Scott, segist sannfærður um að Ís- lendingar muni hefja á ný frímerkja- útgáfu, þrátt fyrir að hún stöðvist í haust. Hann telur að enn sé hægt að hafa fjárhagslegan ágóða af sölu ís- lenskra frímerkja til safnara, en var- ar jafnframt við því að sú leið verði farin að semja um útgáfuna við sjálf- stætt fyrirtæki sem eingöngu hafi hagnaðarsjónarmið að leiðarljósi. Sú leið hafi verið farin í nokkrum fátæk- ari ríkjum heims, en útkoman hafi verið mjög slæm jafnt myndrænt hvað útlit frímerkjanna snertir sem og hvernig verðgildi þeirra hafi verið ákvarðað. Þessi fyrirtæki raki sam- an gróða með því að afhenda heima- ríkinu lítið upplag til notkunar í póst- þjónustu en selji söfnurum afgang- inn á háu verði. „Ef þetta gerist á Íslandi mun það skaða mjög virðingu landsins meðal frímerkjasafnara um allan heim,“ segir Frankevicz. Örlög frímerkjaútgáfu í óvissu  Íslandspóstur hættir útgáfu frímerkja í haust  PFS getur gert kröfu um að framhald verði á  Nær öll ríki heims gefa enn út frímerki  Erlendir sérfræðingar undrandi og hneykslaðir Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Verðmæti Íslensk frímerki og frímerkt bréf frá fyrri tíð eru eftirsótt af söfnurum um allan heim. Hér gluggar Unnar Ingvarsson, skjalavörður í Þjóðskjalasafni, í afar verðmætt frímerkjaafn Hans Hals sem safnið varðveitir. Birgir Jónsson Frímerki hafa tvíþætt hlutverk. Annars vegar að sýna burðargjald póst- sendinga og uppruna. Hins vegar að kynna sögu, menningu, náttúru, at- vinnuhætti og merkismenn einstakra þjóða. Þó að það sé óvíða sagt ber- um orðum er tilgangurinn að efla samheldni í heimalandinu, styrkja sjálfsmynd þjóða og festa í sessi sögulegar minningar og tilfinningar sem frá sjónarhóli ríkisvaldsins eru forsenda þjóðrækni og ættjarðar- ástar. Frímerkin hafa að þessu leyti sama hlutverk og minnisvarðar sem stjórnvöld láta reisa á almannafæri, myndir á seðlum og mynt, opinber söfn og hvað annað sem gert er til að halda á lofti og rækta sameiginlega arfleifð og sjálfsvitund. Lengst af á öldinni sem leið voru frímerki daglega fyrir augum alls þorra landsmanna á bréfum og bögglum. Söfnun frí- merkja og viðskipti með þau, notuð sem ný, var blómleg iðja og algengt tómstundagaman hér á landi eins og í nágrannalöndunum. Lengi voru fastir frímerkjaþættir í öllum íslenskum dagblöðum og frímerkjaklúbbar starfræktir um land allt. Ný frímerki sættu ávallt tíðindum og mynduðust biðraðir á pósthúsum og hjá frímerkjasölum þegar þau komu út. Nú eru flestar póstsendingar vélmerktar og frímerki einkum keypt af söfnurum. Frímerkin styrkja sjálfsmynd TVÍÞÆTT HLUTVERK PÓSTFRÍMERKJA

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.