Morgunblaðið - 24.05.2020, Page 26
BAKSVIÐ
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Í ársskýrslu framkvæmdastjórnar
um vatnsverndarsvæði höfuðborg-
arsvæðisins fyrir árið 2019 er
ábending um að fara þurfi varlega
þegar athafnasvæði sé skipulagt á
Hólmsheiði fyrir ofan Reykjavík.
Vart þarf að taka fram hve mikil-
vægt er að mengun berist ekki í
vatnsbólin á svæðinu. Meðalnotkun
heimila á köldu vatni er talin vera
500 lítrar á sólarhring. Á ári hverju
dreifa Veitur, dótturfyrirtæki
Orkuveitu Reykjavíkur, um 27
milljón lítrum af köldu vatni sem
rennur í gegnum leiðslur sem eru
nærri 1.500 kílómetrar að lengd.
Nýtt deiliskipulag fyrir Hólms-
heiði var auglýst til kynningar á
síðasta ári. Framkvæmdastjórnin
vakti athygli á því með bókun að
hluti skipulagssvæðisins færi inn á
öryggissvæði grunnvatns og huga
þyrfti að vöktun á framkvæmda-
tíma. Mikilvægt væri að sú starf-
semi sem yrði þarna í framtíðinni
hefði ekki mengunarhættu í för
með sér. Rifja má upp í þessu sam-
bandi að á árum áður var horft til
Hólmsheiðar sem framtíðarflug-
vallarstæðis. Fallið var frá þeim
hugmyndum, m.a. vegna óhag-
stæðra veðuraðstæðna.
Beðið með að úthluta lóðum
Samkvæmt ákvæðum deiliskipu-
lagsins þarf að vinna áhættumat og
viðbragðsáætlun áður en hægt er
að úthluta lóðum á svæði A þar
sem svæðið er að hluta innan ör-
yggissvæðis fyrir grunnvatn.
Áhættumatið liggur ekki fyrir en
Reykjavíkurborg og Veitur eru í
samstarfi um vinnslu þess, sam-
kvæmt upplýsingum frá Reykjavík-
urborg.
Lóðum á svæði B, ofar á heið-
inni, var ráðstafað fyrir gagnaver
og fengu Síminn og GADC vilyrði
fyrir sitt hvorri lóðinni. Síminn hef-
ur afþakkað lóðina og verður bygg-
ingarréttur þeirrar lóðar boðinn út
innan tíðar.
Verkfræðistofan Vatnaskil var
fengin til að meta mögulega meng-
unarhættu gagnvart nærliggjandi
vatnsbólum frá fyrirhuguðu at-
hafnasvæði á Hólmsheiði, þ.e.
vatnsbólum veitna við Gvendar-
brunna og Jaðar.
Vatnaskil benda á að fyrirhuguð
meðhöndlun ofanvatns á athafna-
svæðinu stangist á við forsendur
vatnsverndar, þ.e. að ekkert vatn
renni á yfirborði vestan Hafra-
vatnsvegar, sem gæti þá mögulega
borist inn á öryggissvæði vatns-
verndar og þ.a.l. áhrifasvæði vatns-
bólanna. Hlutverk framkvæmda-
stjórnar um vatnsvernd er að
tryggja verndun grunnvatns á
höfuðborgarsvæðinu. Hana skipa
Hörður Þorsteinsson, Árný Sigurð-
ardóttir og Þorsteinn Narfason.
Í greinargerð Arkís arkitekta
með deiliskipulagstillögunni fyrir
Hólmsheiði kemur fram að svæðið
nái yfir um 60 hektara. Svæðið af-
markast af Suðurlandsvegi og
Hólmsá í suðri og borgarmörkum
Reykjavíkur/Mosfellsbæjar í austri.
Vernda þarf dýrmæt vatnsból
Athafnasvæði skipulagt á Hólmsheiði Sýna þarf mikla aðgát í nágrenni vatnsverndarsvæða
Unnið er að áhættumati 27 milljón lítrar af köldu vatni renna um leiðslur Veitna árlega
Tölvumynd/Arkís
Hólmsheiði Þannig mun ásýnd athafnasvæðisins mögulega líta út að mati arkitekta, séð frá Suðurlandsvegi. Fremst sést settjörnin sem verður útbúin.
Fyrirhugað athafnasvæði á Hólmsheiði
Fangelsið
Hólmsheiði
Reykjavík
H Ó L M S H E I Ð I
Suðurlandsvegur Grunnkort/Loftmyndir ehf.
Hafravat
nsvegur
(Nesjava
llaleið)
26 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. MAÍ 2020
Vatnsverndarsvæði höfuð-
borgarsvæðisins þekur um 247
ferkílómetra. Svæðinu er skipt
upp í fjóra verndarflokka:
Brunnsvæði (3,5% á þekju),
grannsvæði (39%), fjarsvæði
(49%) og öryggissvæði (8%).
Brunnsvæðin eru afgirt og lok-
uð fyrir óviðkomandi umferð en
grannsvæðin eu ógirt og um-
ferð aðallega tengd útivist.
Vatns er aðallega aflað úr
Gvendarbrunnum, Myllulæk og
Vatnsendakrikum.
„Neysluvatn sem kemur frá
vatnsverndarsvæðinu er í
hæsta gæðaflokki og mikilvægt
er að þessi auðlind verði nýtan-
leg um ókomna tíð,“ segir fram-
kvæmdastjórnin.
Þekur 247
ferkílómetra
VATNSVERNDARSVÆÐIÐ
Ungmennaráð fundaði með borgar-
stjórn í Ráðhúsinu í fyrradag.
Fulltrúar ungmenna þvert á borgina
fóru í pontu og fluttu tillögur um
betri borg fyrir þeirra kynslóð.
Þetta var í 19. sinn sem borgarstjórn
og ungmenni funduðu saman en það
var fyrst gert árið 2002.
Meðal tillagna ungmennaráðs var
að tekin yrði upp kennsla í fjármála-
læsi, fríar tíðavörur í grunnskóla og
félagsmiðstöðvar, fræðsla um mál-
efni flóttafólks, ungmennahús í öll
hverfi, betra aðgengi félagsmið-
stöðva að íþróttasölum, aukin jafn-
réttisfræðsla, fræðsla um loftslags-
mál og kennsla í sjálfsvörn.
Í frétt á vef borgarinnar segir
borgarstjóri mikilvægt að raddir
ungs fólks rati inn í stjórnsýsluna.
Sýnt hafi verið fram á að ákvarðanir
sem varða börn og ungmenni verði
betri í framkvæmd ef þau séu höfð
með í ráðum.
Fundurinn var að hluta til haldinn
með fjarfundabúnaði. Einungis þau
ungmenni sem fluttu tillögur voru
stödd í borgarstjórnarsalnum.
Ungmenni funduðu
með borgarstjórn
Tillaga um kennslu í fjármálalæsi
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Borgarstjórn Ungmenni tóku sæti borgarfulltrúanna í Ráðhúsinu.
Sundaborg 7-9, LEIGA
TIL LEIGU snyrtileg 110 fm skrifstofa á 2. hæð
með sérlega góðu útsýni. Eignin skiptist í
fremri hluta með aðstöðu fyrir 3-4 skrifborð
og útsýni til norðurs. Aftari hlutinn er eitt opið
rými auk kaffistofu, snyrtingu og geymslu.
Húsnæðið hentar einkar vel fyrir heildsölu eða
hverskonar skrifstofustarfsemi. Aðgengi að
sameiginlegri fundaraðstöðu/veislusal.
TIL LEIGU snyrtileg 75 fm skrifstofa á 2. hæð.
Rýmið er að mestu eitt opið rými auk aðgengi
að kaffistofu og snyrtingu. Húsnæðið hentar
einkar vel fyrir heildsölu eða hverskonar
skrifstofustarfsemi. Aðgengi að sameiginlegri
fundaraðstöðu/veislusal.
110 fm 75 fm
Pétur Pétursson
Löggiltur fasteignasali – s. 897 0047
petur@berg.is
Davíð Ólafsson
Löggiltur fasteignasali – s. 896 4732
david@berg.is
BERG Fasteignasala | Háholt 14 | Mosfellsbæ |
Sími 588 5530 | berg@berg.is | berg.is