Morgunblaðið - 24.05.2020, Side 33
FRÉTTIR 33Viðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. MAÍ 2020
ER BROTIÐ Á ÞÉR?
Slys valda heilsutjóni og þjáningum. En það er ekki síður sárt þegar starfsorkan
skerðist og áætlanir um framtíðina bregðast. Því fylgir óvissa og áhyggjur.
Ef þú hefur orðið fyrir slysi þá skaltu hafa samband við Bótarétt sem fyrst.
Það kostar ekkert að kanna málið. Við metum stöðu þína og skoðum síðan málin
ofan í kjölinn. Þú getur látið þér batna á meðan við sækjum rétt þinn.
HRINGDU Í BÓTARÉTT Í SÍMA 520 5100 OG ÞÚ FÆRÐ ÞITT.
botarettur.is
BAKSVIÐ
Þóroddur Bjarnason
tobj@mbl.is
Þingvellir, flugvél Icelandair af
gerðinni 757–300, sem máluð var í ís-
lensku fánalitunum árið 2018 í tilefni
af 100 ára fullveldi Íslands og flaug
með íslenska karlalandsliðið á
heimsmeistaramótið í fótbolta í
Rússlandi sama
ár, er nú byrjuð
að flytja lækn-
ingavörur frá
Kína til Evrópu.
Gunnar Már
Sigurfinnsson,
framkvæmda-
stjóri Icelandair
Cargo, segir í
samtali við
Morgunblaðið að
vélin, sem er með einkennisstafina
TF-ISX, sé ein af sex flugvélum fé-
lagsins sem nú sinni þessum flutn-
ingum.
„Hún flutti landsliðið á sínum tíma
en nú flytur hún nauðsynjavörur fyr-
ir heiminn,“ segir Gunnar.
Hann segir að sex flugmenn séu í
hverri áhöfn sem fljúgi til Kína
hverju sinni. Þar fyrir utan séu fjórir
hlaðmenn og tveir flugvirkjar í
hverju flugi. „Það eru 4-5 áhafnir,
sem telja 12 starfsmenn hver, um
hverja flugvél.“
Búið að semja um 60 ferðir
Þrjár vélanna eru í verkefnum fyr-
ir flutningsmiðlunina DB Schenker
en hinar þrjár eru í verkefnum fyrir
ólíka aðila. Um er að ræða fjórar
breiðþotur af gerðinni Boeing 767–
300 og tvær af gerðinni 757–300, en
þar er búið að taka burt sæti til að
koma vörum betur fyrir í vélunum.
Samið hefur verið um að farnar verði
minnst 60 ferðir og má búast við að
verkefnið standi eitthvað fram á
sumarið.
Það vekur athygli að þó að flutn-
ingarnir séu á milli Sjanghæ í Kína
og München í Þýskalandi eru vélarn-
ar ferjaðar til Íslands í millitíðinni.
Gunnar segir að það snúi að því að
áhafnaskipti fari fram á Íslandi.
„Flugtíminn er ekkert mikið lengri
út af því hvernig er flogið. Þetta er
ekki eins mikið úr leið og það
hljómar. Það kemur jafnvel betur út
að hafa þetta svona.“
Spurður af hverju Icelandair hafi
fengið þetta verkefni en ekki eitt-
hvert af stóru flugfélögunum í Evr-
ópu sem öll vantar verkefni í því
ástandi sem nú ríkir segir Gunnar að
sveigjanleiki Icelandair hafi þar átt
stóran þátt, en félagið er þekkt á
markaðnum fyrir stuttar boðleiðir.
Þegar allir leggist á eitt gangi hlut-
irnir hratt fyrir sig.
„Þetta byrjaði með því að við flug-
um þrjú flug milli Íslands og
Sjanghæ fyrir DB Schenker á Ís-
landi með vörur fyrir Landspítalann.
Þar notuðum við farþegavélar og
settum kassa beint í sætin. Þessar
ferðir heppnuðust mjög vel. Þeir
spurðu í kjölfarið hvort við værum til
í meira samstarf. Í millitíðinni vorum
við búin að sjá að farþegaflugið var
að leggjast af, og við fórum að skoða
möguleikann á að taka burtu sætin í
farþegavélunum til að hlaða frakt-
inni beint um borð. Þegar DB Schen-
ker í Evrópu hafði svo samband við
okkur í annað sinn vorum við tilbúin
með okkar lausn. Því gátum við farið
beint í að útfæra hana með hraði með
hjálp yfirvalda í öllum þremur lönd-
unum, Íslandi, Kína og Þýskalandi,“
útskýrir Gunnar.
Hann segir að leyfi til flutning-
anna hafi fengist á „ógnarhraða“.
„Við vorum því fremst á öldunni, og
náðum að vera á undan öðrum. Við
vorum eitt af fyrstu fyrirtækjunum
til að búa farþegavélar til svona
flutninga milli landanna.“
Nýtingin gæti aukist í vikunni
Fljótlega gæti nýting flugsins
aukist til muna, því unnið er hörðum
höndum að því að fá leyfi til að flytja
ferskan fisk þráðbeint til Kína frá Ís-
landi. „Þetta er þungt ferli, og það er
mikið álag á öllu kerfinu í Kína. En
það eru allir af vilja gerðir að hjálpa
til. Ég er að vona að fiskflutningar
geti hafist í þessari viku.“
Gunnar bendir á að það muni auka
verðmæti fisksins að koma honum
beint til Kína í stað þess að flytja
hann fyrst til Evrópu eins og nú er
gert. „Það hlýtur að skipta máli að
koma fiskinum þangað á 13 klukku-
stundum í stað nokkurra daga.“
HM-vél í lækningavörur
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Frakt Íslensku fánalitirnir prýða núna flugleiðina milli Evrópu og Kína.
Sex flugvélar frá Icelandair Cargo flytja nú lækningavörur milli Sjanghæ og
München 60 ferðir Vonast til að bæta við ferskum fiski til Kína í þessari viku
Gunnar Már
Sigurfinnsson
yfir sama tímabil. Heildareignir
Regins jukust lítillega milli ára.
Þær námu 146 milljörðum króna í
lok tímabilsins, en á sama tíma í
fyrra voru eignirnar 145 milljarðar.
Eigið fé félagsins var 45 milljarðar í
lok tímabilsins og eiginfjárhlut-
fallið var 31% í lok mars 2020.
Í afkomutilkynningu félagsins til
kauphallar kemur fram að
rekstrartekjur hafi numið 2,4 millj-
örðum á tímabilinu, en einnig segir
að leigutekjur hafi nánast staðið í
stað frá fyrra ári, en þær voru rúm-
ir 2,2 milljarðar.
Í tilkynningunni segir einnig að
rekstur félagsins sé traustur en
áhrifa af COVID-faraldrinum gæti í
rekstrinum. Þá eru forsendur fyrir
áður birtri rekstraráætlun nú
breyttar.
Enn fremur segir félagið að
fyrstu mánuðir ársins hafi farið vel
af stað hjá Regin og leigutökum
þess en í mars hafi áhrifa COVID
farið að verða vart á starfsemi og
leigutaka félagsins.
Hagnaður fasteignafélagsins Reg-
ins dróst saman um rúm 70% á
fyrsta fjórðungi ársins miðað við
sama tímabil í fyrra. Hagnaður fé-
lagsins nam 304 milljónum króna á
fjórðungnum en á sama tíma á síð-
asta ári hagnaðist fyrirtækið um
rúman milljarð króna. Matsbreyt-
ing fjárfestingareigna var lækkuð
um 51 milljón á fjórðungnum en í
fyrra hækkaði hún um 874 milljónir
Reginn hagnast um 304 milljónir
Forsendur fyrir áður birtri rekstrar-
áætlun breyttar vegna faraldursins
Morgunblaðið/Eggert
Fé Farið hefur verið í aðgerðir til
að tryggja lausafjárstöðu Regins.
14. maí 2020
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 146.61
Sterlingspund 180.95
Kanadadalur 104.79
Dönsk króna 21.282
Norsk króna 14.32
Sænsk króna 14.945
Svissn. franki 150.92
Japanskt jen 1.3645
SDR 199.61
Evra 158.7
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 191.9841
Hrávöruverð
Gull 1703.45 ($/únsa)
Ál 1443.0 ($/tonn) LME
Hráolía 30.07 ($/fatið) Brent
Tap fjarskipta- og fjölmiðlafyrir-
tækisins Sýnar nam 350 milljónum
króna á fyrsta ársfjórðungi.
Hagnaður félagsins á sama tímabili í
fyrra nam 670 milljónum króna. Þá
var hins vegar bókfærður einskiptis-
hagnaður vegna sölu á færeyska
dótturfélaginu Hey og nam hann 817
milljónum króna.
EBITDA á nýliðnum fjórðungi
nam 1.355 milljónum króna, saman-
borið við 1.260 milljónir í fyrra.
EBITDA-hlutfallið hækkaði úr
25,3% og var 27,1%.
Tekjur á fjórðungnum námu 4.995
milljónum króna og voru á pari við
sama tímabil í fyrra. Handbært fé
frá rekstri á fjórðungnum nam 1.053
milljónum króna samanborið við 819
milljónir yfir sama fjórðung í fyrra.
Nemur aukningin 29%.
Heildarfjárfestingar félagsins
námu á fyrstu þremur mánuðum
ársins 738 milljónum. Þar af voru
fjárfestingar í varanlegum rekstrar-
fjármunum og óefnislegum eignum
263 milljónir og fjárfestingar í sýn-
ingarréttum 475 milljónir.
Eiginfjárhlutfall félagsins var
26,8% í lok fjórðungsins en stóð í
27,5% um síðustu áramót. Heiðar
Guðjónsson forstjóri segir að tekist
hafi að gera félagið sveigjanlegra en
áður og það komi m.a. fram í hærri
EBITDA þrátt fyrir útbreiðslu
kórónuveirunnar.
„Störfum hefur fækkað frá síðasta
ári um rúmlega 100 og deildir fyrir-
tækisins vinna hagkvæmar.“
Tap af
rekstri
Sýnar
Tap nam 350 millj-
ónum á fjórðungnum