Morgunblaðið - 24.05.2020, Side 34
34 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. MAÍ 2020
Bandarísk stjórnvöld vöruðu í gær
vísindamenn og aðra heilbrigðis-
starfsmenn við því að tölvuþrjótar
sem nytu stuðnings Kínverja væru
að reyna að stela upplýsingum um
rannsóknir og önnur hugverk sem
tengjast þróun bóluefnis og ann-
arra ráða gegn kórónuveirunni.
Bandaríska alríkislögreglan FBI
sagði í yfirlýsingu sinni að tilraunir
Kínverja til þess að komast yfir
þessar upplýsingar tefldu við-
bragðsgetu Bandaríkjanna gegn
kórónuveirunni í hættu.
Kínversk stjórnvöld höfnuðu
ásökuninni í gær og sögðust vera
alfarið á móti öllum tölvuglæpum.
Þá væri landið leiðandi í rann-
sóknum á bóluefni gegn kórónu-
veirunni.
Segja Kínverja ásælast lyfjarannsóknir
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
Framkvæmdastjórn Evrópusam-
bandsins lagði til í gær að ríki sam-
bandsins reyndu að opna landamæri
sín í nokkrum skrefum í sumar í
þeirri von að hægt yrði að bjarga
milljónum starfa í ferðaþjónustu.
Framkvæmdastjórnin lagði einnig
til að ríki sambandsins gripu til að-
gerða til að draga úr smithættu.
Þannig gæti öllum sem eru á ferða-
lagi verið skipað að hylja vit sín,
jafnt þegar þeir notuðu almennings-
eða lestarsamgöngur og þegar þeir
væru á flugvöllum eða um borð í far-
þegaþotum. Þá gætu hótel þurft að
takmarka gestafjölda sinn, eða jafn-
vel láta gesti sína taka frá sérstaka
tíma við sundlaugarbakka.
Margrethe Vestager, varaforseti
framkvæmdastjórnarinnar, sagði að
tillögurnar sem lagðar voru fram í
gær gætu fært mönnum vonir um
betri tíð í sumar, bæði þeim sem
störfuðu við ferðaþjónustu og svo
þeim sem vildu gjarnan geta ferðast
í sumar. „Þetta verður ekki eðlilegt
sumar,“ sagði Vestager, „en þegar
við gerum öll skyldu okkar þurfum
við ekki að horfa fram á að vera föst
heima yfir sumarið eða að það fari al-
veg til spillis fyrir ferðaþjónustuna.“
Tillögur framkvæmdastjórnarinn-
ar eru ekki bindandi, en hún mælist
til þess að aðildarríkin verði sam-
stiga þegar landamærin verði opnuð.
Þýsk stjórnvöld tilkynntu í gær að
þau myndu opna landamæri Þýska-
lands og Lúxemborgar á morgun,
föstudag, auk þess sem minna eftirlit
yrði á öðrum landamærum ríkisins.
Viðskiptaferðir og heimsóknir til
fjölskyldumeðlima sem búa í Frakk-
landi, Sviss og Austurríki verða þá
heimilar, en stefnt er að því að landa-
mærin verði opin að fullu frá og með
15. júní næstkomandi.
Geti opnað ormagryfju
Tillögur framkvæmdastjórnarinn-
ar eru settar fram í þeirri von að
ferðaþjónustan geti rétt eitthvað úr
kútnum í sumar, en hún nemur um
10% af þjóðarframleiðslu aðildar-
ríkja sambandsins og er áætlað að
um 23 milljónir manna starfi í ferða-
þjónustu innan þess.
Þá skiptir hún veigamiklu máli í
efnahag ríkja í suðurhluta álfunnar á
borð við Spán, Ítalíu og Grikkland,
sem öll hafa orðið illa úti í kórónu-
veirufaraldrinum og munu jafnframt
bera hvað þyngstar byrðar af þeim
efnahagslega skaða sem aðgerðir
vegna veirunnar hafa valdið.
Tilraunir Seðlabanka Evrópu til
þess að mæta þeim skaða voru settar
í nokkurt uppnám í síðustu viku með
úrskurði þýska stjórnlagadómstóls-
ins. Þar gerði hann alvarlegar at-
hugasemdir við stórfelld kaup bank-
ans á ríkisskuldabréfum vegna
kórónuveirukreppunnar, en þau
kaup nema um 2.200 milljörðum
evra. Úrskurðaði dómstóllinn einnig
að seðlabanka Þýskalands yrði mein-
að að taka frekari þátt í slíkum kaup-
um nema evrópski bankinn gæti
sannað innan þriggja mánaða að
meðalhófs hefði verið gætt við kaup-
in.
Evrópudómstóllinn í Lúxemborg
svaraði þýska stjórnlagadómstóln-
um í síðustu viku og sagði úrskurð
hans marklausan, þar sem Evrópu-
dómstóllinn einn gæti haft lögsögu
yfir gjörðum stofnana Evrópusam-
bandsins. Þá hótaði Ursula von der
Leyen, forseti framkvæmdastjórnar
sambandsins, um helgina að fram-
kvæmdastjórnin gæti hafið mál á
hendur Þjóðverjum fyrir brot á sátt-
málum ESB. „Lokaorðið í Evrópu-
rétti er alltaf í Lúxemborg, hvergi
annars staðar,“ sagði meðal annars í
tilkynningu von der Leyen.
Peter Huber, dómarinn við stjórn-
lagadómstólinn sem ritaði úrskurð-
inn, sagði við þýska fjölmiðla í gær
að slíkt samningsbrotamál myndi
steypa Evrópusambandinu í alvar-
lega stjórnlagakreppu sem erfitt
yrði að leysa úr.
Varaði Huber við því að til lengri
tíma litið myndi það veikja Evrópu-
sambandið eða jafnvel tefla grunni
þess í tvísýnu. Sagði Huber jafn-
framt að svo lengi sem ekkert evr-
ópskt sambandsríki væri til staðar
yrðu aðildarríkin að treysta á sínar
eigin stjórnarskrár.
Stefna að opnun landa-
mæra í nokkrum skrefum
Þýski stjórn-
lagadómstóllinn
svarar fyrir sig
AFP
Á ströndinni Franskar baðstrendur fengu að taka á mótum gestum í gær í fyrsta sinn frá upphafi faraldursins.
Gestunum var einungis heimilt að stunda íþróttir, synda eða renna fyrir fisk, og voru engin sólböð leyfð.
Talíbanar vör-
uðu við því í gær
að þeir væru
undirbúnir fyrir
frekari átök eftir
að Ashraf Ghani,
forseti Afganist-
ans, fyrirskipaði
hersveitum
landsins að hefja
árásir á þá.
Skipun Ghanis
kom í kjölfar tveggja skæðra
hryðjuverka í fyrradag, þar sem
annars vegar var ráðist á jarðarför
og hins vegar á fæðingardeild
sjúkrahúss í Kabúl.
Afgönsk stjórnvöld greindu frá
því í gær að fjöldi látinna eftir árás-
ina á fæðingardeildina væri kominn
upp í 24. Meðal fórnarlambanna
voru að minnsta kosti tvö nýfædd
börn og um fimmtán til viðbótar
misstu móður sína í árásinni.
Talíbanar segjast ekki hafa kom-
ið að árásunum í fyrradag og sagði
í yfirlýsingu þeirra að stjórnvöld í
Afganistan myndu bera alla ábyrgð
á afleiðingum frekara ofbeldis.
AFGANISTAN
Talíbanar varpa af
sér allri ábyrgð
Ashraf
Ghani
Angela Merkel
Þýskalands-
kanslari sagðist í
gær í umræðum
á þýska þinginu
hafa beinar sann-
anir fyrir því að
rússneskir tölvu-
þrjótar, sem
tengdust GRU,
leyniþjónustu
rússneska hers-
ins, hefðu stolið tölvupóstum henn-
ar árið 2015, en tímaritið Spiegel
greindi frá árásinni í vikunni.
Sagði Merkel það hryggja sig,
þar sem hún reyndi á hverjum ein-
asta degi að bæta samskipti Þjóð-
verja og Rússa, og tölvuárásir af
þessu tagi gerðu það verkefni mun
erfiðara. Gaf Merkel til kynna að
mögulega yrði gripið til viðskipta-
þvingana ef þessari hegðun linnti
ekki.
ÞÝSKALAND
Merkel harmar
tölvuárásir Rússa
Angela
Merkel
N Ý F O R M
h ú s g a g n a v e r s l u n
Strandgötu 24 | 220 Hafnarfjörður | Sími 565 4100 | nyform.is
Komið og skoðið úrvalið
Raðaðu saman þínum skáp
Framleitt í eik nat, hvítaðri eik og svertuð eik