Morgunblaðið - 24.05.2020, Page 38

Morgunblaðið - 24.05.2020, Page 38
38 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. MAÍ 2020 Árið 1959 seldi glímukappinn Jóhann- es Jósefsson hótelið sem hann hafði byggt 1930 til félags í eigu Pjéturs Daníelssonar veitingamanns, Jóns Hvannberg hjá S.K.F. umboðinu, Ragnars Guðbrandssonar í Hressingarskálanum, Ragnars Jónssonar í Þórscafé og Arons Guðbrandssonar í Kauphöllinni. Kaup- verðið var 18,5 millj. Þessa tíma vorum við Ari Jósefsson skáld næturverðir á hót- elinu. Það var mjög gefandi að vinna hjá Pjétri, sem var sjarmerandi mann- eskja, réttsýnn og elskulegur. Þessi ár var Hótel Borg eina al- vöru hótelið í Reykjavík. Fyrir voru Hótel Vík og Hótel Skjald- breið sem Pjétur átti. Gestir Hót- els Borgar þessi árin voru m.a. Gerard Susay, söngvarinn heims- frægi, og eiginmaður hans píanó- leikarinn Stanley Baldwin. Nú-nú. Svo komu Íslendingarnir: Alli ríki á Eskifirði sem gat verið dáldið erfiður, Hermann Jónasson, fv. forsætisráðherra, kom oft með frú Fjeldsted frá Ferjukoti, átti eitt- hvað vingott við hana. Davíð skáld frá Fagraskógi kom stundum með leikkon- unni frægu Gerd Grieg, ekkju Nor- dahls Grieg skálds. Þau virtust vera mjög ástfangin. Hótel Borg var þessi árin mið- punktur gistimenn- ingar á Íslandi. Grikkinn Constantin Lyperupolor fiski- kaupmaður, tengda- sonur Agnars Kofoed Hansen flug- málastjóra, var þar oft og vinir hans, þeir Mamais og Adamis, voru líka tíðir gestir. Af erlendum stór- stjörnum var t.d. Nana Mouskouri, söngdísin fræga, þar nokkrar nætur og var hún mjög elskuleg í framkomu. Stöku nótt kom hinn stórbrotni listmálari Jóhannes Kjarval og sat hann oft hjá næturvörðunum og þáði kaffisopa og kleinur. Ýmsir þekktir góðborgarar í Reykjavík gistu þar líka, ef eitthvað var bog- ið við hjónabandið. Við látum nú ógert að nafngreina þá hér. Um vorið 1960 bættist okkur næturvörðunum góður liðsauki sem var hinn stórbrotni rithöf- undur Guðbergur Bergsson. Margar nætur komu tveir rann- sóknarlögreglumenn í heimsókn – þeir Njörður Snæhólm og Jón Halldórsson. Þeir voru á „veiðum“ á Willys Wagoneer og við gáfum þeim kaffi og volgar kleinur. Njörður gaf okkur í nefið. Þeir voru miklir sómamenn. Jón var tengdasonur Einars Erlendssonar húsameistara. Skáld og aðrir næt- urhrafnar voru tíðir gestir og þáðu veitingar næturvarðanna. Stefán Hörður, Jónas Svafár, lög- fræðingurinn frú Ásdís Þ. Kvaran. Oft var þetta fjölbreytta lið nokk- uð þaulsætið. En hver er minnisverðastur gestanna frá þessum árum? Ætli það sé ekki hinn stórbrotni söngv- ari Eggert Stefánsson sem bjó frítt á hótelinu með Leu konu sinni, en þau bjuggu í Sciu á Ítal- íu. Hann var töfrandi maður. Um hann hefur Laxness skrifað fjölda lofgreina. Eða kaupmaðurinn Ein- ar Eiríksson frá Höfn í Horna- firði, lágmæltasti maður landsins, risi að vexti og tók hressilega í nefið og var konjakskeimur af hans ágæta tóbaki. Fleira var það ekki að sinni. Hótel Borg og viðskiptamennirnir Eftir Braga Kristjónsson »Hótel Borg var þessi ár- in miðpunktur gistimenningar á Íslandi. Bragi Kristjónsson Höfundur var fornbókakaupmaður í Reykjavík. Ljósmynd/Listasafn Reykjavíkur Eggert Stefánsson söngvari. Gifsmynd: Ásmundur Sveinsson. Á tímum heims- faraldurs er óhjá- kvæmilegt fyrir þá jarðarbúa sem sleppa með líf og heilsu að staldra við og huga að nýrri framtíð. Líklega verður fátt með sama hætti og áður eftir leifturárás kórónuveirunnar sem veldur CO- VID-19-sjúkdómnum. En á Íslandi geisar lífseig og langvinn pólitísk veira, fullkomin andstæða kórónuveirunnar. Eyðing- armáttur hennar er engu minni og hún sækir í sig veðrið. Slæmar af- leiðingar hrannast upp en fæstir veita þeim athygli. Flestir virðast telja að vígvöllur þessarar veiru sé harla gott samfélag, líklega það besta í heimi. Pólitíska veiran er misvægi at- kvæða. Hannes Hafstein ráðherra lagði til úrbætur, sem Alþingi hafn- aði bæði 1905 og 1907. Síðan þá liggur 115 ára tímalína vörðuð slæmum opinberum ákvörðunum, sem tengjast misvæginu beint og óbeint. Störf Alþingis, ríkisstjórnar og pólitískra landsmálaflokka mót- ast af misbeitingu misvægisins. Alvarlegasta tilvik þessarar mis- beitingar misvægisins er flugvöllur í Vatnsmýri. 1946 tóku Alþingi og ríkisvald sér lungann af skipulags- valdi Reykvíkinga og gerðu herflug- völl Breta að flugvelli fyrir Flug- félag Akureyrar. Ógæfa Reykvíkinga er að borg- arstjórn er nær undantekningar- laust mönnuð fulltrúum flokka með sterk landsbyggðartengsl, ofur- seldir refsivendi misvægisins (nema Besti flokkurinn 2010). Ný áform ríkisins og Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðin (SSH) um borgarlínu (góður strætó) eru enn ein atlagan að Reykvík- ingum með misvægið að vopni. Þessi áform miða við áður óþekktar forsendur borgarskipulags og eru í mótsögn við almenna skynsemi og skilning á almannahag. Áformin fela í sér mjög miklar breytingar á landnotkun og byggð- armynstri, sem munu valda stýrðri útþenslu byggðar og verulegu sam- félagstjóni. M.a. veikist staða gamla miðbæjarins enn frekar og vonir um nýja miðborg og mannvænt borgar- samfélag verða að engu. Forsendur borgarlínu eru áfram- haldandi flugrekstur í Vatnsmýri í allt að 20 ár og „þvinguð“ búseta um 20 árganga borgarbúa í byggð meðfram strætóleiðunum frá gamla miðbænum að syðri mörkum Hafnarfjarðar og ysta jaðri Garða- bæjar, Kópavogs og Mosfellsbæjar, sem eiga tilurð sína, vöxt og við- gang flugvellinum að þakka. Í gamla miðbænum er ekkert að sækja fyrir borgarbúa nema um 20.000 skólapláss og 40.000 um- framstörf. Þar er ekki raunveruleg miðborg, aðeins flugvöllur og hverfi fyrir gleðskap og erlenda ferða- menn. Þessi aðferðafræði við borgarlínu er nýstárleg á sviði skipulagsvísind- anna. Að flytja borgina að sam- göngukerfinu svo kerfið verði starf- hæft og þétta þar með byggð mest á strjálbyggðustu svæðunum er auð- vitað fráleit hugmynd í besta falli og minnir helst á leikhús fáránleikans. Hefðbundið er að þétta byggð mest þar sem byggð er þétt fyrir. Þannig skapast skilyrði fyrir skil- virka og mannvæna borg, nýsköpun og ótal samlegðaráhrif og þar með einnig skilyrði fyrir sjálfbærara al- menningssamgöngukerfi (AS). Alþingi og ríkisvald verja af öllu afli syðri brúarsporðinn í loftbrú Akureyringa suður. Reykvíkingar einir færa gríðarlegar fórnir og tapa miklu. Höfuðborgarsvæðið (HBS) er ein mesta bílaborg jarðar. Hefðbundin miðborgarstarfsemi splundraðist fyrir löngu og dreifðist um 16.000 hektara víðáttu HBS og grunnur strætó brast. Íbúar eru utan göngu- fjarlægðar og ná ekki að sinna dag- legum og margþættum erindum nema í bíl. Strætó kemst ekki þang- að sem þeir þurfa að fara. Útþensla byggðar vegna borgar- línu mun splundra dæmigerðri mið- borgarstarfsemi enn frekar en nú er. Fullyrðingar höfunda borgarlínu um róttæka breytingu ferðavenja (fjölgun í strætó úr 4% í 12% og fækkun bílferða um 20%) er pólitísk óskhyggja, ekki fagleg niðurstaða. Raungerist óbreytt áform um borgarlínu mun hlutfall aksturs varla minnka á meðan ekki er byggt í Vatnsmýri. Reykjavík mun þá að óbreyttu ekki ná alþjóðlegu mark- miði um losun CO2 fyrir árslok 2030 og Reykvíkingar eignast ekki nýja miðborg. Að baki borgarlínu virðist hvorki liggja fagleg samfélagsgreining né skipulagsúttekt með almannahag og heildstæða framtíðarþróun að leið- arljósi. Því er vert er að nefna ann- ars vegar viðvarandi landflótta 600 Íslendinga að meðaltali árlega, ára- tugum saman og hins vegar mann- fjöldaspá Hagstofu Íslands um að Íslendingar hætti að fjölga sér fyrir miðja 21. öld. Án kúvendingar í skipulagi Reykjavíkur og HBS geta hvorki borgarlína (BL) né Strætó nokkurn tíma þjónað fjölbreyttum daglegum erindum borgarbúa. Flestir búa áfram utan ásættanlegrar göngu- fjarlægðar og fjarri dreifðri þjón- ustu. Róttæk þétting byggðar í nýrri miðborg í Vatnsmýri er eina leiðin til sjálfbærni og mannvæns sam- félags. Þannig dregur úr akstri og losun CO2 og hagur borgarbúa vænkast mjög. Þann 1. maí 2020 eru 974 dagar til stefnu þar til loka skal flugvell- inum í Vatnsmýri í síðasta lagi skv. samkomulagi frá 2013 og dómi Hæstaréttar 2015, þ.e. þann 31. des- ember 2022. Tilræði við Reyk- víkinga – borgar- lína í stað nýrrar miðborgar Eftir Gunnar H. Gunnarsson og Örn Sigurðsson » Ógæfa Reykvíkinga er að borgarstjórn er mönnuð fulltrúum flokka með sterk landsbyggðartengsl, ofurseldir refsivendi misvægisins. Gunnar er verkfræðingur, Örn er arkitekt, báðir í framkvæmdastjórn Samtaka um betri byggð (BB) gunnarhjortur@hotmail.com arkorn@simnet.is Örn SigurðssonGunnar H. Gunnarsson Skeifunni 8 | Sími 588 0640 | casa.is ítölsk hönnun – ítölsk framleiðsla LEVANTE sófi 3187 L 204 cm Leður ct. 10 Verð 379.000,- L 224 cm Leður ct. 10 Verð 399.000,- CASA býður upp á vaxtalausar raðgreiðslur (meðVisa / Euro) í allt að 6 mánuði. Nú finnur þú það sem þú leitar að á FINNA.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.