Morgunblaðið - 24.05.2020, Síða 48

Morgunblaðið - 24.05.2020, Síða 48
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. MAÍ 2020 LAUGAVEGI 24 - REYKJAVÍK - S. 552 0800 SKIPAGÖTU 7 - AKUREYRI - S. 462 4646Útsölustaðir: Öll apótek, heilsuverslanir og heilsuhillur stórmarkaðanna Hreinsandi • Vatnslosandi • Gott fyrir meltinguna • Getur lækkað blóðsykur Getur dregið úr slímmyndun • Gott fyrir þvagblöðru, lifur og nýru Aðeins ein tafla á dag og ekkert bragð! Eplaedik – lífsins elexír „Í ágúst í fyrra greindist ég með of háan blóðsykur og var sagt að skera niður í mat og drykk til að reyna að laga þetta. Ég skar niður sætindi, sem getur verið erfitt, en með því að taka inn eina töflu af Apple Cider daglega tókst mér að halda mér við efnið. Ég fór aftur í mælingu ummiðjan janúar og þá hafði blóðsykurinn lækkað niður í eðlileg viðmið, þrátt fyrir að vera komin niður í eðlilegt viðmið ætla ég að halda áfram að taka þessar töflur því þær gera svo ótalmargt annað gott fyrir mig. Mæli 100%með Apple Cider frá New Nordic.“ Bjarni Ómar Zach Elíasson Ferðalög á Páll Guðmundsson palli@fi.is Gera má ráð fyrir mikilli umferð landsmanna um Ísland í sumar. Í kjölfar Covid-19 verða ferðalög á milli landa takmörkuð um tíma og fleiri landsmenn munu ferðast inn- anlands. Mikil umferð ferðamanna veldur miklu álagi á náttúru lands- ins og vinsæla ferðamannastaði. Þegar lagt er í ferðalag um landið er að mörgu að hyggja. Ferðafélag Íslands hvetur alla ferðamenn til að ganga vel um náttúru landsins. Sér- stök ástæða er til að forðast gá- leysislega umgengni hér á landi. Gróðursvæði eru víða viðkvæm og íslenskur jarðvegur er grófur, laus í sér og auðrofinn. Sár eru lengi að gróa vegna stutts vaxtartíma gróð- urs auk þess sem vatn og vindar geta aukið á rof í sárum. Með því að leggjast á eitt getum við verndað náttúru og ásýnd lands- ins og tryggt að fólk fái notið feg- urðar landsins til framtíðar. Göngum frá áningarstað eins og við viljum koma að honum. Tökum rusl með til byggða. Virðum eignarrétt og göngum vel um girðingar og hlið. Truflum ekki dýralíf með óþarfa ágangi. Sýnum tillitssemi við ólíkar tegundir ferðamennsku. Engin teg- und ferðamennsku er öðrum æðri og enginn hefur rétt til yfirgangs. Höfum hugfast að skemmdir á jarð- myndunum verða ekki bættar. Í lögum um náttúruvernd eru ákvæði sem fjalla um almannarétt, umgengni og útivist. Þar segir að öllum sé heimilt að fara um landið og njóta náttúru þess svo fremi að gengið sé vel um og þess gætt að spilla engu. Heimilt er að fara um óræktuð eignarlönd án sérstaks leyfis. Rétthöfum lands er heimilt að takmarka með merkingum ferðir manna um eignarlönd. Lönd í eigu ríkisins, svo sem náttúruverndar- og skógræktarsvæði, eru öllum opin með fáum undantekningum. Hægt er að takmarka umferð tímabundið, svo sem yfir varptíma eða vegna gróðurverndar. Náttúruverndarsvæði eru friðlýst af mismunandi ástæðum. Reglur, t.d. um veiðar og umferð, eru breytilegar milli einstakra svæða og því mikilvægt að ferðamenn afli sér nauðsynlegra upplýsinga. Virðum friðlýsingarreglur og tilmæli land- varða. Sumir ferðamenn leita á Gera má ráð fyrir mikilli umferð landsmanna um Ísland í sumar. Í kjölfar Covid-19 verða ferðalög á milli landa takmörkuð um tíma og fleiri lands- menn munu ferðast innanlands. unsplash FÍ myndabanki Komdu í gott form Gönguferðir og fjallgöngur njóta vaxandi vinsælda. Umgengni í náttúru Íslands

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.