Morgunblaðið - 24.05.2020, Qupperneq 52

Morgunblaðið - 24.05.2020, Qupperneq 52
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. MAÍ 2020 Anna Lena Halldórsdóttir hafði heppnina með sér í pallapartíleik K100 síðasta föstudag. Hún vann allt fyrir pallapartíið en vinning- urinn var að andvirði 100.000 krónur. Var Anna Lena ánægð með vinn- inginn en hún ætlar að sögn að halda heljarinnar fjölskyldu- og grillveislu á pallinum. Fjölmargir tóku þátt í leiknum sem fór fram á facebooksíðu K100 en dregnir verða út nýir vinnings- hafar alla föstudaga út maí og júní. Hægt er að taka þátt í palla- partíleiknum á facebooksíðu K100 til að eiga möguleika á að vinna allt fyrir pallapartíið á morgun með því að deila uppáhalds- sumarlaginu í athugasemd og merkja einhvern sem elskar sama lag. Vann allt fyrir pallapartíið Heppin Anna Lena Halldórsdóttir vann allt fyrir pallapartíið í facebookleik K100. Rósa Margrét Tryggvadóttir rosa@mbl.is „Fyrir mér var þetta bara að taka út sætindin og skerpa svolítið á þessu. Það eru greinilega margir í sömu pælingum því það eru 1.500 manns komnir á vagninn,“ sagði tónlist- arkonan Greta Salóme spurð út í átta vikna sykurbindindið sem hún byrjaði fyrir nokkrum dögum í Ís- land vaknar á K100 í gær. Pepsi Max fær að vera inni Sagði hún að það erfiðasta við bindindið væri að þurfa að sleppa súkkulaði. „Ég elska súkkulaði. Súkkulaði finnst mér bara vera ástæða þess að við erum á þessari jörð,“ sagði Gréta sem kveðst þó ekki ætla að sleppa Pepsi max úr mataræðinu enda sé drykkurinn sykurlaus og hún sjálf- greindur Pepsi max-fíkill. „Það þyrfti að leggja mig inn á Vog ef það ætti að taka það út líka,“ sagði Gréta. „Ég hafði hugsað mér að lifa þetta covid-ástand af þannig að ég ætla ekki að taka Pepsi Max út,“ sagði hún. Gréta sagðist halda að margir, þar á meðal hún sjálf, hefðu sleppt fram af sér beislinu í samkomubanninu og haft það „svolítið kósí“ á meðan ræktin var lokuð. „Stemmari“ fyrir sykurbanni „Það eru greinilega rosa margir sem langar að taka svona „skurk“ þegar hlutirnir fara aðeins meira af stað en þeir hafa verið að gera. Fólk er búið að hafa tíma til að staldra við og horfa inn á við. Ég held það alla- vega og það er greinilega „stemm- ari“ fyrir þessu akkúrat núna,“ sagði Gréta. „En ég spái því að það verði talsvert minni stemning eftir svona tíu daga,“ bætti hún við og uppskar hlátur í stúdíóinu. Morgunblaðið/Hanna Sykurbindindi Greta Salóme ætlar að sleppa sætindum í átta vikur og hefur fengið með sér fjöldann allan af fólki sem ætlar að taka þátt í átakinu. Langerfiðast að sleppa súkkulaðinu Tónlistarkonan Greta Salóme hefur nú verið í fjóra daga í sykurbindindi en hún stefnir á að sleppa sykri í átta vikur í sumar. Hún stofnaði facebookhópinn „Sykurlaust sumar“ til að veita sér aðhald í bindindinu en þegar hafa yfir 1.500 meðlimir bæst í hópinn. Gréta ræddi um sykurbindindið á K100 í gær. Jákvæð Dj Dóra Júlía finnur jákvæða punktinn á tilver- unni alla virka daga í útvarpinu og á vefnum. Dóra Júlía dorajulia@k100.is Ástin er alls staðar og þolir ótrú- legustu hluti. Á erfiðum tímum getur ástin orðið sterkari en nokkru sinni fyrr og eflaust hafa einverjir fundið fyrir sterkari til- finningum til ástvina og maka undanfarið. Stundum er eins og tilfinningar manns séu loksins settar í rétt samhengi og maður áttar sig á því að það er ekkert skemmtilegt við það að vera hræddur og hika. Lífið er til þess að lifa og upplifa og það er skemmtilegra að taka sénsinn á ástinni! Ég rakst á svo fallegt myndband af hjónum í Bandaríkj- unum. Þau höfðu ætlað sér að endurnýja heiti sín áður en vírus- inn skall á en svo greind- ist eiginkonan með covid og var lögð inn á spítala. Gátu loks faðmast Þegar hún hafði jafn- að sig og var að útskrif- ast af spítalanum beið eiginmaður hennar eftir henni í anddyri spít- alans með trúlof- unarhring og bað hennar aftur, mörgum árum seinna. Hún sagði að sjálfsögðu já og gátu þau loksins faðmast aftur eftir nokkurra vikna aðskilnað, kannski ást- fangnari en nokkru sinni fyrr! Lifi ástin! Ljósi punkturinn með Dj Dóru Júlíu Bað konu sinnar aftur eftir covid-greiningu Ást Eiginmaður ákvað að biðja konu sinnar á ný eftir að hún sigraðist á kórónuveirunni.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.