Morgunblaðið - 24.05.2020, Page 59

Morgunblaðið - 24.05.2020, Page 59
MENNING 59 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. MAÍ 2020 Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is SÝND MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI SÝND MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI VINSÆLASTA GRÍNMYND ALLRA TÍMA Á ÍSLANDI KOMIN AFTUR Í BÍÓ TIL AÐ KOMA OKKUR Í HLÁTURGÍRINN ! Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is Upphaflega átti sýningin að heita Teikningar en svo bættist við ann- arskonar verk, einn skúlptúr, þess vegna kalla ég hana nú Mestanpart teikningar,“ segir Kristján Guð- mundsson myndlistarmaður um sýningu sína sem var opnuð með engri viðhöfn, vegna veirufaraldurs- ins, í i8 galleríinu við Tryggvagötu í gær. Í eðlilegu ástandi hefði verið fagnað, enda listamaðurinn einn af stórmeisturum íslenskrar samtíma- myndlistar, allt síðan hann kom fram á sjónarsviðið með félögum sínum í SÚM-hópnum á sjöunda áratugnum. Við göngum inn í sýningarsalinn og Kristján bendir á verkið sem er ekki teikning, skúlptúr úr tvöföldu gleri í nokkrum stærðum; rúðurnar hafa verið lagðar saman og hallast að vegg. „Þetta er „Ósótt útsýni“,“ segir hann. „Þetta gler hefur verið pantað en var aldrei sótt. Það er raunveru- lega ósótt. Við fengum þetta í verk- smiðjunni, það átti að henda glerj- unum – það varð aldrei að útsýni. Þetta er í fjórða skipti sem ég set þetta verk upp, alltaf með mismun- andi glerjum. Það er því alltaf nýtt. Þessar geómetrísku teikningar hér eru nýjar,“ segir hann svo og bendir á stóra fleka úr frauðplasti sem sitja á andstæðum veggjum. Í annan eru felldir með formrænum hætti hringir úr gráu grafíti, í hitt lárétt stykki úr sama efni sem notað er í ritblý. „Þetta er gert með gegnheilu grafíti og ég kalla þetta „Innramm- aðar teikningar“. Ég hef oft gert teikningar með grafíti sem fer beint á vegg en þessar eru innrammaðar.“ – Og hvers vegna rammarðu inn í einangrunarplast? „Mér fannst þetta svo skemmti- lega ógeðslegt efni að ég ákvað að nota það, þetta byggingaplast. Það er ólistrænt og fínt.“ Í texta sem fylgir sýningunni úr hlaði skrifar Gavin Morrison um pakkaflóðið sem berst út um allt og vörurnar festar í slíku plasti. „Hann vísar í Amaazon-verslunina, sem ég hugsaði ekki út í. En þegar maður kaupir útvarpstæki og slíkt þá er öllu pakkað í þetta efni. Það eru standardstærðir á plast- inu en plöturnar eru mismunandi þykkar. Ég gerði austur í sveit verk úr þynnri plötum, sem voru tveir og hálfur cm, þetta er fimm,“ segir Kristján og sýnir með hendinni þykktina frá veggnum. Hann bendir á teikninguna með hringlaga grafítinu og segir: „Mér finnst þessi svolítið kórónuveiruleg. Það er einhver vírustilfinning í henni – finnst þér það ekki?“ – Ég tek undir það. Er þetta verk komment þitt á ástandið? „Ég gerði nú skissuna að þessu áður en veiran fór á kreik. Þetta var því ekki gert út af henni, en ég hef fundið hana á mér,“ segir hann og brosir. Snýr sér svo að stórum skúlptúr í horninu. „Þetta er teikn- ing af myllumerkinu. Ég gerði það í tilefni af fimmtíu ára afmæli Helve- tica-letursins, sem var 2007. Þá gerði ég eina teikningu í Helvetica Bold, þessi er „Helvetica Medium“. Verkin hafa aldrei verið sýnd á Ís- landi. Þetta var í Osló, hitt í Berlín. Þetta verk getur ekki staðið sjálft, myndi falla á hliðina úti á gólfi. Það þarf að styðjast við eitt- hvað, eins og myllumerkið gerir í raun. Þetta er allt úr grafíti – blýanti.“ – Hvað er þetta með grafítið? „Annaðhvort eru það blekteikn- ingar eða blýantsteikningar. Ég nota hvoru tveggja en þetta hér er allt blýantsteikningar. Ég hef gert meira af blýantsteikningum en úr bleki. Þarna á vegginn er Börkur að setja upp sviga sem er líka úr grafíti og í Helvetica-fontinum“ – og hann bendir á gallerista sinn, Börk Arnarson, sem mundar borvélina og kemur festingu fyrir í veggnum. – Hvers vegna velurðu Helvetica- fontinn? „Mér finnst það svo gott og mikill standard; það er svo venjulegt letur,“ svarar Kristján að bragði. „Hér er svo ein af svokölluðum „Ólympísku teikningum“ sem ég kaus að hafa hér með. Þetta er „Hundrað metra hlaup karla“.“ Það samanstendur af rásblokk fyrir spretthlaupara sem er á gólfinu og snýr frá veggnum þar sem láréttar línur úr grafíti hafa verið settar upp. „Hlauparinn kemur sér fyrir hér,“ segir Kristján til skýringar og setur sig í stellingar á rásblokkinni. Þetta er verk úr seríu sem ég kallaði „Ólympískar teikningar“. Ég gerði þetta 2014. Og þessar teikn- ingar eru allar kynbundnar, það eru til útgáfur fyrir bæði kynin.“ Þess má geta að í tengslum við sýninguna gefur i8 úr fjölfeldisverk eftir Kristján, „Ein og hálf inrömm- uð teikning“ nefnist það og er í 20 tölusettum eintökum. En hefur hann setið yfir nýjum verkum í kóf- inu? „Nei nei,“ svarar hann. „Þetta er allt gert í verksmiðjum og af öðru fólki, ég bara plana þetta. Það stóð nú til að ég væri núna með sýningu í Berlín en henni er seinkað um ár. Þessa átti að opna í byrjun apríl, veiran stoppaði það. En ég hef bara verið að tefla við Pétur Arason …“ – Nú er engin formleg opnun vegna ástandsins. Saknarðu þess? „Nei, ég er voða feginn,“ svarar Kristján og glottir. „Mér finnast opnanir svo leiðinlegar, sérstaklega þegar ég er sjálfur að sýna.“ Morgunblaðið/Einar Falur Myllumerki „Svo gott og mikill standard,“ segir Kristján Guðmundsson um Helvetica-letrið sem hann vinnur með. „Skemmtilega ógeðslegt efni“  Sýning á verkum eftir Kristján Guðmundsson hefur verið opnuð í i8  „Mestanpart teikningar“ kallar hann sýninguna og eitt verkið, af hringlaga grafíti í einangrunarplasti, minnir á kórónuveirur

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.