Morgunblaðið - 26.05.2020, Page 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. MAÍ 2020
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Mannvirkin þurfa viðhald
Stjórnvöld hafa ekki hafið viðræður við NATO um nýjar framkvæmdir
Formaður Samfylkingarinnar segir einstaka þingmenn nota aðstæðurnar
Freyr Bjarnason
Helgi Bjarnason
Íslensk stjórnvöld hafa ekki hafið
formlegar viðræður við bandarísk
stjórnvöld eða Atlantshafsbandalag-
ið (NATO) um aðrar framkvæmdir
en þær 13 til 14 milljarða fram-
kvæmdir sem standa yfir eða eru í
undirbúningi á og við öryggissvæð-
ið við Keflavíkurflugvöll.
Þetta kom fram í máli Guðlaugs
Þórs Þórðarsonar utanríkisráð-
herra í sérstakri umræðu á Alþingi
um varnartengdar framkvæmdir á
Suðurnesjum. Málshefjandi var
Birgir Þórarinsson, Miðflokknum.
Helguvík og gistirými
Fram hefur komið að Vinstri-
græn lögðust gegn tillögu utanrík-
isráðherra um nýjar framkvæmdir
á vegum NATO á Suðurnesjum.
Talið var að umfang þeirra myndi
hlaupa á 12 til 18 milljörðum en lít-
ils mótframlags krafist af íslenska
ríkinu. Guðlaugur Þór sagði í gær
að tillögur hans hefðu hljóðað upp á
1.450 milljóna mótframlag Íslands
samtals á fimm árum til endurbóta
á hafnaraðstöðunni í Helguvík.
Einnig að framkvæmdum við gisti-
rými á öryggissvæðinu í Keflavík
yrði flýtt.
Sagði ráðherra að til þess að
hægt væri að framkvæma varnar-
samninginn við Bandaríkin þyrftu
tiltekinn aðbúnaður og fullnægjandi
mannvirki að vera til staðar til að
hægt væri að hrinda herverndinni í
framkvæmd. Of seint væri að huga
að viðhaldi og endurbótum þegar
hættuástand skapaðist.
Tók Guðlaugur fram að íslensk
stjórnvöld hefðu ekki hafið form-
legar viðræður við bandarísk
stjórnvöld eða NATO um nýjar
framkvæmdir. Hins vegar hefði
mörgum mannvirkjun á öryggis-
svæðinu ekki verið haldið við í ára-
tugi. Ef þau ættu að nýtast liði
bandalagsríkja við æfingar eða á
hættutímum þyrfti að ráðast í við-
gerðir. „Það er mat þeirrar her-
stjórnar sem ber ábyrgð á vörnum
landsins að slíkar framkvæmdir séu
orðnar tímabærar,“ sagði ráðherra.
Krossferð þingmanna
Logi Einarsson, formaður Sam-
fylkingarinnar, sagði málið í
tengslum við uppbyggingu fyrir
NATO í Helguvíkurhöfn líta „bein-
línis út sem krossferð einstakra
þingmanna Sjálfstæðisflokksins í
þessu kjördæmi sem virðast vera
að nota sér hörmulegar efnahags-
aðstæður svæðisins í kjölfar Covid
til að slá sig til riddara“.
Guðmundur Ingi Kristinsson,
þingmaður Flokks fólksins, sagði
ákveðinn tvískinnung í gangi. Ann-
aðhvort væri Ísland í NATO eða
ekki og að fáránlegt væri að láta
mannvirki drabbast niður. Hann
sagði Ísland eiga að samþykkja alla
uppbyggingu í Helguvík og sýna
þeim sem eru með okkur í banda-
laginu þá virðingu að vera ekki
bara með og gera ekkert í staðinn.
Morgunblaðið/RAX
Völlurinn Enn eru mannvirki á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli sem
nýtt eru af Atlantshafsbandalaginu og herjum ríkja þess við æfingar.
Skipulagðri leit að
sjómanninum Ax-
el Jósefssyni Zar-
ioh, sem talið er
að fallið hafi fyrir
borð af fiskiskip-
inu Erling
KE-140 í Vopna-
firði fyrir viku,
hefur verið hætt.
Þetta kom fram í
tilkynningu frá
lögreglunni á Austurlandi í gær.
Umfangsmikil leit hefur verið í
firðinum síðustu daga, að laugardeg-
inum undanskildum, en leitin hefur
ekki skilað neinum vísbendingum að
sögn Kristjáns Ólafs Guðnasonar,
yfirlögregluþjóns hjá lögreglunni á
Austurlandi.
Leit verður haldið áfram af hálfu
björgunarsveitarinnar Vopna í
Vopnafirði með leit á sjó og í fjöru en
dregið úr þunga þeirrar leitar og
skipulagi. Staðan mun endurmetin
þegar líður að næstu helgi og ákvörð-
un þá tekin um framhaldið.
Skipulagðri
leit að sjó-
manni hætt
Axel Jósefsson
Zarioh
Björgunarsveitin
Vopni leitar þó enn
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
„Þessi tími sem lokað var er búinn
að rífa aðeins í. Þetta er því hátíðis-
dagur hjá bar- og kráareigendum,“
segir Arnar Þór Gíslason, veitinga-
maður í miðborg Reykjavíkur.
Slakað var á samkomubanni
stjórnvalda í gær. Nú mega 200
manns koma saman í stað 50 og krár
og barir mega hafa opið á ný. Líflegt
var á mörgum krám síðdegis í gær
og augljóst að margir höfðu beðið
spenntir eftir þessum degi.
„Já, maður finnur vel fyrir því að
fólk hefur þörf fyrir það að fara út
og hitta annað fólk. Það voru margir
glaðir að koma aftur,“ segir Björn
Árnason, veitingamaður á Skúla
Craft Bar.
Eins og margir kollegar hans
nýtti Björn tímann sem lokað var til
endurbóta. „Þegar maður horfir á
hlutina aðeins utan frá, kemst frá
allri ösinni, þá sér maður hvað er
hægt að gera betur. Við tókum bar-
inn í gegn og erum að byrja með
okkar eigin matseðil; rif, vængi,
hamborgara og okkar eigið taco.
Þetta verður í raun nýr og betri
staður.“
Arnar Þór rekur barina Dönsku
krána, Kalda bar, Irishman Pub og
Lebowski bar. Hann segir að tíminn
hafi nýst til að taka útisvæðin á stöð-
unum í gegn en áður hafði verið ráð-
ist í árlega vorhreingerningu.
Arnar er bjartsýnn á að nóg verði
að gera á veitingastöðum og börum í
miðborg Reykjavíkur þótt erlendir
ferðamenn muni ekki sjást á næst-
unni. Hann lýsir þó áhyggjum af því
fyrirkomulagi að öllum stöðum verði
lokað á sama tíma. Hætt sé við að þá
skapist sams konar ástand og þekkt-
ist um árabil í miðbænum.
„Það er galið að tíu þúsund manns
verði hent út á götuna á sama tíma.
Ég vona að yfirvöld átti sig á því að
betra væri að dreifa liðinu. Skyn-
samlegra væri ef barir og krár
fengju að hafa opið til klukkan eitt.
Ég vona að þetta breytist fljótt.“
Uppsöfnuð þörf að
fara út og hitta aðra
Opna mátti bari á ný í gær Vilja fá að hafa opið lengur
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Annir Nóg var að gera hjá afgreiðslufólki á börum bæjarins þegar þeir voru opnaðir að nýju í gær.
Storm Orka ehf., sem undirbýr vind-
orkuver á Hróðnýjarstöðum í Dala-
byggð, mótmælir umfjöllun verk-
efnastjórnar rammaáætlunar um
vindorkuver sem ólögmætri. Vísað
er til þess að
Orkustofnun hafi
ekki skilgreint
neina vindorku-
kosti.
Bendir Storm
Orka á það í
fréttatilkynningu
að verulegar tafir
hafi orðið á verk-
efni fyrirtækisins
og það megi beint
og óbeint rekja til
þeirrar réttaróvissu sem umlykur
þessi mál og rekja megi til túlkunar-
ágreinings umhverfis- og auðlinda-
ráðuneytisins við Orkustofnun. Tel-
ur fyrirtækið vandað umhverfismat
best til þess fallið að grisja burt
vonda vindorkukosti. Þá sé túlkun
ráðuneytisins andstæð ákvæðum
stjórnarskrár um eignarrétt,
atvinnufrelsi, skipulagsvald sveitar-
félaga og jafnræði.
Hugmynd að flokka svæði
Guðmundur Ingi Guðbrandsson
umhverfisráðherra sagði á Alþingi í
gær, spurður af Bergþóri Ólasyni,
að umhverfis- og auðlindaráðuneytið
og atvinnu- og nýsköpunarráðu-
neytið teldu að vindorkukostir yfir
10 MW heyrðu undir rammaáætlun
og vísaði til þess að tveir vindorku-
kostir hefðu verið metnir í 3. áfanga
áætlunarinnar.
Ráðherra gat þess að þrjú ráðu-
neyti væru að skoða möguleika á að
flokka landið með tilliti til þess hvar
vindorkukostir ættu við og hvar
ekki. Síðan yrði að ákveða máls-
meðferð á þeim svæðum þar sem
hægt yrði að nýta þessa orku.
Mótmæla umfjöll-
un rammaáætlunar
Ágreiningur um mat á vindorku
VindmyllaNú á
víða að virkja.