Morgunblaðið - 26.05.2020, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 26.05.2020, Blaðsíða 20
20 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. MAÍ 2020 ✝ Gréta Halldórs-dóttir fæddist á Hjalteyri við Eyja- fjörð 19. desember 1937. Hún lést á Vífilsstöðum 10. maí 2020. Foreldrar henn- ar voru Sigrún Guðmundsdóttir, f. á Bæ í Árneshreppi í Strandasýslu 28.6. 1915, d. 26.8. 1998, og Halldór Guðmundsson húsa- smíðameistari, f. á Breiðaból- stað á Skógarströnd á Snæfells- nesi 2.5. 1913, d. 11.10. 1994. Gréta var næstelst sjö systkina, elst er Þóra, f. 1935, d. 2006, gift Gunnari R. Sveinbjörnssyni, yngri systkin eru: Hrafnhildur, f. 1940, gift John P. DeMarco; Ragn- heiður, f. 1945, d. 2018, gift Guð- mundi V. Ólafssyni; Guðmundur, f. 1946, kvæntur Hólmfríði Rögn- valdsdóttur; Sig- rún, f. 1949, gift Hafþóri Edmond Byrd; Björn, f. 1951, kvæntur Auði Gilsdóttur. Streymt verður frá útförinni á https://www.sonik.is/ hateigskirkja. Slóðina má nálgast á Meira: www.mbl.is/andlat. Þá er komið að kveðjustund elsku systir. Hugurinn leitar aft- ur í tímann til bernskuáranna á Hjalteyri við Eyjafjörð. Við vor- um eins og tvíburar, alltaf eins klæddar og mjög samrýndar, gátum ekki séð hvor af annarri. Þegar ég var send í sveit á sumr- in til ömmu og afa norður á Ströndum grét ég mig í svefn; ég saknaði hennar svo mikið og ósk- aði þess að hún væri í sveitinni með mér. Það voru tvö og hálft ár á milli okkar systra og þegar ég kom í heiminn gat Gréta ekki sagt „systir mín“ heldur „Siddý mín“. Það nafn festist við mig og það kom sér vel síðar á ævinni. Þegar kom að skólagöngu hjá Grétu vildi ég fá að fara líka og á end- anum fékk ég að fljóta með því ég var svo heppin að vera orðin læs. Gréta fæddist með hjartagalla, sem háði henni alla tíð og var tal- ið að hún myndi ekki ná tólf ára aldri. Ég man alltaf þegar við vorum litlar og eitthvað að ærsl- ast úti við, þá þurfti hún alltaf að hlaupa inn til að hvíla sig. Við höfðum alltaf eitthvað fyrir stafni. Á veturna renndum við okkur á skíðum, sleðum og skaut- um, enda fraus tjörnin á eyrinni alltaf á veturna. Ég minnist æskuáranna með hlýju. Árið 1947 flutti fjölskyldan til Keflavíkur. Gréta lauk prófi frá Gagnfræðaskóla Keflavíkur og svo frá Kvennaskólanum á Blönduósi. Gréta vann við ýmis störf á lífsleiðinni. Starfsferlinum lauk hún síðan hjá Landsbanka Íslands, en þar starfaði hún í rúm tuttugu ár. Gréta var ógift og barnlaus. Hún bar mikla umhyggju fyrir velferð systkinabarna sinna og fylgdist vel með þeim. Henni fannst gaman að ferðast og á Angela dóttir mín góðar minning- ar frá Þórsmerkurferðunum þeirra. Þegar ég flutti til Banda- ríkjanna vorum við í stöðugu símasambandi, stundum viku- lega. Gréta heimsótti okkur nokkr- um sinnum til Bandaríkjanna og við skoðuðum það markverðasta á hverjum stað. Við eigum líka góðar minningar frá ferð okkar til Kanada þar sem við skoðuðum meðal annars Niagara-fossinn. Hún naut ferðalagsins með okk- ur. Á sjötugsafmæli hennar og jólunum það ár heimsótti hún okkur til Flórída. Við höfðum þann sið að hringja hvor í aðra á miðnætti á gamlárs- kvöld til að óska hvor annarri gleðilegs árs. Þess mun ég sakna. Ég minnist með gleði ferðalags- ins sem við fórum til bernsku- stöðvanna á Hjalteyri og dvöld- um í litlum sumarbústað sem gekk undir nafninu Draumaland. Það var yndislegt að koma á forn- ar slóðir, þaðan sem við áttum svo margar góðar minningar. Systir mín var góð kona, heiðar- leg og samviskusöm og stundaði sína vinnu allt fram að starfslok- um. Við hjónin, dóttir okkar og synir og fjölskyldur þeirra þökk- um samveruna og kveðjum þig með ást og þakklæti. Hvíl þú í friði. Guð blessi minningu þína. Ég kveð þig, hugann heillar minning blíð, hjartans þakkir fyrir liðna tíð. Lifðu sæl á ljóssins friðar strönd, leiðir sjálfur Drottinn þig við hönd. (Guðrún Jóhannsdóttir) Hrafnhildur Halldórsdóttir. Gréta fæddist á Hjalteyri við Eyjafjörð, önnur í röðinni af sjö systkinum. Árið 1947 fluttist fjöl- skyldan til Keflavíkur og það voru mikil viðbrigði fyrir systk- inin að flytja á mölina. Heimilið var stórt og umsvifamikið. Meðal annars rak Sigrún móðir þeirra hárgreiðslustofuna Sunnu í sam- byggðu húsi við heimilið. Þar var einnig trésmíðaverkstæðið hans Halldórs. Hann var húsasmíða- meistari og átti meðal annars þátt í að reisa Háteigskirkju. Þegar til Keflavíkur var komið bættust Sigrún og Björn í hópinn og var mikið líf og fjör á heim- ilinu. Sumrunum eyddi hún hjá Sínu frænku og Gunnari og seinna Dadda og Veigu á Þorfinnsstöð- um í Valþjófsdal. Hún hafði alla tíð sterk tengsl við fjölskylduna fyrir vestan og leið vart sumar án þess að farið væri vestur. Síðar var hún nánast fastur sumargest- ur hjá Ösp og Björgu, dætrum Veigu og Dadda, eftir að þær hleyptu heimdraganum. Kunnum við fjölskyldan þeim hjartans þakkir fyrir. Hún lauk gagnfræðaprófi frá Gagnfræðaskóla Keflavíkur og hóf störf hjá Pósti og síma í Keflavík. Gerði hlé og hóf nám í Kvennaskólanum á Blönduósi. Skólinn var henni alltaf hugleik- inn, þar eignaðist hún góðar vin- konur og þær voru með sauma- klúbb og ferðuðust saman erlendis og nutu lífsins. Að hon- um loknum hún hóf aftur störf hjá Pósti og síma í Keflavík. Hún hóf síðar störf hjá Kaupfélagi Ár- nesinga og flutti til Selfoss. Það- an lá leiðin suður til Reykjavíkur, þar sem hún hóf störf hjá SÍS, svo Álafossi og að lokum Lands- bankanum. Þar lauk hún sínum starfsferli eftir rúm tuttugu ár. Hún hafði mikið yndi af ferða- lögum og fyrsta utanlandsferðin farin til Danmerkur og fleiri landa. Hún sagði síðar margar sögur úr þeirri ferð, sem var henni ávallt hugleikin. Þórsmörk átti sérstakan sess í huga hennar, þangað fór hún mörg sumur í röð. Með Björk vin- konu sinni ferðaðist hún einnig víða um landið. Þær mæðgur héldu heimili saman þar til Sig- rún lést 1998. Þá keypti hún litla fallega íbúð í Orrahólum og sagð- ist hafa milljón króna málverk þegar hún horfði út um stofu- gluggann á Esjuna. Hún undi sér vel þar og eyddi dögum við lestur o.fl. Systkinabörnin voru henni kær og hún fylgdist vel með þeim og studdi við bakið ef þörf krafði. Samvera við ungviði gladdi hjarta hennar. Ferðir með fjöl- skyldum systkinanna voru ofar- lega á blaði. Síðar var hún ákaf- lega stolt af því að hafa gengið og klifið Þorfinninn, fjallið fyrir ofan Þorfinnsstaði. Þau Eiríkur syst- ursonur hennar gengu á fjallið og það var stolt en ákaflega þreytt fröken sem kom niður. Eins og Valla systurdóttir orð- aði það svo fallega: hún var Gréta okkar allra systkinabarnanna. Þau voru sterk systraböndin á milli þeirra Þóru stórusystur, því er vel við hæfi að hún fái legstað við hliðina á þeim hjónum. Þá er fátt eitt nefnt, systkini og makar minnast hennar með hlýju og þakklæti. Hún er lögð í sína hinstu för. Guð blessi minningu Grétu Halldórsdóttur. Auður Gilsdóttir. Nú hefur hún Gréta frænka kvatt í hinsta sinn en hún hefur alla tíð verið hluti af lífi okkar systra. Hún og faðir okkar voru systrabörn og segja má að þau hafi nánast alist upp sem systkini og þó að pabbi hyrfi alltof snemma á braut hélst tryggð hennar við fjölskylduna alla tíð. Gréta frænka var falleg kona, lítil og fíngerð með þykkan makka og falleg blá augu og þrátt fyrir að vera heilsulítil fyrstu æviárin var mikill töggur í henni og ekki kvartaði hún eða kveinaði yfir smámunum enda ættuð norð- an af Ströndum. Gréta var glað- leg kona og ætíð stutt í brosið, aldrei heyrðum við hana hall- mæla nokkrum manni, frekar reyndi hún að finna jákvæðar hliðar samferðafólks síns. Hún var af þeirri kynslóð sem fékk þá vöggugjöf að vera heiðarleg, samviskusöm, stundvís og fara vel með það sem hún aflaði og vera þakklát fyrir allt sem gert var fyrir hana, stórt og smátt. Fyrstu kynni okkur af Grétu frænku, eins og hún var ætíð köll- uð, voru heima á Þorfinnsstöðum, en þangað kom hún oft í sumar- heimsóknir, með systkinum sín- um eða ein á ferð. Minningar frá þessum heimsóknum tengdust gleði yfir að Gréta frænka væri á leiðinni en dvöl hennar einkennd- ist af skemmtilegum uppátækj- um, gönguferðum, fjöruferðum með frumstæðum veiðifærum eða berjaferðum. Minnisstæðust er gönguferð fram að svokölluð- um Vötnum, sem liggja fremst í Valþjófsdal. Oft var búið að ræða um að ganga þessa leið en i amstri hversdagsins fannst aldr- ei tími til þess fyrr en í þessari heimsókn Grétu. Í minningunni var þetta löng ganga sem ein- kenndist af gleði og kærleika þar sem Gréta gekk fremst í flokki með barnaskarann á eftir sér. Oft var rætt um að ganga á fjallið Þorfinn en aldrei varð af því. Næst er við klífum fjallið fagra munum við minnast þín elsku Gréta. Gréta frænka var trú fólkinu sínu og kom oft í heimsóknir til okkar systra á Akranes og austur í Neskaupstað. Á Skaganum dvaldi hún oft nokkra daga eða viku í senn, þar sem hún fór í göngutúra, kíkti í búðir og naut þess að vera til og ekki má gleyma signa fiskinum sem hús- bóndinn og Gréta elskuðu að snæða. Í heimsóknum hennar austur var ekið um Austurlandið, staldrað við á fallegum stöðum og kíkt í búðir. Ekki má síður gleyma „kósíkvöldunum“ þar sem horft var á spennandi mynd- ir með alls konar góðgæti sem Gréta deildi með sér. Þegar Gréta varð sjötug skellti hún sér til systur sinnar og mágs í Ameríku og dvaldi þar í nokkrar vikur. Á sjálfan afmælisdaginn, 19. desember, fæddist svo lítill ömmudrengur á Skaga og auðvit- að sendar fréttir af því til hennar og sagði hún það ætíð sína stærstu gjöf í lífinu. Gjafmildi hennar til okkar og afkomenda var einstök, fæðingar-, skírnar- og fermingargjafir, ásamt afmæl- is- og útskriftargjöfum. Gréta frænka fann alltaf ástæðu til að gleðja aðra með pakka eða pen- ingaumslagi en fyrst og fremst kærleika, tryggð og væntum- þykju til okkar og afkomenda. Við hugsum þakklátar til Grétu með dillandi hláturinn og glaðlega andlitið. Hafðu þökk fyrir allt sem þú varst okkur elsku Gréta frænka. Þínar Ösp, Björg og fjölskyldur. Gréta Halldórsdóttir HINSTA KVEÐJA Góða ferð og Guð geymi þig elsku frænka. Þín Thelma. Frímann & hálfdán Útfararþjónusta Frímann 897 2468 Hálfdán 898 5765 Ólöf 898 3075 Sími: 565 9775 www.uth.is uth@uth.is Cadillac 2017 Elskuleg systir okkar og mágkona, GRÉTA HALLDÓRSDÓTTIR, fv. bankaritari, Orrahólum 7, lést á Vífilsstöðum sunnudaginn 10. maí. Hún verður jarðsungin frá Háteigskirkju þriðjudaginn 26. maí klukkan 13. Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir. Þeim sem vilja minnast hinnar látnu er bent á Landsbjörg eða SOS-barnaþorpin. Björn Halldórsson Auður Gilsdóttir Sigrún Halldórsdóttir Hafþór E. Byrd Guðmundur Halldórsson Hólmfríður Rögnvaldsdóttir Hrafnhildur Halldórsdóttir John DeMarco og systkinabörn Ástkær eiginkona mín, dóttir, móðir okkar, tengdamóðir, systir, mágkona og amma, SIGRÍÐUR KRISTÍN PÁLSDÓTTIR lést á Landspítalanum í Fossvogi 12. maí. Jarðsungið verður frá Hafnarfjarðarkirkju miðvikudaginn 27. maí klukkan 13. Blóm og kransar eru afþökkuð en þeim sem vilja minnast hennar er bent á Minningarsjóð hjartadeildar Landspítalans. Guðjón Sigurðsson Guðrún Kristjánsdóttir Sigurður V. Guðjónsson Ólöf Hildur Pálsdóttir Sveinn H. Guðjónsson Sigrún Helga Ásgeirsdóttir Valgerður Pálsdóttir Alexander Pálsson Rannveig S. Vernharðsdóttir Kristín Ásta, Hildur Helga og Stefán Bjarni Sigurðarbörn Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, ÞÓRGNÝR ÞÓRHALLSSON frá Stóra-Hamri, Suðurbyggð 2, Akureyri, verður jarðsunginn frá Akureyrarkirkju föstudaginn 29. maí klukkan 13.30. Hekla Ragnarsdóttir Guðrún Ösp Þórgnýsdóttir Dagný Björk Þórgnýsdóttir Sverrir Konráðsson Inga Þöll Þórgnýsdóttir Hekla Björt Helgadóttir Þórgnýr Inguson Edda Rún Sverrisdóttir Guðrún Lóa Sverrisdóttir Móðir okkar og tengdamóðir, SELMA KJARTANSDÓTTIR á Ormsstöðum, Dalabyggð, lést á Silfurtúni í Búðardal 22. maí. Útförin fer fram frá Staðarfellskirkju laugardaginn 6. júní klukkan 14. Auður Baldursdóttir Grétar Sæmundsson Unnur Baldursdóttir Alda Baldursdóttir Tómas Sveinbjörnsson SIGMUNDUR VIGFÚSSON Mundi, Flókastöðum, Fljótshlíð, lést sunnudaginn 10. maí á hjúkrunar- heimilinu Kirkjuhvoli. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Sérstakar þakkir til heimahjúkrunar og starfsfólks Kirkjuhvols. Fyrir hönd ættingja, Róbert Vigfús Þórðarson Ástkær faðir okkar, tengdafaðir og afi, KJARTAN BJÖRN GUÐMUNDSSON lést á sjúkrahúsinu á Akureyri 12. maí. Útför hans verður gerð frá Fossvogskirkju, miðvikudaginn 27. maí klukkan 15. Birgir Kjartansson Dagbjört Bjarnadóttir Jónína Kristín Kjartansdóttir Pétur Kjartansson Dagmar Þórisdóttir Aron, Enok, Ísak, Hafsteinn, Kjartan og Bjarki Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, JÓN ÞÓR ÞORBERGSSON frá Hraunbæ, Skaftárvöllum 13, Kirkjubæjarklaustri, lést á hjúkrunarheimilinu Klausturhólum 23. maí. Útförin fer fram frá Árbæjarkirkju þriðjudaginn 9. júní klukkan 13. Blóm og kransar eru vinsamlega afþökkuð en þeim sem vilja minnast hans er bent á Velunnarasjóð Klausturhóla. Margrét María Guðmundsdóttir Guðbjörg R. Pálmadóttir Einar Ó. Karlsson Guðmundur Jónsson Valgerður Sveinsdóttir Guðlaug Þ. Jónsdóttir Ragnhildur H. Jónsdóttir Einar K. Stefánsson Þorbergur B. Jónsson Guðný L. Egilsdóttir barnabörn og barnabarnabarn

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.