Morgunblaðið - 26.05.2020, Blaðsíða 29
MENNING 29
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. MAÍ 2020
Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is
SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI
SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI
GÓÐ GRÍNMYND FYRIR ALLA FJÖLSKYLDUNA
MEÐ ÍSLENSKU TALI.
AFMÆLISVEISLA Í ÁLFABAK
Tvær frábærar eftir sögu Stephen King
EIN BESTA MYND SEM KOMIÐ HEFUR Á ÞESSU ÁRI.
JAMIE FOXX OG MICHAEL B.JORDAN
ERU BÁÐIR HÉR MEÐ FRÁBÆRAN LEIK. MYND SEM ALLIR
KEPPAST VIÐ AÐ HÆLA EFTIR AÐ HAFA SÉÐ MYNDINA.
Héraðið, kvikmynd Gríms Há-
konarsonar sem frumsýnd var í
fyrrasumar, hefur verið til umfjöll-
unar síðustu daga á Bretlands-
eyjum þar sem hún hefur verið
áberandi á streymisveitum og hef-
ur hlotið góða dóma.
Þekktir gagnrýnendur The
Guardian og Observer, Peter Brad-
shaw og Mark Kermode, skrifa afar
lofsamlega um kvikmyndina og
gefa henni báðir fjórar stjörnur. Sá
fyrrnefndi valdi Héraðið kvikmynd
vikunnar í The Guardian.
Rýnarnir eru ánægðir með það
skref sem Grímur tekur í Héraðinu,
næsti kvikmynd sinni á eftir hinni
rómuðu Hrútum (2015). Kermode
segir að hér fletti hann öðru lagi af
þegjandalegri norrænni menningu
og beini sjónum að konu sem finnur
rödd sína í annars kuldalegu sveita-
lífi og nær að setja mark á samfélag
sem er annars stjórnað af körlum.
Rétt eins og í Hrútum sé í Héraðinu
blandað saman sannferðugum
harmleik og absúrd kómedíu, þar
sem dregin sé upp mannleg svip-
mynd af lífi þar sem samfélag og
einmanakennd þrífist hlið við hlið í
landslagi mótuðu af þversögnum,
persónulegum og pólitískum.
Í Héraðinu segir af Ingu, sem
Arndís Hrönn Egilsdóttir leikur,
sem eftir sviplegt andlát eigin-
manns síns situr uppi með skuldum
hlaðið kúabú og tekst á við kaup-
félag héraðsins sem hún segir
mafíu. Gagnrýnendurnir hlaða
Arndísi lofi fyrir leikinn. Bradshaw
segir að með framúrskarandi
frammistöðu verði Inga í meðförum
hennar sífellt unglegri eftir því sem
átökin við báknið verði illskeyttari,
og Kermode segir hana leika „frá-
bærlega“. Fleirum er hrósað, til að
mynda Sigurði Sigurjónssyni, sem
leikur stjórnanda kaupfélagsins og
skapar marglaga persónu, tón-
skáldinu Valgeiri Sigurðssyni og
kvikmyndatökumanninum Mart
Taniel.
Héraðinu hrósað í breskum fjölmiðlum
Kvenhetja Arndís
Hrönn Egilsdóttir
í hlutverki Ingu í
Héraðinu.
Spennusagan The President Is
Missing sem Bill Clinton, fyrrver-
andi Bandaríkjaforseti, og hinn vin-
sæli spennuhöfundur James Patter-
son sendu frá sér fyrir tveimur
árum seldist afar vel, í meira en
þremur milljónum eintaka. Hún
fékk líka góða dóma og var ekki
síst hrósað fyrir góða og sannferð-
uga persónusköpun. Og þeir starfa
enn saman og væntanleg er í júní á
næsta ári önnur bók sem þeir skrifa
og mun heita The President’s
Daughter.
Báðar sögurnar hverfast um for-
seta Bandaríkjanna en sú nýja
verður á engan hátt framhald af
hinni fyrri heldur koma nýjar per-
sónur við sögu. Við sagnaritunina
mætast þekking Clintons á banda-
rísku stjórnkerfi og innviðum Hvíta
hússins og færni Pattersons við að
skrifa spennandi frásögn, sam-
kvæmt tilkynningu frá útgefendum
Forsetinn Þekking Bills Clintons á inn-
viðum Hvíta hússins og bandarísku stjórn-
kerfi nýtist við skrif spennusagnanna.
Clinton og Patterson skrifa aðra bók
Hundurinn Uggie, sem sló í gegn í einu aðal-
hlutverka óskarsverðlaunakvikmyndarinnar The Art-
ist, hefur hlotið sérstök gamansöm heiðursverðlaun,
„Pálmahundur pálmahundanna“. Í tengslum við kvik-
myndahátíðina í Cannes, sem venjulega er haldin á
þessum tíma árs en var nú blásin af vegna CO-
VID-19, er ætíð veitt viðurkenningin „Pálmahund-
urinn“ og þykir eftirsótt, sem hundaútgáfa aðal-
verðlauna hátíðarinar, Gullpálmans. Hafa þekktir
leikstjórar hreppt viðurkenninguna fyrir að leikstýra
hundum vel, þar á meðal Quentin Tarantino, Noah
Baumbach og Jim Jarmusch. En Uggie, sem sést á
þessari mynd frá 2012 tölta á rauðum dregli í Holly-
wood er klóaför hans voru greypt í sement er hann
settist í helgan stein, hefur nú verið valinn sá besti af
öllum fyrri verðlaunahöfum.
AFP
Uggie valinn bestur Pálmahunda
Barnabókmenntir eru þema nýs
heftis Tímarits Máls & menningar
(TMM). Bókmenntir fyrir börn eru
skoðaðar úr ýmsum áttum í greinum
eftir Margréti Tryggvadóttur, Bryn-
hildi Þórarinsdóttur, Jón Yngva Jó-
hannsson, Lindu Ólafsdóttur og
Bergrúnu Írisi Sævarsdóttur, og
Helgu Þóreyju Jónsdóttur. Þá
fjallar öll bókmenntagagnrýni heft-
isins um nýjar barnabækur.
Meðal annars efnis heftisins er
grein eftir Önnu Gyðu Sigurgísla-
dóttur um Renée Vivien, eina af
gleymdum skáldkonum fyrri tíma;
Selma Guðmundsdóttir rifjar upp
sögulega uppsetningu á styttum
Niflungahring; og Þorvaldur Gylfa-
son dregur saman verkefni sem Ís-
land á enn ólokið, 12 árum eftir
hrun. Þá er birt saga eftir Steinunni
G. Helgadóttur og m.a. ljóð eftir
Þórarin Eldjárn, Véstein Lúðvíks-
son, Sigurð Ingólfsson og Ara Jó-
hannesson.
Ritstjórar TMM eru Elín Edda
Pálsdóttir og Sigþrúður Gunnars-
dóttir.
Barnabókmenntir þemað
Fjölbreytilegt nýtt hefti TMM
Margar greinar um barnabækur
Skáldið Fjallað um er skáldkonuna
Renée Vivien í nýju hefti TMM.