Morgunblaðið - 26.05.2020, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 26.05.2020, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. MAÍ 2020 PREVENTION BY NUTRITION Í Morgunblaðinu í gær var fjallaðum gatnamót Reykjanesbrautar og Bústaðavegar, en þar hefur lengi verið mikið umferðaröng- þveiti vegna þess að borg- aryfirvöld hafa árum saman hafnað ítrekuðum tillögum Vegagerð- arinnar um mislæg gatnamót.    Vegagerðin hefur bent á að þaðsé „mikið stílbrot í kerfinu í dag að gatnamót Bústaðavegar og Reykjanesbrautar skuli ekki vera mislæg. Tafir síðdegis eru mjög miklar og hætta á óhöppum og slysum því mun meiri en ella“.    Nú stefnir í enn meira vanda-mál með þessi gatnamót og er ástæðan fyrirhuguð borgarlína, áform um ofvaxna strætisvagna sem þurfa sérstakar akreinar og aðra umgjörð sem tekur mikið pláss og kostar í það minnsta tugi, ef ekki hundruð milljarða króna.    Lítill vandi er að leysa teppuumræddra gatnamóta, en for- dómar borgaryfirvalda gagnvart mislægum gatnamótum, sem eru öruggasti og skilvirkasti kost- urinn, hafa komið í veg fyrir lausn.    Það er svo óneitanlega sérstaktað delluhugmyndin um borg- arlínu skuli gera lausn þessara gatnamóta enn torveldari.    Hvernig væri að ríkið tæki núaf skarið, útskýrði fyrir borginni að ekki verði króna sett í þessa vitlausu hugmynd og gerði um leið skýrar kröfur um að borgaryfirvöld féllust á raunhæfar lausnir á umferðarvandanum í borginni? Borgarlínan verður æ vitlausari STAKSTEINAR Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ Bygging nýju söluhúsanna á Ægisgarði við Gömlu höfnina í Reykjavík hefur tafist nokkuð. Mikil ótíð var í vetur og tafði jarðvinnu. Síðan tók við kór- ónuveirufaraldurinn, sem tafði smíðavinnu. Smíð- inni átti að ljúka í lok apríl en nú er lokadagur framkvæmda við húsin miðaður við 30. júní, sam- kvæmt upplýsingum Gísla Gíslasonar, hafnar- stjóra Faxaflóahafna. Tafir við smíðina hafa ekki komið að sök því hvalaskoðunarbátarnir hafa ekki siglt síðan í byrj- un mars. Alls er óvíst hvenær þeir hefja siglingar að nýju og fyrstu farmiðarnir verða seldir í sölu- húsunum. Ef allt hefði verið eðlilegt væru farnar margar ferðir á dag með erlenda ferðamenn að skoða hvali í Faxaflóa og fuglalíf á eyjum í Kolla- firði. Faxaflóahafnir ákváðu í fyrra að ganga til samn- inga við eftirtalin fyrirtæki um leigu á húsunum: Special Tours, Eldingu, Sea Safari, Seatrips, Reykjavík by Boat, Happy Tours og Katla Whale Watching. Óljóst er á þessari stundu hve mörg fyrirtæki munu bjóða upp á skoðunarferðir þegar ferðamannastraumurinn glæðist á ný. sisi@mbl.is Smíði söluhúsa hefur seinkað  Hvalaskoðunarbátarnir í höfn síðan í byrjun mars Morgunblaðið/sisi Ægisgarður Nýju söluhúsin eru óðum að taka á sig mynd. Þau munu setja svip sinn á umhverfið. Glatt var á hjalla á Hótel Borg við Pósthússtræti í gær þegar minnst var 90 ára afmælis staðarins. Opið hús var síðdegis og voru allir vinir og velunnarar hótelsins velkomnir. Kom fjöldi fólks og fagnaði með eigendum og starfsfólki. Tónlistar- mennirnir Sigríður Thorlacius, Guðmundur Óskar og Ómar Guð- jónsson sungu og léku lögin sem ómað hafa á Hótel Borg í gegnum tíðina. Stefán Pálsson sagnfræð- ingur leiddi gesti um húsið og rakti sögu þess. Hótel Borg var um árabil eitt virðulegasta og flottasta hótel Reykjavíkur. Það var opnað rétt fyrir hátíðina miklu sumarið 1930 þegar minnst var á Þingvöllum þúsund ára afmælis Alþingis. Fjöldi erlendra gesta kom á hátíð- ina, m.a. stór hópur Vestur- Íslendinga, og kom sér þá vel að hægt var að bjóða upp á nútíma- legt veitinga- og gistihús. Það var glímukappinn Jóhannes Jósefsson (1883-1968) sem stofnaði Hótel Borg og rak til 1960. Fjölmenni í afmælis- fagnaði Hótels Borgar Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Hótel Borg Gestir nutu veitinga og skoðuðu sig um í húsinu á afmælinu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.