Morgunblaðið - 26.05.2020, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 26.05.2020, Blaðsíða 22
22 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. MAÍ 2020 Atvinnuauglýsingar Blaðberar Upplýsingar veitir  í síma  Morgunblaðið óskar eftir blaðbera   Raðauglýsingar Utankjörfundaratkvæðagreiðsla Utankjörfundaratkvæðagreiðsla vegna forsetakjörs sem fram fer 27. júní 2020, hefst við embætti Sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu þann 25. maí 2020. Atkvæðagreiðslan fer í fyrstu eingöngu fram á 1. hæð í Smáralind alla daga frá 25. maí til og með 14. júní nk. frá kl. 10:00-19:00. Þó verður lokað sunnudaginn 31. maí og mánudaginn 1. júní nk. Frá og með 15. júní til og með 26. júní nk. fer atkvæðagreiðslan fram á þremur stöðum á höfuðborgarsvæðinu: Á 1. hæð í Smáralind, á 2. hæð í Smáralind og undir stúkunni á Laugardalsvelli. Þá verður opið alla daga frá kl. 10:00 – 22:00. Þó verður lokað miðvikudaginn 17. júní. Á kjördag laugardaginn 27. júní nk. verður eingöngu opið á 1. hæð í Smáralind frá kl. 10:00 til kl. 17:00 fyrir kjósendur sem eru á kjörskrá utan höfuðborgarsvæðisins. Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu Þórólfur Halldórsson Árskógar Smíði, útskurður, tálgun, pappamódel með leiðbeinanda kl. 9-16. Leshringur kl. 11. Leiðbeinandi úthlutar tíma en aðeins 6 geta verið í einu. Hafið samband í síma 411 2600. Spritta sig þegar komið er inn og þegar farið er út. Bústaðakirkja Ekkert félagsstarf verður á þessu vori í ljósi aðstæðna, við munum ekki taka neina sénsa. Við sjáumst hress í haust, vonandi eigið þið gott sumar. kærleikskveðja Hólmfríður djákni Guðríðarkirkja Félagsstarf eldri borgara. Miðvikudaginn 27. maí kl. 12 bjóðum við ykkur kæru félagar í helgistund og söng í kirkjunni. Síðan förum við inn í safnaðarheimili og borðum saman súpu og brauð, kaffi og konfekt á eftir kr. 1000 á mann. Hlökkum til að sjá ykkur. Kær kveðja, sr. Leifur Ragnar, sr. Pétur, Hrönn og Lovísa. Hvassaleiti 56-58 Morgunkaffi og spjall frá kl. 8.30-10.30. Útvarps- leikfimi kl. 9.45. Gönguferð kl. 13.30 ef veður leyfir. Korpúlfar Förum af stað með hádegisverð af mikilli varkárni, matar- gestum er skipt niður á tíma, því nauðsynlegt að skrá sig fyrirfram og virða 2 metra regluna og hvetjum alla til að kynna sér vel Samfélags- sáttmála Covid. Spritta hendur og fara varlega. Gönguhópar kl. 10 mánudaga frá Borgum og Grafarvogskirkju kl. 10 miðvikudaga, föstu- daga frá Borgum. Petan, Gufunesbæ fyrir Korpúlfa mánudaga kl. 13. Velkomin Seltjarnarnes Vatnsleikfimi í sundlauginni kl. 7.10. Kaffispjall í krókn- um kl. 10.30. Kvennaleikfimi í Hreyfilandi kl. 11.40. Karlakaffi í safnað- arheimilinu kl. 14. Púttið á golfvellinum hefst í júní. Nk. fimmtudag 28. maí verður bingó í salnum á Skólabraut kl. 13.30. Allir velkomnir. Félagsstarf eldri borgara Smáauglýsingar Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar  Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum.  Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum.  Smíðum gestahús – margar útfærslur.  Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum.  Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is Byggingavörur Harðviður til húsabygginga Sjá nánar á www.vidur.is Vatnsklæðning, panill, pallaefni, parket, útihurðir o.fl. Gæði á góðu verði. Eurotec A4 harðviðarskrúfur. Penofin harðviðarolía. Indus ehf., Óseyrarbraut 2, Hf. Upplýsingar hjá Magnúsi í símum 660 0230 og 561 1122. Bílar 2018 Nissan Leaf S 40Kw. Ekinn aðeins 550 km. Raundrægni um 270 km. Til afhendingar strax. 100% lán mögulegt. Verð kr. 3.480.000,- www.sparibill.is Hátúni 6 A – sími 577 3344. Opið kl. 12–18 virka daga. með morgun- nu   þú það sem     FINNA.is Ástkær móðir mín, tengdamóðir, amma og langamma, ERLA M. GUÐJÓNSDÓTTIR, Freyjugötu 36, Sauðárkróki, lést á Heilbrigðisstofnuninni á Sauðárkróki miðvikudaginn 13. maí. Útförin fer fram frá Sauðárkrókskirkju fimmtudaginn 28. maí klukkan 14. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Heilbrigðisstofnun Norðurlands, Sauðárkróki. Jóhanna Hauksdóttir Kristján A. Ómarsson Haukur Kristjánsson Ylfa Rún Sigurðardóttir Sigvaldi Hauksson Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, KRISTJÓNA ÞÓRÐARDÓTTIR Jóna á Laxamýri, sem lést 14. maí, verður jarðsungin frá Húsavíkurkirkju föstudaginn 29. maí klukkan 14. Þá verður athöfninni streymt frá Facebook-síðu Húsavíkurkirkju. Sveinbjörg Björnsdóttir Helgi Hróðmarsson Jón Helgi Björnsson Ingibjörg Sigurjónsdóttir Halla Bergþóra Björnsdóttir Kjartan Jónsson barnabörn og barnabarnabarn Ástkær maðurinn minn, faðir okkar, sonur, bróðir og frændi, BJARKI UNNAR KRISTJÁNSSON lést á gjörgæsludeild LSH við Hringbraut 12. maí. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Katarzyna Stepniowska Máni, Lena, Lucja og Wiktor Unnur R. Jóhannesdóttir Sigurlaug, Jóhannes, Þórunn og systkinabörn Góður vinnu- félagi og vinur, Kristinn eða Kiddi eins og hann var ávallt kallaður, er fallinn frá. Kiddi var traustur sam- starfsmaður sem ávallt var hægt að leita til þegar maður þurfti að fá ráð eða til að ræða hlutina, þar sem hann var reynslumikill og úrræðagóður. Hann var snar í snúningum og ávallt tilbúinn að leggja lóð á vogarskálarnar þegar þess þurfti með í hinum ýmsu verk- efnum, bæði í vinnu og utan hennar. Það voru ekki jól án Kidda, en hann koma ávallt í sinni flottu jólapeysu í jólamatinn og jólaballið og spila á nikkuna af sinni einskæru snilld. Gaman var að heyra sögur hans af hinum ýmsu ferðalög- um um landið, en hann hafði gaman af að ferðast. Það má segja að daginn sem hann komst í sumarfrí var kominn tjaldvagn, fellihýsi eða hjól- hýsi aftan í bílinn og svo var keyrt af stað um landið. Ég veit varla þann stað sem Kiddi hafði ekki komið á. Myndir og frásagnir frá hinum Kristinn Matthías Kjartansson ✝ KristinnMatthías Kjartansson fæddist 28. nóv- ember 1942. Hann lést 14. maí 2020. Útför Kristins fór fram 25. maí 2020. ýmsu stöðum veittu mörgum ómælda gleði, en hann var duglegur að mynda öll þessi helstu augnablik í lífinu, og hafði gaman af fólki og samveru með fjöl- skyldu og vinum. Við fjölskyldan eigum skemmti- legar minningar af tjaldstæði fyrir norðan, en þegar við komum þangað eitt árið voru Kiddi og frú fyrstu aðilar sem við rákumst á, og þrátt fyrir þétt tjaldstæði fann Kiddi okkur stæði við fellihýsið, í bakgarðinum sín- um. Ekkert vandamál, bara lausnir. Það er ekki langt síðan Kiddi hætti að vinna en kom þó reglulega í heimsókn, öll- um til mikillar ánægju. Við síðustu heimsókn var ljóst að hann var að berjast við erfið veikindi, en reyndi jafnframt að njóta góðu stundanna. Það er erfið tilhugsun að Kiddi komi ekki aftur til okk- ar í vinnuna, í kaffi og spjall um daginn og veginn. En á sama tíma er alveg víst að það er vel tekið á móti honum á nýjum stað og hann skilur eft- ir góðar minningar meðal allra þeirra sem hafa fengið að kynnast honum á lífsleið- inni. Kæra fjölskylda, ég votta ykkur mína dýpstu samúð. Jón Alvar Sævarsson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.