Morgunblaðið - 26.05.2020, Blaðsíða 25
DÆGRADVÖL 25
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. MAÍ 2020
Viðarhöfða 1, 110 Reykjavík | Sími 566 7878 | rein.is
Dekton þolir mikinn hita. Það má setja heita potta og pönnur
beint á steininn án þess að eiga það á hættu að skemma hann.
Dekton er algjörlega öruggt gagnvart blettum.
Blettaþolið SýruþoliðHögg- og
rispuþolið
HÁTT
HITAÞOL
„EF ÞÚ BORGAR SEKTINA FYRIR
MIÐNÆTTI FÆRÐU 5000
VILDARPUNKTA.”
„AFSAKAÐU AÐ ÉG TRUFLI ÞIG EN
KONAN MÍN VILL VITA HVORT HÚN NÁÐI
ÖKUPRÓFINU.”
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... það sem lýsir upp
tilveruna.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
ÉG KEYPTI MÉR
RYKSUGUVÉLMENNI
MEINARÐU
„músaskutlu”?
ÖRIN ER Á KAFI Í
SÍLSPIKUÐUM BELGNUM Á
ÞÉR!
ER ÞAÐ
SÁRT?
HVORT? ÖRIN EÐA
LÍKAMSSMÁNUNIN?
Börn Valdimars og Eyglóar eru 1)
Bjarni Þór Valdimarsson, f. 27.5.
1978, umsjónarmaður og hönnuður
svæða fyrir vetraríþróttir í Týrol í
Austurríki. Maki: Janine Hof, graf-
ískur hönnuður; 2) Matthildur
Valdimarsdóttir, f. 10.12. 1979,
stuðningsfulltrúi í Sæbø í Noregi,
hún á fimm börn. Maki: Stig Holen
matreiðslumeistari. Sonur Valdi-
mars með Sólrúnu Sigurðardóttur,
sálfræðingi í Noregi, er 3) Sigurður
Andri Valdimarsson, f. 16.3. 1993,
listnemi í Svíþjóð.
Systkini Valdimars: Sigurður
Arnór Hreiðarsson, f. 5.4. 1945, d.
25.6. 2018, skipstjóri í Reykjavík;
Guðrún Erna Hreiðarsdóttir, f.
19.10. 1946, lögfræðingur í Reykja-
vík; Birna Hreiðarsdóttir, f. 15.9.
1951, lögfræðingur í Reykjavík;
Dröfn Hreiðarsdóttir, f. 11.1. 1960,
MA í Evrópufræðum og ráðgjafi í
Hafnarfirði; Sólveig Sif Hreiðars-
dóttir, f. 24.12. 1964, þýðandi og
bókaútgefandi í Reykjavík.
Foreldrar Valdimars voru hjónin
Hreiðar Jónsson, f. 21.10. 1916, d.
3.12. 2008, klæðskeri í Reykjavík, og
Þórdís Jóna Sigurðardóttir, f. 15.10
1926, d. 13.5. 2016, verslunarmaður í
Reykjavík.
Valdimar
Hreiðarsson
Elín Pálsdóttir
húsfreyja, dóttir Páls Ingimundarsonar
prests í Gaulverjabæ
Jón Hannesson
bóndi á Syðri-
Gegnishólum í Flóa
Guðlaug Jónsdóttir
húsfreyja í Reykjavík
Sigurður Arnór Jónsson
vigtarmaður í Reykjavík
Þórdís Jóna
Sigurðardóttir
verslunarmaður í Rvík
Þórdís Sigurðardóttir
húsfreyja, frá Kotmúla
í Fljótshlíð
Jón Arnórsson
bóndi á Þrándarstöðum í Kjós
Davíð Jónsson lögreglumaður
og kennari í Rvík
Sigurður Arnór
Hreiðarsson
skipstjóri í Rvík
Jóel Kristinn Jónsson skipstjóri
Hreiðar Már
Sigurðsson
athafnam.
í Rvík
Víglundur Jónsson
útgerðarmaður í Ólafsvík
Tryggvi Jónsson
skipstjóri í Ólafsvík
Guðmundur
Guðmundsson
prentari í Reykjavík
GuðbjörgGuðmundsdóttir
húsfreyja, frá Úlfarsfelli á
Skógarströnd
Sigtryggur Jónsson
bóndi á Bjarnarfossi
í Staðarsveit
Guðrún Sigtryggsdóttir
húsmóðir á Arnarstapa
Jón Sigurðsson
útvegsbóndi og kaupfélagsstjóri
á Arnarstapa, Snæfellsnesi
Solveig Árnadóttir
vinnukona í Miklaholtsseli
í Staðarsveit
Sigurður Björnsson
bóndi á Steinum í Staðarsveit
Úr frændgarði Valdimars Hreiðarssonar
Hreiðar Jónsson
klæðskeri í Reykjavík
Á laugardaginn skrifaði PéturStefánsson á Leirinn: „Á pall-
inum hjá mér er veðursældin með
eindæmum, en varla verandi þar
fyrir sól og hita.
Úti á palli er yndisleg tíð,
angar minn búkur af svita.
Í garðinum skrælnuð er foldin mín fríð
og flugurnar dauðar úr hita.
Þessi staka kallast á við stöku
Jónasar Hallgrímssonar, sem að
vísu er um „Sumarhret“:
Nú er sumar í köldu kinn
- kveð ég á millum vita –
fyrr má nú vera, faðir minn!
en flugurnar springi af hita.
Á sunnudag fór að rigna. Pétur
kvað:
Fagna ég feginn regni
sem fellur og nærir velli.
Gróðurinn býsna glaður
getur nú sprottið betur.
Græn eru lauf á greinum,
gala þar fuglar og hjala.
- Bið ég þig Drottinn blíður;
blessaðu fósturjörð þessa.
Á Boðnarmiði segir Magnús Hall-
dórsson að skerpla byrji vel, – 17
stiga hiti:
Allri var ég sviptur sút.
svo er helst að frétta.
Að hugfanginn ég horfði út
og heyrði grasið spretta.
Eyjólfur Ó. Eyjólfsson orti á
laugardag og kallaði „Sólarlag við
flóann“:
Sólin hún minnist við sjáinn
og samkenndin virðist svo náin.
Sú augnabliks þrá
er eldheit að sjá
og síðan er dagurinn dáinn.
Á föstudag skrifaði Skúli Páls-
son:
Vistin köld og vonardauf
í vetur þótti einum
þangað til að lítil lauf
lifnuðu við á greinum.
Það er liðið langt á maí
og loksins fer að hlýna,
eftir vinnu öl mér fæ –
allt í þessu fína!
Líf og fjör og glens og grín,
gleði, spaug og kæti.
Kantafull er kannan mín,
kann mér ekki læti.
Og að lokum:
Vornæturnar valda því
vinalega bjartar
að hringsnúast mér innan í
ótal vísupartar.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Sól og síðan regn
og gróandi