Morgunblaðið - 26.05.2020, Page 4
ÁHRIF KÓRÓNUVEIRUNNAR Á ÍSLANDI4
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. MAÍ 2020
Þór Steinarsson
Helgi Bjarnason
Sóttvavarnalæknir segir að þeir sem
greinast smitaðir af kórónuveirunni
séu sífellt minna veikir. Telur hann
að það kunni að stafa af því að þeir
séu búnir með sín veikindi. „Það
gæti líka verið að þróttur sé að fara
úr veirunni, hugsanlega. Veikindin
hafa verið að minnka eftir því sem
liðið hefur á tímann frá 28. febrúar.
Það gæti gefið okkur vísbendingar
um að veiran sé ekki eins ágeng og
slæm en tíminn verður að leiða það í
ljós,“ sagði Þórólfur Guðnason sótt-
varnalæknir á upplýsingafundi al-
mannavarna í gær.
Fundurinn var sá síðasti í bili.
Ríkislögreglustjóri, í samráði við
sóttvarnalækni, ákvað að lækka al-
mannavarnastig frá neyðarstigi nið-
ur á hættustig vegna kórónuveiru-
faraldursins. Neyðarstigi almanna-
varna var lýst yfir 6. mars sl., eftir
að fyrsta smit var staðfest hér á
landi.
Létt var á samkomutakmörk-
unum í gær. Nú mega tvö hundruð
koma saman í stað fimmtíu, ýmis
starfsemi er leyfið og tveggja metra
reglan nú sögð valkvæð.
Fylgst með þróuninni
Ekkert nýtt kórónuveirusmit
greindist hér á landi í fyrradag, sam-
kvæmt upplýsingum sem birtar voru
á vefnum covid.is um hádegi í gær.
Tólf sýni voru tekin og öll greind á
sýkla- og veirufræðideild Landspít-
alans.
Aðeins sex hafa greinst jákvæðir
það sem af er maímánuði. Þórólfur
sagði á fundinum í gær að það benti
til þess að lítið smit væri í samfélag-
inu. Tók hann fram að fróðlegt yrði
að sjá hvort rýmkun takmarkana um
samkomur og leyfi til að stunda
ýmsa starfsemi yrði til þess að smit
ykist mikið næstu þrjár vikurnar.
Áfram verður fylgst með.
Þrátt fyrir að rannsóknir sýni að
ákveðin lyf komi í veg fyrir alvarleg
veikindi eða fækki dauðsföllum
vegna covid-19 er ekki tímabært að
tala um byltingu í þeim efnum eða
fagna sigri í stríðinu gegn kórónu-
veirunni, að mati Þórólfs. Hann var
spurður hvort hægt væri að líta svo
á að sjúkdómurinn væri ekki eins
lífshættulegur og hann var í byrjun
faraldurs í ljósi þess að búið væri að
finna lyf sem virkuðu gegn sjúk-
dómnum auk þess sem aðgerðir
lækna væru orðnar þróaðri.
Þórólfur sagði að þau lyf sem
hefðu sýnt jákvæða virkni gegn
sjúkdómnum virkuðu á afmarkaðan
hóp sjúklinga og þau væru aðallega
notuð á veikustu einstaklingana.
Finna þyrfti lyf sem væri hægt að
gefa sjúklingum snemma í ferlinu til
að koma í veg fyrir alvarlegar afleið-
ingar sjúkdómsins og við værum enn
sem komið er langt frá því. „Þetta
lofar góðu en það er allt of snemmt
að fara að fagna sigri,“ sagði hann.
Börn smita síður
Með því að keyra saman gögn frá
Íslenskri erfðagreiningu og gögn frá
rakningarteymi almannavarna er
búið að staðfesta það sem sóttvarna-
læknir sagði í byrjun faraldurs um
smit meðal barna. Þetta sagði Alma
D. Möller landlæknir á upplýsinga-
fundinum.
Gögnin sýna að börn fá kórónu-
veiruna síður í sig, smita síður frá
sér og veikjast minna en fullorðnir.
Þessu hefur Þórólfur haldið fram
síðan faraldurinn skall á hér á landi
en yfirvöld voru gagnrýnd nokkuð
fyrir að loka ekki fyrir skólastarf í
leikskólum og grunnskólum.
Í máli Ölmu kom einnig fram að
embætti landlæknis vaktaði ákveðna
heilsuþætti landsmanna og ekkert
benti til þess að faraldurinn hefði
haft neikvæð áhrif á heilsuhegðun
eða líðan landsmanna í mars og apr-
íl. Þannig mætu fleiri andlega heilsu
sína góða eða mjög góða, fleiri væru
sjaldan eða aldrei einmana og færri
glímdu við mikla streitu eða svefn-
leysi.
Fjöldi eftir landshlutum
Óstaðsett 2 23
Útlönd 1 0
Austurland 8 26
Höfuðborgarsvæði 1.315 421
Suðurnes 77 39
Norðurland vestra 35 9
Norðurland eystra 46 74
Suðurland 179 99
Vestfirðir 97 25
Vesturland 44 41
Smit
Sóttkví
Uppruni smits
Innanlands
Óþekktur
Erlendis
58.856 sýni hafa verið tekin
10 einstaklingar eru látnir
Enginn á
sjúkrahúsi
eða á
gjörgæslu
3 einstaklingar eru í einangrun
3 eru með virkt smit
Fjöldi smita frá 28. febrúar til 24. maí
1.804
smit voru staðfest
í gær kl. 13.00
1.804
3
apríl
1.750
1.500
1.250
1.000
750
500
250
þeirra sem
hafa greinst
voru í sóttkví
81%
57%
8,6% sýna tekin hjá LSH voru jákvæð og 0,51% sýna tekin hjá ÍE
20.370 hafa lokið sóttkví757 manns eru í sóttkví
Staðfest smit
Virk smit
mars
1.791 einstaklingar hafa náð bata
Veiran ekki eins ágeng og slæm
Sóttvarnalæknir telur að vægari einkenni gefi vísbendingar um að þróttur sé að fara úr veirunni
Lítið smit í samfélaginu Almannavarnastig lækkað í gær úr neyðarstigi í hættustig
Morgunblaðið/Eggert
Kveðjustund Björgunarmiðstöðin í Skógarhlíð var opnuð á ný í gær eftir takmarkanir á umgengni á undanförnum
mánuðum, eftir síðasta upplýsingafund almannavarna. Við það tækifæri flutti þríeykið, Víðir, Alma og Þórólfur,
lagið Ferðumst innanhúss ásamt höfundi nýja textans, Leifi Geir Hafsteinssyni, fyrir samstarfsfólkið.
Ferðafélag Íslands
Mörkinni 6 | 108 Reykjavík | S. 568 2533 | www.fi.is
Aðalfundur
Ferðafélags Íslands
verður haldinn
þriðjudaginn 2. júní kl. 20
í sal félagsins Mörkinni 6.
Hefðbundin aðalfundarstörf
Stjórnin.
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
„Hljóðið var bara gott í mönnum.
Þetta er fyrsti fjarfundurinn sem
haldinn er í EES-ráðinu en einn af
fjölmörgum slíkum sem ég hef tekið
þátt í. Allir eru að eiga við það sama
en málin mjakast í rétta átt, rétt eins
og hjá okkur,“
segir Guðlaugur
Þór Þórðarson ut-
anríkisráðherra
um fund EES-
ráðsins í gær.
Hann tekur fram
að fjarfundir hafi
augljósa kosti en
einnig þann galla
að menn ræða
ekki saman með
sama hætti og
þegar fólk standi augliti til auglitis.
Utanríkisráðherrar Íslands, Nor-
egs og Liechtenstein og fulltrúar
Evrópusambandsins sátu fundinn.
Viðbrögð ríkja á Evrópska efnahags-
svæðinu við kórónuveirufaraldrinum
voru í brennidepli.
Guðlaugur sagði frá stöðunni hér á
landi og hvernig tekist hefði að bæla
faraldurinn niður en sagði einnig frá
efnahagslegum áhrifum heims-
faraldursins. „Ég legg áherslu á mik-
ilvægi góðs samstarfs milli ríkja
EES-svæðisins í baráttunni við far-
aldurinn, meðal annars hvað varðar
gagnkvæma aðstoð við heimflutning
íbúa sem staddir eru erlendis og með
því að efla bein samskipti milli ein-
stakra ráðherra EFTA-ríkjanna inn-
an EES annars vegar og ESB-ríkja
hins vegar,“ sagði Guðlaugur Þór.
Síðri aðgangur
Fram kemur í tilkynningu utanrík-
isráðuneytisins að í ljósi náinna
tengsla milli Íslands og ESB hafi ráð-
herra sagt óeðlilegt að íslenskar sjáv-
arafurðir njóti ekki fulls tollfrelsis við
útflutning til ESB-ríkja og sambæri-
legar afurðir frá ýmsum ríkjum sem
hafi minni tengsl við sambandið.
„Þótt við höfum mjög góðan mark-
aðsaðgang með sjávarafurðir ríkir
ekki fullt tollfrelsi,“ segir Guðlaugur
Þór við Morgunblaðið, nánar að-
spurður um þessi ummæli. Með orð-
um sínum er hann að vísa til samn-
inga ESB við Kanada og Japan um
fullan markaðsaðgang. „Ég hef tekið
þetta upp á fundum sem ég hef átt
með fulltrúum ESB, bæði í tvíhliða
viðræðum og á EES-fundum,“ segir
Guðlaugur.
Hann benti fulltrúum ESB einnig
á að útganga Breta úr ESB breytti
þeim forsendum sem voru við gerð
samnings Íslands og ESB um við-
skipti með búvörur enda færi útflutn-
ingur á íslenskum landbúnaðar-
vörum á grundvelli samningsins að
verulegu leyti til Bretlands. Guðlaug-
ur Þór vekur athygli á því í samtali að
samningurinn sé um gagnkvæm við-
skipti. Þegar stór hluti tollabanda-
lagsins fari út sé eðlilegt að endur-
skoða hlutina.
Engin lína komin í viðræður
Utanríkisþjónustan hefur verið að
vinna að því að fá gagnkvæma aflétt-
ingu lokana á landamærum eftir 15.
júní, þegar tilslakanir verða gerðar
hér, með skilyrðum. Guðlaugur segir
að málið sé enn í deiglunni. Rætt hafi
verið óformlega við margar þjóðir.
Almennt vilji ríkin stíga varlega til
jarðar í þessu efni. Hann segir að
ekki séu komnar neinar skýrar línur í
málin, hvorki í samtölum við hinar
Norðurlandaþjóðirnar né aðrar þjóð-
ir.
Leggur áherslu á sam-
starf EES í baráttunni
Viðbrögð við heimsfaraldrinum í brennidepli í EES-ráðinu
Guðlaugur Þór
Þórðarson