Morgunblaðið - 26.05.2020, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. MAÍ 2020
544 5151tímapantanir
Allar almennar BÍLAVIÐGERÐIR
Bíljöfur ehf er stoltur aðili að kynna aðgerðir
ríkisstjórnarinnar ALLIR VINNA sem felur í sér
endurgreiðslu á VSK af vinnulið einkabifreiða
Smiðjuvegi 34 • gul gata Kópavogi • biljofur@biljofur.is
Aron Þórður Albertsson
aronthordur@mbl.is
„Þetta fer fram í Háskólabíói og við
komumst af með tvær athafnir,“ seg-
ir Elísabet Siemsen, rektor Mennta-
skólans í Reykjavík (MR). Vísar hún
í máli sínu til brautskráningar stúd-
enta úr skólanum í þessari viku.
Líkt og í öðrum löndum hefur kór-
ónuveiran haft umtalsverð áhrif á
skólahald og útskriftir hjá mennta-
skólum hér á landi. Hafa útskriftir
verið haldnar með breyttu sniði auk
þess sem færa hefur þurft nokkrar
athafnir. Að sögn Elísabetar verður
útskrift MR á sínum stað í ár en þó
með örlítið breyttu sniði. „Við kom-
umst af með tvær hátíðir. Nemendur
fá að taka með sér tvo forráðamenn
og síðan verður hátíðinni streymt.
Að auki verður salnum hólfaskipt og
forráðamenn sem óska eftir tveggja
metra reglu verða í viðeigandi hólfi,“
segir Elísabet og bætir við að ýmsar
sviðsmyndir hafi verið skoðaðar þeg-
ar óvissan var sem mest. Um tíma
kom til greina að halda átta útskrift-
ir. „Við ákváðum strax að halda okk-
ur við Háskólabíó. Fyrsta sviðs-
myndin var átta mismunandi
athafnir. Þegar ástandið fór hins
vegar að skýrast var ljóst að við gát-
um verið með tvær athafnir. Ég er
mjög glöð með það,“ segir Elísabet.
Nemendur vilja staðkennslu
Eins og áður hefur verið fjallað
um var fjarkennsla nýtt í fjölda skóla
hér á landi meðan á heimsfaraldr-
inum stóð. Var MR þar ekki undan-
skilinn. Aðspurð segir Elísabet að
næstu vikur verði nýttar í að kanna
hvernig skólanum tókst til í þeim
efnum. „Við eigum eftir að funda og
sjá hvað fór vel og hvað gekk ekki
nægilega vel. Það er alveg ljóst að
þetta verður viðbót við möguleika
okkar við kennslu til framtíðar. Við
höfum séð kosti og galla þess að ná
svona til krakkanna,“ segir Elísabet
en tekur fram að nemendur séu síður
hrifnir af fjarkennslu. „Nemendurn-
ir vilja hafa staðnám. Það sást best
þegar þau komu að ná í stúdentshúf-
urnar í skólann. Það minnti einna
helst á jólin, gleðin var slík. Það er
nú svo að nemendur eru íhaldssamir
í eðli sínu, en fjarkennslan gefur
okkur auðvitað ýmsa möguleika.
Þetta verður þó skoðað betur í
haust,“ segir Elísabet.
Héldu útskrift um helgina
Hjá Verzlunarskóla Íslands fór
brautskráning fram nú um helgina.
Athöfnin var með talsvert breyttu
sniði samanborið við síðustu ár. Að
sögn Inga Ólafssonar, skólastjóra
Verzlunarskóla Íslands, var athöfnin
haldin í skólanum sjálfum en ekki í
Háskólabíói eins og undanfarin ár.
„Óvissan var mikil á þessum tíma og
við veltum því fyrir okkur að færa
þetta. Útskrift kallar hins vegar á
undirbúning og við ákváðum að
halda okkur við dagsetninguna,“
segir Ingi.
Spurður hvort grípa hafi þurft til
sérstakra ráðstafana til að gera at-
höfnina að veruleika kveður Ingi já
við. Voru nemendur beðnir um að
koma sjálfir á bílum og leggja á bíla-
planinu við skólann. Þaðan gengu
nemendur inn í skólann þar sem þeir
fengu skírteinin afhent. Var útsend-
ingu frá athöfninni jafnframt
streymt á heimasíðu skólans.
Útskriftir með breyttu sniði
Menntaskólinn í Reykjavík verður með tvær athafnir í Háskólabíói Nemendur síður hrifnir af fjar-
kennslu og kjósa að mæta í skólann Útskrift nemenda úr Verzlunarskóla Íslands fór fram um helgina
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Útskrift Brautskráning stúdenta úr framhaldsskólum hér á landi nú á vor-
dögum verður með talsvert öðru sniði en síðustu ár.
Lítið brotfall var meðal nem-
enda Verzlunarskóla Íslands og
MR á nýafstaðinni önn. „Það
eru ívið færri en venjulega sem
eiga rétt á endurtökuprófum.
Það er í raun ekkert brottfall,“
segir Elísabet og bætir við að
jafnan sé brottfall úr skólanum
lítið. „Það eru nokkrir sem
falla á fyrsta ári og reyna aftur
við það eða fara í aðra skóla,“
segir Elísabet.
Svipað er upp á teningnum
hjá Verzlunarskóla Íslands. Að
sögn Inga var brottfallið ekk-
ert. „Það hætti enginn auk
þess sem allir mættu í út-
skriftina. Kennararnir hjá okk-
ur eru mjög vanir fjarkennslu
og hafa þar af leiðandi verið
að nota þessa tækni mjög mik-
ið,“ segir Ingi.
Allir mættu
í útskriftina
LÍTIÐ BROTTFALL
„Eftir að samkomubanninu létti
hefur fólk verið að njóta þess að
vera úti við. Fyrir vikið hefur ver-
ið fjölgað komum til okkar með
ýmis útivistarslys,“ segir Jón
Magnús Kristjánsson, yfirlæknir
bráðalækninga á Landspítalanum.
Margir hafa nýtt sér góðviðris-
daga á suðvesturhorninu að
undanförnu til útivistar. Eins og
verða vill fylgja slíku ýmiss konar
slys; trampólínslys, hjólaslys og al-
menn útivistaróhöpp. Jón Magnús
segir í samtali við Morgunblaðið
að oft komi toppur í þess háttar
slysum snemma sumars. Þrátt fyr-
ir að útivist landsmanna hafi verið
óvenju áberandi að undanförnu
séu slys ekki fleiri en starfsfólk
bráðadeildar eigi að venjast í byrj-
un sumars.
Rafskútur eru áberandi á götum
höfuðborgarsvæðisins þessa dag-
ana. Til að mynda er vinsælt að
leigja slíkar skútur til styttri
ferða. Jón Magnús bendir á að
mikilvægt sé að gæta fyllsta ör-
yggis á þeim eins og við aðra
ferðamáta.
„Það er jafn brýnt að vera með
hjálm á rafskútum og þegar maður
ferðast á rafhjólum og reiðhjólum.
Við höfum séð eitthvað af slysum
sem tengjast þessum rafskútum en
sem betur ekki mjög alvarleg slys.
Í stærri borgum erlendis eru
dæmi um lífshættuleg slys þar sem
rafskútum er ekið í veg fyrir bíl.“
hdm@mbl.is
Brýnt að vera með
hjálm á rafskútum
Mörg dæmi um útivistarslys nýlega
Morgunblaðið/Eggert
Rafskútur Vinsæl farartæki í dag.
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
„Það er meira og meira að gera með
hverjum deginum sem líður. Röðin
var 50 metra löng þegar mest lét um
helgina. Þetta var brjálað á föstu-
dags- og laugar-
dagskvöld – og allir
ánægðir,“ segir
Michele Gaeta ís-
gerðarmaður.
Michele opnaði
fyrir tveimur vik-
um gelato-ísbúð á
jarðhæð gömlu Moggahallarinnar í
Aðalstræti 6. Nefnist búðin Gaeta.
Viðtökurnar hafa verið afar góðar og
þegar veðurguðirnir léku við lands-
menn á laugardaginn kynntust
margir gelato-ísnum í fyrsta sinn.
Einhverjir höfðu á orði að þarna yrði
ferðaávísun stjórnvalda eytt í sumar.
Michele er 27 ára og flutti til Ís-
lands fyrir ári. Þegar hann fór að
sakna gelato-íssins ákvað hann að
setja á stofn eigin búð hér í samstarfi
við vini sína í Bologna. Um er að
ræða 25 ára gamalt fjölskyldu-
fyrirtæki sem rekur nú tíu gelato-
búðir þar í landi svo ekki þarf að
efast um kunnáttuna.
„Gelato-ísinn er öðruvísi en ís-
lenski ísinn. Hann hefur silkikennd-
ari og mýkri áferð ásamt því að vera
þéttari í sér en rjómaísinn,“ segir
Michele sem framleiðir allan ísinn á
staðnum fyrir augum viðskipta-
vinarins. Hann flytur inn ítalskt hrá-
efni á borð við pistasíur frá Sikiley
en lofar íslenska hráefnið sem hann
segir að passi vel í gelato. „Mjólkin
og rjóminn og auðvitað skyrið!“
Hægt er að velja úr 24 tegundum
af gelato-ís á Gaeta. „Það er mjög
gaman að sjá ánægjuna í andliti við-
skiptavina. Það veitir mér mikla
ánægju,“ segir hann.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Vinsældir Michele Gaeta opnaði gelato-ísbúð í Aðalstræti fyrir tveimur vikum og viðtökurnar hafa frábærar.
Íslendingar óðir í
ítalskan ís í Aðalstræti
Michele Gaeta framleiðir og selur gelato í Moggahöllinni
Úrval Ísunnendur geta valið úr 24 tegundum af nýlöguðum gelato.