Morgunblaðið - 26.05.2020, Síða 16

Morgunblaðið - 26.05.2020, Síða 16
16 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. MAÍ 2020 Smiðjuvegi 4C | 200 Kópavogur | Sími 587 2202 | hagblikk@hagblikk.is | hagblikk.is HAGBLIKK Álþakrennur & niðurföll Þakrennurnar eru frá GRÖVIK VERK í Noregi Þær eru einfaldar í uppsetningu HAGBLIKK Ryðga ekki Brotna ekki Litir á lager: Svart, hvítt, ólitað, rautt silfurgrátt og dökkgrátt Mikið er búið að ræða um þennan veiru- vanda sem hrjáð hefur heimsbyggðina und- anfarna mánuði. Það sem mér finnst merki- legast við umræðuna er að alltaf líta menn á útbreiðslu veirunnar út frá því hvað hún sé smitandi. Vissulega er hún það, en veiran þarf einhvern til að aðstoða sig við að komast til næsta manns og þar leikur ferðaþjónustan stórt hlutverk. Menn eru einnig sammála um að svona megi ekki koma fyrir aftur, samt staðráðnir í að hefja sama leikinn sem fyrst, að dæla inn í landið eins mörgum ferðamönnum og mögulegt er. Ferðamenn eru ekki hagkvæm- asta vörutegundin í viðskiptum, vegna þess að þeir borga ekki það mikið fyrir að koma inn í landið að gjaldið dekki allan þann mikla kostn- að sem þarf til að hafa þá þjónustu sem nauðsynleg er. Þess vegna er hagnaðurinn aðallega hjá ákveðnum aðilum sem voru þegar með þjón- ustuaðstöðu. Þeir sem þurftu að byggja upp dýra gistiaðstöðu lepja nú dauðann úr skel og þjóðfélaginu blæðir fjárhagslega í björgunar- aðgerðum og mannfólkið fórnar frelsinu í von um að halda lífi. Stærsti kostnaðarliðurinn er endurbætur á skoðunarstöðum og vegakerfinu, sem ætti að greiðast af ferðaþjónust- unni, en lendir eingöngu á þjóðinni. Á meðan svo er er ferðaþjónustan þjóð- hagslega skaðleg. Samgöngu- ráðherra telur sig hafa fundið leið til að losa þjóðina undan þessu kostn- aðarfargi með því að setja á veggjöld sem bíleigendur greiði um leið og farið er inn á gjaldskylda vegi. Það er spurning hver verður ábyrgur fyrir bílaleigubílunum? Gagnvart Íslend- ingum mun þetta horfa svolítið öðru- vísi við. Hinn venjulegi íslenski bíl- eigandi greiðir gjaldið af sínum bíl, ríkið mun greiða fyrir embættis- menn og fyrirtæki fyrir sína bíla, þar kemur fram misfella því fyrirtækin munu færa þennan kostnað yfir á þá þjón- ustu sem þeir veita og auka þar með gjaldið hjá þeim sem kaupa af þeim þjónustu. Skatt- greiðendur hafa lagt þessa vegi og mín skoð- un er sú að þeir eigi að viðhalda vegunum með sama hætti. Ef nýlagnir og viðhald vega er of mikið álag fyrir þjóðina, hlýtur þessi kostnaður að vera of hár fyrir innan við helming þjóðarinnar. Ferðamenn eru marg- falt fjölmennari notendur en íslenska þjóðin og eiga að borga þjóðinni fyrir nýtinguna og þær skemmdir sem þeir valda. Að vorkenna ferðamönn- um að greiða veggjald er ekki eðli- legur hugsunarháttur. Mér finnst eins og alþingismenn gætu verið með tengslaþráð við ferðaþjónustuna sem trufli ákvarðanir þeirra. Ég tel að stjórnarskráin hafi ákveðna skoðun á þessu atriði. Það undarlegasta í öllu þessu ferðaþjónustustússi og veiru- fári er að það hefur ekki verið minnst á okkar grundvallaratvinnuvegi, sem settu okkur á bekk með ríkustu þjóð- um í heimi, áður en ferðaþjónustu- kóngar og -drottningar kollsteyptu nánast allri heimsbyggðinni fjár- hagslega og heilsufarslega. Þarna á ég við sjávarútveg, fiskvinnslu, land- búnað og iðngreinar. Værum við ekki betur sett núna ef við hefðum lagt rækt við þessar greinar og haft ferðaþjónustuna sem aukagrein í samræmi við þann fjölda sem byggir þetta land? Eftir Guðvarð Jónsson Guðvarður Jónsson » Værum við ekki bet- ur sett núna ef við hefðum lagt rækt við þessar greinar og haft ferðaþjónustuna sem aukagrein í samræmi við þann fjölda sem byggir þetta land? Höfundur er eldri borgari. Hvað gerist næst? Hrafnseyrargöng ættu göngin að heita sem verið er að grafa milli Arnarfjarðar og Dýrafjarðar. Lítið vit er í öðru því skammt frá þeim er hinn sögufrægi staður Hrafnseyri. Þar fæddist Jón Sig- urðsson 17. júní 1811. Hann var fremstur í flokki þeirra sem börðust fyrir sjálfstæði Íslands. Vopn hans voru hárbeitt rök en ekki drápstól. Hrafnseyri er kennd við Hrafn Sveinbjarnarson, mikinn héraðs- höfðingja, mannvin og lækni, sem raunar var fyrsti menntaði lækn- irinn á Íslandi. Um hann segir í samnefndri sögu: „Svá var bú Hrafns gagnauðigt, at öllum mönnum var þar heimill matr, þeim er til sóttu ok erenda sinna fóru, hvárt sem þeir vildu setit hafa lengr eða skemr. Alla menn lét hann flytja yfir Arnarfjörð, þá er fara vildu. Hann átti ok skip á Barðaströnd. Þat höfðu allir þeir, er þurftu yfir Breiðafjörð. Ok af slíkri rausn Hrafns var sem brú væri á hvár- umtveggja firðinum fyrir hverjum, er fara vildi. Svá fylgdi hans lækningu mikill guðs kraftr, at margir gengu heilir frá hans fundi, þeir er banvæn- ir kómu til hans fyrir vanheilsu sakir …“ Engin rök eru fyrir því að kenna nýju göngin við Dýrafjörð eða Arnarfjörð, aðeins kjánaskapur. Við eig- um að varðveita sögu- fræga staði svo fólk minnist þeirra á ferð- um sínum um landið. Hætt er við því að Hrafnseyri gleymist þegar hún er ekki lengur við alfaraleið. Það má aldrei verða. Á Hrafnseyri er safn sem opnað var árið 2011 þegar tvö hundruð ár voru frá fæðingu Jóns Sigurðs- sonar. Sagt er frá ævi Jóns og starfi hans. Í mörg ár hafa forn- minjar verið rannsakaðar á Hrafnseyri. Á vefnum Hrafns- eyri.is segir: „Sumarið 2012 var einnig grafið í gamla kirkjugarðinum sem stendur við hlið núverandi kirkju. Í kirkjugarðinum er greinileg rúst af kirkju. Í vetur voru sýni úr kirkjugarð- inum send til aldursgreiningar. Greind voru sýni úr einstaklingi sem jarðaður hafði verið fast við kirkjugarðsvegg. Í ljós kom að þessi einstaklingur hefur látist á fyrrihluta 11. aldar og því allar líkur á að kirkja og kirkjugarður hafi risið á Hrafnseyri stuttu eftir kristnitöku.“ Þetta er aldeilis stórmerkilegt og ekki víst að allir átti sig á því hversu merkilegur staður Hrafns- eyri er. Auðvitað eigum við að ferðast til Vestfjarða í sumar og framar öllu að staldra við á Hrafnseyri, skoða safnið, fjörðinn og fjöllin, allt umhverfið, sem er stórbrotið. Áætlað er að göngin verði tekin í notkun haustið 2020. Vonandi ber þjóðin gæfu til þess að þau verði nefnd Hrafnseyrargöng. Að því væri sómi og virðing fyrir sögufrægum stað. Við eigum að kenna mikil mannvirki við sögu- fræga staði og gæta þeirra þannig að þeir falli aldrei í gleymsku. Hrafnseyrargöng ættu göngin að heita Eftir Sigurð Sigurðarson Sigurður Sigurðarson » Auðvitað eigum við að ferðast til Vest- fjarða í sumar og fram- ar öllu að staldra við á Hrafnseyri, skoða safn- ið, fjörðinn og fjöllin. Höfundur er rekstrarráðgjafi og áhugamaður um ferðalög á Íslandi. sigurdursig@me.com Nú þegar kórónuveiran hótar að fara að fella okkur, líkt og spænska veikin gerði fyrir einni öld, fer fólk að halda sig meira heima við og forðast sem flesta mannmarga vinnustaði og fjölda- samkomur vegna smithættunnar. Þá hentar að leggjast í bóklestur. Og menn geta þá t.d. lesið sér meira til um spænsku veikina okkar 1918 í bókum og netmiðlum; og jafnvel leitað í ljóðabókum mínum í söfnum að ljóði sem heitir Fullveldið 1918; en það byrj- ar svo: Einsog kóróna úr kopar er Ísland Íslendinganna að rísa: Koparblikið í köldu skammdeginu, með sægræna spanskgrænu um kring. En það er enn dönsk kóróna, og húrrahrópin við Stjórnarráðið: bergmálandi við hvítu útveggina minna mest á spænsku veikina: Sem kom upp úr skotgröfunum í Evrópu einsog hóstandi hvít vofa frelsisins. Tryggvi V. Líndal. Velvakandi Svarað í síma 569-1100 frá kl. 10-12. Spænska veikin aftur? Gamlar bækur á uppboði. Í frétt á bls. 6 í Morgunblaðinu 25. maí er sagt frá samningum Vegagerðarinnar við Reykjavíkurborg vegna brúar á gatna- mótum Bústaðavegar og Reykjanesbrautar, þar segir svo: „Síðan hefur sú breyting orðið, að sam- kvæmt samgöngu- sáttmála ríkis og borgar er gert ráð fyrir að hin nýja borgarlína aki frá Mjódd inn í Vogabyggð. Því blasir það verkefni við að finna leið fyrir borgarlínu almenningssamgangna um gatnamótin.“ Þetta hljómar sakleysislega. En nú liggur landið þannig að beinasta leið- in frá Mjódd og niður í Vogabyggð er beint áfram eftir Reykjanesbraut- inni. Eru Reykjavík- urborg og Vegagerðin að semja um þetta? Hvort strætó eigi nú að keyra þarna beint áfram eftir að ljósin eru farin, eða hvað? Eða er Reykjavíkur- borg einfaldlega að þrjóskast við að leyfa nauðsynlegar umbætur á þjóðvegakerfi höfuð- borgarsvæðisins eins og hún er vön? Er þarna á ferðinni ný Teigskógarþræta í þess- um tilgangi? Það stendur ekki í grein Morgunblaðsins en annað er tæplega hægt að skilja. Borgarlína: Samið um beint áfram Eftir Jónas Elíasson Jónas Elíasson »Er þarna á ferðinni ný Teigskógarþræta? Höfundur er prófessor. Gatnamót Myndin sýnir tillögu Vegagerðarinnar sem rætt er um í greininni.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.