Morgunblaðið - 26.05.2020, Page 19
MINNINGAR 19
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. MAÍ 2020
✝ Lárus Sigfús-son fæddist á
Stóru-Hvalsá í
Strandasýslu 5.
febrúar 1915. Hann
lést á Landspít-
alanum 13. maí.
2020.
Foreldrar Lárus-
ar voru Sigfús Sig-
fússon, f. 7.8. 1887,
d. 29.1. 1958, og
Kristín Gróa Guð-
mundsdóttir, f. 8.10. 1888, d.
15.2. 1963.
Lárus var þriðji í röð 14 systk-
ina en þau eru nú öll látin. Systk-
ini hans í aldursröð; Guðmundur
Sigfússon, Hans Hallgrímur Sig-
fússon, Anna Helga Sigfúsdóttir,
Steingrímur Matthías Sigfússon,
Salóme Sigfúsa Sigfúsdóttir,
Guðrún Sigríður Sigfúsdóttir,
Eiríkur Sigfússon, Garðar Sig-
fússon, Haraldur Gísli Sigfússon,
Sólbjörg Sigfúsdóttir, Guðbjörg
María Sigfúsdóttir, Salóme Sig-
fríður Sigfúsdóttir og Þorbjörn
Sigmundur Sigfússon.
falli 5 daga en urðu oft 6-7 ef var
ófærð. Eftir erfiði veikindi árið
1956 ákvað hann að bregða búi,
flutti Reykjavíkur og hóf að
vinna hjá Sambandinu árið 1957.
Frá áramótum 1957-1958 starf-
aði hann sem leigubílstjóri hjá
Bifreiðastöð Steindórs og síðar
hjá Bæjarleiðum. Hann gerðist
svo ráðherrabílstjóri og sinnti því
starfi í 21 ár. Hann keyrði meðal
annarra Kristján Eldjárn, Hall-
dór Sigurðsson, Steingrím Her-
mannsson, Kjartan Jóhannsson,
Einar Ágústsson, Sverri Her-
mannsson og Þorstein Pálsson.
Þegar þessu tímabili lauk
keypti Lárus jörðina Hellishóla í
Fljótshlíð og bjó þar í nokkur ár
með Svani syni sínum og Sig-
urborgu tengdadóttur sinni. Eft-
ir að Lárus hætti búskap á Hellis-
hólum hélt hann áfram að halda
hesta.
Lárus var með ökuréttindi
fram undir hundrað ára afmælið,
eignaðist fyrsta bílinn 1933 og
þann síðasta 2015.
Síðustu árin bjó Lárus við
Hvassaleiti í Reykjavík með sam-
býliskonu sinni, Kristínu Gísla-
dóttur.
Útför hans fer fram í kyrrþey.
Lárus eignaðist
sex börn með fyrr-
verandi eiginkonu
sinni, Kristínu Hann-
esdóttur, f. 2.11.
1917, d. 1.12. 2008.
Börn Lárusar og
Kristínar eru Sverr-
ir Lárusson, f. 16.9.
1937, d. 12.9. 1998,
Gréta Kristín Lárus-
dóttir, f. 29.1. 1941,
Indríður Hanna Lár-
usdóttir, f. 14.9. 1944, Ingunn
Erna Lárusdóttir, f. 11.1. 1949, d.
11.2. 2018, Sigfríður Lárusdóttir,
f. 8.1. 1951, og Svanur Sigurjón
Lárusson, f. 7.8. 1952. Afkom-
endur Lárusar og Kristínar eru
vel á annað hundrað. Lárus skilur
eftir sig sambýliskonu til margra
ára, Kristínu Gísladóttur.
Lárus hóf búskap á Kolbeinsá í
Hrútafirði árið 1937 og var
grenjaskytta í Bæjarhreppi.
Haustið 1946 varð hann land-
póstur og gegndi því starfi til árs-
ins 1956, fyrst á hestum, en síðar
á bíl. Ferðirnar hans tóku í besta
Elsku Lárus tengdafaðir minn
hefur hafið sína hinstu ferð og fer
útför hans fram í dag.
Það er sárt að kveðja góðan
vin, en minning hans lifir.
En komin eru leiðarlok
og lífsins kerti brunnið
og þín er liðin æviönn
á enda skeiðið runnið.
Í hugann kemur minning mörg,
og myndir horfinna daga,
frá liðnum stundum læðist fram
mörg ljúf og falleg saga.
Þín vinartryggð var traust og föst
og tengd því sanna og góða,
og djúpa hjartahlýju og ást
þú hafðir fram að bjóða.
Og hjá þér oft var heillastund,
við hryggð varst aldrei kenndur.
Þú komst með gleðigull í mund
og gafst á báðar hendur.
Svo, vinur kæri, vertu sæll,
nú vegir skilja að sinni.
Þín gæta máttug verndarvöld
á vegferð nýrri þinni.
Með heitu, bljúgu þeli þér
ég þakka kynninguna,
um göfugan og góðan dreng
ég geymi minninguna.
(Höf. ók.)
Með kveðju og þökk fyrir allt.
Þín tengdadóttir,
Sigurborg Þ. Óskarsdóttir.
Þau voru þung skrefin sem við
stigum eftir að hafa kvatt afa á
spítalanum, vitandi að sennilega
væri þetta í síðasta sinn sem við
sæjum hann í þessu lífi. Hann
hafði snert hjörtu okkar systkin-
anna með hlýju og kærleik og átti
stóran þátt í æsku okkar og upp-
eldi langt fram á fullorðinsár.
Elsku Lárus afi okkar og fyr-
irmynd í lífinu átti viðburðaríka
og litríka ævi. Að lifa rúmlega
heila öld á mesta breytingaskeiði
Íslandssögunnar átti vel við hann.
Hann var nýjungagjarn og ein-
staklega framsýnn og tæknisinn-
aður maður. Hann deildi með
okkur þekkingu sinni og reynslu
og sagði okkur ófáar sögur frá
lífshlaupi sínu.
Afi kenndi okkur að umgang-
ast búpeninginn og heimilisdýrin
af virðingu og nærgætni, en hann
átti í einstöku sambandi við öll
dýr og sérstaklega alla þá fjöl-
mörgu hesta sem hann átti í gegn-
um ævina. Hann var ákaflega
gjafmildur maður og gaf okkur
fyrsta hestinn okkar og fyrstu
lömbin okkar. En það sem okkur
þótti vænst um var samveran með
afa. Öll sóttum við í nærveru hans
sem var svo hlý og þægileg. Hjá
afa fundum við frið og ró.
Á fullorðinsárum okkar var afi
alltaf boðinn og búinn að aðstoða
og leiðbeina um lífsins veg, enda
varla til lífsreyndari og réttlátari
maður en hann. Dýrmætar voru
samverustundirnar á heimili
þeirra Kristínar þar sem alltaf
var eitthvert góðgæti á borðum
og öll heimsins málefni rædd yfir
kaffibolla. Afi hafði nefnilega
ástríðu fyrir samfélagsmálum og
fylgdist vel með fréttum. Hann
hafði sterkar skoðanir á stjórn-
málum, bæði hérlendis sem er-
lendis. Hann samdi vísur og ljóð,
spilaði á píanó og hafði gaman af
söng.
Afi var lífsglaður maður sem
hafði einstaklega gaman af því að
umgangast samferðafólk sitt og
ættingja alla tíð. Þau Kristín
höfðu bæði afskaplega gaman af
börnum og afi vildi fylgjast vel
með því hvað afkomendur hans
höfðust að hverju sinni.
Elsku afi, við getum ekki þakk-
að þér nóg fyrir alla þá birtu og
hlýju sem þú gafst okkur. Þú átt
svo mikið í okkur öllum. Minning
þín mun lifa í hjörtum okkar um
alla ævi.
Þín barnabörn,
Lárus Kristínn Svansson,
Guðlaug Ósk Svansdóttir,
Svanur Aron Svansson,
Sigrún Lóa Svansdóttir.
Þó að sorgin nísti hjarta mitt,
og þó söknuðurinn sé sár,
er mér efst í huga þakklæti
fyrir öll okkar góðu ár.
Ég vil svo gjarnan þakka þér,
fyrir þá sem þú hefur gert mig að.
Ég var lítill kafli í þinni sögu.
Í minni mun enginn taka þinn stað.
Ég byggi enn á öllu því,
sem þú kenndir mér þá.
Þú leiddir mig um orðanna heim,
töfra tungunnar fékk ég að sjá.
Þú sýndir mér líka inn í dýranna sinn,
augu auðmýktar hef ég frá þér.
Í fylgd ferfættra vina að handan,
skilaðu ástarkveðju frá mér.
Ég get ekki fylgt þér síðasta spölinn,
en ég kem um leið og ég get,
að færa þér mína hinstu kveðju,
við hvíldarinnar góða flet.
Að lokum vil ég þakka þér,
fyrir okkar síðustu mót.
Ég man alla tíð brosið hans afa,
sem hlýjar langt inn að hjartarót.
Lovísa Úlfarsdóttir.
Lárus Sigfússon fæddist á
Stóru-Hvalsá í Hrútafirði. Var
hann þriðji í röðinni af fjórtán
börnum hjónanna Kristínar Gróu
Guðmundsdóttur og Sigfúsar Sig-
fússonar. Öll náðu börnin fullorð-
insaldri, utan ein stúlka, Salóme,
sem lést tveggja mánaða gömul
úr kíghósta. Lárus eða Lalli eins
og hann var alltaf kallaður er síð-
astur þeirra systkina að kveðja
þennan heim.
Í gegnum árin sagði hann mér
eitt og annað sem á dagana hafði
drifið og hef ég sett lengri útgáfu
þess efnis inn á net mbl.is. Alltaf
var gaman að heimsækja Lalla
hvar sem hann bjó en hann skipti
oft um íverustaði og eins var með
bílana hans, maður vissi aldrei á
hvaða bíl hann var. Síðustu árin
náðum við vel saman enda báðir
hættir að vinna og höfðum þess
vegna nógan tíma til að spjalla.
Oftast snerist umræðan um
Hrútafjörð og Bæjarhrepp og
fólk þaðan og þá oftast um liðna
atburði enda var Lalli hafsjór af
fróðleik og hafði skemmtilegan
frásagnarmáta og með afbrigðum
minnugur. Eitt sinn fórum við
norður á Hvammstanga að heim-
sækja Hönnu frá Kolbeinsá, mág-
konu Lalla. Á leiðinni var margt
spjallað og meðal annars kom það
fram hjá Lalla að hann gekk í
Framsóknarflokkinn 12 ára gam-
all og sá ekki ástæðu til að skipta
um flokk eftir það. En það atvik-
aðist þannig að afi Sigfús, faðir
Lalla, tók hann með sér á fund og
þegar fundi lauk skrifuðu allir
nafnið sitt í bók og Lalli líka og
þar með var hann kominn í flokk-
inn.
Á Hvammstanga hittust þeir
fermingarbræður Lalli og Þorkell
Zakaríasson eða Keli Zakk eins
og hann var kallaður. Það var un-
un og yndisleg minning að hugsa
um, þegar þessir ríflega 90 ára
menn breyttust í tvítuga stráka á
augabragði og umræðuefnið var
fólk frá þeirra samtíð og talsverð-
an áhuga höfðu þeir á „stelpun-
um“ sem þeir höfðu verið samtíða
um og eftir ferminguna.
Í mörg ár hafa þau búið saman
Lalli og Kristín Gísladóttir í
Hvassaleiti 56-58 í Reykjavík.
Þangað var gott að koma og tóku
þau alltaf höfðinglega á móti
gestum. Kristín er ættuð vestan
úr Dalasýslu og við kynni er hún
hlý og skemmtileg manneskja.
Við hjónin höfðum fyrir sið sein-
ustu árin sem við rákum fyrir-
tækið Frum að bjóða þeim Lalla,
Kristínu og Halla, bróður Lalla, í
bollukaffi á bolludaginn og eigum
góðar minningar um þær sam-
verustundir enda margt spjallað
og mikið hlegið.
Núna þegar vorið og sólin
kveikja lífið og litina í náttúrunni
kveð ég Lalla föðurbróður minn
og vona að litirnir hinum megin
taki á móti honum enn fegurri og
bjartari en hér eru. Kveð ég hann
og þakka af öllu hjarta og með
söknuði fyrir hverja þá stund sem
við áttum saman.
Við Gunnhildur vottum ástvin-
um okkar dýpstu samúð.
Meira: mbl.is/andlat
Finnur Eiríksson.
Kæri Lárus, öldungurinn sem
var svo meðvitaður, góður og hlýr
frá því að ég kynntist honum fyrir
átta árum.
Ætíð var hann prúðbúinn og
þá sérstaklega á hátíðarsamkom-
um, sem hann lét ekki fram hjá
sér fara, sem haldnar voru í
Hvassaleiti, þar sem hann bjó.
Heppin var ég fyrir rúmu ári að
ég bauð honum upp í dans og
kunni hann sporin og höfðum við
ánægju af.
Hans yndislega Kristín vin-
kona mín bauð mér oft í kaffi og
sat Lárus ætíð í boðinu og voru
þessar stundir góðar með þessum
aldna manni. Það er ætíð gott og
til eftirbreytni að heyra hvað
svona ernir öldungar geta frætt
mann um lífið og um það sem
stendur upp úr, þrátt fyrir allt og
allt. Þá spurði ég hann að þessu
því alltaf er gaman að vita meira
um gildi lífsins. Þá sagði hann
þessa setningu sem ég ætla mér
að muna.
Svar hans var: „Kærleikur-
inn.“ Ég kem því hér áleiðis.
Blessuð sé minning elsku Lár-
usar og ég bið góðan Guð að
styrkja vinkonu mína Kristínu.
Ingibjörg
Leifsdóttir.
Lárus Sigfússon
✝ Erla Víglunds-dóttir fæddist 4.
september 1944 í
Reykjavík. Hún lést
9. maí 2020 Reykja-
vík.
Foreldrar hennar
voru Víglundur
Kristjánsson frá
Miklaholtsseli, f. 8.
nóv. 1908, d. 28. jan.
1981 í Reykjavík,
verslunarmaður og
fornsali í Reykjavík, og Svava
Jónsdóttir húsfreyja, f. 6. júní
1918 í Reykjavík, d. 30. sept.
1995 í Vestmannaeyjum.
Systkini Erlu eru: Hrefna, f.
7.5. 1947 í Reykjavík, listmálari
í Kópavogi; Kristín, f. 7. 8.
1948 í Reykjavík, d. 10.12.
sama ár; Hafdís, f. 2.6. 1950 í
Reykjavík, d. 9.3. 1952; Víg-
lundur Þór, f. 5.11. 1954 í
Reykjavík, leiðsögumaður í
Reykjavík. Einnig átti Erla
Sigurður Vignir, f. 21.3. 1964,
verkamaður, sjómaður og
kokkur í Reykjavík. 2) Vilborg,
f. 23.11. 1965, verkakona í
Vestmannaeyjum, gift Sigmari
Þresti Óskarssyni, f. 24.12.
1961, sjómanni í Vestmannaeyj-
um. Börn þeirra eru: Friðrik
Þór, f. 30.9. 1989, maki Jenný
Skagfjörð Einarsdóttir, f. 9.2.
1991, og eiga þau tvö börn, Ar-
on Gauta og Helenu Vilborgu.
Erla Rós, f. 2.11. 1996, maki
Magnús Örn Möller, f. 17.4.
1990. Daníel Már, f. 26.4. 2000,
maki Sigríður Viktorsdóttir, f.
25.10. 1998. Andri Snær, f.
23.11. 2004.
Erla ólst upp í Reykjavík og
lengst í Árbæjarhverfi. Árið
1964 flutti hún til Vestmanna-
eyja þar sem hún bjó lengst af
á Áshamri 4. Í Eyjum byrjaði
Erla að vinna í Ísfélagi Vest-
mannaeyja 1967 og vann þar í
yfir 30 ár. Erla var einnig virk-
ur félagi í Sinawik.
Útför Erlu fer fram í kyrr-
þey frá Landakirkju í Vest-
mannaeyjum.
hálfbróður sam-
feðra sem hét
Árni Lárus, f.
28.12. 1938, d.
15.8. 1998. Sam-
mæðra eru Sig-
urður Ingi Vignir
Kristjánsson, sjó-
maður í Reykja-
vík, f. 3.7. 1938,
d. 9.8. 1963, og
Guðjónía Bjarna-
dóttir, f. 15.12.
1939.
Erla giftist 30. maí 1965
Friðriki Helga Ragnarssyni
vörubifreiðastjóra, f. 12.2.
1941. Foreldrar hans: Ragnar
Axel Helgason, f. 20.2. 1918, d.
27. jan. 1995, skipstjóri og lög-
reglufulltrúi í Vestmannaeyj-
um, og kona hans Vilborg Há-
konardóttir húsmóðir, f. 1.6.
1917, d. 3.4. 1995, frá Nýja-
Bjargi í Höfnum.
Börn Erlu og Friðriks: 1)
Stundum lendum við í þeirri
stöðu í lífinu að veruleikinn er
okkur óbærilegur. Mamma
kvaddi okkur í faðmi fjölskyldunn-
ar. Það var og verður dýrmætt að
hafa getað verið hjá henni síðustu
stundirnar. Hún fann fyrir kær-
leika, umhyggju okkar til sín. Við
söknum þín, elsku mamma mín.
Veröld okkar hrundi þegar þú
veiktist. Sá tími sem fylgdi var
þrunginn kvöl, örvæntingu og
sorg.
Einhvers staðar, einhvern tím-
ann aftur.
Mamma var ekki mikið fyrir
sviðsljósið, en mamma, amman,
var í sínu sviðsljósi sem var fjöl-
skyldan hennar. Hún var hennar
sviðsljós.
Hvað er ást og hvað er svar?
Og hvernig geymist allt sem var?
Mundu að hvar sem hjartað slær,
hamingjan er oftast nær.
Mamma var ekki að flækja at-
vinnumálin, að minnsta kosti
skipti hún ekki oft um starfsvett-
vang. Stóð vaktina í Ísfélagi Vest-
mannaeyja í 39 ár. En eins og allar
sætar stelpur vann hún í sjoppu,
pabbi hitti mömmu þar. Pabbi var
alveg sjúkur í pulsur á þeim tíma,
og auðvitað mömmu.
Lífið heldur áfram, við verðum
að líta fram á veginn, þó svo að
mamma sé ekki lengur hjá okkur.
En minningarnar lifa; einhvers
staðar, einhvern tímann aftur.
Guð gefi okkur æðruleysi
til að sættast við það sem við
fáum ekki breytt,
kjark til að breyta því sem við
getum breytt
og vit til að greina þar á milli.
Sjáumst, mamma.
Sigurður Vignir Friðriksson.
Elskulega mamma mín. Ég átti
ekki von á því að kveðja þig svona
snöggt, en lífið er óútreiknanlegt
og við höldum áfram að trúa á lífið.
Ég mun sakna, því þú varst ekki
bara móðir mín, heldur einnig
besta vinkona. Man öll góðu ráðin
sem þú kenndir mér og mun
minnast allra góðu stundanna sem
við áttum saman. Takk fyrir að
vera elskuleg amma.
Mamma, ertu vakandi mamma mín?
Mamma, ég vil koma til þín.
Ómamma, gaman væri að vera stór.
Þá vild’ ég stjórna bæði hljómsveit og
kór.
Mamma, þú ert elskuleg mamma mín,
mér finnst gott að koma til þín.
En mamma, áðan dreymdi mig draum
um þig.
En datt þá fram úr og það truflaði mig.
Mamma, þú ert elskuleg mamma mín,
mér finnst gott að koma til þín.
En mamma, gaman væri að vera stór.
Þá vild’ ég stjórna bæði hljómsveit og
kór.
Þín dóttir,
Vilborg.
Elsku amma/langamma.
Ég trúi því ekki að þú sért farin
frá okkur.
Þú varst svo ótrúlega góð
amma og vinkona okkar allra. Það
var alltaf jafn gaman að kíkja í
heimsókn á Ásaveg 2 eða Ásham-
ar 4 og ef það var ekki til eitthvert
góðgæti var afi sendur í bakaríið
eftir bakkelsi eða að ná í íspinna.
Það skein svo í gegn hvað þér þótti
vænt um okkur öll, við vorum allt-
af í miklum samskiptum og vorum
farin að nota Snapchat til að
spjalla eftir að ég flutti í Kópavog-
inn. Við vorum dugleg að spjalla
saman og þú hafðir svo mikinn
áhuga á því hvað við vorum að
bralla með Aron Gauta og Helenu
Vilborgu og vildir alltaf vera að fá
myndir af þeim til að setja á
myndavegginn. Á eftir að sakna
þess að sitja með þér í brekkunni
og raula gömlu eyjalögin, og tala
nú ekki um að hlusta á Hjálma.
Jólin og allir hátíðisdagar verða
öðruvísi án þín, að koma til Vest-
mannaeyja verður ekki eins.
Þú og afi eruð svo falleg og góð-
ar fyrirmyndir.
Ég á eftir að sakna þín elsku
amma mín, við vorum alltaf svo
góðir vinir, takk fyrir allt.
Við kveðjum þig með ást, hlýju
og söknuði.
Þinn
Friðrik Þór og fjölskylda.
Elsku tengdamamma mín, þá
er komið að kveðjustund. Þá
þakkar maður fyrir allar góðu
stundirnar sem við áttum saman.
Við Vilborg byrjuðum snemma að
vera saman og ég fann alltaf fyrir
hlýju frá þér með þann ráðahag.
Þótt þú hneykslaðist oft á öllum
dellunum mínum gegnum árin,
Erla mín, held ég að það hafi verið
skiljanlegt. Þegar við Vilborg
þurftum á pössun að halda vissi
maður alltaf að börnin okkar væru
í öruggum höndum því ást þín á
þeim var óendanleg. Þú hefðir sko
viljað vera viðstödd þegar nafna
þín eignast barn í sumar, en þú
varst bara of veik undir það síð-
asta til að ná því. En við munum
finna að þú fylgist með okkur ofan
frá „úr Sumarlandinu“.
Erlu-nafnið er mér nátengt því
báðar mömmur mínar hétu það.
Þegar maður skoðar hvað Erlu-
nafnið stendur fyrir þá sér maður
að það á vel við ykkur: „Erla er að-
laðandi, bíðlynd og afar stöðug-
lynd. Hún hefur einstaklega gott
minni og gleymir aldrei neinu.
Heimilið er henni dýrmætt og hún
leggur metnað sinn í að hafa það
sem hlýlegast. Erla er gimsteinn.“
Þinn tengdasonur,
Sigmar Þröstur Óskarsson.
Elsku Erla, besta vinkona mín,
er farin frá mér. Ég trúi ekki að ég
sé í dag að kveðja mína bestu vin-
konu í hinsta sinn, en eftir standa
fallegar minningar um yndislega
vinkonu. Erla fluttist til Eyja eftir
að hún kynntist Friðriki sínum.
Ég man eftir okkar fyrstu kynn-
um, hún með fallega síða rauða
hárið sitt, hún var eins og drottn-
ing, falleg að utan sem innan. Við
urðum strax góðar vinkonur, þar
sem eiginmenn okkar voru vinir.
Alla tíð síðan höfum við varla mátt
sjá hvor af annarri. Við fórum allt
saman; á kaffihús, á Sinawik-fundi
og hvað sem var að gerast, þá fór-
um við Erla saman. Ef við hitt-
umst ekki þá að minnsta kosti töl-
uðumst við við í síma og nú í seinni
tíð í tölvunni. Þegar við fórum í
klippingu tókum við mynd og
sendum hvor annarri, til þess að
ræða útkomuna. Það er erfitt að
ímynda sér dagana án þess að
heyra frá henni Erlu og ræða lífið
og tilveruna. Hún Erla mín var
verðmætust eðalsteina.
Elsku Friðrik, Vilborg, Sigurð-
ur og fjölskyldur, innilegar sam-
úðarkveðjur.
Gulli og perlum að safna sér,
sumir endalaust reyna.
Vita ekki að vinátta er,
verðmætust eðalsteina.
Gull á ég ekki að gefa þér
og gimsteina ekki neina.
En viltu muna að vináttan er
verðmætust eðalsteina.
(Hjálmar Freysteinsson)
Kristrún Axelsdóttir.
Erla Víglundsdóttir