Morgunblaðið - 26.05.2020, Side 24
24 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. MAÍ 2020
Rafvörumarkaðurinn við Fellsmúla | Sími: 585 2888
OPIÐ ALLA DAGA. Mán. til fös. kl. 9–18. Laugard. kl. 10–16. Sunnud. kl. 12–16
RAFLAGNAEFNI
Í MIKLUÚRVALI
50 ára Kristín er Sigl-
firðingur, er leikskóla-
kennari að mennt frá
KÍ og er aðstoðarleik-
skólastjóri Leikskóla
Fjallabyggðar.
Maki: Freysteinn Ragn-
arsson, f. 1967, vinnur
á Vélaverkstæði SR.
Börn: Svanhildur Hanna, f. 1988, Karl
Ragnar, f. 1991, og Steinar Freyr, f .1996.
Barnabörnin eru orðin fimm.
Foreldrar: Jóhanna Hlín Ragnarsdóttir, f.
1954, hárgreiðslumeistari með eigin
stofu, Rakara- og hárstofuna, á Akureyri,
og Karl Smári Magnússon, f. 1952, d.
1974. Stjúpfaðir er Karl Eskil Pálsson, f.
1957, fréttamaður á N4.
Kristín María Hlökk
Karlsdóttir
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Fylgdu málum vel eftir jafnvel þótt
þér kunni að leiðast öll smáatriði. Sinntu
því sem augljóslega þarfnast úrlausnar
strax. Þú dettur í lukkupottinn í kvöld.
20. apríl - 20. maí
Naut Einhver mun treysta þér fyrir leyndar-
máli og leita ráða hjá þér svo þú mátt vita
að orð þín hafa mikið vægi. Erfitt samtal
sem þú kvíðir mun reynast þér auðvelt.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Ef þú ert óánægður með eitthvað
skaltu líta í eigin barm og athuga hverju þú
getur breytt. Vertu á varðbergi gagnvart
sölumönnum. Þig vantar ekkert.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Það getur haft ófyrirsjáanlegar af-
leiðingar að stökkva á einhver tækifæri án
þess að hafa athugað málavexti. Mundu að
sálarró skiptir þig öllu máli.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Þér finnst þú eiga erfitt með að setja
þér markmið í lífinu. Þú ert í gleðivímu eftir
prófin og átt skilið að svetta úr klaufunum.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Að þrá er yndisleg tilfinning og að
vita hvað maður vill er jafnvel enn betra.
Þér fer fram í því að biðja aðra um hjálp.
23. sept. - 22. okt.
Vog Í dag kemur upp þetta skemmtilega
augnablik þegar þú skyndilega veist allt
sem þú þarft að vita. Einhver leitar til þín í
von um ráð.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Þú veist hvað í þér býr þótt
aðrir geri það ef til vill ekki ennþá. Taktu við
stjórninni í erfiðu máli.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Þú ert það örugg/ur að þú get-
ur hoppað í störf sem þú hefur ekki unnið
áður. Láttu þér í léttu rúmi liggja þótt þú
heyrir kjaftasögur um þig.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Veltu þér ekki upp úr gömlum
málum því öllum verða á mistök. Taktu
heimboði sem þú færð, þú sérð ekki eftir
því.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Reyndu að halda sálarrónni
hvað sem á dynur og teldu upp að tíu áður
en þú lætur nokkuð út úr þér. Margir vilja
hitta þig.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Þú heldur þig auðvitað innan þess
ramma, sem yfirmenn þínir hafa sett þér.
Vanhugsuð ummæli gætu leitt til rifrilda.
Haltu varlega áfram og búðu þig undir að
breyta um stefnu fyrirvaralaust.
skóla Austurbæjar og þaðan lá leiðin
í Menntaskólann í Reykjavík. Hann
lauk kandídatsprófi í guðfræði Há-
skóla Íslands í upphafi árs 1979.
Valdimar lagði stund á kennimann-
lega guðfræði við Union Theological
Seminary í Richmond í Virginíu í
Bandaríkjunum 1983-1985 sem lauk
með Doctor of Ministry-gráðu við
þann skóla vorið 1985. Hann stund-
aði kennaranám við HÍ veturinn
1990-1991 og lauk kennaraprófi um
vorið.
Valdimar vígðist til Reykhóla-
prestakalls í febrúar árið 1978, var
skipaður sóknarprestur í Staðar-
prestakalli á Suðureyri í Ísafjarðar-
prófastsdæmi vorið 1995 og gegndi
því kalli til ársins 2011. Hann tók
virkan þátt í félagsmálum og gegndi
margvíslegum störfum á þeim vett-
vangi. „Ég vann m.a. um árabil
ásamt Sveini Guðmundssyni í Mið-
húsum og fleirum að því brýna hags-
munamáli íbúa í Austur-Barða-
strandarsýslu að Gilsfjörður yrði
þveraður.“ Valdimar var formaður
dvalarheimilis aldraðra, Barma-
hlíðar, á Reykhólum. Hann kenndi
við grunnskólann í Stykkishólmi og
Framhaldsskóla Vesturlands 1986-
leikið mikið með mörgum leik-
félögum og hefur leiðin frekar legið
niður en hitt hvað varðar leiklistar-
frama frá uppfærslunni góðu í Gúttó
um árið.“
Nám og störf
Valdimar gekk fyrst í Háagerðis-
skóla, síðan barnaskóla Austur-
bæjar, tók landspróf við Gagnfræða-
V
aldimar Hreiðarsson er
fæddur 26. maí 1950 í
Reykjavík við bakka
Elliðaár og ól sinn aldur
til fullorðinsára í aust-
urbæ Reykjavíkur. „Á æskuheimil-
inu voru listir og bókmenntir í heiðri
hafðar,“ segir Valdimar. „Pabbi átti
gott safn listaverka eftir íslensku
meistarana og hann var vel að sér í
íslenskum bókmenntum. Meðal rit-
höfunda var Laxness í sérstöku
uppáhaldi og þar að auki var hann
vel að sér í íslenskum ljóðbók-
menntum. Hann var ósínkur á til-
vitnanir í þennan fjársjóð íslenskra
bókmennta auk þess sem hann
þekkti marga rithöfunda og ljóð-
skáld persónulega. Kunni hann
margar skemmtilegar sögur af
þeim.
Ekki var hljóðfæri á heimilinu en
þess í stað veglegur Radionette-
radíófónn. Þar var að finna gott safn
hljómplatna auk þess sem þar var
segulbandstæki og mikill fjöldi seg-
ulbandsspólna með miklu tónlistar-
efni. Á tveimur spólum voru senni-
lega meginhluti allra góðu gömlu
íslensku gamanvísnanna. Þessar
gamanvísur voru að mestum hluta
úr gömlum revíum og söngleikjum
eins og Ævintýri á gönguför og svo
auðvitað íslensku revíunum. Var
ákaflega vinsælt að hlusta á þessi
lög og ekki ofsagt að við krakkarnir
höfum kunnað mikið af þessum lög-
um utan að. Ekki var snobbað fyrir
bókmenntum og listum á heimilinu,
heldur var litið á menninguna sem
eðlilegan hluta af lífinu.
Við sáum allar stóru uppfærslur
Þjóðleikhússins á þessum hefð-
bundnu barnaleikritum. Þar að auki
sáum við fjöldann allan af leikritum
sem voru ekki fyrst og fremst ætluð
börnum. Meira að segja man ég eftir
ferðum til Hafnarfjarðar til að sjá
nýjustu Bergman-myndirnar. Rek
ég áhuga minn á leikhúsi og leik-
ritun til alls þessa. Fyrstu spor mín í
leikhúsi steig ég á sviði Gúttó við
Tjörnina. Nokkrir krakkar færðu
upp leikritið Rauðhettu. Lék ég úlf-
inn. Fullt hús var í Gúttó á sýning-
unni og óhætt að segja að hún hafi
slegið í gegn. Síðan þetta var hef ég
Valdimar Hreiðarsson, fyrrverandi sóknarprestur – 70 ára
Með foreldrum og systkinum Frá vinstri: Birna, Þórdís Jóna Sigurðar-
dóttir, Erna, Sigurður Arnór, Hreiðar Jónsson og Valdimar.
Garðyrkja í Grímsnesi og Taílandi
Hjónin Valdimar og Thanita eftir
skírn í Unaðsdalskirkju.
1990, við Menntaskólann á Ísafirði
árin 1991-1996, við grunnskólann á
Suðureyri 1996-2017 og var frétta-
ritari DV á norðanverðum Vest-
fjörðum um árabil. „Ég lagði gjörva
hönd á margt með námi, Var oft há-
seti á bát hjá Sigurði bróður mínum
auk þess sem ég stundaði margs
konar aðra sjómennsku. Þar að auki
vann ég alls konar almenna verka-
mannavinnu í landi með námi.“
Áhugamálin
„Í æsku voru helstu áhugamálin
ljósmyndun og stangveiðar og hefur
það lítið breyst. Þar fyrir utan hef
ég alla ævi verið að gutla á gítar
með takmörkuðum árangri þó, enda
var tími ekki mikill fyrir áhugamál.
Enn er ég þó að gutla á gamla
kassagítarinn.
Garðyrkja og skógrækt hafa alltaf
staðið huga mínum nærri. Á ég
spildu í Grímsnesinu og hygg gott til
glóðarinnar að gróðursetja þar trjá-
plöntur. Við hjónin dveljum nú orðið
mikið í fæðingarlandi hennar, Taí-
landi. Eigum við hús á austur-
ströndinni í grennd við Pattaya sem
er í um 150 km fjarlægð frá höfuð-
borginni Bangkok. Hér er þokka-
legur garður þar sem við ræktum
skrautplöntur, ávaxtatré og græn-
meti. Er það gefandi iðja. Hér ölum
við önn fyrir myndarlegri katta-
fjölskyldu, móður og fjórum börnum
hennar. Hef ég stundum hugsað að
ef fólk væri almennt jafn vandað í
umgengni og dýrin eru hvert við
annað svona yfirleitt væri lífið tals-
vert auðveldara. Nú var að bætast
lítill hvolpur í hópinn og mun reyna
verulega á kettina hvað varðar til-
litssemi og hófstillingu í umgengni
við aðrar dýrategundir.“
Fjölskylda
Eiginkona Valdimars er Thanita
Chaemlek, f. 12.1. 1964, hárgreiðslu-
kona frá Kanchanaburi í Taílandi.
Foreldrar hennar: Hjónin Baazer
Chaemlek múrsteinagerðarmaður,
nú látinn, og Thongbai Chaemlek, f.
1930, búsett í Taílandi. Fyrri maki
Valdimars er Eygló Bjarnadóttir, f.
22.12. 1957, ráðgjafi og prestur í
Bandaríkjunum.
40 ára Elva ólst upp
í Reykjavík en býr í
Hafnarfirði. Hún er
með MS-gráðu í sál-
fræði frá HÍ og er sál-
fræðikennari í
Menntaskólanum við
Hamrahlíð.
Maki: Gísli Hrafnkelsson, f. 1982, hug-
búnaðarverkfræðingur hjá Tempo.
Synir: Brynjar Ingi, f. 2004, Andri
Fannar, f. 2010, og Bjarki Hrafn, f.
2019.
Foreldrar: Ágúst Birgisson, f. 1957,
tæknifræðingur hjá Verkfræðistofunni
Víðsjá, og Jóhanna Hermansen, f. 1954,
skrifstofumaður hjá Öryrkjabandalaginu
og listakona. Þau eru búsett í Reykjavík.
Elva Björk
Ágústsdóttir
Til hamingju með daginn
Hafnarfjörður Bjarki Hrafn fæddist á
hádegi 20. september 2019 í Reykja-
vík. Hann vó 4.100 g og var 53 cm
langur. Foreldrar hans eru Elva Björk
Ágústsdóttir og Gísli Hrafnkelsson.
Nýr borgari