Morgunblaðið - 26.05.2020, Qupperneq 27
ÍÞRÓTTIR 27
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. MAÍ 2020
Færeyingurinn Adrian Just-
inussen hefur komið víða við í
umfjöllun íslenskra íþróttafjöl-
miðla um helgina enda kannski
ekki óeðlilegt þar sem hann setti
ótrúlegt heimsmet á sunnudag-
inn.
Hann skoraði nefnilega
þrennu úr aukaspyrnum á aðeins
átta mínútum í færeysku efstu
deildinni, sem er eiginlega lygi-
legt. Gamla serbneska kempan
Sinisa Mihajlovic átti metið áður,
gerði aukaspyrnuþrennu með
Lazio á rúmum tuttugu mínútum
árið 1998.
Frændi okkar bætti því met-
ið um einar 15 mínútur! Það er
ekki algengt að klárir auka-
spyrnusérfræðingar fái þrjár
spyrnur nálægt marki andstæð-
ings í einum og sama leiknum,
hvað þá á átta mínútum.
Íslendingurinn Heimir Guð-
jónsson þjálfaði Justinussen síð-
ustu tvö ár í Færeyjum og bar
honum vel söguna í útvarpsþætti
Fótbolta.net. Einnig sagði hann
frá því að markaskorarinn væri
viti sínu fjær af flughræðslu og
hefði hreinlega afboðað sig í
verkefni erlendis hennar vegna.
Hollendingurinn fljúgandi,
Dennis Bergkamp, einn besti
framherji allra tíma, er sennilega
frægasta dæmið um sparkvissan
en flughræddan knattspyrnu-
mann. Sá þurfti að skreiðast
með öðrum, hægari samgöngum
í stóra Evrópuleiki með Arsenal á
sínum tíma og stundum missti
hann hreinlega af þeim.
Justinussen er þó að reyna
að vinna bug á hræðslunni sam-
kvæmt Heimi og vonandi tekst
honum það. Þessi 21 árs gamli
framherji mun að öllum líkindum
fá að reyna fyrir sér í stærri deild
með betra liði, haldi hann áfram
uppteknum hætti. Kannski í Val?
BAKVÖRÐUR
Kristófer
Kristjánsson
kristoferk@mbl.is
KR
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Körfuknattleiksdeild KR gekk í gær
frá ráðningu á þjálfurum meistara-
flokksliða KR sem bæði leika í efstu
deild á Íslandsmótinu. Darri Freyr
Atlason tekur við karlaliðinu og
Spánverjinn Francesco Garcia við
kvennaliðinu. Gera þeir báðir tveggja
ára samning við KR.
Darri lék með KR upp yngri flokka
og upp í meistaraflokk. Hann þjálfaði
yngri flokka hjá KR og meistaraflokk
kvenna áður en hann tók við kvenna-
liði Vals eins og frægt er orðið.
Með ráðningu Darra er yngt mjög
upp í starfsliðinu þar sem Darri er
einungis 26 ára gamall eða verður 26
ára á annan í hvítasunnu. Ýmis dæmi
eru um að ungir þjálfarar sem aldir
eru upp hjá félaginu hafi fengið tæki-
færi til að taka við karlaliði KR í körf-
unni. Má þar nefna Einar Bollason,
Benedikt Guðmundsson, Inga Þór
Steinþórsson, fráfarandi þjálfara, og
Finn Frey Stefánsson.
„Ég tek við KR-liðinu af auðmýkt.
Það var magnað að ganga inn í salinn
í fyrsta skipti sem þjálfari KR eftir að
hafa sett blek á blað. Ábyggilega
verður það enn þá magnaðra þegar
hægt verður að spila körfubolta. Í lið-
inu eru leikmenn sem ég ber mikla
virðingu fyrir. Leikmenn sem ég ólst
upp með og leikmenn sem ég fylgdist
með sem áhorfandi. Sumir þeirra
voru stjörnur þegar ég var að alast
upp,“ sagði Darri meðal annars þegar
Morgunblaðið ræddi við hann í gær.
Horfir fram á við
Böðvar Guðjónsson, formaður
körfuknattleiksdeildar KR, hefur
staðið í ströngu að undanförnu en
stjórnin ákvað að segja Inga Þór
Steinþórssyni upp störfum sem þjálf-
ara karlaliðsins og var það gert á
fundi 6. maí. Skömmu síðar var til-
kynnt að Benedikt Guðmundsson
væri einnig á förum frá félaginu en
hann lét af störfum sem þjálfari
kvennaliðsins skömmu eftir að Ís-
landsmótinu var aflýst.
„Ég er mjög glaður yfir því að búið
sé að koma því í loftið að hér sé komið
nýtt þjálfarateymi hjá KR. Það er
gott að vera búinn að þessu. Þá get-
um við horft fram á við og skipulagt
okkur fyrir næsta vetur. Með Darra
kemur ný kynslóð í þjálfarateymið og
Brynjar er þannig séð kornungur líka
og verður yfirþjálfari. Garcia er að-
eins eldri og hokinn af reynslu. Ég er
mjög spenntur fyrir því að fá hann
inn í félagið,“ sagði Böðvar á blaða-
mannafundinum í Frostaskjóli í gær
en Brynjar Þór Björnsson verður
yfirþjálfari yngri flokka.
Spurður um ástæður þess að
stjórnin sagði Inga upp störfum sagð-
ist Böðvar ekki ætla að ræða það
opinberlega. „Það voru bara ástæður
fyrir því sem ég ætla ekki að fara
neitt út í. Það er prívatmál eða innan-
hússmál. Þetta varð niðurstaðan,“
sagði Böðvar.
Hefur víða þjálfað
Eftirmaður Benedikts, Francesco
Garcia, virðist áhugaverður kostur
þegar ferill hans er skoðaður. Sá
spænski hefur þjálfað í efstu deild
kvenna í heimalandinu en einnig
þjálfað í efstu deildum í Finnlandi og
Danmörku. Þá hefur hann haft mikla
aðkomu að landsliðum í kvennaflokki.
Stýrði landsliði Indlands, U14 ára liði
Spánar og var aðstoðarþjálfari U18
ára liðs Spánar.
„Þetta er ný áskorun fyrir mig. Ég
hef reyndar verið á Íslandi í hálft ár
en síðustu tvo mánuðina eða svo hef-
ur blundað í mér að snúa mér aftur að
meistaraflokksþjálfun. Formaðurinn
[Böðvar] hringdi í mig í síðustu viku
og við náðum samkomulagi,“ sagði
Garcia en eins og hjá karlaliðinu eru
leikmannamálin ekki komin á hreint.
Ljóst er þó að Hildur Björg Kjart-
ansdóttir verður með Val og Daniella
Rodriguez segist ætla að snúa sér al-
farið að þjálfun hjá Stjörnunni.
„Formaðurinn tjáði mér að leik-
mennirnir sem eftir væru væru
samningsbundnir. Við erum að mínu
mati með hóp af góðum leikmönnum.
Hildur er auðvitað farin og við eigum
eftir að ná í erlenda leikmenn áður en
við setjum saman sterkt og sam-
keppnishæft lið.“
Þjálfaramál KR frágengin
Veðjað á ungan mann hjá körlunum eins og stundum áður Öllu reyndari
þjálfari tekur við kvennaliðinu Ástæður uppsagnar Inga eru innanhússmál
Morgunblaðið/Eggert
Þjálfararnir Francisco Garcia og Darri Freyr Atlason takast í hendur á fundinum í gær.
KR
» Darri Freyr Atlason tekur við
karlaliðinu af Inga Þór Stein-
þórssyni.
» Francisco Garcia tekur við
kvennaliðinu af Benedikt Guð-
mundssyni.
» Brynjar Þór Björnsson, leik-
maður KR, verður yfirþjálfari
yngri flokka.
Knattspyrnumaðurinn Rúrik Gísla-
son fær ekki að æfa með liði sínu í
Þýskalandi, Sandhausen, í kjölfar
þess að hann neitaði að lækka laun
sín þegar óskað var eftir því við
leikmenn liðsins. Þetta kom fram í
hlaðvarpsþættinum Dr. Football og
mbl.is hefur staðfestar heimildir
fyrir því að þetta sé staðan. Haft
var samband við Rúrik en hann
kvaðst ekkert geta tjáð sig um mál-
ið í bili. Samningur Rúriks við fé-
lagið rennur út í lok júní en hann
kom til Sandhausen í ársbyrjun
2018 frá Nürnberg.
Rúrik fær ekki að
æfa með liðinu
Ljósmynd/svs1916.de
Sandhausen Rúrik Gíslason kom til
félagsins í janúar 2018.
Körfuknattleiksdeild Ungmenna-
félags Álftaness hefur framlengt
samning sinn við Hrafn Kristjáns-
son, þjálfara meistaraflokks karla,
en hann hefur stýrt liðinu síðustu
tvö tímabil. Hrafn, sem vann bikara
með bæði KR og Stjörnunni, kom
liði Álftaness upp úr 2. deildinni og
var liðið búið að tryggja sér sæti í
úrslitakeppni um sæti í úrvalsdeild-
inni áður en Íslandsmótinu var af-
lýst vegna kórónuveirunnar í vetur.
Stjarnan og Álftanes hafa einnig
aukið samstarf sitt en nánari um-
fjöllun er á mbl.is.
Hrafn verður
áfram á Álftanesi
Morgunblaðið/Eggert
Álftanes Hrafn Kristjánsson stýrir
liðinu þriðja veturinn í röð.
„Skrokkurinn er enn í fínu lagi. Erfitt er að segja til um
hversu mörg ár maður á eftir í atvinnumennskunni en
líkamlega er ég sennilega betur á mig kominn en þegar
ég var tvítugur,“ sagði Gylfi Þór Sigurðsson þegar
heimasíða Everton ræddi við hann en nýlega fengu leik-
menn liðsins að koma saman til æfinga á æfingasvæði fé-
lagsins. Gylfi missti úr tvo leiki í janúar vegna nára-
meiðsla sem reyndust ekki alvarleg og á honum má
heyra að hann sé vel á sig kominn.
„Ég hef enn metnað til að bæta mig og spila í þessum
gæðaflokki. Ég hef reynt að halda mér uppteknum eins
mikið og hægt er og gera gott úr hverjum degi. En þrátt
fyrir að ég hafi æft vel hafa þessar níu vikur verið ansi langar,“ sagði Gylfi
en níu vikur eru síðan keppni var frestað á Englandi.
Afar gott hljóð í Gylfa
Gylfi Þór
Sigurðsson
Arnar Guðjónsson þjálfari og Ingi Þór Steinþórsson að-
stoðarþjálfari virðast ekki ætla að veðja eingöngu á
reynda menn hjá Stjörnunni á Íslandsmótinu í körfu-
knattleik næsta vetur. Stjarnan nældi í gær í tvo ung-
lingalandsliðsmenn frá Vestra. Þar er raunar um tví-
bura að ræða, Hilmi og Huga Halldórssyni, sem eru 196
og 199 cm á hæð. Stjarnan greindi frá þessu á sam-
félagsmiðlum í gær.
Þrátt fyrir að vera einungis 18 ára hafa þeir látið
verulega að sér kveða með Vestra í næstefstu deild síð-
ustu tvö tímabil en Vestri hefur verið í baráttunni í efri
hluta deildarinnar.
Vestri hefur einnig misst bakvörðinn Nebojsa Knezevic frá sér en hann
gekk í raðir Skallagríms fyrir skömmu.
Tvíburarnir í Garðabæinn
Arnar
Guðjónsson
Guðrún Jenný Sigurðardóttir og
Karen Birna Aradóttir hafa haft fé-
lagaskipti úr Fjölni í Hauka í hand-
boltanum og verða á Ásvöllum í
efstu deild Íslandsmótsins næsta
vetur. Haukar tilkynntu félaga-
skiptin á samfélagsmiðlum í gær og
þar kemur fram að þær geri
tveggja ára samning við félagið.
Guðrún Jenný er 23 ára línumað-
ur, uppalin í Fram en hefur und-
anfarin ár verið lykilmaður í liði
Fjölnis. Á síðasta tímabili var hún
markahæðsti leikmaður liðsins.
Karen Birna er 22 ára markmað-
ur sem hefur verið aðalmarkvörður
Fjölnis undanfarin ár.
Fjölnir missir því tvo leikmenn
frá sér á einu bretti en liðið er nú
sameinað Fylki og kemur sameig-
inlegt lið félaganna til með að leika
í næstefstu deild.
Í síðasta mánuði var tilkynnt að
Gunnar Gunnarsson tæki við liði
Hauka af Árna Stefáni Guðjónssyni.
Karen Birna
Aradóttir
Guðrún Jenný
Sigurðardóttir
Haukar fá tvo
leikmenn úr
Grafarvogi